Tíminn - 04.11.1973, Blaðsíða 5
Sunnudagur 4. nóvember 1973,
TtMINN
5
★
Vanaafbrotamaður
Búöarstúlkurnar þrjár urðu
ekki hissa, er byssumaður
nokkur kom inn i Bauers-bakari
i New York sunnudagsmorgun
nokkurn og hafði á brott með sér
300 dollara. Sami náungi hafði
nefnilega rænt sama bakari
fjóra siðustu sunnudaga.
Fimmta sunnudaginn biðu lög-
reglumenn hans fyrir utan og
reyndu að stöðva hann, er hann
kom út úr bakariinu. Byssu-
maðurinn dró upp vopn sitt, en
lögregluþjónn skaut hann þá i
öxlina. Byssumaðurinn tók til
fótanna, en von bráðar náði lög-
reglan honum þó. Fimm sunnu-
daga ævintýri var á enda.
★
Vill eyða meiri
tíma með
barnabörnunum
Júliana Hollandsdrottning hefur
mikinn áhuga á barnabörnum
sinum. Á hverju sumri koma
dætur hennar með börn sin til
sumarhallarinnar, Haimingju
sama filsins, sem er i Portp
Ercole. Barnabörnin eru nú
orðin niu talsins, svo það þarf
töluverðan tima til þess aö sinna
þeim, ef vel á að vera.
Hversu marga
fermetra af
grasi viltu fd?
Nú hafa þeir hafið framleiðslu á
gervigrasi i Þýzkalandi. Frá
Stuttgart koma fréttir um það,
að þetta sé að verða mjög vinsæl
nýjung. Grassvörðurinn er seld-
ur i metratali eins og gólfteppi, i
tveggja til fjögurra metra
breiðum rúllum. Mjög auðvelt
er að leggja þetta gras á sinn
stað og er sérstaklega mikið
notað i kring um sundlaugar og
útisvalir og jafnvel heilar gras-
flatir og tennisvelli. bað er
ómögulegt að sjá i fljótu bragði
að þetta sé annað en aivöru-
gras, en aðalkosturinn er þó,
segja sumir, að ekki þarf að
vökva grasið i þurrkum, og
heldur ekki að slá það, en það
eru sumir latir við!
Það md
borða súrefni
Vissuð þið, að það er hægt að
borða súrefni? Nauðsynlegt er
við suma uppskurði, að koma
fyrir slöngu niður i lungu sjúkl-
ingsins og dæla súrefni i gegn-
um hana. Nú hefur sovézkur
visindamaður, prófessor Modris
Elkania, fundið upp dálitið, sem
hann nefnir súrefniskokkteil.
Sjúklingurinn gerir sér litið
fyrir og étur súrefnið, sem hann
þarf á að halda, með skeið.
Elkania fann upp vél, sem mett-
ar eggjahvitublöndu af súrefni,
og úr þessu verður hin gagnleg-
asta blanda, sem getur bjargað
iifi þeirra, sem þurfa á meira
súrefni að halda heldur en þeim
tekst að draga að sér með önd-
unarfærunum.
vfv
Bílflautu-
hljómleikar
Nú á diigunum söl'nuðust um
1000 manns saman nálægt Hvila
húsinu i Washington. Var fólkið
að heimta,að Nixon yrði stel'nt
fyrir rétt vegna Watergate-
málsins margumlalaða. betta
var kriifuganga með mörgum
mótma'laspjiildum, en það sem
var sérstakt við þessa mót-
ma'lagiingu, var það, að I jiildinn
allur af fólki kom á bilunum
sinum og hafði uppi samtök um
að pipa Nixon niður, — eins og
þeir kiilluðu það. Siðan flautuðu
þt'ii' með bilflautunum sinum
drykklanga stund og varð það
mikill konsert!
<!&
vjv
ö
Vatnshjól frd
ótjóndu öld
enn í notkun
Vatni er enn veitt á allmarga
akra skammt frá Erlangen i
býzkalandi með vatnshjóli frá
18. öld. A þessum slóðum hafði
eitt sinn verið komið fyrir 250
hjólum, og snérust þau yfir
sumarmánuðina og veittu vatni
yfir akra og engi,eftir þvi sem
þörf krafði hverju sinni. 1 sumar
voru notuö 17 þessara hjóla, en
fleiri eru ekki i lagi, enda varla
von á þvi, þar sem þau eru búin
að vinna sitt dagsverk á þeim
árum, sem liðin eru frá þvi, er
þau fyrst voru sett upp, og vel
það. Fyrir einni öld, var þessi
áveita mjög fullkomin, og komu
bændur þá viða að með búsmala
sinn til að hafa hann þarna á
engjunum, þegar miklir þurrk-
ar voru, þvi þarna var grasið
ekki skrælnað eins og annars
staðar. þar sem ekki voru áveit-
ur. Eitt hjól nægir til þess að
veita vatni á u.þ.b. átta hektara
lands, og slikt hjól kostaði i dag
um 25 þúsund mörk i fram-
leiðslu.
\ undanförnum árum
hafa rafdrifnar vatsnsdælur
smátt og smátt ekiö við af
vatnshjólunum, eftir þvi sem
þau hafa gengið úr sér. Hér
sjáið þið eitt hinna um 200 ára
gömlu hjóla.