Tíminn - 24.11.1973, Síða 19
Laugardagur 24. nóvember 1973.
TÍMINN
19
LAUNAKJOR OG LAUNA
KRÖFUR HÁSKÓLAMANNA
li—il
?9<
BANDALAG háskólamanna
hefur sent blaöinu fréttatilkynn-
ingu um launamál sin, þar sem
grein er gerö fyrir þessum mál-
um cins og þau horfa við frá
þeirra sjónarhóli. Fréttatil-
kynningin er á þessa leið:
Vegna siendurtekinna, órök-
studdra og i sumum tilvikum
rangra fullyrðinga um launakjör
og launakröfur Bandalags
háskólamanna i fjölmiðlum,
veröur ekki hjá þvi komizt að
benda i stuttu máli á nokkur
atriði til leiðréttingar:
1. Sem dæmi um raunveruleg
launakjör háskólamanna má
nefna, að byrjunarlaun há-
skólamenntaðra gagnfræða-
skólakennara (miðað við visi-
tölu 1. sept. ’73) eru nú kr.
46.704.- á mánuði, byrjunarlaun
presta kr. 52.975.- og mennta-
skólakennara, dýralækna og
sérfræðinga á visindastofnun-
um kr. 55.065.-. Saðreynd er, að
um 70% allra háskólamanna i
rikisþjónustu hafa byrjunar-
laun lægri en kr. 60.000.-.
2. Hverjar eru svo launakröfur
BHM fyrir þá þrjá launaflokka,
sem ofangreindir hópar til-
heyra nú? Krafizt er kr. 66.720.-
á mánuði i byrjunarlaun i fyrst
nefnda flokknum, en kr. 77.309,-
og kr. 81.385.- i hinum tveim.
Um 70% háskólamanna myndu
samkvæmt kröfum fá byrjun-
arlaun kr. 90.000.- eða lægri.
Hinar nú svo tittnefndu kr.
129.278.-, sem ætið er gripið til,
þegar skýrt er á hlutdægan hátt
frá kröfum BHM, er sú upphæð,
sem farið er fram á fyrir örfáa
æðstu embættismenn þjóðar-
innar. í þeim launaflokki eru
nú t.d. biskup, landlæknir,
rektor Háskólans, ráðuneytis-
stjórar o.fl.
3. Til samanburðar við ofan-
greindar tölur um kjör og
kröfur háskólamanna má m.a.
benda á kröfur þjóna I yfir-
standandi kjaradeilu, en þær
eru allt að 86.120.- i
kauptryggingu á mánuði, og
kröfur matsveina, sem eru allt
að kr. 93.600.- á mánuði.
Iðnaðarmenn álversins i
Straumsvik gera kröfu um
mánaðarlaun yfir kr. 70.000.-,
og fram hefur komið i fjölmiðli,
að miðlungs laun flugstjóra séu
kr. 150.000.- á mánuöi.
Ennfremur er rétt, að fram
komi, að litill vafi leikur á þvi,
að launamismunur innan ASI,
þ.e. milli verkamanna og
ýmissa hópa, sem vinna sam-
kvæmt uppmælingu, er meiri
en milli verkamanna og þorra
háskólamanna i rikisþjónustu.
4. Sérstök ástæða er til að vekja
athygli á þvi, að launakröfur
BHM eru i öllum aðalatriðum i
takti við kröfur annarra
launþegasamtaka, að frátal-
inni kröfu um nokkra leiðrétt-
ingu til samræmis við viðmið-
unarstörf á frjálsum vinnu-
markaði. Þessu til rökstuðn-
ings má benda á BSRB fyrir
störf, sem grundvölluð eru á
sama starfsmati, en þær eru
t.d. i flokki háskólamenntaðra
gagnfræðaskólakennara kr.
67.912,- á mánuði (miðað við
visitölu 1. sept. ’73) og mennta-
skólakennara kr. 77.309,-
Þetta þýðir i raun, að háskóla-
menn berjast fyrir óbreyttum
launahlutföllum i þjóöfélaginu,
en ekki fyrir auknum
launamun. Þeir ætlast hins
vegar alls ekki til þess, að
sanngjörn laun þeim til handa
bitni á öðrum, sem lægri hafa
launin.
5. Að rikjandi launamunur hér-
lendis (sem þó er mun minni en
Minningabók Emils Jónssonar:
Á milli Washing
ton og Moskva
Bókaútgafan Skuggsjá hefur
sent frá sér bókina ,,Á milli
Washington og Moskva” eftir
Emil Jónsson, fyrrum ráðherra.
Er þetta forvitnileg bók um póli-
tiska viðsjártima.
Emil Jónsson, fyrrum ráð-
herra, einn svipmesti stjórn-
málamaður þjóðarinnar, hefur
lifað róstusama breytingatima —
tima sem hann átti mikinn þátt i
að móta. 1 bókinni segir hann frá
störfum i Hafnarfirði, á Alþingi
og i rikisstjórnum, og frá kynnum
af erlendum ráðamönnum, en
utanrikismál voru honum hug-
leikin.
En þar greinir Islendinga á,
þjóðin er tviskipt i viðhorfum til
austurs og vesturs, til veru i Nato
og til varnarliðsins. Menn mun
lika greina á um efni þessarar
bókar, en allir sem fylgjast vilja
með stjórnmálasögu siðustu ára-
tuga, verða að eignast og lesa
þessa bók.
Bók Emils er 260 blaðsiður,
prýdd fjölda mynda. Skuggsjá
settiog prentaði. Bókfell annaðist
bókband. —SB
Ný Ijóðabók eft-
ir Richard Beck
NVKOMIN er á markaðinn Ijóða-
bók eftir Richard Beck, sem hann
nefnir „Undir hauststirndum
himni”. Richard Beck er lslend-
ingum löngu kunnur fyrir ljóð sin
— og meðal Vestur-Islcndinga
hefur hann löngum vcrið I hópi
oddvitanna, ekki aðeins sem
Ijóðasmiöur, heldur hinn
sivakandi, áhugasami frum-
kvöðull um ýmis mál, sem lúta aö
minningarlegu sambandi og
margvislegum öðrum tengslum
milli Islands og Vestur-íslend-
inga. Og hann er ekki sizt
þekktur sem ræðumaður við ýmis
hátiðleg tækifæri
Þetta er ekki fyrsta ljóðabók
Richards Beck — og hér er að
finna úrval ljóða hans frá siðustu
14 árum. Hann tileinkar bókina
konu sinni Margréti Jakobínu
Beck, en samtals eru ljóðin 50.
Það er Leiftur h.f., sem gefur
bókin út.
vioast hvar annars staðar) sé
sanngjarn, byggir BHM m.a. á
eftirfarandi rökum. Háskóla-
menn hefja starfsævi sina með
þvi að afa sér 5-10 ára starfs-
menntunar að afloknu
stúdentsprófi. Þeir þiggja ekki
laun fyrir þá ströngu vinnu,
sem i langskólanámi felst, en
afla sér lifsviðurværis með
lántökum og sumarleyfisvinnu.
Miðað við úthlutunarreglur og
upphæðir lána hjá Lánasjóði is-
lenzkra námsmanna fyrir árið
1972, skuldar námsmaður, sem
lýkur 6ára námi á
Norðurlöndum, sjóðnum tæpa
eina milljón króna. Að auki fá
námsmenn oft á tiðum hjálp frá
aðstandendum, og skulda þeim
fé að námi loknu. Eigi háskóla-
menn ekki að standa mjög að
baki öðrum launþegum hvað
lífsskilyrði áhrærir fyrstu 10-
15ár starfsævinnar, þurfa laun
þeirra, að frádregnum
sköttum, að nægja til siðbúinn-
ar uppbyggingar heimilis auk
endurgreiðslu námsskulda.
6. Að lokum skal á það bent, að i
öllum starfsgreinum er mennt-
un metin til launa, þótt i mis-
jöfnum mæli sé. Starfsmenn,
sem sækja námskeið i starfs-
grein sinni, hækka réttilega i
launum. Alkunna er, að
iðnaðarmenn telja sig, sakir
menntunar sinnar, eiga rétt á
hærri launum en ófaglærðir
menn, og telja mætti upp fjölda
svipaðra dæma. örðugt er þvi
að sjá, hvernig unnt er að loka
augum fyrir þvi, að slikt mat á
menntun hlýtur einnig að vera i
fullu gildi á háskólastigi.
Með þökk fyrir birtinguna
f.h. stjórnar BIIM
Markús A. Einarsson
formaður
Wilma R.
— Haíið þið þremenningarnir
starfað lengi saman?
— Nei, það var ekki fyrr en i
fyrra vetur, eftir alþjóðlega söng-
lagakeppni i Lissabon að við fór-
um að vinna saman. Þar voru
samankomnir söngvarar frá 23
löndum og ég var svo heppin að
vinna þar bæði 1. og 2. verðlaun.
En annað lagið var einmitt útsett
eftir John Hawkins.
— Nú varst þú að leika i „Show
boat” eftir Hammerstein. Ertu að
hugsa um að leggja leiklistina
fyrir þig?
— Ég veit það ekki, en ég hafði
mjög gaman af þvi að leika. Ég
naut þess að skapa nýja persónu,
það var nokkuð, sem ég hélt að ég
væri ekki fær um.
— Eru það kvikmyndirnar
næst?
— Aður en ég kom hingað lék ég
smáhlutverk i mynd með Julie
Andrews og Omar Sharif og fyrir
skömmu fékk ég tilboð um að
leika i kvikmynd, en þá var ég svo
önnum kafin i leikhúsinu að það
var ekki möguleiki að koma þvi
við. Ég hafði ekki einu sinni tima
til að lesa kvikmyndahandritið
yfir. Annars eru þessi kvik-
myndatilboð varasöm, ég hef
fengið áöur tilboð um að leika i
kvikmynd, en þá kom upp úr kaf-
inu að þarna voru nektarsenur,
sem ég gat ekki fellt mig við. Það
er allt i lagi að láta taka myndir
af sér léttklæddri i fjarlægð, en
þegar myndin fer að snúast um
nektaratriði þá vil ég ekki taka .
þátt i leiknum. Auk þess sem
maðurinn minn vill það ekki, seg-
ir hún brosandi og litur til hans,
en i þvi kallar hann á hana og seg-
ir að röðin sé komin aö henni, og
skömmu siðar hljómar lagið
„Bridge over trouble water”,
sem söngkonan syngur af innlif-
um og meö miklum tilþrifum.
John,. Hawkins hefur leyst
Magnús Ingimarsson af við
pianóið, sem fær sér sæti og hvilir
sig, segist varla hafa komizt i það
öllu erfiðara.
Spurningunni um það hvort þeir
séu ánægðir með þessa nýju
stjórnendur er svarað þannig: —
Það má enginn vera að þvi að
hugsa um það. Þú sérð nú hvernig
strákarnir djöflast áfram, 6 tima
á dag fyrir næstum ekkert kaup.
kr
Framsóknarfélögin
á Snæfellsnesi
Framsóknarfélögin á Snæfellsnesi hala aðalfundi sina á Breiöa-
bliki sunnudaginn 25. nóvember kl. 15. Venjuleg aðalfundarstörf.
Asgeir Bjarnason alþingismaður mætir á fundinum.
Staðan í
íslenzkri pólitík
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn aö Hótel Esju
þriðjudaginn 27. nóvember kl. 20.30. Framsögumaöur Bjarni
Guðnason alþingismaður, sem ræðir um stöðuna i islenzkri póli-
tik. ALLIR VELKOMNIR. Framsóknarfélag Reykjavikur
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Hinn árlegi bazar félagsins verður laugardaginn 24. nóvember
næst komandi að Hallveigarstöðum og hefst hann kl. 14. Félags-
konur og velunnarar félagsins eru hvattir til þess að gefa muni á
bazarinn. KöKUR eru sérstaklega vel þegnar.
Tekið verður á móti laugardagsmorgun 24. nóv. að
Hallveigarstöðum.
Einnig taka eftirtaldar konur á móti munum: Dóra Guðbjarts-
dóttir, Aragötu 13, simi 16701, Elin Gisladóttir Sundlaugaveg 28,
simi 32768, Ingibjörg Helgadóttir, Bergþórugötu 8, simi 21727.
Félagsmólaskóli
Framsóknarflokksins
Fundir i félagsmálaskóla Framsóknarflokksins, haustnám-
skeiði, eru haldnir tvisvar i viku, á laugardögum kl. 15 og á
fimmtudögum kl. 21. Laugardagsfundirnir verða fyrir mælsku-
æfingarog leiðsögn i fundarstörfum, en á fimmtudagsfundunum
verða flutt 45 minútna fræðsluerindi um Framsóknarflokkinn og
islenzk stjórnmál.
Lestrarefni: Lýðræöisleg félagsstörf. Sókn og sigrar, Málefna-
samningur rikisstjórnarinnar og Tíðindi frá Flokksþingum.
Leiðbeinendur á málfundaæfingum verða: Björn Björnsson Jón
Sigurðsson og Kristinn Snæland. Fundir verða haldnir á Hótel
Esju.
9. fundur. Laugardag 24. nóvember kl. 3. e.h. Fimmta mái-
fundaræfing, samkvæmt 7. æfingu bls. 303, Lýðræðisleg félags-
störf. Nýir þátttakendur velkomnir.
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Reykjaneskjördæmi verður
haldið I Skiphóli i Hafnarfirði sunnudaginn 25. nóvember og hefst
kl. 9:30 árdegis.
ólafur Jóhannesson forsætisráðherra ávarpar þingið.
Stjórn kjördæmissambandsins.