Tíminn - 14.09.1973, Qupperneq 11

Tíminn - 14.09.1973, Qupperneq 11
Föstudagur 14. september 1973 TÍMINN 11 Llf mitt hefur aldrei veriö auöugra en nú, segir Hakon Holm — Æskan er hrifin af mótmælum minum gegn þjóökirkjunni. En lif hennar grundvallaöá lýgi. 1 fS * HHfV \ -v-’u HHv ^ m\ msm . ‘3 Varhugaverður fréttaflutningur Varhugaveröur fréttafiutningur. Ég sé mig tilneyddan aö leiö- rétta frétt á forsiöu Timans, sem kom út þriöjudaginn 4. september s.l. 'Blaöamaöur hefur haft fyrir heimildarmann Unnar Sefánsson, ritstjóra sveitarstjórnarmála og ráöstefnustjóra Sambands islenzkra sveitarfélaga. Er óhætt aö fullyröa, aö Unnar Stefánsson hefur oftúlkaö framlagöar til- lögur á fulltrúaráösfundi Sam- bands islenzkra sveitarfélaga 29. ágúst og 1. september, sem ekki voru afgreiddar þar heldur visaö til stjórnar sambandsins til endanlegrar tillögugeröar. Vafa- laust er stjórnin ekki búin aö ganga frá tillögum sinum til félagsmálaráðuneytisins og þvf veröur að firra stjórn sambands- ins á þessu stigi allri ábyrgð á frásögn þessari og byltingartali, sem kemur fram i Timanum. Tillögur þær, sem lágu fyrir ráðstefnunni, gerðu ráð fyrir endurskipulagningu sýslunefnda, án tengsla við rikiskerfið sem héraðasamtök sveitarfélaga, með aðild kaupstaðanna. Með framlögðum tillögum er þvl lagt til, að sýslunefndirnar verði héraðsnefndir sveitar- stjórna og tengdar sveitar- stjórnarkerfinu. Það er þvi bein oftúlkun, þegar lagt er til, að syslunefndirnar verði lagðar niður. 1 tillögum undirbúnings- nefndar, sem lagðar voru fyrir fundinn,segir orðrétt: „Þrátt fyrir tilkomu lands- hlutasamtaka sveitarfélaganna verður um að ræða ýmis slik verkefni, sem farsælast virðist að leysa með samvinnu og samstarfi landfræðilega. samstæðra sveitarfélaga i hinum ýmsu héruðum, sem byggja á fornri hefö og eiga rik itök i hugum fólksins. Sýslufélögin i núverandi formi hafa að ýmsu leyti verið óheppilegir aðilar til að annast slik mál, það að kaupstaðirnir standi utan þeirra og ekki er tryggt að sýslunefndarmenn veröi sveitarstjórnarmenn.” Lagt er til að sýslunefndir sem héraðsnefndir verði skipaöar kjörnum fulltrúum sveitarstjórn- anna á aðalfundum landshluta- samtaka, þannig að tryggja sam- vinnu miíli sveitarfélaga, héraöa- samtaka og landshlutasamtaka. 1 máli Unnars kemur fram, að lagt hafi verið til, að ein stjórn- sýslumiðstöö skuli vera i hverjum landshluta. Þetta er ekki alls kostar rétt. 1 tillögum landshluta- samtakanna, sem lágu fyrir Hafnarfundinum,var gert ráð fyr- ir dreifingu stjórnsýslumiðstööva innan landshlutanna. Fulltrúi Austfirðinga lýsti þessu yfir. Það er yfirlýst stefna Fjórðungssam- bands Norðlendinga að það stefni að héraðsstjórnsýslumiðstöðum. Þetta sýnir mjög varhugaveröan málflutning heimildarmanns. Ekki tekur siðan betra við, þeg- ar fréttamaður hefur það eftir Unnari, að landshlutasamtökin leysi sýslunefndir af hólmi. Þaö kemur beinlinis fram i framlögö- um lillögum undirbúningsnefnd- ar, að sýslu- eða héraösnefndir eru nauösynlegar þrátt fyrir til- komu landshlutasamtakanna. Það er rangt haft eftir að lands- hlutasamtökin fylgi eftir kjör- dæmum, t.d. eru á Norðurlandi tvö kjördæmi og ein landshluta- samtök. Siðar i þessum kafla er sagt, að sýslurnar falli ekki að eðlilegum mörkum byggðalaga. Það er öllum ljóst, að nauðsynlegt er aö endurskipuleggja þær með skiptingu landshlutasvæöa i héraössvæði. Hins vegar má nú heita aö á Norðurlandi falli sýslu- skipanin að eölilegu héraðakerfi. Það er algjör þekkingarskortur, aö sýslunefndirnar hafi verið sniönar eftir samgöngum á mið- öldum og henti þvi ekki i nú- timanum. Megingallar kerfisins eru þeir, að sýslumörkin fylgja úreltum lögsagnarumdæmum, sem sett voru flest á fyrri öld, án tillits til hagsmuna byggðanna. Það er rangt hjá Unnari, að sýslukerfið hafi þá annmarka, að fjölmenn byggðalög njóti ekki eðlilegrar þjónustu á sviði trygg- inga og lögreglustarfa. Hér er við að eiga sýslumennina sem emb- ættismenn, en ekki sýslunefndir sem slikar. Aðal ástæðan fyrir þvi, aö stærri kauptúnahreppar sækja um kaupstaðaréttindi, er krafa um þessa embættisþjónustu frá rikinu. Hins vegar ekki al' þvi að það sé fjárhagslegur ávinning- ur, eins og Magnús E. Guðjóns- son færir rök að i siðasta hefti Sveitarstjórnarmála. Ég held þau dæmi, sem nefnd eru um þjónustu sýslumanna, séu ekki fullkom- lega rétt og viða má finna dæmi um hið gagnstæða, varðandi út- borgun bóta. Slikur málflutningur sem þessi er þvi ekki heppilegur og alls ekki traustvekjandi. Ég held að rétt sé að minna þá menn á, sem hafa tileinkað sér þá trúarlegu köllun að leggja að velli sveitarfélög og sýslunefndir, muni ekki fá um sig stóran söfnuð hér á Norðurlandi og viðar — þeg- ar á reynir. Slikur niðurskurður getur ekki talizt innan ramma þeirrar endurskoðunar sveitar- stjórnarkerfisins, sem félags- málaráðherra stefnir að, til að fullnægja ákvæði stjórnarsamn- ingsins. En þar er svo lagt fyrir, aö endurskoða skuli skiptingu valds og verkefna milli rikis og sveitarfélaga i þvi augnamiði að auka sjálfsforræði byggðalag- anna. Þaö sýnist áreiðanlega ekki innan þessa stefnumiðs aö leggja niður sveitarfélög og héraðasam- tök þeirra, sýslunefndirnar. For- ráðamenn Sambands islenzkra sveitarfélaga munu vafalaust skilja þetta, ef að likum lætur. Siðan þetta var ritað hefur komið I ljós.að ritstjóri blaðs yðar T.K. hefur vafizt inn i blekkingar- vef Unnars, i sunnudagsbréfi sinu. Við T.K. vil ég segja það, að á Hafnarfundinum var engin ákvörðun um þessi atriði tekin og hætt við skoðanakönnun. Með þökk fyrir birtinguna Áskeli Einarsson framkvæmdarstjóri Akureyri. Við setningu greinar minnar, Bækur vor og haust, Timinn, 13. september, hafa orðiö þau mistök, að nokkrar linur féllu brott svo að ógerningur er að lesa I málið. Aftarlega i greininni er vikið að riti Björns Th. Björns- sonar, tslenzk myndlist á 19. og 20. öld: Siðara bindi ritsins ,,kom loks I vor að liðnum niu árum frá þvl fyrri hlutinn birtist. Sá helmingur sögunnar náði fram um 1930, en sfðari hlutinn tekur til listamanna sem störfuðu á árum kreppu og styrjaldar: lýkur ritinu á köflum um Nfnu Tryggvadóttur og Svavar Guðnason. Sögunni sleppir þegar sú kynslóð kemur til skjalanna sem kennd er við hina annáluðu septembersýningu 1947”. Þetta eru lesendur vinsamleg- ast beðnir að athuga. Gunnar Stefánsson. SrÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆJ^ prunau- viðgeroir Nú fæst varanieg þétting á steinsprungum með Silicon Hubber þéttiefnum. Við not- um eingöngu þéttiefni, sem veita útöndum, scm tryggir, að steinninn nær að þorna án þess að mynda nýja sprungu. Kynnið yður kosti Silicon (Impregnation) þéttingar fyrir steinsteypu. Við tökum ábyrgð á efni og vinnu. Það borgar sig að fá viðgert i eitt skipti fyrir öll hjá þaul- reyndum fagmönnum. Sendum efni gegn póstkröfu. ÞÉTTITÆKNI H.F. Ilúsaþéttin^ar \ crktakar Kfnissala ^SImi 2-53-66 Pósthólf 503 TryggvaKötu I yÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ^

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.