Tíminn - 24.01.1974, Síða 5
Fimmtudagur 24. janúar 1974.
TÍMINN
5
Indriði G. Þorsteinsson:
Má ekki virkja
í vestur?
öðru hverju eiga sér stað for-
vitnilegar umræður um raforku-
mál fslendinga og kannski helzt
nú, þegar orkuskortur herjar
annars staðar. Nokkurt hnoð
hefur verið um þessi mál á
undanförnum árum, einkum
vegna þess, að svo er komið i
vegagerð og rafvirkjun, að ekki
er hægt að fara átölulaust yfir
lönd manna, vikja burtu eignar-
rétti og hlunnindum á þeim for-
sendum, að framvindan sé ein-
ungis fólgin i vegi og rafmagni,
og þess vegna verði þetta tvennt
að hafa forgang umfram aðrar
nytjar.
Fyrir stuttu komu nokkrir raf-
heilar saman i útvarpi, og þótt
maður heyrði aðeins óminn af
þeim viðræðum, þá mátti ljóst
greina, að enn sátu sérfræðingar
þessara mála að gömlum hug
myndum og úrlausnum og töluðu
enn eins og rafvirkjarnir hlytu
að hafa allan forgang. Það hefur
þvi ekkert lærzt.
Undarlegt er, hve ágæt stefna
núverandi rikisstjórnar i raforku-
málum virðist eiga litlum skiln-
ingi að mæta, og er þá átt við þá
stefnu, að samtengja landið allt i
þjóðvegi orkunnar — fækka
konungsrfkjum og freista þess að
leggja grunninn að þeim mögu-
leika að virkja megi vatnsföll
fjærri aðalneyzlusvæðum, ef svo
býður við að horfa að leita jafnan
að sem mestri hagkvæmni.
Lengi hafa menn austan öxna-
dalsheiðar litið svo á, að það raf-
magn eitt væri gott, sem kæmi frá
Þingeyingum eða úr Laxá við
Brúar. Eru annálsverð þau and-
mæli sem fasthyggjumenn höfðu
uppi, þegar lina var lögð yfir
öxnadalsheiði til Skagafjarðar,
Indriði G. Þorsteinsson.
Var eins og þessi opnun til
vesturs heyrði undir pólitisk
hneyksli.og jafnvel stjórnarslit.
Nú hefur lengi verið ljóst, að
virkjun Jökulsár eystri, i Austur-
dal i Skagafirði, er með þvi allra
hagkvæmasta, sem vitað er um.
Samt tala menn enn um að virkja
beri þær fáu bergvatnsár, sem
geta gefið af sér dýrmæt hlunn-
indi með öðru móti. Með sanni má
segja, að Jökulsá eystri sé alveg
eins við bæjarvegg Akureyringa
og Laxá i S.-Þing. En það er eins
og hugsun manna i þessum efnum
sé á einhverju járnbrautarspori,
og henni verði ekki vikið af
stefnu.
Það er kannski þýðingarlaust,
að benda mönnum á jafn aug-
ljósa staðreynd og virkjunar-
möguleika i Jökulsá eystri,
þegar svo er i pottinn búið, að
menn vilja heldur halda sig við
nöldrið árum saman en sinna
hagkvæmum úrbótum i
rafmagnsmálum á svæði, sem
býr við takmarkaða framfara-
möguleika, vegna orkuskorts. Þó
kemur vonandi að þvi, að hinir
visari menn á þessu svæði lands-
ins sjái fram á það, að þó að mikil
orka fari i að rifast um gerðan
hlut, þá er ekki vitað að slik orka
leysi neinn vanda. Sé það hins
vegar svo, að af metnaðar-
ástæðum megi ekki virkja vestan
öxnadalsheiðar fyrir markaðs-
svæði austan hennar, þá liggur i
augum uppi að lausn orku-
vandans á þessu svæði verður að
biða eftir nýjum kynslóðum.
Jökulsá eystri er kjörinn
virkjunarstaður. Þar geta risið
upp virkjanir án þess að nokkrum
manni verði iþyngt með missi
lands, eða öðrum hlunnindum
þurfi að fórna. Þetta eru svo aug-
ljósar staðreyndir, að ekki þarf
um að deila, en það er kannski
þessvegna að menn vilja heldur
horfa til annarra og erfiðari
virkjana.
Fasteignaskattar
í Hafnarfirði
Skrá yfir fasteignaskatta i Hafnarfirði
liggur frammi til sýnis á bæjarskrifstof-
unni, Strandgötú 6, Hafnarfirði.
Kærur út af skattaálagningunni skulu
sendar undirrituðum eigi siðar en 4. marz
n.k.
Hafnarfirði 24. janúar 1974.
Bæjarstjóri.
=rsra
Fyrirferðarlítil
mjög fullkomin
HLEÐSLUTÆKI
sem er handhægt að hafa í bílskúrnum
eða verkfærageymslunni til viðhalds
rafgeyminum.
VARIÐ
LAND
MUNIÐ undirskrifta-
söfnunina til að mót-
mæla uppsögn varnar-
samningsins og brott-
vísun varnarliðsins.
SKRIFSTOFUR:
Reykjavík: Miðbær við
Háaleitisbraut, simi 3-60-31,
pósthólf 97.
Kópavogur: Alfhólsvegur 6,
simi 40-588.
Garðahreppur: Bókaverzl-
unin Grima simi 4-27-20.
Ilafnarfjörður: Strandgata
11, simi 5-18-88.
Akurcyri: Brekkugata 4,
simar 2-23-17 og 1-14-25.
Vinsamlega skilið list-
um sem fyrst.
IniilánM’ið.skipti leið
lil lán«riðskipta
BtÍNAÐARBANKI
' ÍSLANDS
k ÁRAAÚLA 7 - SÍMI 84450 .
Íbændur
Trésmíðavél óskast
Óska eftir notaðri trésmiðavél (afréttari,
þykktarhefill, sög).
Upplýsingar i sima 93-6314, Ólafsvik, eftir
kl. 19.00.
Gefið búfé yðar
EWOMIN F
vítamín-
og
steinefna-
$ '
t£fi
m
'?.' t
‘,.l
3
' s/
03
i vr •
S f's
>w*
r v5 .•
i i
‘ . tv • . - '* \
jv'
Auglýsing um
fasteignagjöld
Lokið er álagningu fasteignagjalda i
Reykjavík 1974 og verða gjaidseðlar
sendir út næstu daga.
Gjalddagar fasteignaskatta eru 15.
janúar og 15. mai, en annarra gjalda
samkv. fasteignagjaldaseðli 15. janúar.
Gjöldin eru innheimt í Gjaldheimtunni i Reykjavik, en
fasteignagjaldadeild Reykjavíkur, Skúlatúni 2, II.
hæð, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna.
Athylgi er vakin á því, að Framtalsnefnd Reykjavíkur
mun tilkynna elli- og örorkulifeyrisþeguuum, sem fá
lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatta skv. heimild i
3. mgr. 5. gr. laga nr. 8/1972 um tekjustofna sveitar-
félaga, en jafnframt geta lifeyrisþegar sent umsóknir
til borgarráðs.
Borgarstjórinn i Reykjavik
23. janúar 1974.
&
3
•JS-
;
'á
r-V
M
•>j
■ V'
œv'-v
tatra
hjólum. Mismunadrifsás á öllum
öxlum. Mismunadrif milli afturöxla. Hvert hjól
með sjálfstæða fjöðrun.
jm-.
Vél 212 (Din) hestöfl. Burðarþol 15 tonn.
Stálpallur, hliðar- og endasturtur. 11/16 slrigaiaga
nylon hjólbarðar.
Tilbuinn til notkunar um kr. 2.700.000.00
Moguleikar á afgreiðslu í febrúar-april
EF PANTAÐ ER STRAX.
■HHH&UAs________:/■ ■
TÉKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44 - 46 SlMI 42600
KÓPAVOGI