Tíminn - 27.09.1973, Blaðsíða 30

Tíminn - 27.09.1973, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Fimmtudagur 27. september 1973 TnmrÍn iii ÍEL 1 M i M i w Rósadrottningin „Hvað heitir þetta undursamlega blóm ? ’ ’ spurði konungurinn. „Þá brosti öldungur- inn: „Þetta blóm heitir rós. Það er nú hvergi til á jörðunni nema hér í minum garði.” Konungurinn gekk um allan garðinn. Þar voru gosbrunnar, laufskálar og hin fegurstu blóm alls staðar. Nú horfði hann allt i einu hugfanginn á fagurrauðu, fögru rós- ina, sem hann hafði séð i draumi sinum. Gamli maðurinn mælti: „Ég er konungur þessara fjalla. Hefur þú ekki heyrt min getið? Einu sinni átti ég heima niðri á jörðunni og þar var rósagarðurinn rr - —■—- s Þ^TnrW 1 r : - ' 'LÍ ín *..rr VM\’ \ . s - — Klómknappurinn stækkafti smáin saman og loks sté Ijómandi falleg stúlka upp lir blóminu. minn. Allir, sem vildu, máttu skoða hann en sumir öfunduðu mig, og aðrir rændu frá mér,og loks kom svo, að þeir vildi drepa mig. Þeir vildu eignast garðinn minn. Þeir héldu að ég væri aðeinn gamall öldungur og þeir gætu gert mér hvað sem þeim sýndist. En ég var ekki eins vesæll og þeir héldu.” Þá fór gamli maðurinn allt i einu að hækka i loftinu og varð að stórum risa, svo að höfuð hans bar við himin. Það lá við að Ali yrði hræddur, en nú varð gamli maðurinn aftur eins og hann var áður og brosti til konungsins og sagði: „Þeim skjátlaðist — þeir réðu ekki við mig. Og til að hefna min á vondu mönnunum, þá lét ég allar rósirnar sem þeir tóku frá mér, visna. Engar rósir skyldu framar vaxa á jörðinni. Svo flutti ég garðinn minn hingað upp á þetta fjall, Ég horfi niður á jörðina og fylgist með mannlifinu. Stundum sendi ég örninn minn niður til mannanna og hann flytur mér fréttir. K U U 12. UW Ég veit margt gott um þig,og siðast það, að þú bjargaðir honum frá höggorminum, og nú vil ég gefa þér rósarkvist. Gættu hans vandlega, gróðursettu hann sjálfur i garði þinum og annastu hann sjálfur. Mun hann verða þér til hamingjuV Konungurinn þakkaði fyrir sig og var glaður. Nú hafði hann þó fundið blómið. Nú sagði fjalla- kóngurinn erni sinum að fljúga með konung heim i konungsrikið, örninn flaug geysi hratt og éftir stutta stund, var Ali kominn aftur heim og með rósarkvistinn. Allir heilsuðu kóngi með gleði og fyrsta verk hans var að fara út i garðinn sinn og górður- setja rósarkvistinn. Hann óx brátt og dafnaði. Konungurinn hlynnti að honum dag- lega, vökvaði hann og beið svo með óþreyju, að fyrsti blómknappurinn kæmi. Loksins opnaði knúppurinn sig, og þá sást, að blómið var ekki rautt heldur fannhvitt. En yndisfagurt var það, og þegar konungurinn beygði sig yfir það, síó roða á hvit blöðin. Konungurinn varð eitthvað svo undarlegur. Hann trúði ekki sinum eigin augum. Allt i einu gægðist ofurlitið, yndis- legt höfuð kom upp úr blómknappinum. Það stækkaði smátt og smátt og loks kom ljóm- andi falleg stúlka upp úr blóminu. Stúlkan var f rósrauðum silkikjól, og leit á konung feimnis- lega. Konungur þekkti hana á augabragði. Það var draumastúlkan hans! Nú tók hann gullkórónuna af höfði sér og lagði fyrir fætur stúlkunnar og bað hana að verða drottningu sina. Nú var slegið upp veizlu og haldið brúðkaup og allir voru glaðir. Ali og rósa- drottningin hans voru hamingjusöm f hjóna- bandi sinu og vinsæl hjá þjóðinni. 1 kringum höllina uxu rósir og frá hallargarð- inum breiddut þær út um landð. Og frá Persiu fluttust þær út um viða veröld.—Og nú vitið þið hvaðan hinar ilmandi rósir, fegurstu blómin á jörðinni, eru komin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.