Tíminn - 11.01.1974, Síða 16
16
TÍMINN
Föstudagur 11. janúar 1974
.... Umsjón: Alfreð Þorsteinsson =
BREF ERLENDS
VALDIMARSSONAR
Prentvillupúkinn iék lausum hala á iþróttasíð-
unni i gær og gerbreytti m.a. textanum i bréfi
Erlends Valdimarssonar. Verður bréfið þvi birt
aftur i heild ásamt formálsorðum.
1»AU KH ekki venja íþróttasiöu Timans aö flagga meö það, þó ein-
staklingar hafi samband viö blaöiö meö einum eöa öörum lia'tti i
þeim tilgangi aö þakka fyrir þaö, sem vel er gert ö iþrótlasiöunni.
Vmsir aörir munu vera sórstaklega sólgnir i slika viöurkenningu.
og vila sór þó ekki viö þvi aö hvetja fólk beinlinis til aö skrila les-
endabróf. og ef ekki vill betur til, þó skrifa þeir bólbrelin bara s jalf
ir. Iþróttasiöa Timans a'tlar aö bregöa ul at vananum og iji.aa
iirstutt bref frá einum fræknasta iþróttamanni landsins um þessar
mundir. Krlendi Valdimarssyni. en bróf bans er svobljoöandi:
i.Um leiö og ég lýsi yfir furöu minni á afstööu iþróttafréttaritara
Vísis til lyftingaafreks Gústafs Agnarssonar, vil ég nota tækifæriö
lil aö þakka iþróttasiðu Timans, og þá alveg sérstaklega Alfreö Þor-
i stcinssyni, fyrir þá drcngilegu afstöðu aö ljá okkur iþróttafólkinu,
er rilaöi undir ,,opið bréf” til Visis, rúm á iþróttasiöunni, þegar sýnt
þótti, að nokkrir iþróttafréttamenn höföu bundizt samtökum um aö
þegja þaö i hel.
Aö minu áliti ciga iþróttafréttaritarar ekki að vera undanþegnir
1 gagnrýni frekar en viö iþróttafólkiö.
Eriendur Valdimarsson.”
VALSMENN
VERÐA AAEÐ
í TOPP-
BARÁTTUNNI
ÍSI.ANDSMEISTARAK Vals
áttu ekki i erfiöleikum meö
Þór frá Akureyri, þegar liöin
mættusti 1. deildarkeppninni i
handknattleik á miövikudags-
kvöldiö. Leiknum, sem fór
fram i Laugardalshöllinni,
lauk meö niu marka sigri Vals
20:11. Valsmenn eru nú þeir
einu, sem geta veitt FH-ingum
keppni i baráttunni um is-
landsmeistaratitilinn og má
búast viö aö lokakeppni is-
landsmótsins veröi spennandi,
sérstaklega baráttan milli FH
og Vals og svo botnbaráttan á
milli iR, Ármanns og Þórs.
I
BJARGAD A SÍÐUSTU
STUNDU...Sigtryggi Guð-
laugssyni tókst að slá knött-
inn úr höndunum á Agústi
Ögmundssyni, sem komst á
milli sendinga og brunaöi
fram. A myndinni sést
Tryggvi Gunnarsson, inark-
vörður Þórs, en hann var til-
búinn að taka á móti skoti frá
Ágústi. Jón Friðsteinsson,
dómarinn kunni úr Fram,
sést i baksýn á fleygi ferö.
(Timamynd: Gunnar)
„Ossie" til Derby
FETER OSGOOD, hinn þekkti
og vinsæli knattspyrnumaöur
Lundúnaliösins Chelsea, var i
gær seldur frá Chelsea til
Derby. Osgood liefur veriö
mikiö I fréttum síöustu dag-
ana i Englandi, en hann sóttist
eftir aö vcra settur á sölulisla i
sl. viku, cn þá fór Alan llud-
son, cinnig Iram á, aö vera
scttur á sölulista. Þegar Dave
Scxton, framkvæmdasljóri
Chelsea, lét hafa þaö eftir sér
sl. laugardag, aö hann heföi
ekki áhuga á aö láta Osgood
inn i liö sitt aftur, vissu mcnn
aöSexton myndi selja Osgood,
fljótlega. Derby gekk l'rá
kaupunum á Osgood, i gær-
kvöldi, en þegar blaöiö fór i
prcntun, var ekki vitaö hvaöa
upphæö Derby borgaöi fyrir
hann, eöa hvort féliigin heföu
gert skipti á leikmönnuin. Viö
munum segja nánar frá þvi á
morgun.
Peter Osgood, eða „Ossie”
eins og hann er kallaður, hóf
feril sinn sem atvinnumaður
hjá Chelsea, áriö 19(i4. Ilann
var fljótl lalinn einn be/.ti miö-
herjinn i ensku knattspyrn-
unni, sókndjarfur og mikill
markaskorari. „Ossie” fót-
brotnaöi i október 19(>(i og var
frá í eitt keppnistimabil. Ilann
kom siðan aftur fram i sviös-
ljósið keppnistimabiliö 19G7-6B
og var betri en nokkru sinni
áöur. Hann helur leikið meö
enska landsliöinu og landslið-
inu undir 23ja ára aldri.
PETER
OSGOOD
Staðan og
markhæstu
ieikmenn
Staöan er
keppninni i
nú þessi i 1. deildar-
handknattlcik:
FH 7 7 0 0 155:109 14
Valur 6 5 0 1 120:99 10
Vfkingur 6 3 0 3 124:124 6
Haukar 7 2 2 3 130:144 6
Fram 6 1 3 2 112:113 5
Armann 7 2 1 4 100:108 5
IR 7 1 1 5 126:144 3
Þór 6 1 1 4 96:122 3
Markhæstu menn:
Viðar Simonarson, FH 45
Gunnar Einarsson, FH 43
Hörður Sigmarsson, Haukum 42
Axel Axelsson, F'ram 41
ÁgústSvavarsson, tR 38
Einar Magnússon, Viking 36
Sigtryggur Guðlaugsson, bór 32
Gisli Blöndal, Val 31
GUDKJÖRN JONSSON
Allt er þegar
þrennt er...
GUDBJÖRN Jónsson, hinn kunni knattspyrnuþjálfari, veröur aö
öllum likindum meö 2. deildarliö Þróttar i sumar. Guöbjörn hefur
þjálfaö Þrótlarliöiö ineö góöum árangri sl. tvö keppnistímabil.
Ilann tók viö liöinu 1972, en þá lenti Þróttur i 3. sæti i 2. deildar-
keppninni.SI. keppnistimabil uröu Þróttarar i ööru sæti og nú cru
þeir farnir aö tala um máltækiö „Allt cr þegar þrennt er”. Veröur
þvi gnman aö sjá, livort Guöbirni tekst aö koma Þróttarliöinu upp i
I. (leild i suniar — þriöja keppnistimabiliö, sem hann veröur meö
liöiö.