Tíminn - 11.10.1973, Blaðsíða 33

Tíminn - 11.10.1973, Blaðsíða 33
Fimmtudagur 11. október 1973. TÍMINN 33 Þurrasta sumar í manna minnum BS.-Hvammstanga. Fyrsta frost- nóttin var i nótt á Hvammstanga, annars er þar gott veður, og hefur verið gott tiöarfar undanfarið. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga og Verzlun Sigurðar Pálmasonar sjá um slátrunina en hún stendur núna sem hæst. Slátrað verður 40 þús. fjár og slátrar Kaupfélagið 35 þús. Þegar slátrun kinda er lokið núna um mánaðamótin, hefst slátrun stórgripa.hesta og kúa. Eru dilkar mjög vænir. Sumarið hefur verið mjög þurrt, muna elztu menn ekki eftir öðru eins. Hefur jafnvel borið á skorti á neyzluvatni. Eru bæði afréttir og heimalönd mjög þurr af vatnsskorti. Mest er um blönduð bú hérna fyrir norðan en núna hefur það færzt mjög i vöxt að bændur hætti þvi og hafi bara annað hvort kindur eða kýr. Orsökin fyrir þvi er aðallega sú að starfskraft vantar núna, þegar skólarnir eru að byrja aftur. Einnig það, að bændurnir eldast og léttara er að hafa bara annað hvort. Mjólkur- framleiðsla hefur þvi farið minnkandi á Mjólkurbúinu á Hvammstanga og er með minnsta móti. Rækjuvertið hefst upp úr miðjum mánuðinum. Eru það um það bil fjórir bátar sem stunda rækjuveiðar frá Hvammstanga. Er það Meleyri h.f. sem sér um vinnsluna. Ibúar Hvammstanga eru 370. Hörgull er á fólki i vinnu. —kris spray net kryslal- t íXM'l háriakk GÆÐI - GOTT VERfl Kristján Jóhannesson heildverzlun Laugarnesveg 114.S. 32399 u u Ég er að kenna snata að heilsa.1 ^Hvislaðu hvaðj er hægri hendin ■7-----------------------1 Alit i lagi, en þegar / viö törum framhjá ■Kubb, vertu þá svolitið aftan, svi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.