Tíminn - 11.10.1973, Qupperneq 13

Tíminn - 11.10.1973, Qupperneq 13
Fimmtudagur XI. október 1973. TÍMÍNN 13 Umsjón og ábyrgö: Samband ungra framsóknarmanna. Ritstjórar og ábyrgöarmenn fyrir hönd stjórnar SUF: Ólafur Ragnar Grimsson, Pétur Einarsson. Ávarp Elíasar Sn. Jónssonar í afmælisriti SUF: AFMÆLISRIT Samband ungra fram- sóknarmanna hefur gefið út veglegt afmælisrit í til- efni af 35 ára afmæli samtakanna. I ritinu erað finna greinar um ýmis helztu baráttumál SUF á s.l. árum, yfirlit yfir sögu SUF, kafla úr byggða- stefnu SUF. Elías Snæ- land Jónsson, formaður SUF, ritar ávarp i af- mæiisritið. I afmælisritinu eru eftirfarandi greinar. Gunnlaugur M. Sig- mundsson ritar SUF annál. Eggert Jóhannsson skrifar um byggðamál. Friðgeir Björnsson skrifar um sameiningarmálið. Sveinn Herjólfsson ritar grein, sem nefnist Endur- nýjunar er þörf. ólafur Ragnar Grímsson skrifar um hin nýju lífsviðhorf. Már Pétursson skrifar um hernaðarstórveldi og herraþjóðir. Þessar greinar veita yfirlit yfir nokkur megin- atriði i stjórnmálabaráttu og stefnumótun SUF. I þeim birtist kjami hinnar nýju byggðastefnu, rök- stuðningur og frásögn af baráttu SUF fyrir sam- einingu allra þeirra sem aðhyllast hugsjónir jafnaðar, samvinnu og SUF lýðræðis, sláandi dæmi um þörf endurnýjunar í forystuliði þjóðarinnar, greinargerð fyrir þeim lífsviðhorfum, sem hafa mótað stjórnmálastörf SUF á undanförnum ár- um, og meginatriðin í rökstuðningi SUF fyrir brottför hersins og sjálf- stæðari utanrikisstefnu. Utgáfu afmælisritsins önnuðust þeir Sveinn Herjólfsson og Björn Björnsson. SUF kann þeim miklar þakkir fyrir gott verk. Afmælisrit SUF fæst á skrifstofu samtakanna. Að standa vörð um vinstri stefnu Framsóknarflokksins — og tryggja að í forustu flokksins séu á hverjum tíma menn, sem allir flokksmenn treysta til að framkvæma markaða vinstri stefnu Framsóknarflokksins Samband ungra framsóknarmanna var stofnað á Laugarvatni árið 1938. Það er þvi 35 ára á þessu ári. Á viðburðarrikum ferli sinum hefur SUF eflzt og styrkzt við hverja raun, og orðið stöðugt sterkari áhrifaaðili i islenzkum stjórnmálum. Þetta á ekki sizt við um þau ár, sem liðin eru frá þvi ungir framsóknarmenn minnt- ust siðast afmælis SUF með sérstöku riti. Á þeim fimm árum hefur verið mikið um- rót i islenzku þjóðfélagi og i islenzkum stjórnmálum. Stormar snarpra stjórn- málaátaka, og harðskeyttrar málefnabar- áttu, hafa leikið um SUF, enda hefur sú fjölmenna sveit ungra manna og kvenna um land allt, sem SUF er, aldrei verið ein- beittari i stefnumótun og málflutningi, né sókndjarfari i baráttu sinni fyrir umsköp- un islenzks þjóðfélags og islenzks stjórn- málakerfis, en einmitt á þessum nýliðnu árum. Þegar stjórn SUF ákvað að gefa út sér- stakt vandað afmælisrit i tilefni af 35 ára afmælinu, var talið sjálfsagt að nota ritið fyrst og fremst til þess að fjalla um ýmis baráttumál ungra framsóknarmanna i samtimanum og þá alveg sérstaklega um þau mál, sem hæst hefur borið i barátt- unni að undanförnu; byggðastefnuna, varnarmálin og sameiningarmálið. Greinar um þessi baráttumál ættu, ásamt öðru efni ritsins, að gefa nokkra mynd af þeirri breiðu, máiefnalegu baráttu, sem einkennt hefur starf ungra framsóknar- manna. Þessi breiða og ákveðna málefnasókn, og hiklausar og stundum nýstárlegar bar- áttuaðferðir, hafa skapað SUF aðra og sterkari stöðu i stjórnmálunum en titt er um stjórnmálasamtök ungs fólks, enda hefur SUF með árunum orðið sífellt sjálf- stæðara afl i islenzkum stjórnmálum. Það var eins og til að staðfesta þetta sjálf- stæði, að hlutverkaákvæðum laga SUF var breytt á þingi sambandsins að Hall- ormsstað árið 1970. Áður var það megin- hlutverk SUF samkvæmt lögum þess að ,,kynna stefnu og hugsjónir framsóknar- manna og afla þeim fylgis meðal æsku- fólks”. Þessu var breytt á þinginu 1970, á þann veg, að hlutverk SUF væri að ,,berj- ast fyrir stefnu og hugsjónum ungra fram- sóknarmanna, að afla þeim fylgis jafnt innan flokks sem utan”. Á þessu tvennu er verulegur munur, sem segir sina sögu um þróun SUF á undanförnum árum. Ungir framsóknarmenn hafa alltaf ver- ið i vinstra armi Framsóknarflokksins. Það eru þeir enn i dag, og vart er um það blöðum að fletta, eftir siðasta mið- stjórnarfund Framsóknarflokksins, að SUF er sá hluti vinstri fylkingarinnar i flokknum, sem er bezt skipulagður um landið allt. Það kemur þvi eins og af sjálfu sér, að ungir framsóknarmenn verða að taka sér það hlutverk að vera forystusveit vinstri stefnu innan flokksins — sú sveit, sem með mikilli vinnu og góðu samstarfi við fjölmarga eldri menn i flokknum, leit- ast við að standa vörð um vinstri stefnu Framsóknarflokksins og tryggja það, að í forystu flokksins séu á hverjum tima rnenn, sem allir flokksmenn treysta til þess að framkvæma markaða vinstri stefnu Framsóknarflokksins. Þessu þýðingarmikla hlutverki hafa ungir framsóknarmenn um allt land að gegna i dag. En jafnframt eru þeir sú baráttusveit, sem einsett hefur sér að vinna að þvi markmiði, að áttundi áratugurinn verði áratugur vinstri stefnu á íslandi. Það markmið næst ekki nema til komi náið samstarf vinstri flokkanna i landinu. Þess vegna hafa ungir framsóknarmenn um alllangt skeið barizt fyrir þvi, að Fram- sóknarflokkurinn, Alþýðuflokkurinn og Samtök frjálslyndra og vinstri manna tækju höndum saman og mótuðu sam- eiginlegt stjórnmálaafl allra þeirra, sem aðhyllast hugsjónir jafnaðar, samvinnu og lýðræðis, eins og það var orðað i sam- þykkt siðasta flokksþings framsóknar- manna. Það, hvort þetta tekst, getur ráðið um það úrslitum, hvort núverandi vinstra samstarf um stjórn landsins verður ein- ungis stundarglæta i áratuga löngu ihalds- myrkri islenzkra stjórnmála, eða dögun nýs tima. Ég heiti á alla unga framsóknarmenn að hvika hvergi og leggja sitt af mörkum til þess að tryggja það, að um upphaf nýs timabils vinstri stefnu á íslandi verði að ræða. DO (X> C0 Stjórn SUF á fundi. Hún vinnur nú sameiginlega aö efnisöflun I SUF-siöuna. (Nokkra stjórnarmenn vantar á myndinni). (Mynd: Róbert)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.