Tíminn - 04.11.1973, Blaðsíða 28

Tíminn - 04.11.1973, Blaðsíða 28
28 TÍMINN Sunnudagur 4. nóvember 1973. ORN RÆNIR ÞRIGGJA ÁRA BARNI 3. júni 1932 hremmdi örn þriggja ára stúlkubarn, Svanhildi Hartviksen. Hún lá sofandi úti á túni og örninn sá, að þessi þrýstna telpa væri góð bráð. Hann greip um hana með klónum og flaug með hana tvo kilómetra og 250 metra, áður en hann neyddist til að sleppa henni á klettasyllu sökum þreytu. í hreiðrinu biðu þrir glorhungraðir ungar.... Svanhildúr býr.nú i Rörvik, en þar vinnur hún i fisk- iðjuveri. Þó likar henni ekki þegar hafmávarnir flögra yfir höfði hennar, þvi að það minnir hana á ógnaratburðinn fyrir löngu.... Hún situr i sófanum i stofunni i húsinu i Rörvik. Hun strýkur yfir fellingarnar i rúöótta kjónum sin- um. Fingurnir leika við gat á pilsinu, og svo segir hún lágt: — ftg var i þessum kjól, þegar örn- inn hremmdi mig. bá var ég þriggja ára. — Manstu eftir þvi, þegar örn- inn flaug með þig upp íjallshlið- ina? — Nei, ég minnist þess ekki... ég var vist sofandi úti á túni. Ég var að leika mér viö strákana, en þeir höfðu vist eitthvað annað að gera. beir hafa máske farið niður að ströndinni... ég var a.m.k. ein og hef vist verið þreytt, þvi að ég fór að sofa. — Rifjast nokkrir atburðir sér- staklega upp fyrir þér? Svanhildur Hartviksen virðir okkur lyrir sér. liún reykir og hugsar, en það er auðséð, að hún er enn óttaslegin og hefur ekki gleymt hræðslunni, þrátt fyrir liðin ár. bó tekst henni að halda frásögninni áfram. — Ég minnist þess, að ég lá á klettasyllu i fjallshliðinni, og ég held, að ég hafi lika séð húsin langt fyrir neðan. En eitt óttaðist ég mest — og þaö verður mér ógleymanlegt — það var haförn- inn, sem kom með útglenntar klærnar og hremmdi mig. Ég var svo ósegjanlega óttaslegin, en ég man, að ég náði i steinvölur og henti þeim i örninn veinandi af hræðslu. Aftur og aftur hörfaöi örninn, þvi að mér tókst einhvern veginn að skelfa hann, þótt hann reyndi hvað eftir annað að hremma mig. — Vissirðu, að þú lást á kletta- syllu ylir þrjátiu metra hyldýpi? — Nei, ég var svo litil og vissi ekkert slikt. Ég veit það eitt, að ég verð alltaf óttaslegin, þegar stór fugl flýgur yfir höfði mér. — Hvað manstu annað? — Að ég sat i faðmi einhvers og fékk súkkulaði, enda var það eftirlætissælgæti mitt, og ég fékk það sjaldan heim. Einn mann- anna, sem bjargaði mér, hét Leif- ur, og hann gaf mér það. Rjörgunarmennirnir þrir fundu mig i fjallshliðinni,vegna þess að örninn sveimaði umhverfis mig. — Nei, örninn megnaði vist ekki Svanhildur var nltján kiió þegar örninn hremmdi hana. baö er ótrúlegt aö haförninn skyldi geta flogiö svolangt meö hana. að fljúga lengra með mig. Ég var jú nitján kiló, og það var heppi- legt fyrir mig, hvað ég var þung, þvi að ég væri ekki hér, ef hann hefði komizt með mig til hreiðursins. Arnarhjónin áttu þrjá gráðuga unga, sem hefðu drepið mig á stundinni. — Nei.klær arnarins særðu mig ekki i bringuna að ráði, þvi að ég var með breitt belti um mig miðja. Ég fékk aðeins smásár, sem greru. — Hvað lástu lengi á syllunni uppi I fjallshliðinni? — Ég veit það ekki með vissu, en gert er ráð fyrir þvi, að örninn hafi hremmt mig um þrjúleytið, og ég fannst um klukkan tiu um kvöldið. Svo voru þeir dágóða stund að koma mér niður. — bú hlýtúr að hafa sofið lengi á hyldýpisbrúninni... — Já, ég hef vist átt verndar- engil... ég lá við brúnina undir runna. — bað er langt siðan þetta gerðist. Liður þér einhvern tima illa? Dreymir þig atburðinn? — bað kemur fyrir, og ég verð óttasfegin og mér íiður illa, þeg- ar stórir fuglar fljúga nálægt mér. Hér er mikiö úm risamáva, og ég þoli þá ekki. bað er krökkt af mávum við fiskiðjuverið, þar sem ég vinn við rækjuna. Mér lik- ar ekki að horfa á þá... Svanhildur Hartviksen hefur ekki gleymt þvi,sem gerðist, þeg- ar örninn hremmdi hana þriggja ára. Vitanlega er hún oft minnt á það, enda er hún eina lifandi mannveran, sem haförn hefur rænt og verið frelsuð. bað er eiginlega óvist, hvort hægt sé að sanna það nú á timum, að ernir hafi gerzt sekir um mannrán. — Ég verð oft að segja frá þess- um atburði. betta er óhugnanleg — og ótrúleg — saga, sem ég mun aldrei gleyma. Hún fitlar við litla kjólinn og rifjar upp endurminninguna. Svanhildur horfin. 5. júni 1932 kom eftirfarandi fyrir Svanhildi Hartviksen: Hún var i heimsókn ásamt foreldrum sinum á Kvalöy, þvi að þar átti að skira litla bróður hennar i Leka- kirkju. Svanhildur var að leika sér við nokkra drengi skammt frá úti- húsinu, þegar drengirnir þreytt- ust á leiknum og fóru annað. Litla stúlkan skreið nm, og stór haförn, sem átti hreiður i tveggja kflómetra fjarlægð frá Kvalöy, sveimaði um i leit að bráð. Allir höfðu lagt sig eftir matinn. Svan- hildúr'lá úti á túni. Haförninn er fráneygur, og hann sá eitthvað niðri á jörðinni. Hann hnitaði umhverfis það og ákvað, að barnið væri bráð hans. t hreiðrinu biðu þrir ungar, sem erfitt var að seðja. begar leitarmenn komu til hellisins þar sem Svanhildur fannst, lá hún sofandi á syllunni, og þeir uröu aö fara variega til þess aö hún vaknaöi ekki og félli niöur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.