Tíminn - 07.09.1973, Blaðsíða 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SÍMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
Hálfnað
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Tillaga forsætisráðherra einróma samþykkt á Hallormsstaðarfundinum:
Frekari ásiglingar Breta
þýða slit stjómmálasambands
Fordæmi A-bandalagið ekki njósnaflug Breta, hljóta íslendingar að endurskoða afstöðu sína
TK—Reykjavik. — Á
sameiginlegum fundi
þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar
Framsóknarflokks-
ins, sem haldinn var á
Hallormsstað nú i vik-
unni, flutti Ólafur Jó-
hannesson forsætis-
ráðherra, tiliögu um,
að þvi verði lýst yfir
við Breta, að eigi sér
stað fleiri ásiglingar
af þeirra hálfu, muni
þeim tilkynnt slit
stjórnmálasambands
islands og Bretlands.
Jafnframt var i tillög-
unni skorað á Nato að
fordæma njósnarflug
brezku Nimrod-þot-
anna hér við land og
þvi lýst yfir, að yrði
það ekki gert, myndu
íslendingar taka af-
stöðu sina til banda-
lagsins til endurskoð-
unar. Tillagan var
samþykkt einróma á
fundinum.
Timinn átti tal við ólaf Jó-
hannesson forsætisráðherra i
tilefni af þessari samþykkt.
Sagði Ólafur, að hér væri um
að ræða lið i þeim gagnráð-
stöfunum.sem hann hefði boð-
aö að gripið yrði til, ef Bretar
héldu áfram ofbeldi sinu hér
við land. Þessi ályktun þing-
flokks og framk-væmdastjórn-
ar Framsóknarflokksins verð-
ur lögð fyrir >-ikisstjórnarfund
á þriðjudaginn.
Nú hefur Nato svarað kæru
okkar vegna flugs Nimrod-
þotanna brezku hér við land,
sem stunda njósnarstarfsemi
til stuðnings ofbeldisaðgerð-
um Breta gegn okkur, á þann
veg, að þetta flug sé ekki á
vegum Atlantshafsbandalags-
ins og þvi óviðkomandi. Þetta
flug sé algerlega á vegum
Breta og á þeirra ábyrgð. Við
hljótum samt að krefjast þess,
að aðildarþjóðir bandalagsins
fordæmi þetta njósnarflug,
sem beinist gegn hagsmunum
okkar, ella hljótum við að taka
afstöðuna til Nato til endur-
skoðunar.
Þessar flugvélar hafa notið
fyrirgreiðslu og leiðsagnar
flugumsjónar á íslandi. Fyrir
þá fyrirgreiðslu verður nú tek-
ið og mun verða gengið endan-
lega frá þvi máli i rikisstjórn-
inni á þriðjudaginn. — Sjá
nánar ritstjórnargrein á bls.9 .
BONN!
Samningafundirnir með Þjóð-
verjunum hafa staðið i allan dag
og það er svona heldur vinsam-
legur blær yfir þessu. Við höfum
haldið áfram að ræða tiliögur
þeirra og þær gagntillögur, sem
við lögðum fram núna. Ennþá
höfum við ekki komizt að neinni
niðurstöðu, en samningafundun-
um verður haldið áfram i fyrra-
málið, sagði Einar Ágústsson, ut-
anrikisráðherra, I gærkvöldi þeg-
ar Timinn hafði samband við
hann I Bonn, eftir að samninga-
fundunum lauk í gær.
— Við borðuðum hádegisverð
með Willy Brandt kanzlara i dag
og hann sýndi landhelgisdeild-
unni mikinn áhuga. Kanzlarinn
lýsti ánægju sinni með það, að is-
lenzk sendinefnd væri stödd i
Bonn til að ræða þetta vanda-
sama mál og lýsti persónulegum
áhuga sinum á þvi, að samninga-
nefndunum tækist að komast að
sameiginlegri hagstæðri niður-
stöðu. Taldi kanzlarinn, að það
væri aðallega þrennt, sem yrði að
hafa i huga i þessu sambandi.
1 fyrsta lagi yrði að ræða laga-
legu hliðina. t öðru lagi þörf Þjóð-
verja fyrir fiskveiðar og fisk-
neyzlu og siðast en ekki sizt,
hversu mjög íslendingar væru
háðir fiskveiðum. Taldi kanzlar-
inn að samningarnir yrðu að vera
gerðir með hliðsjón af þessum
þrem atriðum.
Strax að loknum hádegisverð-
arfundinum með Brandt hófust
hinir eiginlegu samningafundir
samninganefndanna. Einar Ag-
ústsson vildi ekki að svo stöddu
gera grein fyrir þvi, hvað hefði
falizt I þeim tilboðum, sem þar
voru lögð fram, en tók fram, að
viðræðurnar hefðu verið vinsam-
legar. Um samkomulagshorfur
vildi hann samt ekkert segja,
taldi of snemmt áð spá nokkru um
þær.
Samningafundunum verður
haldið áfram i allan dag og að lik-
indum fram á kvöld, en ef ekkert
óvænt gerist kemur Islenzka
sendinefndin heimleiöis á morg-
un. -gj.
Vinsamlegar viðræður —
Brandt fýsandi samninga
Einar Agústsson utanrikisráðherra og WiIIy Brandt, kanzlari Vestur-Þýzkalands. Verður nú loks komiötil móts viö Islendinga?
KATLA UNDIR SMÁSJÁ
Engar breytingar á J
1 GÆR var landhelgisþyrlan Gná
send út i Vestmannaeyjar I Þri-
dranga með sérfræðinga til þess
að gera þar við vitann er hefur
verið bilaður. Þegar viðgerð var
lokið fékk flugstjórinn, Björn
Jónsson, boð um að ienda á
Hvolsvelli og biða þar nýrra fyr-
irmæla. Var þaö gert vegna til-
mæla frá Almannavörnum, og
var i athugun aö vélin flygi yfir
ýrdalsjökli sýnilegar
Mýrdalsjökul, svo að flugmcnn-
irnir gætu hugað þar að hugsan-
legum breytingum á jöklinum,
þar eð vfsindamönnum er ekki
meö öllu grunlaust um, aö þar
geti dregið til tiðinda innan
skamms.
Þessi grunur er af þvi sprott-
inn, hvaða breytingum efnainni-
hald vatns i Múlakvisl hefur tekið
að undanförnu. Eins og skýrt var
jr Álftaveri
frá i blaðinu i gær tvöfaldaðist
magn natriums og kaliums i
vatninu á einni viku. Aftur á móti
hefur verið rigning eystra siðustu
daga og ekki sést til Mýrdalsjök-
uls úr byggð né verið unnt að
skoða hann úr lofti.
I gær létti mjög til eystra, og
þess vegna kom til athugunar, að
þyrlan yröi send frá Hvolsvelli.
Frá þvi var þó horfið að sinni, þar
sem komið var undir kvöld. En
trúlega verður farið könnunar-
flug yfir Mýrdalsjökul fljótlega,
ef veður gefst til þess.
Timinn náði snöggvast tali af
Sigurði Steinþórssyni jarðfræð-
ingi seint I gærdag, er landhelgis-
þyrlan beið á Hvolsvelli.
— Ég er alveg á förum austur
aö Múlakvisl, sagði hann, til þess
aö afla mér þar nýrra vatnssýna
Framhald á bls. 19