Tíminn - 14.09.1973, Page 5
Föstudagur 14. september 1973
TtMINN
5
Skýringarmynd — þannig vinna geymarnir.
Ný gerð geyma til að
minnka velting skipa
Þeir eru fáir, sem á annaö borö
hafa komiö út á sjó, sem ekki
þekkja til sjóveikinnar. Hún hefur
illa fariö meö margan manninn,
og margir, sem ætlaö hafa sér aö
veröa sjómenn, hafa horfiö frá
því ráöi vegna hennar. Frá þvi
um 1874 hafa menn gert ýmsar
tiiraunir til þess aö minnka velt-
ing skipa, meö mjög misjöfnum
árangri. Nú er komiö á markaö-
inn tæki, svo kallaöir stööugleika-
geymar, hannaöir af
Ulstein-sainsteypunni I Noregi,
sem reynzt hafa mjög vei i þess-
um tiigangi.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var i Heklu
h/f, en þaö fyrirtæki hefur umboö
fyrir þessa gerö stööugleika-
geyma. A fundinum var sérfræö-
ingur frá Ulstein fyrirtækinu,
Anders Björnevik, og kynnti hann
tækiö og útskýröi hvernig það
starfar.
Ulstein, sem er á vesturströnd
Noregs hefur ætiö veriö i náinni
snertingu við fiskiskipaflotann.
Fyrirtækið hefur fylgzt mjög náið
meö öllum hugmyndum, sem
fram hafa komið, og hefur þaö nú
sjálft komið fram meö sina eigin
gerö af stööugleikageymum, sem
hafa þaö fram yfir marga aöra
geyma, aö þeirstarfa jafnt, þegar
skipið liggur kyrrt og við fulla
ferö. Geymarnir eru réttkantaðir
og liggja þvert yfir skipið og ofar
þyngdarmiöju þess. Inn byggöar
i geymana eru gataplötur til að
mynda tregöu á hreyfingu vök-
vans.semeri geymunum. Til aö
tryggja, að öruggt sé, aö stööug-
leikageymarnir vinni eins og
áætlað er, eru gerö „model” af
hverju skipi og allar tilraunir eru
undir eftirliti og i samvinnu við
háskólann i ÞTándheimi.
Þaö er aöeins nú siöustu árin,
sem Ulstein hefur boðiö stööug-
leikageyma sina á frjálsum
markaöi og hefur þegar selt
geyma i yfir 60 skip af mismun-
andi geröum og stærðum. Sex
togarar, sem byggöir voru fyrir
Islendinga hjá Flekkefjord Skib-
og Maskin Fabrik A.S. i Noregi,
og þar á meöal er Július Geir-
mundsson, eru meö Ulstein
stööugleikageyma. Fyrsta skipiö,
sem kom meö stööugleikageym-
um frá Ulstein til Islands, er afla-
skipið Guömundur RE. Einnig
eru hin þekktu færeysku sild-
veiöiskip m/s Nordborg og m/s
Krumborg bæöi meö stööugleika-
geyma frá Ulstein, en bæði þessi
skip eru fræg aflaskip meöal is-
lenzkra sildveiöimanna i Noröur-
sjó.
Það kostar um 90 þús. kr.
norskar aö gera nauðsynlegar
prófanir og útreikninga, en með
niöursetningu kosta geymarnir
um 150-160 þús. kr. norskar. Þaö
tekur um 3 vikur aö setja geym-
ana niöur, en áætlaöur timi frá
þvi geymarnir eru pantaöir og
þar til þeir eru tilbúnir.er um 6
vikur.
Geta má þess, svo aö ekki valdi
misskilningi, aö geymar þessir
eru ekki beinlinis til þess ætlaöir
aö lækna sjóveiki manna, heldur
til að bæta vinnuaöstöðu um borö
i skipunum og auka öryggi,— hs
Tamninga- og járninga-
stöð í Kópavogi
UM þessar mundir er veriö aö
koma upp tamningastöö I Glaö-
heimum, þar sem hestamanna-
félagiö Gustur i Kópavogi hefur
hesthús sin og bækistöövar.
Standa aö þessu tveir menn,
Hilmar Guömundsson, sem er
Reykvikingur, og Einar Sigurös-
son, Hafnfirðingur.
— Viö höfum hugsað okkur, að
stööin taki til starfa i byrjun
janúarmánaöar i vetur, sagði
Hilmar viö blaöiö, og er þetta
fyrsta tamningastöðin, sem sett
er upp i Kópavogi.
Auk þess sem viö tökum hesta
til tamningar, munum viö einnig
járna hesta þeirra, sem þess
óska, og geta þeir hvort heldur
þeir vilja haldið sjálfir fótunum á
meöan járnaö er eöa faliö okkur
að sjá um járninguna aö öllu
leyti.
Sýning
á forni
norrænni
mynt
EJ-Reykjavik. — I október verö-
ur haldin sýning i Norræna húsinu
á fornri norrænni mynt.
Samkvæmt starfsáætlun Nor-
ræna hússins i september/októ-
ber, sem blaðamenn fengu hjá
forstööumanni hússins, Maj-Britt
Imnander.i gær, veröur þessi sýn-
ing 11.-14. október.
Þá verða þessa daga flutt erindi
um gamla norræna mynt. M.a.
mun myntsérfræðingurinn Johan
Christian Holm halda fyrirlestur
um danska mynt frá vikinga-
timanum. Einnig mun hann halda
fyrirlestur um gamla mynt frá
Grænlandi, Islandi og Færeyjum.
Anders Björnevik meö likan af stööugieikageymum. (Timamynd: Ró-
bert).
Þessi starfsemi er á vegum
Félags isl. myntsafnara og Nor-
ræna hússins.
1975verði alþjóð-
legt ár konunnar
Allsherjarþing Sameinuöu
þjóöanna hefur samþykkt þá til-
lögu Alþjóöasambands lýðræöis-
sinnaðra kvenna (ALK), aö árið
1975 skuli vera ár konunnar, og
helgaö baráttunni fyrir raunveru-
legu jafnrétti karla og kvenna.
Undir forustu ALK eru kvenna-
samtök um heim allan nú þegar
byrjuð aö undirbúa árið, svo þaö
megi ná tilgangi sinum. ALK hef-
ur ákveöið aö gangast fyrir ráö-
stefnum og þingum um stööu kon-
unnar i þjóöfélaginu, aö efna til
námskeiöa fyrir konur er starfa
á vegum kvennasamt., íyrir
ljósmæöur, hjúkrunarkonur og n.
ar konur
fylgjast með
Tímanum
I fyrrverandi nýlendum Portú-
gala i Afriku, svo og aö veita aö-
stoö viö uppbyggingu Vietnam.
ALK hefur ennfremur ákveðið aö
efna til heimsþings kvenna undir
kjöroröinu: „Konur heimsins I
nútið og framtiö”.
Stjórn Menningar- og friöar-
samtaka islenzkra kvenna skorar
á rikisstjórn Islands aö sýna
fyllstu einurö og festu i land-
helgisdeilunni viö Breta og Vest-
ur-Þjóöverja, og hvika hvergi frá
fyrri yfirlýsingum, þrátt fyrir yf-
irgang brezks auövalds og her-
valds.
Einnig skorar stjórn
Menningar- og friðarsamtaka is-
lenzkra kvenna á alla Islendinga
aö hætta nú þegar aö kaupa
brezkar vörur og sýna meö þvi
samstööu og einhug gegn yfir-
gangi Breta.
(Frá stjórn Menningar- og
friöarsamtaka islenzkra
kvenna).
Leikfangahúsið
Skólavöröustíg 10
Dúkkukerrur og vagnar, 10
tegundir.
ódýr þrihjól.
Buröarrúm,4 stærðir.
Barnastólar.
Bilabrautir.
Stignir bílar.
Tressy og Sindy dúkkur og
föt.
Dönsku D.V.P. dúkkurnar
nýkomnar.
Sendum gegn póstkröfu.
Leikfangahúsið
Skólavöröustíg 10
Slmi 1-48-06.
["KigÍýsÍ'df
i Timanum
Tamningastöð
Starfrækt veröur I vetur
tamningastöö á félagssvæöi
Gusts I Kópavogi.
Upplýsingar hjá forstööu-
mönnum stöðvarinnar,
llilmari Guömundssyni, slmi
8-53-25 og Einar Sigurðssyni,
simi 5-10-84, eftir kl. 7
sfðdegis.
SOLUSTADIR:
Hjólbarðaverkstæðiö Nýbarði, Garðahreppi, sími 50606.
Skodabúðin, Kópavogi, sími 42606.
Skodaverkslæðið á Akureyri h.f. simi 12520.
. Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar, Egilsstöðum, stmi 1158.