Tíminn - 12.01.1974, Síða 13
Laugardagur 12. janúar 1974
TÍMINN
13
Stjórnarfrumvarp á Alþingi:
Viðskiptamenntun
framhaldsskólastigi
Stjórnarfrumvarp á Alþingi um
Félagsmóla-
skóla alþýðu
Nokkru fyrir þinghlé var lagt
fram á Alþingi stjórnarfrumvarp
um viðskiptamenntun á fram-
haldsskólastigi. t athugasemdum
með frumvarpinu segir m.a.:
,,Meginstefna frumvarpsins er
sú, að nemendur, sem lokið hafa
grunnskólanámi, þ.e. núverandi 8
ára skyldunámi og einu skólaári
til viðbótar, eða hlotið hliðstæða
menntun, eigi þess kost að afla
sér menntunar til undirbúnings
undir störf í viðskiptalifinu og
jafnframt að treysta almennan
þekkingargrundvöll sinn. Frum-
varpið kveður á um, að námsefn-
ið skuli greinast i kjarna og kjör-
svið. Eru tilgreindar sjö greinar,
sem vera skuli i kjarna og þá
kenndar öllum nemendum skól-
anna, en þessar greinar eru: is-
lenzka, stærðfræði, eitt Norður-
landamál, enska, vélritun, bók-
færsla og hagfræði. Þar til viðbót-
ar geti menn valið sér náms-
greinar, kjörsvið, eftir þvi sem
námsbrautir og námslok gefa til-
efni til. Námsefninu verður skipt i
einingar, þannig að sem auðveld-
ast verði fyrir nemendur að bæta
við sig námi t.d. i öðrum skólum,
þar eð gert er ráð fyrir, að námið
verði þáttur i samræmdri mennt-
un á framhaldsskólastigi og geti
farið fram i fjölbrautaskólum,
menntaskólum og framhalds-
deildum grunnskóla og svo hins
vegar i sérstökum verslunarskól-
um eftir þvi sem sérhæfing náms-
ins gerir kröfur um. Er miðað við,
að slikir sérskólar verði stofnaðir
eftir þvi sem þörf krefur og fé er
veitt til og verði þeir rikisskólar
og hinn fyrsti skóli, sem stofnaður
verður þeirrar tegundar, risi á
Akureyri.
Eins og áður segir eru sjö
námsgreinar tilfærðar sem
námskjarni, er öllum nemendum
á að vera sameiginlegt að læra,
en siðan er gert ráð fyrir, að aðr-
ar námsgreinar verði ákveðnar i
námsskrá og þykir viðurhluta-
mikið að binda i lögum fleiri
námsgreinar en brýna nauðsyn
ber til, svo að unnt sé án laga-
breytinga að breyta námsefni
skólanna eftir þvi sem kröfur
timanna gera nauðsynlegt eða
æskilegt. Viðskiptamenntun sú,
sem frumvarpið gerir ráð fyrir,
miðast við að nemendur eigi völ á
að búa sig undir almenn skrif-
stofustörf, bókhaldsstörf, af-
greiðslustörf og deildarstjóra-
störf i verslunum og stjórnunar-
störf. Ennfremur er gert ráð fyr-
ir, að nemendur eigi þess kost að
búa sig undir stúdentspróf og þá
framhaldsnám i háskóla, hvort
sem er i viðskiptafræðum eða
öðrum greinum. Viðskiptanám á
framhaldsskólastigi er ráðgert
eins til fjögurra ára nám, þ.e.
eins, tveggja eða þriggja ára al-
mennt og sérhæft viðskiptanám
og siðan eins árs viðbótarnám,
sem veiti nemendum menntun til
stúdentsprófs. Um stúdentspróf
þetta er það að segja, að nefndin
ætlast til þess, að það gildi eins og
önnur stúdentspróf til inngöngu i
Fyrstir á
morgnana
Háskóla Islands og aðrar
menntastofnanir á háskólastigi,
eftir þvi sem ákveðið er i lögum
og reglugerð fyrir þær stofnanir,
og auk þess á þetta viðbótarár að
hafa að markmiði að gera nem-
endur hlutgengari til starfa i við-
skiptalifinu, þótt þeir fari ekki til
frekara náms.
Gert er ráð fyrir, að hluti af við-
skiptanáminu á framhaldsskóla-
stigi sé fólgið i starfsþjálfun og
geti þeir skólar, sem annast við-
skiptamenntunina, falið við-
skiptafyrirtækjum tiltekna þætti
þessarar þjálfunar, og er mjög
æskilegt og nauðsynlegt, að um
þetta takist gott samstarf milli
skólanna og hinna ýmsu atvinnu-
fyrirtækja. Með slikri tilhögun
verður nemendunum ljósara en
ella hvers hin ýmsu störf krefjast.
Tekið er fram, að nemendur skuli
fá skirteini og vitnisburð i lok
hvers námsárs, þvi að þeir munu
vafalaust halda mislangt á náms-
brautinni og er þvi sjálfsagt fyrir
þá, bæði vegna atvinnuleitar og
hugsanlegs náms siðar, að hafa
skirteini um hvaða námsáfanga
þeir hafa lokið.
Að þvi er varðar fjárhagshlið
þessara mála, þá er tekið fram i
frumvarpinu, að allur stofn-'og
rekstrarkostnaður sérstakra
skóla, sem rikið stofnar til þess að
veita viðskiptamenntun á fram-
haldsskólastigi, skuli greiddur úr
rikissjóði, en kostnaður við aðra
skóla, sem viðskiptamenntun
veita, svo sem i formi náms-
brautar i framhaldsdeildum
grunnskóla, fjölbrautaskólum og
menntaskólum, fer eftir þvi, sem
ákveðið er um greiðslu kostnaðar
á hverju skólastigi. Þannig ítiyndi
til dæmis viðskiptanámsbraut i
menntaskóla vera algerlega kost-
uð af rikissjóði eins og mennta-
skólarnir, en i fjölbrautaskólum
yrði bæði um þátttöku rikis og
hlutaðeigandi sveitarfélags eða
sveitarfélaga að ræða.
Þá eru sérstök ákvæði um Sam-
vinnuskólann og Verslunarskóla
Islands. Þessir skólar hafa, eins
og kunnugt er, i áratugi annast
svo til einir verslunarmenntun i
landinu á framhaldsskólastigi,'én
sumir gagnfræðaskólar hafa haft
verslunardeildir eða einhverja
þætti viðskiptanáms. I frum-
varpinu er gert ráð fyrir, að Sam-
vinnuskólinn og Verslunarskóli
tslands, sem eiga að baki langan
og þýðingarmikinn starfsferil,
eigi rétt á að halda áfram að
rækja fræðslustarfið sem þeir
hafa annast, og fái bætta fjár-
hagsaðstöðu til að auka það og
sérhæfa eftir þvi sem aðstæður
leyfa og þörf krefur. Er þetta
fóígið i þvi, að rekstrarkostnaður
skólanna verður samkvæmt
frumvarpinu, greiddur að fullu úr
rikissjóði, nema rekstrarkostnað-
ur heimavistar. hann greiðist
með styrk úr rikissjóði sem nem-
ur 80% kostnaðar. Rikisframlag-
ið, bæði til almenns rekstrar og
heimavistar, skal að hámarki
miðast við kostnað i rikisskólum
á sama fræðslustigi. Af stofn-
kostnaði þessara tveggja skóla,
að því er varðar kennsluhúsnæði
og heimavistir, byggðar eftir
gildistöku laganna, greiðir rikis-
sjóður 80%.
Það er skilyrði, bæði fyrir
greiðslu stofn- og rekstrarstyrkja
til þessara skóla, að mennta-
málaráðuneytið samþykki árlega
áætlun um rekslrarkostnað og að
fé sé veitt i fjárlögum fyrir stofn-
kostnaði, enda liggi fyrir sam-
þykki stjórnvalda fyrir nýjum
byggingaframkvæmdum, og mið-
ast framlög rikisins að sjálfsögðu
við það, að skólarnir starfi i sam-
ræmi við meginstefnu laganna og
samkvæmt þeim reglugerðum,
sem settar verða.
Með þessum ákvæðum, ef að
lögum verða, er stórbætt starfs-
aðstaða Samvinnuskólans og
Verslunarskóla Islands. Hefur
starfsemi þessara skóla orðið til
þess, aðeigi hefur verið jafnbrýnt
fyrir rikisvaldið að skipuleggja
viðskiptamenntun á vegum rikis-
ins eins og verið hefði, ef þeirra
hefði ekki notið við. Hefur rikis-
sjóður þvi raunverulega sparað
sér stórfé með þvi að veita
verslunarskólunum styrk i fjár-
lögum i stað þess að taka
verslunarmenntunina i sama
mæli á sina arma og aðra sér-
menntun i landinu.
Við fjölbreyttari atvinnu- og
viðskiptahætti og aukin umsvif
innanlands og i samskiptum við
aðrar þjóðir ber brýna nauðsyn til
að veita þeim fjölmenna hópi,
sem fæst við jafnþýðingarmikil
störf og verslun og viðskipti,
greiðan aðgang að traustri
menntun til þess að skapa sér
sem mesta starfshæfni og til þess
að þjóðfélagið fái sem bezta
starfskrafta. Störfin á sviði inn-
lendra og erlendra viðskipta
verða æ umfangsmeiri og hinum
auknu kröfum þarf aö mæta með
aukinni þekkingu, starfsþjálfun
og tækni.”
Skömmu fyrir jól var lagt fram
á Alþingi stjórnarfrumvarp um
stofnun Félagsmálaskóla alþýðu.
t 1. grein frumvarpsins segir:
..Stofna skal skóla, sem nefnist
Félagsmálaskóli alþýðu. Hlut-
verk skólans er að mennta og
þjálfa fólk úr alþýðusamtökum
með það fyrir augum að efla
sjálfstraust þess, þroska og hæfni
til að vinna sameiginlega að bætt-
um lifskjörum og frelsi alþýðu-
stéttanna”.
I athugasemdum við lagafrum-
varpið segir:
„Með frumvarpi þessu er lagt
til, að stofnaður verði félags-
málaskóli verkalýðshreyfingar-
innar, þannig að aðgang að skóla-
vist fái aðeins félagar i stéttar-
félögum, og að stjórn skólans
verði skipuð tveimur skóla-
nefndarmönnum eftir sameigin-
legri tilnefningu Menningar- og
fræðslusambands alþýðu og Al-
þýðusambands tslands og einum
án tilnefningar, og verði sá for-
maður skólanefndarinnar.
Tilgangur lrumvarpsins er að
veita starfandi og verðandi for-
stöðumönnum verkalýðs-
hreyfingarinnar, áhugamönnum
um störf hennar og hverjum
félaga hennar, sem njóta vill,
möguleika til haldgóðrar fræðslu
1 þeim greinum, sem tengdar eru
starfi alþýðusamtakanna.
Ahrif stéttarfélaga á þjóðarhag
eru vissulega mjög mikil. Miklu
A SÍOASTA ARI seldi Semcnts-
verksmiðja rikisins 125.874 tonn
af semcnti. Af þeirri uppliæð fór
2.:!»2 tonn til virkjanafram -
kvæmda á Norður- og Austur-
landi. Til húsbygginga og allra
annara framkvæmda hafa þvi
farið 13:1.572 tonn á árinu.
A árinu 1972 nam salan alls
128.572 tonnum en af þeirri upp-
hæð fóru 3.745 tonn til virkjana-
framkvæmda og 7.524 tonn lil
steypu i nýja Vesturlandsvegipn.
Til húsbygginga og allra ann-
arra framkvæmda fóru þvi
117.303 tonn árið 1972. A árinu
máli skiptir þvi, að félagar þeirra
eigi kost á sem beztri fræðslu um
allt það, sein lýtur að starfi
stéttarfélaganna, viðskiptum
þeirra við hagsmunasamtök at-
vinnurekenda og um sérhvert
málefni, er varðar þjóðarhag.
Samningsgerðir verkalýðs-
félaga og atvinnurekenda um
laun, kjör og vinnuskilyrði eru
mjög vandasamt verkefni, sem
krefst mikillar þekkingar jafnt á
högum þeirra, sem þær snerta
beint hverju sinni, sem á félags-
málalöggjöf þjóðarinnar, svo sem
vinnulöggjöf, löggjöf um öryggi á
vinnustöðum á sjó og landi,
trygginga- og skattalöggjöf, og á
rekstri atvinnuveganna og
þjóðarbúsins i heild. Ýtarleg
fræðsla um þessi efni er nauðsyn-
leg, ekki aðeins fyrir stéttarfélög-
in, heldur og fyrir þjóðfélagið i
heild.
Lagt er til, að rikissjóður kosti
stofnun og rekstur félagsmála-
skólans að öllu leyti. Gert er ráð
fyrir, að sérstökum manni verði
falið eftirlit með bókhaldi skólans
og fjárreyðum, sbr. 2. mgr. 8. gr.
frumvarpsins.
Aætlun um stofnkostnað og
rekstrarkostnað skólans liggur
ekki fyrir nú. Ef frumvarp þetta
verður að lögum, mun félags-
málaráðuneytið gera áætlun um
kostnað vegna skólans og hlutast
til um, að fé verði varið til lians i
fjárlögum samkvæmt áætlun
ráðuneytisins”.
1973, fóru, eins og áður segir,
133.572 tonn til þessara fram-
kvæmda og er það um 14% aukn-
ing frá fyrra ári.
A árinu 1973 voru ílutt inn 32.859
tonn af erlendu sementsgjalli. Ar-
ið 1972 voru flutt inn 12.207 tonn af
sementsgjalli. A s.l. ári var enn-
fremur flutt inn 1.600 tonn af
sekkjuðu sementi til sölu innan-
lands.
Framleidd voru innanlands um
99.000 tonn af sementsgjalli á s.l.
ári. A árinu 1972 var framleitt
svipað magn, enda framleiðslu-
getan nýtt að fullu bæði árin.
/fcrseman
vélsleðinn, 21 ha., tveggja strokka mótor. Lipur
sleði með þrískiptu belti búnu stálspyrnum. Einkar
vinsæll sleði á viðráðanlegu verði.
Ö ÞORHF ©
Vélsleðinn, 30 hö.,af Imikill og duglegur ferðasleði
með farangursgeymslu, breitt belti — mikið
dráttarafl. Sjálfskipting með gíra afturábak jafnt
sem áfram. Þetta er sleði þeirra vandlátu — meiri
og vandaðri sleði, en áður hefur sézt hér á
markaðnum. Amerísk framleiðsla. Þrátt fyrir
stærð og glæsileik er verð ekki til f yrirstöðu f yrir þá
sem eru að leita að góðu tæki til vetrarferða og
f lutninga.
Sementsframleiðslan d Akranesi:
135.874 LESTIR Á
ÁRINU 1973