Tíminn - 14.09.1973, Page 8
8
TÍMINN
Föstudagur 14. september 1973
Fundir framsóknar-
manna á Austurlandi
t StDUSTU viku,eða nánar til tek-
ið dagana 4.-6. september, var
haldinn að llaitormsstað á Héraði
fundur þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar Framsóknar-
flokksins. t framhaldi þessa
fundar hélt svo Kjördæmissam-
band Framsóknarmanna á
Austurlandi 14 almenna
stjórnmálafundi i Austurlands-
kjördæmi. Timinn sneri sér til
Kristjáns Benediktssonar, sem
gegnir starfi framkvæmdastjóra
hjá þingflokknum, og leitaði
frétta af þessum fundum eystra.
— Viö spurðum fyrst um þaö,
hvernig hefði verið mætt á Hall-
ormsstaðarfundinum og hvaö
heföi einkum verið rætt þar.
— A þessum fundi var vel mætt
sagði Kristján. Auk þingmanna
og framkvæmdastjórnarmanna
voru allmargir Austfirðingar á
þessum fundi, en miðstjórnar-
mönnum, stjórnarmönnum i
kjördæmissambandinu og vara-
þingmönnum Framsóknarflokks-
ins úr Austurlandskjördæmi var
boðiö að sitja þennan fund.
Annars má geta þess, að þing-
flokkurinn hefur tvivegis fyrr i
sumar komið saman til fundar-
halda.
Um málefnin, sem rædd voru,
er það aö segja, að ráðherrarnir
Ólafur Jóhannesson og Halldór
E. Sigurðsson fluttu itarlegar
framsöguræður um stjórnmálin.
Ólafur ræddi landhelgismálið al-
veg sérstaklega og Halldór gerði
grein fyrir ýmsum breytingum,
sem nauðsynlegt verður að gera i
tollamálum vegna EFTA-
samnings og samninga okkar við
EBE. 1 framhaldi af ræðum ráð-
herranna urðu miklar og almenn-
ar umræður. Þá flutti Þráinn
Valdimarsson erindi um stöðu
húsnæðismáianna og ástand og
KJ-lteykjavik. — Dagana II.-13.
septeinber siðastliðinn stóð yfir i
Norræna liúsinu nániskeið fyrir
dönskukennara. og var nám-
skeiöiö iialdið á veguin Félags
döiiskukennarigsein liyggst lialda
annað námskeið með þessu sniði
i vetur.
Kennarar á þessu námskeiði
voru Peter Rasm.ussen, lektor við
Háskólann, og Gunna Hovdal,
stundakennari við Háskóiann, en
horfur I þeim efnum,og Þórarinn
Þórarinsson gerði grein fyrir
þeim þingmálum, sem væntan-
lega verða efst á baugi i haust.
Um öll þessi mál urðu miklar
umræður.
Þá var sú nýbreytni upp tekin
að ræða málefni Austurlands á
sérstökum fundi. Fluttu eftirtald-
ir heimamenn framsöguerindi á
þeim fundi: Snæþór Sigurbjörns-
son um landbúnaðarmál, Guð-
mundur Björnsson um sjávarút-
vegsmál, Sævar Kristinn Jónsson
um samgöngumál og Vilhjálmur
Sigurbjörnsson um iðnaðar-
og orkumál.
Þessunæst inntum viö Kristján
eftir þvi, hvort allur timinn hefði
verið notaöur til fundarstarfa og
hvaö heföi þá verið gert.
— óhætt er að fullyrða, aö að-
komumenn hafi fengið gott tæki-
færi þessa daga á Hallormsstað
til að kynnast Fljótsdalshéraöi og
mönnum og málefnum þar
evstra.
Að kvöldi fyrsta fundardagsins
var ekiö i Fljótsdal og gengið i
kirkju á Valþjófsstað og hlýtt á
messu hjá séra Bjarna Guöjóns-
syni, sóknarpresti. A eftir voru
fram bornar veitingar i félags-
heimilinu Végarði i boði
framsóknarmanna i Fljótsdal. Þá
var skógræktarstöðin á Hall-
ormsstað skoðuð og skógurinn
undir leiðsögn skógarvarðar,
Sigurðar Blöndal.
Siðasta morguninn, sem dvalizt
var á Héraði, var ekið umhverfis
Löginn og út til Lagarfljóts-
virkjunar og virkjunin skoðuð
undir leiðsögn Sveins Þórarins-
sonar, verkfræðings frá Eiðum.
Ekki má svo gleyma að geta
kvöldvöku, sem Austfirðingar
héldu fyrir fundarmenn, þar var
vissulega margt til fróðleiks og
þau ræddu um námskeiðið við
blaðamenn á fundi i Norræna
húsinu i gær, ásamt Guðrúnu
Halldórsdóttur formanni Félags
dönskukennara.
Guðrún tjáði blaðamönnum, að
þetta námskeið væri ólikt öðrum
námskeiðum fyrir dönsku-
kennara hér, .eingöngu er lögð
á það áherzla, að æfa kennara i
l'ramburði og tali — en þaö vill
vera erfiöasti þröskuidurinn hjá
skemmtunar. Kristján Ingólfsson
kennari flutti stórfróðlegt og að
sama skapi skemmtilegt erindi
um sögu Austurlands. Sigurður
Pálsson skólastjóri flutti bæði
fróðlegan og skemmtilegan
frásöguþátt af prestum og krafta-
mönnum i Bórgarfirði eystri, flutt
voru frumsamin ljóö, sagöar
gamansögur og mikið sungiö.
Kvöldvaka þessi var öllum
viðstöddum til mikillar ánægju og
þeim, sem að henni stóöu, til
sóma.
— Voru engar ályktanir geröar
á fundinum?
— Slikir fundir sem þessi eru
fyrst og fremst hugsaöir til
kynningar á málum og skoöana-
skipta um einstök mál.en ekki til
almennra ályktana. A fundinum á
JÓHANNES BJARNA-
SON, fyrrum starfsmað-
ur Sementsverksmiðju
rikisins, hefur á opin-
berum vettvangi borið á
það fyrirtæki, að það
hafi haft i frammi i senn
vörusvik og verðlags-
brot.
Stjórn Sementsverksmiðjunnar
tekur af þessu tilefni fram eftir-
farandi:
mörgum dönskukennaranum hér
á landi. Námskeiðið sóttú 14
kennarar, en ekki var hægt að
koma fleiri fyrir, og stóð það i
þrjá daga — sex klukkustundir á
dag. Kennslan fór fram i Norræna
húsinu.
Félag dönskukennara hefur
fengið styrki frá Islenzka og
danska rikinu til námskeiöa-
haldsins og einnig frá öðrum aðil-
um. Er fyrirhugað að halda
annað námskeið i vetur, en auk
þess hyggst félagið standa fyrir
sýningu á kennslubókum á næsta
ári.
Hallormsstað var þó gerð
samþykkt um landhelgismálið.og
þarf varla aö kynna hana frekar
en búið er. Þar var um að ræða
tlmamótaákvarðanir i sambandi
við framkvæmd landhelgismáls-
ins.
— Hvað með almennu
stjórnmálafundina, sem boöaðir
voru?
— Þeir fundir voru á vegum
kjördæmissambandsins og lenti
mest á formanni þess, Kristjáni
Ingólfssyni, að undirbúa og sjá
um framkvæmd þeirra. Alls voru
haldnir 14 fundir samtimis víös-
vegar um Austurland,og mættu
víðast tveir ræðumenn á hverjum
þessara funda. Ég held, að
aðsókn aö þessum fundum hafi
Framhald á bls. 19
1. Þvi er eindregið mótmælt, að
Sementsverksmiðjan hafi nokk»-u
sinni selt svikna vöru eða viðhaft
verðlagsbrot.
Sementsverksmiðja rikisins
hefur frá upphafi framleitt se-
ment eftir erlendum stöðlum
aðallega bandariskum og brezk-
um (B.S.), þar sem enginn is-
lenzkur sementsstaðall er til eða
önnur innlend ákvæði um gæða-
kröfur þessarar vöru.
Þessi áburöur Jóhannesar
Bjarnasonar um vörusvik mun —
aö huglægum ástæöum slepptum
— byggjast á þeim misskilningi,
að gæði Islenzka sementsins eru
enn ekki jafn mikil og sements-
gæði nágrannalandanna, sem
mörg framleiða sement, sem aö
gæðum er umfram umrædda
staðla. Sú staðreynd kom t.d.
fram i skrifum Verkfræöinga-
félags tslands og steypuframleið-
enda fyrir nokkrum árum. Byggir
Jóhannes ádeilu sina á efni til-
lagna, sem komið hafa fram um
ráðstafanir, sem miðuðu að enn
auknum gæðum islenzks se-
ments. Þá er og rétt að geta þess,
aö á undanförnum árum hefur
verið reynt eftir megni að koma
þessum breytingum I fram-
kvæmd, enda er hér, eins og ann-
arsstaöar, stefnt að framförum i
iðnaði vorum.
Islenzka sementiö er og hefur
verið góö vara, sé það réttilega
notað, og stöðugt er og verður
unnið að þvi aö efla enn gæði þess
eftir þvi sem hráefnin frekast
leyfa. A þvi er vissulega grund-
vallarmunur, hvort gæði vöru eru
minni en hið allra bezta eða hvort
um vörusvik er að ræða. A það
óumdeilanlega viö um allan iðnað
og framleiðslu, hverju nafni sem
það nefnist.
2. Vegna ummæla Jóhannesar
Bjarnasonar um það að faxa-
sementi hafi veriö blandaö I port-
landsement er rétt að upplýsa
þetta: Faxasement er portland-
sement, sem inniheldur pozzolan-
efni, sem seinka hörönun þess.
Það er rétt, að litlu magni af
faxasementi var blandað saman
viö portlandsement siðla árs 1968
og byrjun árs 1969 til þess að
tæma faxasementsgeymi verk-
smiðjunnar fyrir annað sement.
Var þessi iblöndun framkvæmd
undir eftirliti þeirra dönsku verk-
fræðinga, sem þá voru við verk-
smiðjuna.
Hérlendar rannsóknir hafa þó
sýnt, að hæfileg iblöndun pozzo-
lanefna gefa islenzka portlandse-
mentinu æskilega eiginleika t.d.
draga úr sprungumyndunum. Af
þessum ástæðum og raunar fleiri,
er nú blandað fínmöluðu lipariti
(pozzolanefni) i allt portlandse-
ment, sem framleitt er i verk-
smiðjunni, svo sem auglýst hefur
verið i Lögbirtingablaðinu. Þvi
verður að telja að iblöndun sú,
sem Jóhannes deilir á, hafi ekki
Námskeið á vegum Félags dönskukennara:
Kenna dönskukenn
urum að tala rétt
dönskuna
Stjórn Sementsverksmiðju ríkisins:
NEITAR ÁBYRGÐ
UM VÖRUSVIK
Peter Rasmussen, lektor, kennir danskan framburð á námskeiðinu. (Tlmamynd-Róbert)
Framhald á bls. 19
Myndin er af Eddu Þórarinsdótt
ur I hlutverki slnu.
Kabarett á
ný í Þjóð-
leikhúsinu
SÖNGLEIKURINN Kabarett var
sem kunnugt er sýndur við mikla
hrifningu og ágæta aðsókn I Þjóð-
leikhúsinu á liðnu vori. Sýningar
uröu alls 20 á röskum mánuði og
um 10 þúsund leikhúsgestir sáu
syninguna. Sýningar hefjast aftur
á Kabarett næst komandi laugar-
dag þann 15. september.
Hlutverkaskipan veröur
óbreytt frá þvi sem var, að ööru
leyti en þvi, aö tveir nýir dansar-
ar koma nú fram i sýningunni I
stað annarra, sem eru fjarver-
andi. Leikstjóri er Karl Vibach,
leikhússtjóri i Liibeck, en leik-
myndir eru eftir Ekkehard
Kröhn, en hann starfar við sama
leikhús og Vibach i Lúbeck.
Dansar eru samdir og æfðir af
John Grant.
Leikararnir Bessi Bjarnason og
Baldvin Halldórsson fara með tvö
af stærstu hlutverkum leiksins,og
vöktu þeir báðir mikla athygli i
þessu leikriti fyrir frábæra túlkun
á hlutverkum sinum. Þá fara
leikkonurnar Edda Þórarinsdótt-
ir og Herdis Þorvaldsdóttir með
aðal kvenhlutverkin i leiknum.
önnur helztu hlutverk i leiknum
eru leikin af Sigmundi Erni Arn-
grimssyni, Hákoni Waage og Sig-
riði Þorvaldsdóttur...Hljóm-
sveitarstjóri er Garðar Cortes.