Tíminn - 11.10.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 11.10.1973, Blaðsíða 8
8? /TÍMÍNN F'immtildágíir bktttbfei‘ 1S73Í - Hlóöaeldhús, eins og þau gerðust i gamla daga. Sjón er sögu rfkari, dömur góöar. Viö þessar aöstæöur unnu formæöur ykkar og leystu sin störf vel af hendi, flestar hverjar, þótt þær þekktu hvorki rafmagn né rennandi vatn úr krana. Bezta sögukennsla, sem völ er á Sótt heim safnið í Görðum Byggðasafnið i Görðum er ein þeirra menningarstofnana, sem íslendingar mega vera stoltir af. Safnsvæðið nær yfir byggðina sunnan Skarðsheiðar, það er að segja Akraneskaupstað og fjóra hreppa: Innri— Akraneshrepp, Skilmannahrepp, Leirár- og Melahrepp og Hvalfjarðarstrandarhrepp. Safnið ber þvi heitið: Byggðasafn Akraness og nærsveita. Flestir, sem til þekkja, munu vera á einu máli um, að séra Jón M. Guðjónsson eigi stærstan hlut i vexti og viðgangi safnsins, að þvi ógleymdu, að liklega væri það ekki til, ef hann hefði ekki tekið upp á þeirri „sérvizku” að fara að safna gömlum munum. En þvi fer svo fjarri, að séra Jón miklist af forystuhlutverki sinu á þessu sviði, að það lá við að hann gerði það að skilyrði fyrir þessu blaðaviðtali, að sem allra minnst yrði gert úr hans þætti i málinu. Hann hefur látið þess sérstaklega getið við undirritaðan, að hjálp konu sinnar og barna hafi verið sér ósegjan- lega mikils virði, þvi að þau hafi lifað og hrærzt i þessu með sér. En börn þeirra hjón- anna eru tiu — og það þarf ekki neina sér- staka hugmyndaauðgi til þess að láta sér skiljast, hvilikt annriki fylgir svo stóru heimili, ekki sizt þegar húsbóndinn gegnir umfangsmiklu embætti. Það er i rauninni undrunarefni, að nokkurn tima skyldi gefast stund til þess að sinna neinu öðru en brýn- ustu skylduverkum. Hitt er rétt, að fleiri en séra Jón M. Guð- jónsson hafa rétt þessu safni þarfa hönd. Má þar nefna Runólf Ólafsson, sem gert hefur hið listilega likan af Kútter Haraldi, allt handunnið. Um þetta skulu ekki höfð fleiri orð, en að lokum leyfi ég mér að tilfæra linur úr bréfi frá séra Jóni M. Guðjónssyni til min, um það leyti, sem þétta blaðaviðtal var að verða til. Hann segir, að i áróðri sinum fyrir safninu hafi viðkvæði sitt si og æ verið þetta: „Ónýtið engan gamlan hlut, kastið honum ekki á hauginn, fyrr en þið hafið gengið úr skugga um, hvort hann á heima i byggða- safni ykkar eða ekki. óásjálegur, litill hlutur getur, er vel er að gáð, verið ómetanlegur dýrgripur. Það er vissulega mikið ræktar- leysi við minning feðra okkar og mæðra, og i rauninni illt verk, að láta hlutinn, sem þau handléku og notuðu i lifsbaráttunni, fara ei- liflega forgörðum.” Jú, nú skal nokkub.... Bffium nú viö. Hvaft á maftur aft taka næst? Þetta er svo margt.... Þú verftur að lofa þvl aft gera minn hlut ekki of mikinn. Frásögnin hafin af lifi og sál

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.