Tíminn - 02.10.1973, Qupperneq 7

Tíminn - 02.10.1973, Qupperneq 7
Þriðjudagur 2. október 1973. TÍMINN 7 ■ Hjálparsveitarmenn setja slasaðan farþega á börur. (Tlmamynd: Gunnar) Flugslys sett á svið á Kjalarnesi Sá mest seldi ár eftir ár Pólar h.f. Einholti 6. LANDSSAMBAND hjálparsveita skáta hélt björgunaræfingu I Saltvik dagana 29. og 30. september. A sunnudag var haldin sam- æfing, þar sem sett var á svið flugslys. Ekkert átti að hafa heyrzt til farþegaflugvélar siðan daginn áður og leitaði 70 manns um svæðið, þar sem flugvélin átti að hafa farizt og 16 manns að vera saknað. 16 farþegar voru dreifðir um svæðið við Brautarholt á Kjalarnesiogtók leitarmenn um 2 1/2 tima að hafa upp á þeim. Þegar fólkið var fundið, var þvi komiðtil byggða, þar sem sjúkra- bílar biðu. Allt var gert sem eölilegast og gert að meiðslum fólksins um leið og það fannst. Þátttökusveitir voru útbúnar eins og um raunverulegt slys hefði verið að ræða. —gbk. ■ 1 Iálfnað er verk 1 = ÞÁ HAFIÐ ER 111 ■ 1 I Msamvinnubankinn Augtýsid i Tímanum Lífeyrissjóður byggingarmanna Umsóknir um lán úr lifeyrissjóðnum þurfa að hafa borizt til skrifstofu sjóðsins Hallveigarstig 1, Reykjavik fyrir 15. októ- ber n.k. Endurnýja þarf allar eldri umsóknir Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu sjóðsins og hjá skrifstofum aðilda- félaga hans. Með umsóknum þurfa að fylgja upp- lýsingar um vinnustaði umsækjenda sl. þrjú ár Stjórn lifeyrissjóðs byggingarmanna. 1 14444 ■ mmm » 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTUN Handknattleikur Þau félög, sem óska eftir að taka þátt i Reykjanesmóti 1973, tilkynni þátttöku fyrir 8. þ.m. til Ingvars Björnssonar, Sléttahrauni 28, Hafnarfirði Ilandknattleiksráð Hafnarfjarðar. Gangavörður Gangavörð, karl eða konu,vantar i Kópa- vogsskóla. Getur einnig verið um að ræða hálfs dags starf. Upplýsingar hjá skólastjóra. Lausar stöður Eftirtaldar stöður við bæjarfógeta- embættið i Keflavik eru lausar til um- sóknar. Verða þær veittar 1. janúar 1974 eða helzt fyrr, ef ráðuneytisheimild verður veitt til þess: Dómarafulltrúastarf. Fulltruastarf við almannatryggingaum- boðið og héraðasamlögia Skrifstofustarf 5 Ritari Laun greidd eftir launakerfi rikisstarfs- manna. Umsóknir, sem tilgreina aldur, menntun og fyrri störf, skulu send til bæjarfógeta- embættisins i Keflavik fyrir 15. október 1973. Bæjarfógetinn i Keflavik. Auglýsing fró Viðlagasjóði Með tilvisun til 43. gr. og með hliðsjón af 38. gr. reglugerðar nr. 62, 27. marz 1973, hefur stjórn viðlagasjóðs ákveðið að greiða frá og með 1. okt. n.k. staðaruppbót til þeirra sem búa og starfa i Vestmanna- eyjum. Staðaruppbótin greiðist öllum, sem uppfylla öll eftirtalin skilyrði: 1. Eru fullra 18 ára. 2. Voru búsettir i Vestmannaeyjum 22. janúar 1973 og hafa flutt þangað aftur bú- ferlum skv. vottorði bæjaryfirvalda. 3. Gegna ekki störfum utan Vestmanna- eyja. Staðaruppbótin nemur: Frá 1. október — 8. desember (10 vikur). Kr. 2.000,- á viku Frá9. desember — 2. febrúar (Svikur). Kr. 1.200.- á viku Frá 3. febrúar — 16. marz (6 vikur) Kr. 600.- á viku Það er forsenda fyrir greiðslum þessum, að alm. kaupgjald verði ekki hærra i Vestmannaeyjum en gildandi almennir kjarasamningar þar segja til um og að friðindi skv. þeim samningum verði ekki önnur en tiðkuðust fyrir 23. jan. 1973. Verði gerðir nýir kjarasamningar i Vest- mannaeyjum á timabilinu, er það einnig forsenda þessara greiðslna að þeir leiði ekki til meiri hækkana en orðið hafa annars staðar á landinu, um svipað leyti. Greiðsla staðaruppbóta fer fram i Vest- mannaeyjum og verður siðar auglýst um greiðslufyrirkomulag, stað og tima.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.