Tíminn - 02.10.1973, Blaðsíða 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
’T*T
MÍ&—'J
RAFTÖRG SÍMI: 26660
RAFI0JAN SIMI: 19294
Hálfnað
erverk
þá hafið er
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Þrír stjórnarmenn
voru andvígir
atriðum
í yfirlýsingu VI*
Nöfn þeirra
voru samt
sett undir
yfirlýsingu
róðsins!
EJ—Reykjavík — í slðustu viku
birtist i dagblöðunum yfirlýsing,
„undirrituð” af öllum stjórnar-
mönnum I Verzlunarráði islands,
þar sem lagzt var ákveðið gegn
stjórnmálaslitum við Breta. Nú
hefur komið i ljós, að nöfn
sumra stjórnarmannanna voru
sett undir yfirlýsinguna, þótt þeir
hefðu lýst því yfir á stjórnarfund-
inum, að þeir væru andvigir
vissum atriöum i yfirlýsingunni!
Yfirlýsing Verzlunarráðs, sem
birt var hér I blaðinu á laugar-
daginn, var dagsett 26. september
og voru nöfn allra stjórnar-
manna, 13 að tölu, undir henni.
Blaðið frétti hins vegar i gær,
að a.m.k. fulltrúar iðnrekenda i
stjórninni, en þeir eru þrir, —
Gunnar J. Friðriksson formaður
Félags isl. iðnrekenda, Davið
Sch. Þorsteinsson og Haukur
Eggertsson — hafi mótmælt þvi
við Verzlunarráðið, að nöfn
þeirra voru sett undir ályktunina,
þar sem þeir hafi lýst yfir and-
Framhald á bls. 19
Hefjast
fastar flug
ferðir
til AAývatns?
JI—Reykjahlið — I gær kom
hingað Tvin Otter flugvél flug-
félagsins Vængja, en það er 19
farþega vél, sem félagið keypti
i sumar. Erindi þeirra Vængja-
manna var að kanna hér að-
stæður með það fyrir augum að
hefja áætlunarflug hingað, ef
leyfi yfirvalda fæst til þess.
Flugvélin settist á flugvöllinn
við Reykjahliö, en hann var
gerður árið 1956 og er með einni
tæplega 600 metra langri braut
og annarri um 350 metra langri.
Allmargir Mývetningar voru
viðstaddir komu vélarinnar.
m.a. Bóas Gunnarsson, vara-
oddviti, en upphaflegt tilefni
þess, að Vængir ihuga nú
áætlunarflug til Mývatns er
bréf, sem sveitarstjórinn hér
sendi félaginu á síðastaári, þar
sem óskað var eftir að þetta
yrði athugað.
1 gær var öllum viðstöddum
boðið i flugferð yfir Mývatns-
sveit. Fór vélin alls þrjár ferðir
viö mikla ánægju þátttakenda,
ekki sizt þeirra yngstu.
Það vakti athygli viðstaddra,
hve aðbúnaður farþega er
góöur I flugvélinni, og hve ör-
stutta braut hún hotar til lend-
ingar og flugtaks.
Flugmönnunum leizt vel á
flugvöllinn, og nú er það von
Mývetninga, að hafnar verði
fastar flugferðir hingað áður en
langt um liður.
Einar Ágústsson, utanríkisrdðherra, d allsherjarþinginu í gær:
Aðgerðir Breta óþolandi
EJ-Reykjavik.— Einar Agústs-
son, utanríkisráðherra, flutti
ræðu á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna i gær, og
fjallaði þar m.a. um landhelgis-
inálið og undirbúning hafréttar-
ráðstefnunnar. Lagöi hann
áherzlu á, að ástandið á tslands-
miðum hefði stórversnað frá þvi
hann fiutti ræðu á sama stað i
fyrra „vcgna þess, að Bretar
hafa haldiö áfram togveiðum
sinum undir herskipavcrnd".
1 ræðu sinni sagði utanrikisráð-
herra, að herskip Breta hefðu
„samvinnu við brezkar orustu-
flugvélar, sem fljúga yfir svæðið
og skýra herskipunum frá stöðu
Islenzkra varðskipa. Herskipin
hafa þráfaldlega virt að vettugi
alþjóðareglur um siglingar og
siglt á varðskipin. Þetta sifellda
ófriðarframferði hefur þegar leitt
til manntjóns. Slikar aðgerðir eru
ekki aðeins óþolandi, heldur gætu
þær auðveldlega leitt til
enn hörmulegri afleiöinga. Rikis
stjórn Islands hefur þráfaldlega
mótmælt þessum hernaðarlegu
aðgerðum og krafizt þess, að her-
skipin verði þegar i stað kvödd á
brott. Hingað til hefur verið dauf-
heyrzt við þeim kröfum. tslenzka
rikisstjórnin hefur tilkynnt rikis-
stjórn Bretlands, að verði þessum
aðgerðum ekki hætt, muni hún
neyðast til að slita stjórnmála-
sambandi milli landanna. Vegna
hinnar gömlu vináttu islenzku og
brezku þjóðanna vona ég af
einlægni, að ekki muni reynast
nauðsynlegt að stiga þaö skref”,
sagði ráðherrann.
t þeim kafla ræðunnar, sem
fjallaði um undirbúning hafréttar
ráðstefnunnar, lagði ráðherra
áherzlu á að „auðlindalögsaga
strandrikja allt að 200 milum er
meginstefna, sem nýtur vaxandi
fylgis i öllum heimsálfum, svo
sem skýrt kemur fram i tillögum
og stefnuyfirlýsingum rikja á
öllum svæðum heims — i Afriku,
Asiu, Astra ;i, Kanada. Mið- og
Suður-Amei ..;u og Evrópu. Þessi
þróun er nú orðin svo máttug, að
hún mun ekki stöðvast og verður
ekki stöðvuð”.
RÆÐA UTANRÍKISRÁÐHERRA ER BIRT í HEILD Á BLAÐSÍÐU 8
Kinvcrjar héldu hátiðlegan 24. þjóðhátiðardag sinn I gær.Kinverska sendiráðiö á islandi hélt af þvi
tilefni mikla veizlu i Myndlistarhúsinu viö Miklatún. Var þangað boðið fjölda manns. A efri myndinni
sést ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra heilsa sendiherra Kina á islandi, en á þeirri ncðri sést yfir
veizlusalinn. (Timamynd: Gunnar).
Sýslunef ndin:
Atkvæða-
greiðsla
d Selfossi
um
Votmúla-
kaupin
SYSLUNEFND Arnessýslu
ákvaðá fundi sin'um á laugar-
daginn, að fram skyldi fara
atkvæðagrciðsla meðal kjós-
enda i Selfosshreppi um það,
hvort þcir væru samþykkir
eða andvigir kaupunum á Vot-
múlalandi, sem svo mjög hafa
verið umdeild og sem mikiil
meirihluti skattborgara á Sel-
fossi hefur mótmælt með
undirskriftasöfnun.
Samkvæmt samþykkt sýslu-
nefndarinnar skal atkvæöa-
greiðslan fara fram fyrir lok
októbermánaðar, og hafa allir
þeir, sem kosningarétt hafa
samkvæmt kosningalögum.at-
kvæbisrétt.
—EJ
Sjá mynd á bls. 13.
Fjölmargir sækja um kennara
stöður úti á landsbyggðinni!
— gjörbreytt viðhorf, segja skólastjórar úti á landi
MIKIL eftirspurn hefur
verið um kennarastöður
viða um land i sumar
og haust. Blaðið hafði
samband við nokkra
skólastjóra úti á landi,
og höfðu þeir yfirleitt
sömu sögu að segja:
margar umsóknir og
fyrirspurnir höfðu borizt
um lausar stöður.
Við barnaskólann á Egils-
stöðum voru auglýstar tvær
lausar stöður til umsóknar, og um
þær sóttu 10 manns, allir með
kennaramenntun. Um þrjár
lausar stööur við gagnfræðaskól-
ann á Egilsstöðum bárust fimm
umsóknir þar af kennarar með
BA próf. Aðspurður, hvað ylli
þessum fjölda umsókna, sagöi
Ólafur Guðmundsson skólastjóri,
að Egilsstaöir væru mjög mið-
svæðis og flugsamgöngur góðar.
Einnig sagöi Ölafur, að auðsjáan-
lega væru mjög breytt viðhorf
gagnvart dreifbýlinu siðustu árin
og fólk hefði nú ekki lengur á móti
að dvelja úti á landi.
10 umsóknir bárust um eina
lausa stöðu við barna- og mið-
skólann á Blönduósi, þar af einn
með réttindi. Aðrir umsækjendur
voru yfirleitt með stúdentspróf.
Bergur Felixson, skólastjóri á
Blönduósi, áleit, að mikiö heföi
haft að segja að ibúö fylgdi stöð-
unni. Aftur á móti kvað Bergur
öllu verra að fá iþróttakennara út
á land og hefur t.d. enginn fengizt
ennþá á Blönduós.
Angantýr Einarsson, skóla-
stjóri á Raufarhöfn, sagði að 17
fyrirspurnir hefðu borizt um
lausa kennarastöðu við barna-
skólann á Raufarhöfn. Flestir
umsækjendur voru með
stúdentspróf. Angantýr sagði, að
auöveldara væri að fá kennara út
á land seinustu ár, enda greini-
legt að fólk liti nú öðruvisi á bú-
setu á landsbyggðinni. Einnig
sagöi hann Raufarhöfn upp-
gangsstað og samgöngur væru
tiltölulega góðar. Nýtt skólahús-
næði er á Raufarhöfn og góð aö-
staða til kennslu.
SVAR ÓLAFS JÓHANNESSONAR TIL EDWARDS HÉATH ER Á BLS. 3