Tíminn - 05.09.1973, Qupperneq 8

Tíminn - 05.09.1973, Qupperneq 8
8 TÍMINN Miftvikudagur 5. september 1973 Útfluttar skinnavörur og kjötafurðir fara nær eingöngu til Þýzkalands og Norðurlanda Rætt við Böðvar Valgeirsson, forstöðumann skrifstofu SIS í Hamborg A KEKÐ minni i Þýzkalandi siAustu mánuAi notaði ég tæki- færið og heimsótti skriistolu Sambands isl. samvinnufélaga I llamborg, sem hefur verið starf- rækt þar um nokkurt árabil — allt siðan 1957. Skrifstofan cr i mifthverfi stórhorgarinnar, rúm- góft og vistleg, vel staösett meö lilliti til viöskipta, aö Steindamm 91. Böðvar Valgeirsson, áður fulltrúi hjá Sjávarafurðadeild Sambandsins, veitir skrifstofunní forstöðu og hefur gert nú um tveggja ára skeið. Þar sem ég haföi áhuga á að kynnast starf- seminni, spurði éghann nokkurra spurninga, sem fara hér á eftir: — í hverju er starfsemi skrif- stofunnar fólgin I stórum drátt- um? — Markmiðið með rekstri skrif- stofunnar er aö annast milligöngu á útflutningi Sambandsins til Þýzkalands og Norðurlanda. 1 öðru lagi er skrifstofunni ætlað aö aöstoða við innflutning fyrir hinarýmsu deildir Sambandsins. Verömæti þess útflutnings sem fór I gegnum skrifstofuna á sfðasta ári nam um 11 milljónum marka, og innflutningurinn nam um 3 milljónum marka. — Ilvaö viltu segja um markaös- horfur fyrir okkar útflutningsaf- uröir i Þýzkalandi og á Noröur- löndum? — Gæðalega séð höfum við góöa möguleika á að selja okkar fram- leiðsluvörur. Skinnavörurnar fara svo til eingöngu á þessa markaði.og það sama er að segja um kjötafurðirnar. Fiskút- fiutningur okkar Islendinga beinist hins vegar i aðrar áttir,þö að það stafi ekki af gæðaskorti. — Ilvcr er ástæöan fyrir þvi,aö fiskafuröirnar komast ekki á markaö i Þýzkalandi og á Noröurlöndum? — Það er of mikið sagt, að þetta nái til allra okkar fiskafurða. Verulegur hluti af rækjunni okkar fer t.d. til Noregs og Sviþjóðar. Nú, svo eru það grásleppu- hrognin, sem fara svo til ein- göngu til Þýzkalands og Dan- merkur. Auk þess fara þorsk- hrognin aðallega til Danm'erkur og Sviþjóðar. Þetta eru ekki stórir liöið.þegar borið er saman við heildar fiskútflutninginn, en allt hjálpar þetta til að gera landið okkar lifvænlegt. Það er varla ha að segja, að aðrar fiskafurl fari á þessa markaði, þó aö þ; _ itomi fyrir af og til, aö fiskblokkir seljist til Þýzkalands. — Er von til þess að þetta geti breytzt i náinni framtiö, t.d. meö tilkomu samnings islands viö Efnahagsbandalagið? — Ég er ekki trúaður á, að samningurinn sem slikur hafi nein úrslitaáhrif á næstunni, ég tala nú ekki um, áður en hann tek ur gildi. I samningnum er gert ráð fyrir, að tollar á fiskafurðum lækki eða falli niöur á íi árum. Þetta þýöir.að tollalækkanirnar verða ekki það miklar fyrstu árin, að þær geti haft veruleg áhrif á markaösstefnuna i heild. Auk þess er freðfiskur af þeim gæðaflokki, sem við flytjum út, þ.e. fyrsta flokks beinlaus flök, ekki eins verðmikil i Þýzkalandi og i Bandarikjunum, þar sem svo til allur okkar freðfiskur er seld- ur í dag. Hins vegar gæti hin óstöðuga gjaldeyrisstaða i heim- inum haft einhver tímabundin áhrif, þó þess hafi ekki gætt hingað til. Til dæmis hafa hinar miklu hækkanir á þorskblokk i Bandarikjunum undanfarna mánuði gert mun meira en að vega upp á móti verölækkun dollarans. — Hefur ekki dregiö úr innflutningi islands frá Þýzka- landi vegna hinna stööugu hækkana á gengi marksins? — Þess hefur varla gætt ennþá sem komið er, nema þá helzt I bílainnflutningnum. Enda er það þannig, að flestar þær þýzku vörur, sem Islendingar kaupa, eru i háum gæðaflokki, og flest eru þetta vörumerki, sem oröin eru þekkt af islenzkum neytend- um. Það tekur þvi nokkurn tima að finna ódýrari merki af svipuð- um gæðaflokki til þess að taka við. — Hvernig er efnahagsástandiö i Þýzkalandi almennt? — Stjórnin I Bonn hefur átt I miklum erfiðleikum meö að halda verðbólgunni niðri. Undanfarna mánuöi hafa verið gerðar viðtækar ráðstafanir til þess að draga úr þenslunni i landinu. Gripið hefur verið til auka fjár- festingaskattlagningar, svo eitthvaö sé nefnt, nú svo að ógleymdum gengishækkununum, þó að þær eigi sér reyndar aðrar orsakir lika. Allar þessar ráö- stafanir hafa stefnt aö þvi að minnka framleiðsluna i landinu. Ahrifa þessara ráðstafana hefur varla gætt að ráði enn sem komið er. Framleiðslufyrirtækin eru ennþá bókuö langt fram i timann, og atvinna er nóg i landinu. Þaöersamtástæða til að ætla, að áhrifanna taki að gæta i byrjun næsta árs, og sumir eru svartsýnir. I landinu eru um 3 milljónir af erlendu verkafólki, eða yfir 10% af vinnubæru fólki. Minnkandi framleiðsla hlýtur að leiða til minni eftirspurnar eftir vinnuafli, fyrr eöa siðár. Erfitt getur reynzt að visa þessu fólki úr landi umsvifalaust, þar sem sumt af þvi er búið aö vera mörg ár ilandinu og telur sig eiga sinn þátt i velgengni undanfarinna ára. Það er þvi eðlilegt,að margir séu hér uggandi um framtiðina. — Hvernig hefur þér likað dvölin i landinu? — Þetta hefur verið ágætis skóli. Það má mikið af Þjóðverjum læra. Þetta eru dugnaðarforkar, sem hafa barizt áfram, kannske ætlað sé full mikið stundum og fengið að kenna á þvi. Ég held að Islendingar hafi einnig gott af þvi að kynnast öðrum þjóðum og stækka þannig sjóndeildar- hringinn. Það ættu sem flestir að gera.ef þess er kostur. Fyrir nokkrum árum var t dagsins önn á skrifstofunni. ráðizt i það að kaupa ibúöarhús til afnota fyrir framkvæmdastjóra skrifstofunnar á góöum stað i Hamborg. Þaö var vel ráðið, þvi nú eru mikil húsnæðisvandræði i borginni og leiguhúsnæði mjög dýrt eða næstum ófáanlegt. Þaö var ánægjulegt aö kynnast Böðvari, fjölskyldu hans og starfsfólki, og með þakklátum huga kvaddi ég,fullviss um að is- lenzkir samvinnumenn ættu þarna góða fulltrúa starfandi á erlendri grund. Böövar Valgeirsson, framkvæmdastjóri skrifstofu SIS I Hamborg, ásamt fjölskyldu. Óiafur E. Ólafsson. Nýr myndalisti Biðjið um nýja myndlistann okkar yfir sófasettin, borðstofuhúsgögnin og svefn- herbergissettin. Hringið i sima 22900 eða 21030 eða skrifið til landsþjónustudeildar okkar. Viðlagasjóður auglýsir Hinn 20. október n.k. hefjast greiðslur bóta fyrir hús, sem eyðilagzt hafa við eld- gosið i Vestmannaeyjum. Þeir húseigendur, sem telja sig eiga rétt til þessara bóta, útfylli eyðublað þar um og sendi skrifstofu sjóðsins i Reykjavik, i siðasta lagi 20. sept. n.k. Eyðublöðin fást á skrifstofum sjóðsins i Reykjavik og Vestmannaeyjum og hjá Bæ jarskrifstofum V estmannaeyjakaup- staðar. Þeir er þess óska, geta fengið eyðublöðin send i pósti. Viðlagasjóður.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.