Tíminn - 07.09.1973, Blaðsíða 17
Föstudagur 7. septeniber 1973
TÍMINN
17
Skorar í öllum leikjum
og fer sennilega
með aðalliðinu
til Belfast
ASGEIK SIGURVINSSON sést
hér í baráttu um knöttinn i iands-
leik.
Asgeiri Sigurvinssyni
viröist vegna vel í Bel-
gíu. Forráðamenn
Standard Liege viður-
kenndu nýlega, að hann
hefði ekki verið keyptur
til félagsins til að keppa
með aðalliði félagsins,
a.m.k. ekki fyrst um
sinn, en frammistaða
hans með varaliðinu
hefði verið svo góð, að
mjög líklega yrði hann
látinn leika með aðal-
liðinu innan skamms.
Nýlega barst Albert Guð-
mundssyni, formanni KSI,
bréf frá Asgeiri, þar sem hann
segir frá högum sinum. M.a.
segir hann:
,,Af mér er allt gott að
frétta. Ég byrjaði strax að
æfa, þegar ég kom aftur frá
Hollandi. A fyrstu æfingunni
var hnéð betra en ég hafði
þorað að vona. Og þegar þetta
er skrifaö er það miklu betra,
svo að þetta er allt i áttina.
Ég lék minn fyrsta leik fyrir
Standard 30. ágúst við lið rétt
utan við Liege. Viö gerðum
jafntefli, 2:2 og skoraði ég
annað markið og lagði það
fyrra, og er þetta ekki slæm
byrjun þvi að þeir virðast vera
ánægðir með mig.
Nú er deildakeppnin byrjuð
hér, og Standard vann sinn
fyrsta leik, 2:0, á móti C.S.
Brugge á heimavelli Stand-
ard. Ahorfendur voru um 30
þúsund, Eins og i Skotlandi,
, leika varalið liðanná á heima-
velli liðsins, er leikur á úti-
velli. Ég fór til Brugge og þar
unnum við 4:0,
og skoraði ég
eitt markanna,
en i siðari hálf-
leik fékk ég högg
á hnéð og
varð að fara út af.
Ég fer sennilega
með aðal-
liðinu til Belfast,
11. septem-
ber, en þar á Standard Liege
að leika i UEFA-keppninni.
Þetta getur orðið skemmtileg
ferð, ekki sizt vegna þess, að
þá gefst tækifæri til að tala
ensku, en satt að segja gengur
mér ekki allt of vel með
frönskuna.”
Þvi má bæta viö, aö
islenzkir dómarar munu
dæma þennan leik i Belfast,
Guðjón Finnbogason, Rafn
Hjaltalin og Guðmundur
Haraldsson. —all.
Fram-
arar
mæta
Skaga-
• •
monnum
í kvöld
Þrír knattspyrnu-
leikir i Reykjavík
í dag
FRAMARAR mæta Skagamönn-
um á Laugardalsvellinum i kvöld
i l. deildarkeppninni. Þessi vika
er erfið hjá Framleikmönnunum,
þvi að þeir leika fjóra leiki á viku,
sem er nokkuð mikið. Þeir léku
gegn Eyjamönnum I bikarkeppn-
inni sl. miðvikudag, mæta Skaga-
mönnum kl. 18.30 i kvöld. Þá leika
þeir gegn Keflvikingum i 1. deild
á mánudagskvöldið og siðan
mæta þeir Keflvíkingum aftur i
úrslitaleik Bikarkeppni KSt n.k.
miðvikudagskvöld.
1 dag fer einn leikur fram i 3.
deildarkeppninni. Þá keppa Fylk-
ir og Isaf jörður um það, hvort lið-
iö leiki gegn Reyni i úrslitum i 3.
deild. Leikurinn fer fram á Mela-
vellinum kl. 16.30. Kl. 20.30 leika
svo Þróttur og Armann i 2. deild-
arkeppninni á Melavellin-
um.
Glæsileg verð-
laun í BEA-open
Golfkeppnin fer fram hjá Golfklúbbi Suðurnesja um helgina
HIN árlega B.E.A. opna
keppni hjá Golfklúbbi
Suðurnesja fer fram um
helgina og verður þetta
siðasta opna golfmótið
hjá G.S. á þessu sumri.
Mótið hefst kl. 09.00 á laugar-
dag með þvi að hinn irski
framkv.stj. BEA, Joe Kennedy
slær fyrsta högg keppninnar. Mót
þetta er sérstaklega vinsælt, þar
sem hér er keppt i þrem flokkum.
Mót þetta er sérstaklega vinsælt,
þar sem hér er keppt i þrem
flokkum þ.e. i m.fl. 1. fl. og 2. fl.
og eru veitt mjög glæsileg 1, 2, 3,
verðl. A laugardag verður svo til-
kynnt um sérstök verðlaun, sem
BEA veitir þeim er fer holu i
höggi, og einnig verða sérstök
verðlaun veitt þeim, sem næstur
er holu á Bergvikinni seinni dag
keppninnar. Einnig má minna á,
að Austurbakki h.f. gaf i vor golf-
poka af dýrustu gerð þeim er
fyrstur færi holu i höggi i keppni
hjá GS og hefur hann ekki enn
gengið út, svo að til mikils er að
vinna i þessu móti, auk þess sem
hér er um stigamót til Golflands-
liðsins að ræða, og hafa eflaust
margir hug á að ná sér i stig, og
reyna að tryggja sér sæti i lands-
liðinu, sem hefur það framundan
á sumri komandi, að keppa i
fyrsta sinn á heimavelli við hinar
Norðurlandaþjóðirnar.
Sviptingar hjá KSÍ:
NÝI FRAMKVÆMDA
STJÓRINN REKINN!
Friðurinn virðist nú al-
gerlega vera úti á kær-
leiksheimili KS(. Eins og
kunnugt er, óskaði Bjarni
Felixson eftir því, að
bókað væri eftir sér, aö
hann teldi framkomu for-
manns KSI, Alberts Guð-
mundssonar, gagnvart
Henning Enoksen í
Hollandi til vansæmdar.
Birti Mbl. Þessa bókun
Bjarna tveimur dögum
síðar, en leitaði áður stað-
festingar á fréttinni hjá
Hreggviði Jónssyni, sem
verið hefur fram-
kvæmdastjóri KSí síðan
Árni Ágústsson lét af
störfum.
1 gær gerðist þaö svo, að
Hreggviöi Jónssyni var til-
kynnt, að hann væri rekinn frá
störfum. Var það gjaldkeri KSI,
Friðjón Friðjónsson, sem haföi
það skemmtilega starf með
höndum að tilkynna Hreggviði
þessa ákvöröun,
sem mun ekki hafa veriö tekin
af stjórn KSI heldur einstak-
lingum innan stjórnarinnar, þvi
að stjórnarfundur veröur ekki
haldinn fyrr en n.k. mánudag.
Astæðan fyrir brottrekstri
Hreggviðs mun vera sú, að hann
staöfesti við blaðamann Mbl. aö
Bjarni Felixson hefði látið bóka
eftir sér vitur á formann KSl.
I stuttu viðtali viö Hreggviö I
gær, sagöi hann, að þetta væri
hlægilegur skrípaleikur. Hann
heföi ekki vitað betur en hann
væri að gegna skyldum sinum
sem framkvæmdastjóri, þegar
hann svaraði blaöamanni Mbl.,
enda hefði formaður KSl marg-
lýst yfir, aö allir fundir KSl
væru opnir blaöamönnum og
KSI hefði ekkert að fela fyrir
þeim. Vildi Hreggviður ekki
segja fleira um málið á þessu
stigi.
BEA-
Open
RÁSTÍMARNIR i BEA-
OPEN, sem fer fram hjá
Golfklúbbi Suðurnesja,
eru þessir:
Kl. 9.00
Gunnlaugur Ragnarsson
Jóhann R. Benediktsson
Brynjar Vilmundarson
kl. 9.10
Óskar Sæmundsson
Ómar Kristjánsson
Pétur Auðunsson
kl. 9.20
Sigurður Albertsson
Július Júliusson
Hallgrimur Júliusson
kl. 9.30
Marteinn Guðnason
Heimir Stigsson
Ólafur H. Ólafsson
kl. 9.40
Ragnar Magnússon
Sigurjón Gislason
Ingimundur Arnason
kl. 9.50
Þorbjörn Kjærbo
Loftur ólafsson
Pétur Antonsson
kl. 10.00
Högni Gunnlaugsson
Magnús Hjörleifsson
Jóhann Ó. Jósepsson
kl. 10.10
llilmar Steingrimsson
Bent Hansson
Agúst Svavarsson
kl. 10.20
Kjartan L. Pálsson
Guðmundur Ringsted
Björn V. Skúlason
kl. 10.30
Albert Watne
Ingólfur Helgason
Guðbjartur Jónsson
kl. 10.40
Aðalsteinn Guðlaugsson
Knútur Björnsson
EFTIR HÁDEGI:
kl. 13.30
Sigurður Héðinsson
Svan Friðgeirsson
Hólmgeir Guðmundsson
kl. 13.40
Jóhann R. Kjærbo
Birgir Björnsson
Þorgeir Þorgeirsson
kl. 13.50
Hafsteinn Þorgeirsson
Ragnar Ólafsson
Jón Þorsteinsson
kl. 14.00
Geir Svavarsson
Hörður Guðmundsson
Sigurður Hafsteinsson
kl. 14.10
Ólafur Þorvaldsson
Magnús Birgisson
Skarphéðinn Skarphéðinsson
kl. 14.20
Ingólfur Bárðarson
Heimir Skarphéðinsson
Guðjón Einarsson
kl. 14.30
Ólafur Skúlason
Jón Sigurösson
Þorvaldur Arinbjarnarson
Marteinn Guðjónsson
Aðrir þátttakendur, sem koma
til að taka þátt I keppninni, fara
svo á eftir þessum mönnum út á
völl.