Tíminn - 27.09.1973, Qupperneq 2

Tíminn - 27.09.1973, Qupperneq 2
2 TÍMINN Fimmtudagur 27. september 1973 Illllll Hlll Blönduós — Atvinna Stúlka óskast til starfa á skrifstofu Húna- vatnssýslu á Blönduósi. Vélritunarkunnátta æskileg. Upplýsingar i simum 95-4157 og 95-4231. Sýslumaöur. Starf skrifstofustúlku við embætti sýslumannsins i Mýra- og Borgarfjarðarsýslu er laust til umsóknar. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Leirulækjar-Fúsi 1 ÞÆTTI Landfara 4. sept. sl. er m.a. efnis eftirfarandi máls- grein: „Margir munu kannast við Leirulækjar-Fúsa, forgöngumann og lærifööur allra islenzkra atóm- skálda. Eitt sinn fékk Fúsi tiltal hjá presti sinum fyrir það, hve hann fór oft út undir messu. Þegar Fúsi om næst til kirkju hafði hann kollu sina bundna á herðum sér og kvað: Kollu ber ég hægt á herðum, hallast ekki má, fagurt þing með fjórum gjörðum Fúsi karlinn á.” Þetta mætti gjarnan athuga litilsháttar. Ef greinarhöfundur trúir þvi, að visa þessi, sem hann fer hérmeð.sé atómkveðskapur, og að Leirulækjar-Fúsi sé þar með lærifaðir og forgöngumaður allra islenzkra at'omskálda, eins og hann oröar það, þá er það mis- skilningur. 1 fyrsta lagi má benda á það, að visan er bæði með hlóðstaf og endarimi, er það meira en hægt er að segja um hinn nútima atómsamsetning. Svo mikið er til af kveðskap Fúsa I gömlum prentuðum heimildum, bæði lausavisum, og ööru bundnu máli, þar sem öllum bragreglum er fullkomlega fylgt. Electrolux Þessu til sönnunar skulu hér nefnd nokkur dæmi, sem sanna það, að það eru öfugmæli að Fúsi hafi kveðið atómljóð. Þess þurfti hann ekki, svo góður hagyrðing- ur, sem hann var. Hitt er annað mál, að i visna- gerð sinni, bregður Fúsi stundum fyrir sig nokkuð grófu orðalagi. Varð honum eitt sinn hált á þvi, þegar hann kastaði fram visu til manns, sem hann ekki þekkti. Maðurinn svaraði samstundis, þó ekki I sama tón sem til hans var talað, heldur og sinni alkunnu hógværð og speki sem hann var þekktur fyrir. Varð Fúsa þá ljóst hver maðurinn var, skammaðist hann sin þá og b'aðst fyrirgefning- ar og sáriðraðist eftir að hafa kveðið visuna, sem naumast er prenthæf. Verður heldur ekki farið með hana hér. Benda má á það, að visan er prentuð i Þjóðsögum Torfhildar Hólm blaðsiðu 135. Hins vegar ætla ég að hafa hér yfir tvær stökur eftir Fúsa. Hafa þær lifað góðu lifi, þótt orðbragðið sé ekki vel heflað. Tek ég þær út gömlum heimildum með skýring- um, sem þeim fylgja. Sveitungi Fúsa kom eitt sinn til hans og bað hann að hjálpa sér, hann þjáðist mjög af verk i augunum, þvi sagnir eru til um það að Fúsi fékkst nokkuð við lækningar og þóttu efni stundum vel gefast. En hvað sem um augn- lækningar hans má segja, þá tók Fúsi beiðni mannsins vel. Hann skrifaði nokkrar linur á blað og sagði manninum að leggja það við augun, en bannaði stranglega að lesa skriftina fyrr en verkurinn væri horfinn. Maöurinn fór i öllu að ráði læknisins og eftir skamma stund var verkurinn með öllu horfinn. Manninum lék nú forvitni á þvi, hvað Fúsi hefði krotað á blaðið. Þar stóö skrifað: „Sá er i Viti sem þig græöi, sem áliti bænirnar. (Ir þér sliti augun bæði og aftur skiti I tóftirnar”. Sögur eru til um það, að Fúsi hafi stundum setið brúðkaups- veizlur. í einni slikri veizlu kvað hann þessa stöku til þeirra ný- giftu: „Ollum ber að óska góðs, engum er það bannað, eftir staupa fylli flóðs fari þið hvort á annað.” 1 áðurnefndri bók Torfhildar Hólm segir svo á einum stað orð- rétt: „Leirulækjar-Fúsi átti einu sinniaðhafa setið brúðkaup dótt- ur sinnar. Var þá skorað á hann að mæla fyrir minni brúðhjón- anna Kastaði hann þá fram eftirfylgjandi erindi: „Húsmóðir nú má heita héðan af, dóttir min, búiðeraðbreytabráðlega nafni þin, varst áður vinnukind svoddan sóma og heiður sendir þér Þorkell gleiður, munnvið er sú mannkind.” Allir kannast lika við þetta erindi Leirulækjar-Fúsa. „Brúðhjónabolli berst að höndum mér, I tizkunni ég tolli og tali svo sem ber, öllum þeim til æru, sem eiga samsæti, heitri undir hæru,hafi þeir ró og frið. Aukist þeir sem önd i mó eða grásleppa i sjó, hér á enda hnoða ég ró og haldið þið piltar við. Meðan ekkert kemur fram um þaö, að Leirulækjar-Fúsi hafi kveðið eitthvað án þess að nokkrum bragreglum sé fylgt, verður ekki með sanni sagt að hann sé forgangsmaður og læri- faðir allra islenzkra atómskálda. Erlingur Guðmundsson. Samvinnuskólinn framhaldsdeild Nemendur framhaldsdeildar Samvinnu- skólans mæti i húsakynnum deildarinnar að Suðurlandsbraut 32, Reykjavik, mánu- daginn 1. október, til skrásetningar og viðtals, milli kl. 14-16 (kl. 2-4) Skólastjóri. Hlýindin afgóöri hitaeinangrun vara lengur en ánægjan af ”lágu”verði. vantnr SIMR IGGR litla íbúð eða stóra stofu. Upplýsingar d Auglýsingadeild Tímans - símar 1-95-23 og 26-500

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.