Tíminn - 07.09.1973, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 7. september 1973
Snillingurinn Leighton
James... honum hefur
verið likt við Denis Law,
þegar ha‘nn var að kom
ast upp á toppinn.
Nýrri knattspyrnustjörnu ernú aðskjóta upp í ensku knattspymunni. Þessi stjarna
er hinn 19 ára gamli Burnley-leikmaður, Leighton James, sem er galdramaður með
knöttinn. Varnarleikmenn Tottenham fengu heldur betur að kynnast þessum unga
snillingi á miðvikudagskvöldið á heimavelli sínum White Hart Lane í Lundúnum.
Hann sýndi snilldarleik og var bezti maður leiksins og stuðiaði að góðum sigri
Burnley, 2:3. James er Wales-búi, og framtíðarmaður í landsliði Wales. Dave
Bowen, framkvæmdastjóri Wales, hefur sagt þetta um Leighton James: „ Leighton
er f rábær knattspyrnumaður í dag — eftir nokkur ár mun enginn stöðva hann. Hann
minnir mig mikið á Denis Law, þegar hann var að skjótast upp á stjörnu-
himininn." Síðustu tveir ieikir James með Burnley hafa verið stórkostlegir. Hann
var bezti maðurá vellinum gegnTottenham, og einnig gegn Coventry um sl. helgi.
Enska knattspyrnan: SOS:
„Eftir nokkur ár mun
enginn stöðva hann'!..
...hefur verið sagt um hinn 19 ára gamla Leighton James hjá
Burnley. Leikmenn Tottenham fengu að kynnast honum, þegar
Burnley vann 3:2 á White Hart Lane. — Chelsea vi
fyrsta leik. — Leeds óstöðvandi. — Law í „stuði".
vann sinn
Tottenham Hotspur, eða „The
Spur’s”, eins og leikmenn liösins
eru kallaöir, höfðu yfir 2:1 i hálf-
leik, Cyril Knowles og Martin
Chivers skoruðu mörk Lundúna-
liðsins, en James skoraði fyrir
Burnley. Staðan var þannig þar
til aðeins 13 minútur voru til
leiksloka. Þá jafnaði Frank
Casper úr vitaspyrnu. Casper
þessi var keyptur til Burnley 1967
frá Rotherham á 27 þús. pund.
Skoraði hann mark i fimm fyrstu
leikjum sinum með Burnley og
hefur ætiö veriö með markhæstu
leikmönnum félagsins siðan.
Aðeins fjórum min. siðar skoraði
Doug Collins úrslitamarkið fyrir
Burnley. Collins var einnig
keyptur fyrir 27 þús. pund — frá
Grimsby.
Nú er illa farið að halla undan
fæti hjá Tottenham, sem hefur
verið eitt frægasta, dýrasta og
bezta lið Englands undanfarin ár.
Tveir tapleikir á einni viku á
heimavelli, gegn Leeds og
Burnley. Bill Nicholson, fram-
kvæmdastjóri Tottenham, á nú
erfitt verkefni fyrir höndum.
Hann þarf að finna varnarleik-
Enskir punktar:
Fer David Hay til
Manchester United?
Stein, framkvæmdastjóri Celtic vill skipta á honum og
öðrum skozkum landsliðsmanni, Alex Forsyth. —
Best vill byrja aftur. — Skozki landsliðseinvaldurinn
hefur augastað á Denis Law.
Nú er útséð um, að skozki
landsliðsmaöurinn David Hay
mun ekki fara til Tottenham.
Jack Stein, framkvæmda-
stjóri Celtic, hefur lýst þvi yf-
ir, að hann vilji fá annan leik-
mann i skiptum fyrir Hay.
Stein hefur augastað á Alex
Forsyth, skozka iandsiiðsbak-
verðinum hjá Manchester
United, en hann er óánægður
hjá United. Forsyth, sem
Manchester United keypli frá
skozka liðinu Partick Thistle,
er með heimþrá, eins og svo
margir Skotar, sem leika með
enskum liðum,og hann hefur
ekki leikið með United á
keppnistimabilinu.
Getur þvi farið svo, að Stein,
framkvæmdastjóri Celtic,
skipti við Tommy Docherty,
framkvæmdastjóra United, á
Hay og fái Forsyth I staðinn.
Annars er það oft með
skozka knattspyrnumenn,
sem leika með enskum liðum,
aö þeir verða leiðir um tima og
þjást af heimþrá. Þannig var
það um tima hjá öðrum skozk-
um landsliðsmanni hjá
United, Martin Buchan. En nú
virðist það timabil vera liðið
hjá honum. Sérstaklega eftir
að United keypti yngri bróður
hans frá Aberdeen i sumar.
GEORGE BEST...
v a n d r æ ð a b a r n i ð frá
Manchester United, hefur nú
lýst þvi yfir, að hann sé orðinn
leiður á glaumgosalifinu.
Hann vill koma aftur til
United og byrja að æfa og
leika knattspyrnu. Siðustu
fréttir af Best eru þær, að
hann hefur fitnað mikið, þar
sem hann dvelst á Spáni.
DENIS LAW...hinn snjalli
leikmaður Manchester City,
átti enn einn stjörnuleikinn
gegn Coventry á miðviku-
dagskvöldið. Willie Ormond,
framkvæmdastjóri skozka
landsliðsins,gerði sér ferð til
Manchester á miðvikudaginn,
til að sjá Law leika gegn
Coventry á Maine Road. Allt
bendir til, að Ormond hafi
mikinn áhuga á að fá Law i
landslið Skota, sem mætir
Tékkum i Glasgow 26. septem-
ber i undankeppni HM i knatt-
spyrnu. Ef Skotar vinna þann
leik, eru þeir búnir að tryggja
sér sæti i lokakeppninni i V-
Þýzkalandi 1974. Skotland hef
ur ekki leikið í lokakeppni frá
þvi i Sviþjóö 1958.
Skozka landsliðið er nú eitt
sterkasta landslið i heimi.
Skotar hafa nú yfir mörgum
snjöllum knattspyrnumönnum
aö ráða, og hefur breiddin
aldrei verið eins mikil hjá
Skotum. Til gamans má geta
þess, að Zagallo, þjálfari og
einvaldur heimsmeistaranna
frá Brasiliu, sagði fyrir stuttu,
að hann væri hræddastur viö
Skota I lokakeppninni i V-
Þýzkalandi. Hann taldi skozka
landsliðið og v-þýzka landslið-
ið þau allra sterkustu i Evrópu
i dag.
menn sem fyrst. Hann getur vart
lengur stillt upp vörn, sem hefur
fengið á sig sex mörk á heima-
velli, i tveimur leikjum.
Aftur á móti viröist Burnley-
liðið vera meö pálmann i höndun-
um. Liðið leikur mjög skemmti-
lega knattspyrnu og er sagt, að
það sé eina liðið eins og er, sem
geti veitt Leeds harða keppni.
Burnley, sem kom upp i 1. deild i
vor, hefur ekki tapaö leik, enn
sem komið er.
Úrslitin i leikjunum i 1. deild á
miövikudagskvöldið, urðu þessi:
Chelsea-Birmingham 3:1
Leeds-Wolves 4:1
Leicester-Man. Utd. 1:0
Man. City-Coventry 1:0
Stoke-Everton 0:0
Tottenham-Burnley 2:3
sótti Leicester á Filbert Street.
Frank Worthington skoraði eina
mark leiksins á 7. min. siðari
hálfleiks. Stoke og Everton gerðu
einnig jafntefli, en liðunum tökst
ekki að skora. Þetta er fjóröa
árið i röð.sem liöin gera jafntefli á
Victoria Ground.
Denis Law átti enn einn stjörnu-
leikinn, þegar Manchester City
lék gegn Coventry á Maine Road.
Þótt honum tækist ekki að skora,
var hann potturinn og pannan i
leik City, byggði upp margar
sóknir, með frábærum sending-
um. Rodneý Marsh skoraði eina
mark leiksins, úr vitaspyrnu.
Staðan er nú þessi i 1. deild:
Það er grenilegt,að það verður
erfitt að stöðva Leeds i ensku
knattspyrnunni i vetur.
Yorkshireliðið hefur sjaldan eða
aldrei veriö betra, en einmitt i
dag. Fyrir keppnistimabilið var
talið.að frama liösins væri lokið,
þar sem það var skipaö gömlum
„útbrunnum” leikmönnum, sem
væru farnir að gefa sig — leik-
mönnum eins og Billy Bremner,
Mick Jones og Johnny Giles.
Þessir leikmenn hafa nú sýnt
það, að þeir eiga mikið eítir i
knattspyrnunni, og eiga eftir að
halda marki Leeds hátt á lofti i
vetur. A miðvikudagskvöldið tóku
þeir Úlfana i kennslustund á
Elland Road.
Peter Lorimer náði forustunni
fyrir heimamenn, með marki úr
vitaspyrnu. Síðan bætti Mick
Jones öðru marki við. Derek
Dougan, sem skoraði 15 mörk
fyrir Úlfana s.l. keppnistimabil,
minnkaði muninn i 2:1. Dougan
hefur skorað mark i öllum leikj-
um úlfanna á keppnistimabilinu,
hann er nú markhæstur með
fimm mörk i 1. deild.
Gamla kempan Billy
Bremner skoraði þriðja mark
Leeds, sitt fjórða á keppnis-
timabilinu. Peter Lorimer
innsiglaði siðan stórsigur Leeds
með góðu marki undir lok
leiksins. Þegar fimm min. voru til
leiksloka, var Derek Parkin
visað af leikvelli. Til gamans má
geta þess, að „nýju, þægu
strákarnir” úr Leeds hafa ekki
fengiðbókuná keppnistimabilinu
— furðulegt! — þar sem liöið
hefur leikið fjóra leiki.
Lundúnaliðið Chelsea vann
sinn fyrsta deildarleik á keppnis-
timabilinu, þegar liðið mætti
Birmingham á Stfdíiford Bridge.
Malcolm Page skoraði fyrsta
mark leiksins og kom Birming-
ham yfir 1:0. Ian Hutchinson
jafnaði 1:1 og siðan komu mörk
frá John Hollis og Steve Kember.
Fyrsti heimasigur Chelsea varð
staðreynd, og fögnuðurinn var
geysilegur á „Brúnni.” Ahang-
endur Chelsea vona nú bara, að
oröin hans Peters Osgood séu að
rætast. En „Ossie” sagði fyrir
stuttu, að Chelsea færi nú að leika
topp-knattspyrnu.
Menchester United mátti þola
enn eitt tapið, þegar liðið heim-
Leeds 4 4 0 0 12 :3 8
Burnley 4 : 3 : l 1 0 8 :4 7
Southampt. 4 2 2 0 6 :4 6
Liverpool 4 2 1 1 4 :2 5
Man. City 4 2 1 1 5 :3 5
Newcastle 4 2 1 1 6 :4 5
Leicester 4 1 3 0 4 :3 5
Coventry 4 2 1 1 4 :3 5
Derby 4 2 1 1 2: :2 5
SheffUtd. 4 2 0 2 7 :5 4
Everton 4. 1 2 1 5: 4 4
Wolves 4 2 0 2 7: :7 4
Man. Utd. 4 2 0 2 3: : 5 4
QP.R. 4 0 3 1 2: :3 3
West Ham 4 0 3 1 6: 7 3
Norwich 4 0 3 1 5: 7 3
Arsenal 4 1 1 2 5: 8 3
Chelsea 4 1 0 3 4: 5 2
Stoke 4 0 2 2 1: 3 2
Tottenham 4 1 0 3 4: 8 2
Ipswich 4 0 2 2 5: 10 2
Birmingham 4 0 1 3 3: 8 1
Framhald á bls. 19
Erlend
knatt-
L_spyrna_J
Vestur-Þýzkaland vann
Rússland í vináttulands-
leik i knattspyrnu á mið-
vikudagskvöldið. Leik-
num sem fór fram i
Moskvu, lauk með sigri
V-Þjóðverja 1:0. Markið
skoraði Gerd Miiller á
31. min. siðari hálfleiks.
Pólska landsliðið i knattspyrnu,
sem leikur gegn Wales og Eng-
landi I HM-keppninni i knatt-
spyrnu, lék vináttuleik gegn v-
þýzka 1. deildarliðinu MSV Duis-
burg á miövikudagskvöldið. Pól-
land vann leikinn 5:0,og er það
mjög góður árangur, þvi að Duis-
burg er með sterkustu liðum V-
Þýzkalands.
Paraguay vann Bolivíu i
undankeppni HM i knattspyrnu
2:1. Leikurinn var sá fyrsti i riðli
2 i Suður-Ameriku, en i riðlinum
leika þessi lönd: Bolivía,
Paraguay og Argentina.
Argentina og Bolivía leika um
næstu helgi i Argentinu.