Tíminn - 04.11.1973, Blaðsíða 17
Sunnudagur 4. nóvember 1973.
TÍMINN
17
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur basar mánudaginn 5. nóvember kl.
2 i Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Úrval af ullarvöru og einnig nýbakaðar
kökur og margt fleira.
Gjöfum veitt móttaka i Sjómannaskólan-
um sunnudaginn 4. nóvember kl. 2.
Nefndin.
Ungir listunnendur á Asgrimssýningu á Akureyri (Ljósm. Matthias Gestsson)
Ásgrímssýning á Akureyri
— á vegum Myndlistarfélags Akureyrar
LAUGARDAGINN 27. október
var opnuð á Akureyri sýning á
verkum Asgrims Jónssonar i eigu
Asgrimssafns. Myndlistafélag
Akureyrar gengst fyrir þessari
sýningu, og er hún haldin i húsi
Landbankans.
Sýndar eru 40 myndir, oliumál-
verk, vatnslitamyndir, og teikn-
ingar. Myndirnar eru málaðar á
fimmtiu árum og gefa þvi glögga
yfirsýn yfir þróunarferil Asgrims
Jónssonar i myndlistinni.
Forstöðukona Ásgrimssafns,
frú Bjarnveig Bjarnadóttir, opn-
aði sýninguna, og var fjöldi gesta
viðstaddur. Óli G. Jóhannsson
formaður Myndlistafélagsins
bauð sýninguna og forstöðukonu
safnsins velkomna til Akureyrar.
Bjarni Einarsson bæjarstjóri
tók einnig til máls, og þakkaði
fyrir hönd Akureyrar komu þess-
ararsýningar á verkum Asgrims
og gat þess m.a. að hann hefði
ætið dáð listaverk hans og það
væri mikill viðburður fyrir
bæjarfélagið að fá slika sýningu
norður.
Frú Bjarnveig flutti stutt
ávarp. Þakkaði hún Myndlista-
félagi Akureyrar fyrir þann stór-
hug að flytja hingað norður sýn-
ingu þessa úr Asgrimssafni, og
safninu alveg að kostnaðarlausu.
Og að auðséð væri, að saman
hefði farið alúð og smekkvisi við
upphengingu myndanna.
Forstöðukonan lýsti nokkuð
myndunum og listamanninum
Asgrimi Jónssyni. Hún sagði m.a.
að hann hefði gert litlar kröfur til
lifsþæginda fyrir sjálfan sig, og
um það vitnaði hið fábrotna og fá-
tæklega heimili hans. Þar væri
einginn hlutur ónauðsynlegur.
Það hefði verið landið og listin,
sem hug hans átti allan. Og að
leiðarlokum hefði hann svo lagt i
hendur þjóðar sinnar mikinn
hluta af lifsstarfi sinu.
Jafnframt gat frú Bjarnveig
þess, að hún vonaði að Akur-
eyringar og aörir Norðlendingar
hefðu ánægju af að skoða sýn-
inguna, og að það yrði Asgrims-
safni mikil ánægja, ef stuðlað
væri að þvi, að skólafólki yrði
gefinn kostur á að skoða hana, og
kynnast með þvi list Asgrims
Jónssonar, Og ekki siður þvi
óeigingjarna hugarfari sem ævi-
starf hans vitnar um.
t sýningarnefnd Myndlista-
félagsins eru Gisli Guðmann for-
maður, Orn Ingi Gislason,
Jóhann Ingimarsson, Lýður
Sig'urðsson og Páll Halldórsson.
Val myndanna úr Asgrimssafni
önnuðust Hjörleifur Sigurðsson
listmálari, en hann er i stjórn
safnsins, og forstöðukonan frú
Bjarnveig
Myndlistafélag Akureyrar var
stofnað á s.l. ári. Hefur félagið
nýlega fengið til umráða gamalt
timburhús, og i þvi mun starfa
myndlistarskóli á vegum þess. I
félaginu eru miklir áhuga- og
bjartsýnismenn, sem mikinn
áhuga hafa á myndlist. En öll
menningarviðleitni kostar fé, og
félagið mun vera fátækt af
veraldarauði. Almennur áhugi
virðist hafa aukizt með stofnun
Myndlistafélagsins. Það sýna
bezt umsóknir 70 nemenda, sem
óksa eftir inngöngu i nýja mynd-
listarskólann:
Jarðýta — dráttarbíll
BTD 8 jarðýta, árgerð 1961, til sölu.
Einnig bill og vagn, hentugur til flutninga
á minni vélum.
Upplýsingar i simum 4-38-55 og 53-0-75.
Útboð
Tilboð óskast i smiði og uppsetningu 15
orlofshúsa fyrir Sjómannadagsráð i
Reykjavik og Hafnarfirði.
Húsin, sem eru úr timbri, skal reisa að
Hraunkoti i Grimsnesi. útboðsgögn má fá
hjá skrifstofu Hrafnistu, DAS, gegn 5000
kr. skilatryggingu frá og með mánudegin-
um 5. nóvember. Tilboðin verða opnuð á
skrifstofu Sjómannadagsráðs að Hrafn-
istu þriðjudaginn 4. desember 1973 kl.
11.00 f.h.
1 stjórn Myndlistafélags Akur-
eyrar, eru Óli G. Jóhannsson for-
maður, Gisli Guðmann gjaldkeri,
Steinunn Pálsdóttir ritari, Val-
garður Stefánsson varaformaður,
og Orn Ingi Gislason meðstjórn-
andi.
Skipulagðar hafa veriö ferðir
skólafólks á Asgrimssýninguna,
og virðist allt benda til þess að
framlengja verði sýninguna um
viku
—SB
• •
ONFIRÐINGAR
sunnanlands
Kaffi- og skemmtisamkoma verður n.k.
sunnudag 11. nóvember i Glæsibæ
(uppi).
Húsið opnað kl. 2.00.
Önfirðingar 70 ára og eldri sérstaklega
boðnir.
Stjórnin.
INNLENT LÁN
RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS
1973 2.FL
SALA OG AFHENDING
SPARISKÍRTEINA RÍKISSIÓÐS
HEFST ÞRIÐJUDAGINN
6. NÓVEMBER
Fjármálaráðherra hefur á
grundvelli laga nr. 8 frá 25. apr-
I11973 (lántökuheimildir vegna
framkvæmdaáætlunar 1973) á-
kveðið útgáfu og sölu verð-
tryggðra spariskírteina að fjár-
hæð allt að 175 millj. króna.
Skírteinin eru verðbætt í hlut-
falli við breytingarábyggingar-
vísitölu og eru skatt- og fram-
talsfrjáls eins og verið hefur.
Skírteinin eru lengst til 14 ára,
en eftir 5 ár getur eigandi feng-
ið þau innleyst að fullu ásamt
vöxtum og verðbótum.
Méðaltalsvextir allan lánstím-
ann eru 5% á ári. Eru þetta
óbreytt kjör frá því sem verið
hefur.
Sala spariskírteinanna hefst
6. nóvember 1973 hjá Seðla-
banka fslands, viðskiptabönk-
um og útibúum þeirra, spari-
sjóðum og nokkrum verðbréfa-
sölum í Reykjavík.
Sérprentaðir útboðsskilmálar
liggja frammi hjá söluaðilum,
sem veita allar nánari upplýs-
ingar.
V-\ I,
t \
Reykjavík 2. nóvember 1973
SEÐLABANKI ÍSLANDS