Tíminn - 24.11.1973, Page 2
2
TÍMINN
Laugardagur 24. nóvember 1973.
Hver hefur
skotið skjólshúsi
yfir Trygg?
EIGANDI Tryggs frá Kirkju-
bæjarklaustri hefur ekki gefið
upp alla von um að hvolpurinn
sé enn á lffi og sé i góðri um-
önnun hjá einhverjum, sem
tekið hefur hann að sér.
Hvolpinum var stolið af
hlaðinu á Klaustri 18. okt. sl.
Það gerðu nokkrir ungir menn
sem voru drukknir á ferð fyrir
austan. Tóku þeir hvolpinn
upp i bil og óku með hann til
Reykjavikur. Lögreglan i
Hafnarfirði hafði upp á
þjófunum og sögðu þeir að
héolpurinn hafi hlaupið út úr
bil þeirra i Hafnarfirði og hafa
jjeir ekki séð hann siðan. Var
auglýst eftir hundinum en
enginn sem hefur séð hann
hefur gefið sig fram.
Fyrir tveim vikum voru
þjófarnir formlega ákærðir
fyrir verknaðinn. Við yfir-
heyrslur þá kom i ljós, að þeir
misstu hvolpinn út úr bilnum i
Kópavogi en ekki i Hafnar-
firði, eins og þeir báru áður.
Nánar tiltekið hvarf Tryggur
á Fifuhvammsvegi.
Hvolpurinn er mjög fallegur
og gæfur og vanur góðu atlæti
og miklu liklegra að hann hafi
hlaupið til mannabústaða en
frá þeim. Er þvi von til að ein-
hver i Kópavogi hafi skotið
skjólshúsi yfir hvolpinn án
þess að viðkomandi átti sig á
um hvaða hund er að ræða.
Vegna reglugerðar um hunda-
hald i þéttbýli er hundavinum
vorkunn þótt þeir láti lögreglu
ekki vita að týndir hundar séu
hjá þeim og þvi getur verið
erfitt um vik að koma þeim til
réttra eigenda. En komi til
mála að einhver hafi Trygg
frá Klaustri i húsum sinum, er
hann vinsamlegast beðinn að
hringja i sima 83107 eða 81704
og láta vita.
Tryggur er reglulega fallegur
og gæfpr hundur og er von til
að hann sé einhvers staðar i
góðra manna höndum. Mynd-
in var tekin af hvolpinutn s.I.
sumar.
Auglýsi<f|TÍmanutti
Aðalfundur SVS
Aðalfundur SVS, sem halda átti 26. nóv.
kl. 20.30, verður haldinn 28.nóv. kl. 17,30.
Fundarstaður óbreyttur.
Stjórn SVS.
Byggingaverkamenn
Viljum ráða byggingaverkamenn að
Höfðabakka 9.
Upplýsingar á mánudag i sima 83640 og á
byggingarstað.
íslenskir Aðalverktakar s/f.
AUGLÝSING UM
lögtaksúrskurð í
Rangárvallasýslu
1 fógetarétti Rangárvallasýslu hefur verið
úrskurðað, að lögtök fyrir ógreiddum
þinggjöldum og öllum öðrum opinberum
gjöldum, sem greiðast eiga til rikissjóðs
og Tryggingastofnunar rikisins, svo sem
söluskatti, bifreiðagjöldum, skipulags-
gjöldum, öryggiseftirlitsgjöldum,
álögðum og gjaldföllnum á árinu 1973,
mega fara fram að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessa úrskurðar að telja.
Hvolfsvelli, 20. nóvember 1973.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.
„Gylfi sleit sig aftan úr"
Eins og alþjóð veit, hefur Gylfi
Þ. Gislason, með allan Alþýöu-
flokkinn i taumi, verið þægur
taglhnýtingur ihaldsins um ára-
raöir. Það vakti þvi nokkra undr-
un sjónvarpsáhorfenda, þegar
Geir Hallgrimsson steig i pontuna
á Alþingi, ábúðarfullur að vanda,
og tilkynnti að Sjálfstæöisflokk-
urinn stæði einn aö nefndaráliti
um bráðabirgðasamkomulag við
Breta.
Við það tækifæri varð einum
áhorfenda sjónvarps þetta að
orði:
Mjög er Geir á svipinn súr
sinna ygglibrúna,
er Gylfi sleit sig aftan úr
ihaldinu núna.
Torfi Þorsteinsson.
Námsmenn óánægðir
með lánamálin
FORSVARSMENN SÍNE, Stú-
dentaráðs II.í. og Nemendaráðs
Tækniskóla Islands boðuðu blaða-
menn á sinn fund s.l. föstudag (16.
okt). Tilefni blaðamannafundar-
ins voru lánamál námsmanna.
Fer útdráttur úr greinargerð
þeirra hér á eftir.
t fjárlögum rikisstjórnarinnar
fyrir árið 1974 er gert ráð fyrir
BÍLALEIGAN
felEYSIR
CARRENTAL
»24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARP OG STEREO
CASETTUTÆKI____
BÍLALEIGA
Car rental
^|P41660&42902
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TT 21190 21188
456.6 milljón króna framlagi til
Lánasjóðs islenzkra námsmanna.
Upphæð þessi, ásamt lántökum
og eftirstöðvum frá fyrra ári,
nægir aðeins til að veita lán, sem
nema 78% umframfjárþarfar, að
sögn stúdenta.
Stefna Stúdentaráðs H.I., Sam-
bands isl. námsmanna erlendis
og Nemendaráðs Tækniskóla ts-
lands er og hefur verið sú, að um-
framprósenta lána skyldi hækka i
88,5% á siðasta ári og ná 100% á
yfirstandandi námsári. Stjórn
Lánasjóðs ísl. námsmanna hefur
og fylgt þessari stefnu i fjárlaga-
tillögum sinum til Menntamála-
ráðuneytisins.
Framkvæmd laga um námslán
og styrki frá 1967 hefur verið i
nokkru samræmi við, anda þeirra
og tillögur lánasjóðsins allt til
ársins 1972-’73, en þá reyndist
skyndilega ekki unnt að fram-
fylgja tillögum lánasjóðsins leng-
ur. Skal hér birt tafla til skýring-
ar:
Tafla 1. lán i % af umframfjár-
þörf frá 1967/68-1973/74
Ár Lán I % af U.
1967/68 43.0
1968/69 48.5
1969/70 52.2
1970/71 62.9
1971/72 77.4
1972/73 77.8
1973/74 77.8
Skv. fjárlagafrumvarpi.
Eins og sjá má á töflunni,
hækkar lánaprósentan ekki á
yfirstandandi námsári sam-
kvæmtfjárlagafrumvarpi. Helztu
rök námsmannasamtakanna fyr-
ir hækkun lánaprósentu i 100%
eru eftirfarandi
1. Krafan um að lán nemi 100%
umframfjárþarfar er grund-
völluð á þeirri megin forsendu,
að efnahagslegar aðstæður
námsfólks hafi ekki áhrif á það,
hverjir leggi stund á fram-
haldsnám. Ljós má og vera, að
ófullnægjandi námsaðstoð, þ.e.
lánaprósenta undir 100%, kem-
ur einmitt verst niður á þeim,
sem ekki eiga þess kost að fá
stuðning frá aðstandendum.
Námsaðstoð, sem nemur að-
eins hluta af námskostnaði,
stuðlar að þvi að bægja þeim,
sem eru verst settir hvað snert-
ir tillit til fjárhags og búsetu,
frá námi, og brýtur þannig
augljóslega i bága við
jafnaðarstefnu og byggða-
stefnu.
2. Er núverandi lög voru sett,
ætlaðist Alþingi greinilega til
þess, að námsaðstoðin ykist
stig af stigi og næmi að lokum
allri fjárþörf námsmanna.
3. Nefnd sú, er skipuð var til að
endurskoða lög um námslán og
styrki, hefur nú samið frum-
varp, er verður lagt fyrir Al-
þingi innan skamms. Skv. þvi
frumvarpi er liklegt, að lána-
hlutfallið verði a.m.k. 90% eða
þar yfir, miðað við núverandi
lánakerfi. Undarlegt hlýtur þvi
að teljast að fresta hækkun
lánaprósentu ár eftir ár á þeirri
forsendu, að ný lög séu væntan-
leg.
Til að framfylgja kröfum
námsmannasamtakanna og LtN
(Lánasjóðs islenzkra náms-
manna) um 100% umframfjár-
þarfar á þessu ári, þarf 128
milljón króna viðbót við fjárveit-
ingu til LIN.
t stjórn LIN kom fram
miðlunartiltaga þess efnis, að náð
yrði 88,5% umframfjárþarfar á
þessu ári, en það átti að koma til
framkvæmda á s.l. ári. Þetta lág-
markshlutfall felur i sér 62
milljón króna hækkun til LIN og
er algert lágmark þess, sem
námsmenn geta fallizt á.
Skora Stúdentaráð Háskóla ts-
lands, Samband islenzkra náms-
manna erlendis og Nemendaráð
Tækniskóla Islands á ráðherra og
alþingismenn og beita sér fyrir að
það félagslega réttlætismál, sem
hækkun lánahlutfalls hlýtur að
teliast. nái fram að ganga.
VATNS-
HITA-
lagnir
og síminn er
1-30-94
ALFNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
SAMVINNUBANKINN
jBÆNDUR
S Gefið búfé yðar
i EWOMIN F
S vítamín
S og
| steinefna-
■ blöndu
L——>
1 14444 %
» 25555
BÍLALEIG A
CAR RENTAL
BORGARTUN