Tíminn - 11.01.1974, Síða 4
4
TÍMINN
Föstudagur II. janúar 1974
m
m.
1
Ég verð áreiðanlega milljónamæringur
Ricky Bruch hefur reynt margt
um ævina. Þegar hann er ekki
að kasta kringlu, æfa sig eða að
borða til þess að hann fái enn
meiri krafta og nái enn lengra i
iþrótt sinni, æfir hann jóga,
jippon eða gefur yfirlýsingar,
sem allir standa á öndinni út af.
Nú er hann meira að segja að
hugsa um aö fara að leika i
kvikmyndum. Hann er tiltölu-
lega nýkominn heim til Sviþjóð-
ar frá Róm, en þar var hann aö
undirrita samninga við þrjá
italska kvikmyndaframleiðend-
ur. — Gangi mór vel, ætia óg
mór að halda úfram i kvik-
myndunum, og verða góður
kvikmyndaleikari segir hann. —
Ég ætla samt alls ekki að hætta
að kasta kringlunni. A meðan
hann leikur i kvikmyndunum i
Itóm gefst honum tækifæri til
þess að æfa sig á Stadio
Oiympic, en þar á Evrópu-
meistaramótið að fara fram i
september næstkomandi. Ricky
hefur fengið heimild til þess að
æfa sig einn dag i viku, og þann
dag þarf hann ekki að hafa nein-
ar áhyggjur af kveikmynda-
leiknum. Þá hefur Ricky hugsað
sór að taka þált i Olympiu-
leikunum 1970, en eftir það leik-
ur hann svo i þriðju og siðustu
myndinni, sem hann hefur þeg-
ar samið um. — Ég held ég
hljóti að vera oröinn marg-
milljónamæringur, þegar ég er
búinn að þessu öllu, segir Ricky
— og svo ætla óg að kaupa mór
„villu” fyrir utan Rómaborg.
Menn hafa spurt Ricky, hvort
hann haldi, að honum heppnist
kvikmyndaleikurinn. — Hvers
vegna ætti mór ekki aö ganga
vel þar eins og annars staöar
segir hann. Fg hef verið að leika
allt mitt lif. Kærasta Rickys,
Irene og hin tveggja og háll's árs
gamla dóltir þeirra, Maria,
hlæja bara að þessu öllu saraan.
Zsa-Zsa og ástin
Ótakmörkuð ást heitir félags-
skapur, sem Zsa Zsa Gabor
stjórnar. Varla hefði verið hægt
að velja betra nafn á félag, sem
Gabor stjórnar, þvi hún hefur
mörg hjónabönd að baki og fjöl-
mörg ástarævintýri. En þegar
öllu er á botninn hvolft er
félagsskapur þessi ekki eins
rómatiskur og álita mætti af
nafninu. Tilgangur félagsins er
að annast ketti og hunda, sem
engan eiga húsbóndann. — Ég
elska slik dýr út af lifinu segir
Zsa Zsa Gabor. — Við hlúum
að heimilislausum húsdýrum,
og veitum þeim alla þá hjálp,
sem þau þarfnast. Svo útvegum
við fátæku fólki ófrjósemisað-
gerðir fyrir heimilisdýr þess,
svo fóikið geti átt dýrin áfram
áhyggjulaust, og þurfi ekki að
óttast óþægilega fjölgun.
John Wayne skilinn
— eftir 19 ár
C3
Allir þekkja kvikmyndahetjuna
John Wayne, sem alltaf gerir
hið eina rétta á kvikmynda-
tjaldinu. og mistekst aldrei
neitt. John hefur einnig gert
flest rétt i einkalifi sinu, eða að
minnsta kosti næstum allt. Hon-
um hefur tatt mistekizt, og vinir
hans sáu ofsjónum yfir vel-
heppniðu hjónabandi hans, en
hann er búinn að vera kvæntur
sömu konunni i 19 ár, sem er
mjög langur timi i Hollywood.
Eiginkonan heitir Pillar og er
nú 37 ára gömul. Nú er hins veg-
ar komið svo! að hamingjan
endist þeim ekki mikið lengur.
Þau hafa nú ákveðið að skilja
eftir 19 ára sambúð. Þau hjón
eiga saman þrjú börn.