Tíminn - 27.09.1973, Qupperneq 8

Tíminn - 27.09.1973, Qupperneq 8
8 TÍMINN Fimmtudagur 27. september 1973 Bobo þessi undarlega vera, sem fannst á hvítu sandströndinni við Areia Branca í Bahia- er sérfræðingum ennþá OÞEKKTA HAPPADYR Undarleg vera hefur gert margan sérfræð- inginn út um allan heim, gráan fyrir hærum. Þetta dýr hefur ekki áður þekkzt, og ekki er vitað hvaða tegundar það er. Fyrir hinn unga brasiliska vélfræðing, Alberto Pinheiro, var það happafundur að finna Bobo. Nú heldur hann sýningu á dýrinu og er á leið með að verða milljónamæringur. Dag einn þegar hinn ungi vél- fræöingur Alberto Pinheiro fór slna daglegu morgungöngu, gerð- ist nokkuð heldur óvanalegt. Hann gekk eins og venjulega eftir hinni hreinu og hvitu strand- lengju við Areia Branca I Salva- dor i Bahia. (Borgin sem var fyrsta höfuðborg Brasiliu). Allt i einu kom Pinheiro auga á undar- legt dýr, sem lá á ströndinni einmitt á þeim stað þar sem bylgjurnar teygðu sig lengst upp á ströndina. Þetta undarlega dýr gaf frá sér smáskræki um leið og það sló með stuttum uggunum I sandinn. 1 fyrstu hélt Pinheiro aö þetta væri litill hvalsungi, en sá fljótlega að það gat ekki átt sér stað. Hann gat ekki gert upp við sig hvaða dýrategund þetta væri. Þó minnti það bæði á rostung og sel. Pinheiro nálgaðist dýrið var- lega greip snögglega i stutta ugg- ana, en passaði sig, um leið að vera ekki nálægt kjafti dýrsins, hvorki með hendur né likama. Hann snéri dýrinu við, grand- skoðaði það, en var engu nær. Hann hafð: h\\.r':i heyrt um eða séð slikt dýr fyrr. Það hafði at- hugul áugu, sem fvlgdust með öllu, sem iram fór. Þegar Pinheiro gekk nokkur skref aftur á bak á ströndinni, hreyfði dýrið uggana ótt og titt, og reyndi að elda hann, næstum eins og hundur. Pinheiro skildist fljótlega að þetta undarlega dýr var friösamt og vingjarnlegt, hann hafðieinnig tekið eftir þvi, að það hafði engar tennur. Með hjálp tveggja vina sinna, sem hann náði i, kom hann þessari undarlegu veru upp á vörubíl. A leiðinni heim tók hann eftir þvi, að dýrinu leið illa i sól- inni og likami þess varö alveg þurr. Pinheiro dó ekki ráöalaus. Hjá vini slnum fékk hann lánaðan vatnstank, sem hann fyllti af sjó. Hjálpuðust siðan vinirnir við að koma dýrinu varlega . fyrir i tanknum. Dýrið tók undir eins við sér. Þvi leið augslýnilega vel i vatninu og leit þakklátum augum á Pinheiro og vini hans. Það var eins og það skildi, aö þeir vildu þvi aðeins vel, og það buslaði ánægt i vatninu. En ein gáta var óleyst. Hvers konar dýr var þetta? Var þetta einhvers konar fisktegund eða gæludýr — hvaða fyrirbrigði var þetta? Sérfræðingar frá dýragarðin- um i bænum voru fengnir til að rannsaka dýrið.siðan sérfræöing- ar alls staðar að, frá öllu landinu i fáum orðum — það haföi ekkert upp úr sér. Þegar meira en 20 viðurkenndir sérfræðingar höfðu rannsakað dýriö, voru að lokum tveir mögu- leikar: — Pinheiro, hafði annað hvort fundið afkvæmi sels eða rostungs, eða þá að þetta var van- skaplingur. Ekki einn einasti sérfræðingur getur sagt um það meö vissu, af hvaða dýrategund þessi vera er. Það eina, sem vitað er, er það, að dýrið er ekki af neinni þekktri fiska- eða dýrategund. Bobo, en svo er dýriö kallað, nærist á mjög óvanalega sam- settri fæðu. Uppáhalds drykkur hans er mjólk, en aðalrétturinn er bananar. Við og við borðar Bobo fisk, en hann fer ekki dult meö þaö, að fiskur er enginn upp- áhaldsmatur hjá honum. Nei, sykur, konfekt, kartöflur, kál og eins og áðan var nefnt bananar, er eitthvað annað en fiskur. Bobo borðar u.þ.b. 60 ban- ana á dag, sem skiptast niður á tvær máltiðir. Hann innbyröir tiu kiló af káli og álika mikið af kar- töflum, á dag, sem skolast niður með 20 litrum af mjólk. Sérfræöingar segja, að þeir þekki ékki til neinnar veru með kalt blóð, sem nærist á hverju sem er eins og Bobo, niðurstaöan varð nefnilega sú, að Bobo væri meö kalt blóð, þó aö mikiö meira verði ekki um hann sagt. Bobo er svartur að lit, vegur 234 kiló og hefur hvorki hreistur né hár. Hann hefur tvo stutta, en kraftalega ugga. Andlitið likist sel eða rostung. Þetta dularfulla dýr þrifst mjög vel á landi, ef það fær sturtu við og við. En það kann þvi lika vel að fá að stinga sér við og við I sjóvatn. Þetta er vingjarnlegt og furðulega gáfað dýr. Pinheiro, sem áður vann sem vélfræðingur, hefur nú sett upp búr fyrir Bobo. Þar hefur hatrn allt,sem hann þarf með, vatns- tankinn með sjóvatni I, sand o.s.frv. Lifir Pinheiro nú á þvl að sýna Bobo, og hvaðanæva að frá allri Brasiliu streymir fólk til að siá þetta undarlega dýr. Bobo nýður þess að vera miðpunktur- inn og fylgist vel með þvi, sem fer fram i kringum hann. Auk þess nýtur hann þess að borða allan þann mat, sem til hans Derst meo hinum mislita hópi manna, sem kemur að skoða hann — og Bobo boFðar allt. Pinheiro, sem áður hafði stritað fyrir hverium brauðbita. bvr nú i stóra villa og ekur um á splunku- nýjum bil. 1 framtiðinni mun hann ekki þurfa að hafa neinar fjárhagsáhyggjur. — Það er Bobo, sem hefur fært mér gleði segir hann ánægöur. Ég hugsa að sjálfsögðu vel um hann, og gæti hans eins og sjáaldurs augna minna. Ég vildi aöeins að ég gæti náð I kvendýr handa honum segir Pinheiro þá gæti ég fyrst farið að græða. En þetta gengur vel. Siðan ég byrjaði að halda sýningu á honum, hef ég fengið að meðaltali 70.000—90.000 kr. i aðgangseyri á dag. Ég vona bara, að hann verði friskur, svo þetta geti haldið áfram. Og á hverjum degi stendur fólk i biðröð til að sjá þetta undarlega fyrirbrigði. Er Bobo fiskur eða vanskaplingur? Kannski finna sérfræðingar svar við þvi einn daginn. Það vitum við ekki, en eitt er vist, að lukkuhjólið snerist Alberto Pinheiro i hag þennan morgun þegar hann gekk eftir ströndinni. Hann er nefnilega á góðri leið með að verða milljóna- mæringur .

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.