Tíminn - 04.11.1973, Síða 36
36
TÍMINN
Sunnudagur 4. nóvember 1973.
HVAÐ
VILTU
GERA
AÐ ÆVI
STARFI?
— Starfsval í
sjöundu útgdfu
STARFSVAL heitir bók eftir
Olaf Gunnarsson, sem fsafoldar-
prentsmiðja hefur gefið út, raun-
ar i sjöunda sinn. Er bókin eink-
um ætluð unglingum, sem eru i
þann veginn að ljúka námi og
hafa enn ekki ákveðið, hvað þau
ætli að gera að ævistarfi sinu.
Störfin i þjóðfélaginu verða æ
fleiri og margbrotnari,og er þvi
mikil þörf á, að unglingum gefist
kostur á að afla sér sem mestrar
fræðslu um þau. Hana hefur oft
verið erfitt aö fá hér á landi. Bók
þessari er ætlað aö bæta að
nokkru úr þvi og kynna ungling-
um helztu atvinnugreinarnar. I
þessari sjöundu útgáfu hefur
nokkrum köflum verið bætt við og
aðrir endurskoðaðir og endur-
samdir. Bókin er 182 blaðsiður, ó-
bundin. —sb.
Þyngsti
dilkurinn
32,6 kg
JA.-Hólmavik. — Nýlokiö er
slátrun i sláturhúsi Kf. Stein-
grimsfjarðar á Ilólmavfk.
Slátrun hófst 3. október og lauk
24. október, slátrað var rúmlega
12.000 fjár. Mcðalfallþungi dilka,
sem slátrað var I húsinu,reyndist
17,88 kg.,sem er nokkru hærra en
sl. ár. Þyngsti dilkurinn vó 32,6
kg.,eigandi var Ingimar Jónsson
á Kaldrananesi.
Siáturhúsið var byggt 1958 en i
sumar fóru fram umfangsmiklar
endurbætur á þvi. Meðal annars
var það búið færibandakeðju.
Miöað er við, að full dagsafköst
geti verið 1.200 kindur, en i haust
komustþau mest i 1.000 kindur,og
gekk starfsfólki hússins mjög vel
að ná tökum á þessum nýju
vinnubrögöum, en sláturhúsið á
Hólmavik er minnsta sláturhús á
landinu meö þessum búnaði.
I
Cortina
Crysler (France)
Taunus 17M
Volkswagen 1302
flfi» HF.
Ármúla 24 ■ Sími 8-14-30
SVALUR
eftir
Lyman Young
/ rHvaða svarta
/ ,-,æoykkiir /ský er þetta?
'tl*a5»Sn^a 'í Þarftu aðstoð?
við, Orcas.