Tíminn - 02.10.1973, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 2. október 1973.
TÍMINN
15
Umsión: Alfreð Þorsteinsson
PALMI PALMASON...sést hér stöðvá JÓN HJALTALÍN i leik Fram og Víkings i Reykjavikurmótinu. (Tímamynd: Gunnar)
Landsliðsmenn Vík-
ings nd ekki saman
Víkingsliðið með allar sínar stórskyttur tapaði fyrir Fram 16:14 í
og skemmtilegum leik. Liðið ó nú við vandamól að stríða
VÍKINGUR Reykjavikurmeistari í handknattleik á nú við mikið
vandamál að stríða. Vikingur hefur mörgum snjöllum handknattleiks-
möniium á aðskipa, en virðist ekki ná saman. Það kom svo sannarlega
i ljós á laugardaginn, þegar Reykjavikurmeistararnir töpuðu 16:14
fyrir Framliðinu. Vikingsliðið er geysilega stcrkt á pappirnum, enda er
liöið skipað nær cingöngu núverandi og fyrrverandi landsliösmönnum.
Það, sem háir Vikingsliðinu, er, að það komast ekki ailir leikmennirnir
fyrir i liðinu og sóknarleikmennirnir keppast um sömu fjalirnar á
vellinum, — leikur þeirra er því ekki upp á marga fiska. Sóknar-
mennirnir þvælast fyrir hver öðrum og engin ógnun er I leiknum.
leik. Það verður ekki fyrr en að
búið er að skipuleggja leik liðsins
og skapa hlutverk fyrir hvern og
einn leikmann i sókninni. Jón
Hjaltalin lék með Vikingi gegn
h'ram — afturkoma hans hefur
þvingandi áhrif á aðra sóknar-
leikmenn Vikings. T.d. verður
Einar Magnússon ekki eins ógn-
andi i sóknarleik liðsins, þvi að
hann, eins og aðrir leikmgnn
Vikings, treysta of mikið á Jón og
gera þvi litið sjálfir. Þá þarf leik-
maður eins og Guðjón Magnússon
Með þessu áframhaldi verður
Vikingur ekki topplið i handknatt
Fylkir
fékk
að sitja á varamannabekknum.
Leikur Fram og Vikings var
jafn og spennandi og var leikur
hinna ungu landsliðsmarkvarða.
Guðjón Erlendsson hjá Fram og
Vikingurinn Sigurgeir Sigurðs-
son, vörðu mjög vel og stundum
snilldarlega. Það er greipilegt, að
þarna eru
landsins á ferðinni og ekki nema
von að þeir séu báðir valdir i
landsliðið.
Framliðið átti mjög góðan leik,
sérstaklega var varnarleikur
liðsins góður. Þá voru þeir Axel
jöfnum
Axelsson og Björgvin Björgvins-
son beztu menn liðsins að vanda,
ásamt Guðjóni Erlendssyni.
Pálmi Pálmason átti nú einn sinn
bezta leik með Framliðinu og
sýndi hann mikið öryggi undir lok
leiksins. Hann á eftir að styrkja
Framliðið mikið i vetur, þvi að
hann hefur næmt auga fyrir linu-
sendingum og er öruggur i vita-
köstum. Hinn snjalli linuspilari
Björgvin Björgvinsson, þarf
örugglega ekki að kvarta i vetur,
þvi að hann fær nóg að gera,
þegar hann hefur þá Axel og
Pálma til að gefa inn á línuna.
Sigurgeir Sigurðsson, mark-
vöröur Víkings varði mjög vel i
leiknum, gerði sér t.d. litið fyrir
og varði tvö vitaköst frá stór-
skyttunni Axeli Axelssyni.
Vikingsliðið er þarna búið að fá
stórgóðan markvörð, en það er
ekki nóg að vera með góðan
markvörð, þegar útispilararnir
falla ekki samann.
—SOS
Körfuknattleiksmenn
til Bandaríkjanna
Bragi Jónsson UMFS.
Þórir Magnússon Val.
stig
jafntefli við Þrótt
ÞRÍR AÐRIR leikir voru leiknir i
Reykjavikurmóti karla I hand-
knattleik um helgina'. Fylkis-liðið
kom mest á óvart, þegar það
gerði jafntefli gegn Þrótti 18:18.
ÍR-liðið vann Armann 14:13 I
jöfnum leik, Það var ekki fyrr en
undir lokin, aö IR-liðið tryggði sér
sigur I leiknum. Islandsmeistarar
Vals áttu ekki i erfiðleikum gegn
KR. KR-liðið stóð i Val fyrstu
minúturnar og náöi tveggja
marka forustu 6:4. en slðan ekki
söguna meir og Valur vann
örugglega 21:12. Nú er útseð um
að það verður Valur og Fram,
sem leika til úrslita i Reykja-
víkurmótinu.
15 leikmenn leika þar
Landsliðsnefnd Körfu-
knattleikssambandsl ís-
lands hefur valið eftir-
talda leikmenn til
Bandaríkjaferðar, sem
standa mun dagana 15.
nóv. til 20. des. Leiknir
verða alls 15 leikir :
15 leiki ó 36 dögum
Bakverðir:
Jón Sigurðsson Armanni.
Kári Marisson Val.
Brynjar Sigmundsson UMFN
Hilmar Viktorsson KR.
Kristinn Jörundsson ÍR,
fyrirliði
Framherjar:
Jóhannes Magnússon Val.
Stefán Bjarkason Val.
Gunnar Þorvarðars. UMFN.
Miðherjar:
Birgir Guðbjörnsson KR.
Stefán Hallgrimsson KR.
Hugsanlegt er, að einum leik-
manni til viðbótar verði bætt i
þennan hóp.
Landsliðsþjálfari er Ölafur
Thorlacius, en Landsliðsnefnd
skipa Einar Bollason og Gylfi
Kristjánsson.
„Alveg
eins
gott að
skipta
um
félag"
— segir Guðjón
Magnússon
„Ef ég fell ekki inn í
það kerfi, sem þjálfar-
inn lætur liðið leika
eftir, þá er alveg eins
gott að skipta um
félag”...sagði Vik-
ingurinn i Vikings-
liðinu, Guðjón Magnús-
son, landsliðsmaður i
handknattleik, eftir
leik Vikings og Fram i
Reykjavikurmótinu i
handknattleik.
Það vakti mikla athygli
áhorfenda, að Karl Benedikts-
son, þjálfari Vikingsliðsins, lét
Guðjón aðeins leika i þrjár
minútur i fyrri hálfleik gegn
Fram. I siðari hálfleik gerði
Guðjón sér litið fyrir og dreif sig
i bað, greinilega ekkert hrifinn
af þvi að þurfa að sitja á vara-
mannabekknum og horfa á
félaga sina leika.
Það er skiljanlegt, að Guðjón
sé ekki hrifinn af þvi hlutverki,
sem hann er látinn spila i Vik-
ingsliðinu. Það hlýtur að vera
erfitt fyrir leikmann, sem var
potturinn og pannan i leik
Vikingsliðsins sl. keppnistima-
bii, að þurfa nú að verma vara-
mannabekkinn. Hvers á Guðjón
að gjalda? SOS
GUÐJÓN MAGNÚSSON
Sigrún
byrjuð
aftur
Sigrún Guömundsdóttir, hin
kunna handknattlcikskona úr
Val, er nú byrjuð að æfa hand-
knattleik af fullum krafti. Sig-
rún hefur lltið leikið handknatt-
leik undanfarin ár, en hún er ein
bezta handknattleikskona, sem
við höfum átt og sú skotharð-
asta, sem hefur komið fram hér
á landi. Það er ekki að efa, að
hún á eftir að styrkja Valsliðið
og landsliðið mikið i vetur.