Tíminn - 02.10.1973, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur 2. október 1973.
GUNNAR KJARTANSSON...formaöur landsliðsnefndar
kvenna. (Timamynd Gunnar)
„Ekkert gert
fyrir kvenna-
handknattleik"
/fÞAÐ er ekkert gert
fyrir íslenzkan kvenna-
handknattleik,'...sagði
Gunnar Kjartansson,
formaður landsliðs-
nefndar kvenna, þegar
við spölluðum við hann
fyrir stuttu. Ef haldið
hefði verið rétt á spil-
unum sl. ár, þá hefði átt
að halda áfram að skapa
verkefni fyrir kvenna-
landsliðið, sem stóð sig
mjög vel á síðasta
Norðurla nda móti í
handknattleik. Islenzka
kvennalandsliðið væri
þá komið í sama flokk og
önnur kvennalandslið á
Norðurlöndum.
En það hefur ekkert verið
gert fyrir kvennahandknatt-
leikinn og mér hefur fundizt að
forustumenn handknatt-
leiksins litu á kvennahand-
knattleik sem aukaatriði. Það
hefur komið þannig út, að það
væri likt og kvennahandknatt-
leikur væri aö taka timann frá
karlahandknattleiknum, en
það er hann, sem stjórn HSl
hugsar nær eingöngu um. Ef
við eigum að ná árangri i
kvennahandknattleik, þá
verður að gera þarna breyt-
ingar á.
— Hvað er framundan hjá
kvenfólkinu, Gunnar?
— Við erum núna aö undir-
búa kvennaliöiö fyrir Norður-
landamótið, sem fer fram i
Finnlandi 16.-18. nóvember
n.k. Aður en liöið fer til Finn-
lands mun það leika einn
landsleik i Noregi og fer hann
fram 14. nóvember. Þá tekur
islenzka kvennaliðið. undir 21
árs aldri, þátt i Norðurlanda-
móti i marz 1974.
— Er áhuginn mikill hjá
stúlkunum?
— Já, áhuginn er mikill hjá
þeim. Þær mæta mjög vel á
landsliðsæfingarnar, sem eru
einu sinni i viku. Við höfum
valið 18 stúlkur til landsliðs-
æfinganna, sem fara fram i
Laugardalshöllinni. Það verða
14 stúlkur, sem fara með
liðinu út á Norðurlandamótið,
tólf útispilarar og tveir mark-
verðir.
— Hvernig lizt þér á kvenna-
handknattieikinn i vetur?
— Mér lizt mjög vel á hann
og það má búast við að hann
verði jafn og spennandi, þvi að
liðin eru mjög svipuð að styrk-
leika. Þá er þaö spor i rétta
átt, að nú hefur verið fjölgað
úr sex liðum i sjö i 1. deild-
inni. Þar með fá liðin fleiri
leiki og verkefnin veröa fleiri.
Nú verður i fyrsta skiptið
leikið i l.-deildinni á Akureyri,
þar sem Þór vann I 2. deildinni
sl. vetur. Þá er FH komið
aftur upp 11. deild, en FH-liðið
vann Breiðablik i auka-
leikjunum um 1. deildarsætið,
sem bættist við. Aftur á móti
veröur keppnin i 2. deild
ójöfn, þar sem Breiöablik er i
sérflokki i deildinni, en
Breiðabliksliðið er i sama
gæðaflokki og liðin í 1. deild,
sagöi Gunnar aö lokum.
SOS
Hólmsteinn gefur
ekki kost á sér
Akveðið hefur verið, að ársþing
Körfuknattleikssambands is-
lands verði haldið i lok okt. Nú-
verandi form. K.K.t. Hólmsteinn
Sigurðsson hefur lýst þvi yfir, að
hann verði ekki i framboði til
endurkjörs.
Nánari tímasetning og þing-
staður verða auglýst mjög bráð-
lcga.
FORSALA á leik Keflvikinga
og skozka liðsins Hibernian
hefst i dag kl. 13.00 — 18.00 við
Útvegsbankann i Austur-
stræti. A morgun verða miðar
seldir þar frá ki. 13.00 — 16.00
og við Laugardalsvöllinn frá
13.00 fram að leiknum, sem
hefst kl. 17.15.Forsalan hófst i
gær I Keflavlk, en þar eru
miðar seldir i Sportvik.
Enska knattspyrnan:
Q.P.R. VANN ÓVÆNTAN
SIGUR Á SIGUR Á ST.
JAMES PARK
Lundúnaliðið skoraði tvö mörk á fyrstu
þremur min. gegn Newcastle og vann
leikinn 3:2. — Leicester tapaði sínum
fyrsta leik á keppnistímabilinu og
Tottenham vann fyrsta heimasigur sinn
— Leeds var heppið gegn Norwich
Lundúnaliðið Queens Fark
Rangers kóm heldur betur á
óvart á laugardaginn, með þvi að
vinna Newcastle 2:3 á St. James
Park, heimavelli Newcastle. A
fyrstu þremur minútum leiksins,
mátti Iam McFaul, markvörður
Newcastle, hirða knöttinn tvisvar
sinnum úr netinu hjá sér. Fyrst
sendi Thomas knöttinn fram hjá
honum og stuttu siðar skoraði
Gerry Francis. Það var ekki nóg
með það, heldur bætti Mike Leach
þriðja marki QPR við, áður en
leikmenn Newcastle gátu svarað
fyrir sig. Heimamenn sóttu nær
stöðugt I leiknum og oft skall
hurð nærri hælum viö mark QPR.
Þaö var ekki fyrr en 5 min fyrir
lok venjulegs leiktima, að John
Tudor tókst að koma knettinum i
netið hjá Lundúnaliðinu og stuttu
siðar bætti hann öðru marki við.
Dómari leiksins bætti sjö min.
við sfðari hálfleikinn og ætlaði þá
allt vitlaust að verða á áhorf-
endapöllunum, þvi að Newcastle
sótti geysilega og leikmenn liðs-
ins gerðu allt til að jafna. Þeim
tókst það ekki og fór þvi Queens
Park Rangers með bæði stigin til
Lundúna. Samtals bætti dómar-
inn 12 min viö leiktimann, fyrst 5
min i fyrri hálfleik og siðan 7 i sið-
ari.
Úrslitin i ensku 1. deildinni urðu
þessi á laugardaginn:
I. deild:
Birmingham—Ipswich 0-3
Burnley—Manch. City 3-0
Chclsca—Wolves 2-2
Everton—Arsenal 1-0
Leicester—Coventry 0-2
Manch. Utd.—Liverpool 0-0
Newcastle—QPR 2-3
Norwich—Leeds 0-1
Southampt,—Sheff. U. 3-0
Stoke—West Ham 2-0
Tottenham—Derby 1-0
Leicester tapaði sinum fyrsta
leik á keppnistimabilinu, þegar
liöiö fékk Coventry i heimsókn á
Highfield Road. Coventry-liðið,
sem er nú i öðru sæti i deildinni,
vann sanngjarnan sigur 0:2.
Brian Alderson skoraði fyrra
markið og siöan bætti 18 ára gam-
all nýliði Chris Cattlin, öðru
marki við.
Tottenham tókst aö vinna sinn
fyrsta leik á heimavelli sinum
White Hart Lane i Lundúnum á
laugardaginn, þegar Derby kom i
heimsókn og einnig fékk Totten-
ham sin fyrstu stig á heimavelli.
Það var Ralph Coates, sem skor-
aöi hið þýðingarmikla mark, sem
færði Tottenham hinn eftirsótta
sigur á White Hart Lene. Derby-
liöiö lék mjög illa i leiknum og var
óþekkjanlegt frá fyrri leikjum á
keppnistimabilinu.
Joe Corrigan, markvörður
Manchester City, gerði ljót
mistök, þegar City heimsótti
Burnley á Turf Moor. Mistök,
sem kostuðu tvö mjög ódýr mörk.
Fyrsta mark leiksins skoraði
Paul Fletcher, en það mark átti
Corrigan ekki möguleika á að
verja. Siðan skoraði Martin
Dobson fyrir leikshlé og I síöari
hálfleik bætti Fletcher viö öðru
marki. Þessi bæöi mörk má
skrifa á reikning Joe Corrigans
og hann vill örugglega gleyma
þeim sem fyrst.
öll fjögur mörkin i leik Chelsea
ogWolves komu i siðari hálfleik.
Jim McCalliog skoraði tvö góð
mörk fyrir Úlfana. Þess má geta,
að úlfarnir hafa skorað tiu mörk i
niu leikjum i deildinni — aðeins
tveir leikmenn hafa skorað mörk-
in. Það eru þeir McCalliog, fjögur
og Derek „gamli” Dougan sex.
Markaskorarinn frá þvi i fyrra,
John Richards, er ekki enn kom-
inn á blað, en hann skoraði 33
mörk sl. keppnistimabil. Garner
minnkaði muninn fyrir Lundúna-
liðið og Peter Osgood sem fékk
bókun I leiknum, skoraði
jöfnunarmark Chelsea.
Arsenal tapaöi mjög óvænt
fyrir Everton á Goodison Park
1:0 á marki, sem Skotinn John
McLaughlin skoraði. McLaughlin
þessi, var keyptur frá Falkirk sl.
vor. Tap Arsenal er kannski ekki
svo óvænt, þegar það er tekið til
greina, að Arsenal hefur ekki
unnið Everton á Goodison Park
sl. fjórtán ár.
Manchester United og Liver-
pool gerðu markalaust jafntefli á
Old Trafford. Áhorfendur fengu
þó að sjá mark skorað eftir aðeins
fjórar minútur, þegar bakvörður
Liverpool, Chris Lawler, sendi
knöttinn i markið hjá United. En
á óskiljanlegan hátt, dæmdi dóm-
arinn markið af. Siðan átti
Macari hjá United mjög gott
marktækiíæri á 13. min. þegar
hann spyrnti fram hjá marki
Liverpool, á aöeins tveggja metra
færi. Það reyndi ekki mikið á
markverðina I leiknum, þeir áttu
frekar rólegan dag. Macari var
tekinn út af og George Buchan
var settur inn á. George þessi er
bróðir Martin Buchan, miðvaröar
hjá United. Hann hefur sýnt mjög
góöa leiki aö undanförnu og það
verður örugglega ekki langt
þangað til að hann verði fastur
maður hjá United.
Leeds var heppið að fá bæði
stigin gegn Norwich á Carrow
Road. Eftir aðeins 12 minútur var
gott mark dæmt af David Cross,
hinum marksækna leikmanni
Norwich. Aöeins minútu siöar
skoraði Johnny Giles eina mark
leiksins, þegar hann sendi knött-
inn i netið af 25 metra færi, skot,
sem Kevin Keelan markvörður
Norwich hefði átt að ráða við.
Peter Lorimer og Paul Reaney,
léku aftur með Leeds á laugar-
daginn.
17 ára nýliði, Goodwin, kom
Stoke á bragðið gegn West Ham á
laugardaginn á Victoria Ground.
Ahorfendur fögnuðu innilega
þessu fyrsta marki Goodwins,
sem hann .hefur skorað fyrir
Stoke. Það er svo sannarlega
gaman að vera nýliði á heima-
velli og skora mark, svo byrjunin
verði glæsileg hjá heimaliðinu, —
það fékk Goodwin að finna á
laugardaginn. Jimmy Grenhoff,
skoraði siðari mark heima-
manna.
Orslit leikjanna i 2. deild, urðu
þessi:
Bolton—Nottm. For 1:0
Cardiff—Hull 1:3
Luton—Blackpool 3:0
Middlesb.—Bristol C. 2:0
Millwall—Carlisle 1:2
Notts. C.—Aston Villa 2:0
Orient—Swindon 0:0
Oxford—Fulham 0:0
Preston—Portsmouth 2:1
Sheff. Wed,—C. Palace 4:0
W.B.A.—Sunderland 1:1
Middlesbrough, lið Jackie
Charlton, vann góðan sigur yfir
toppliðinu i 2. deild Bristol City á
heimavelli sinum Ayresome
Park. Bobby Murdoch, sem
Middlesbrough keypti frá Celtic
nýlega, kom heimamönnum 1:0
yfir, með fyrsta marki sinu fyrir
sitt nýja lið. Murdoch var bezti
maðurinn á vellinum og Jackie
Charlton hefur gert góð kaup,
með þvi að kaupa þennan fyrr-
verandi skozka landsliösmanna.
Það virðist ekkert ganga hjá
Crystal Palace, — liðið tapaði
stórt gegn Sheffield Wednesday.
Þótt Palace sé búið aö styrkja
vörnina, með þvi að kaupa þá
Ray Barry frá Coventry og
Derek Jeffries frá Manchester
City, þá fekk liðið fjögur mörk á
sig.
Hibernian, liðið sem leikur
gegn Keflavik I UEFA-keppninni
á morgun, vann góðan sigur yfir
Ayr United á heimavelli sinum
Easter Road Park 4:2. Hitt Edin-
borgarliðið, Hearts, er nú búið aö
taka forustuna i skozku 1. deild-
inni, með þvi aö vinna Rangers
0:3á heimavelli Rangers. Hearts-
liðið er mjög gott i dag og sigur
liðsins var sanngjarn. Celtic tap-
aði einnig á laugardaginn 2:1
þegar liðið heimsótti St. John-
tone.
SOS
IAM McFAUL.-.markvörður Newcastle fékk tvö mörk á sig á fyrstu
þremur min. gegn Q.P.R.