Tíminn - 05.09.1973, Page 16
16
TÍMINN
Miðvikudagur 5. september 1973
iUmsjón: Alfreð Þorsteinsson
Islenzka
landsliðið til
fyrirmyndar
í Hollandi
Stundum heyrist kvartað
undan þvi, að Iþróttaflokkar,
sem eru f keppnisferðalagi,
hegði sér ekki sem bezt. Það
er þvi sérstakt ánægjuefni að
geta skýrt frá þvi, að islenzka
landsliðið í knattspyrnu, sem
var I Hollandi fyrir skemmstu,
fékk sérstakt orö fyrir prúö-
tnannlega framkomu á hóteli
þvi, sem liðiö dvaldist á, Hotel
Palace I Noorwijk. Sagði
liótcleigandinn, sem er einn af
frammámönnum Ajax, að
ísienzki knattspyrnu-
flokkurinn væri sá bezti, sem
hann hefði haft á sinu hóteli og
framkoma isl. piltanna hcfði
veriö til fyrirmyndar I alla
staði. Leysti hann þá út með
smágjöfum af þessu tilefni.
Að sjálfsögðu er þaö mikið
undir fararstjórum komiö,
hvernig tekst til. Aðalfarar-
stjóri i þessari för var Albert
Guðmundsson, en hann var
einnig fararstjóri með
islenzka landsliðinu til Belgiu i
fyrra, og var framkoma pilt-
anna einnig þá til mikillar
fyrirmyndar.
HVAÐ SEGJA
DÓMARAR UAA
SVONA MARK?
Þcssi mynd var tekin rétt áöur
cn Keflvikingar skoruðu sitt
þriðja og siöasta mark i leiknum
gegn KR, sem jafnframt var úr-
slitamark leiksins. Eins og sést á
myndinni,hefur markvörður KR,
Guðmundur Pétursson, gómaö
knöttinn með annarri hendi, og
bakvörður KR, Stefán Sigurðs-
son, hefur báða fætur til varnar
þvi, að knötturinn fari inn fyrir
1 iiin. Engu að siöur hefur Einar
Gunnarsson, Keflavik, sem situr
við marklínuna, fagnað marki.
En þaö er ekki þetta, sem
skiptir máli, heldur hitt, að Guðni
Kjartansson, sem greina má á
bak við KR-ing no G, er á fullri
ferö i átt að marki, en hann
spyrnti knettinum úr hendi Guð-
mundar I mark. Þessu mótmæltu
KR-ingar, en dómarinn, Ragnar
Magnússon, taldi markið löglegt.
En hvað segja dómarar almennt?
Er löglegt að spyrna knettinum á
þennan hátt frá markverði i
mark?
(Timamynd Gunnar).
BLÓMLEG STARFSEMI
FÉLAGS ÍÞRÓTTAKENNARA
— dr. Ingimar Jónsso
Aðalfundur íþróttakennara-
félags tslands var haldinn 28.
ágúst sl. i Reykjavik. Fundinn
sóttu um 70 iþróttakennarar viös
vegar að af landinu. t skýrslu
stjórnar IKFI kom m.a. fram, að
á starfsárinu voru haldnir félags-
fundir i Reykjavik, á Selfossi og á
Egilsstöðum og tveir almennir
borgarafundir um tþróttamálefni
haldnir i Reykjavik. 1 skýrslunni
kom ennfremur, fram, að helztu
verkefni félagsins á siðasta
starfsári voru fimleikasýningin i
desembermánuði sl., sem félagið
n endurkjörinn formaður
stóðaðásamt Fimleikasambandi
tslands og tþróttakennaraþingið
á sl. vori.
Á aðalfundinum urðu miklar
umræður um ýmis félagsmál,
málefni iþróttahreyfingarinnar
og likamsuppeldi i skólum.
1 aðalstjórn tþróttakennara-
félags tslands fyrir næsta
starfsár voru kosin: Ingimar
Jónsson (formaður), Magnús
Gunnlaugsson og Ingibjörg Jóns-
dóttir og I varastjórn þau Páll
Dagbjartsson og Ragna Lára
Ragnarsdóttir.
Ellert vildi
sóknarleik
Dr. Ingimar Jónsáon, endur-
kjörinn formaður iþrótta-
kennarafélagsins.
ÞAÐ eru fleiri en Albert
Guðmundsson, sem
leggja áherzlu á sóknar-
leik. Ellert B. Schram,
þjálfari KR, hefur beðið
íþróttasiðUna að geta
þess sérstaklega, vegna
ummæla á iþróttasiðu
Timans s.l. mánudag, að
hann hafi ekki fyrir-
skipað KR að leika
varnarleik, þegar KR
hafði náð forustu i leikn-
um gegn Keflavik. Þvert
á móti hafi hann tvivegis
farið út að hliðarlinu og
gefið liðinu fyrirskipanir
um það að leika sóknar-
Ellert Schram — vildi sóknarleik.
leik, þegar hann sá, að
hverju dró. Leiðréttist
þetta hér með.
Tækninefnd
HSÍ boðar
til fundar
Tækninefnd Handknattleiks-
sambands tslands efnir til um-
ræðufundar með dómurum,
þjálfurum og liösstjórum í hand-
knattleik. Verður fundurinn
haldinn laugardaginn 8. septem-
ber að Hótel Esju og hefst kl. 16.
MEÐ
KRAFTA
A
I
KÖGGL-
UM!
Fjölmörg Islandsmet
sett á kraftlyftinga*
móti KR, sem
haldið var nýlega
Einar Þorgrimsson KR.,sem
keppir i millivigt (67 1/2—75 kg),
setti íslandsmet i bekkpressu i
sinni vigt á septembermóti KR i
kraftlyftingum.Lyftihann 150 kg,
en fyrra metið var 142 1/2 kg.
Einnig setti hann íslandsmet i
hnébeygju 210 kg. en fyrra metið
var 200 kg og loks i samanlögðu
580 kg. en fyrra metið var 562 1/2
kg.
Guðmundur Guðjdnsson KR,
sem keppir i léttþungavigt (75—82
1/2) setti tslandsmet i hnébeygju
i sinni vigt, lyfti 230 kg, en fyrra
metið var 225 1/2 kg.
Óskar Sigurpálsson, Ar-
manni, sem keppir i þungavigt
(90—110 kg) setti íslandsmet I
réttstöðulyftu i sinni vigt, lyfti 292
1/2 kg, en fyrra metiö var 290 kg
og auk þess setti hann íslandsmet
I samanlögðu 730 kg, en fyrra
metiö var 707 1/2 kg.
Mótið var haldið laugardaginn
1. september.
Iriiinl