Tíminn - 24.01.1974, Page 15
Fimmtudagur 24. janúar 1974.
TÍMINN
15
fmlegast
1973 fyrii'
s á bókha
sendiö l0ka
f-3anúar»
“PPgjör íyri
K- yegna frá
Söfnunarfé Rauða krossins og
HjdSparstofnunar kirkjunnar
vegna gossins í Eyjum
A ÞESSUM tímamótum þykir
Rauða krossinum og Hjálpar-
stofnun kirkjunnar rétt að gefa
yfirlit um fjárreiður hjálpar-
félaganna i Vestmannaeyjamál-
inu. Lokauppgjör liggur ekki fyrir
ennþá, en ákvarðanir hafa nú
verið teknar um ráðstöfun þess
hluta söfnunarfjárins, sem ekki
fór i fyrstu hjálp. Það var mikið
lán að lokaákvarðanir drógust
nokkuð, sem hefur valdið þvi, að
hægt er að fjárfesta verulegan
hluta söfnunarfjárins i Vest-
mannaeyjum, en hætt var' við
ýmsar fjárfestingar á meginland-
inu, þegar i ljós kom, að endur-
bygging Eyjanna yrð miklu skjót-
ari en beztu vonir stóðu til.
Rauði krossinn
Söfnunarfé, sem rann til hans,
nam kr. 141,8 millj. kr. (gengi i
des.), þar af var erlent gjafafé 92
millj. kr. Ýmsar gjafir i friðu eru
ekki taldar með.
Ráðstöfun:
1. Hjálparstarf fyrstu vikurnar
kr. 40.0millj.
2. 31 ibúð fyrir aldraða við
Kleppsveg og Siðumúla og er
þegar flutt i þær flestar.
kr. 41.0 millj.
3. Hlutur RKl i 46 ibúða blokk
við Kriuhóla, Breiðholti. Til-
búin i vor kr 20.0 millj.,
4. Barnaheimili (dagheimili),
Breiðholti, innfl. frá Noregi-
Rvk. borg innleysir á 3 árum.
Uppsett i april/mai n.k.
kr. 10.9 millj.
5. Barnaheimili (dagheimili)
sett upp i Heimaey i mai n.k.
Keypt i Sviþjóð kr 13 0 miUj.
6. Elliheimili fyrir 40 manns,
keypt i Danmörku en sett upp
i Eyjum i ágúst. Heildar-
kaupverð yfir 65 millj. RKl
leggur til að 3/4 (sjá á
eftir). Heimilið verður reist
i vesturbænum kr 30 0 millj.
kr. 154.9 millj.
Kaupverð innfl. heimila er
áætlað og miðað við gengi i
desember. Bæjarfélögin leggja til
aðstöðu og reka barnaheimilin.
Hjálparstofnun
kirkjunnar
Hjálparstofnun kirkjunnar
hefur borizt 36.8 millj. kr. til
hjálpar Vestmannaeyingum, þar
af um 22 millj. kr. frá lands-
mönnum.
Söfnunarfé Hjálparstofnunar-
innar hefur verið varið og mun
varið i stórum dráttum eins og
hér segir:
1. Fjárhagsleg aðstoð við ein-
staklinga og fjölskyldur,
veitt i samráði við sóknar-
presta og i gegnum fjárhags-
aðstoð bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja i samvinnu við
RK1 kr. 10.500.000,00
2. Sumardvöl aldraðra að
Löngu-
mýri, ferming i Skálholti, ferð
gagnfræðaskólanema til Fær-
eyja og sumarbúðadvöl barna.
kr. 600.00,00
3. Rekstur barnaheimila i Nes-
kirkju og Silungapolli o.fl.
varðandi hjálparstarfið
kr. 1.130.000,00
4. Tvö einbýlishús, gjöf frá
Finnlandi, reist i Garðahreppi
kr. 4.800.000,00
5. Hlutdeild i 46 ibúða fjöl-
býlishúsi við Kriuhóla i
Reykjavik
kr. 10.800.000,00
6. Leikskóli innfluttur með
húsgögnum og leikföngum,
verður reistur i Eyjum að vori
kr. 7.500.000,00
kr. 35.330.000,00
Andvirði húsanna i Garða-
hreppi og ibúðanna við Kriuhóla
verður notað til félagslegrar
uppbyggingar á breiðum grund-
velli i Vestmannaeyjum, þegar
Vestmannaeyingar hafa ekki
lengur not fyrir þetta húsnæði á
meginlandinu.
Húsgagnasmiðir —
húsasmiðir
Viljum ráða húsgagna- og húsasmiði,
vana innréttingum.
G. Skúlason og Hliðberg h.f.
Þóroddsstöðum, simi 19597.
Sérstaklega er nú i athugun að
reisa i nýja vesturbænum innflutt
safnaðarheimili, sem yrði eign
sóknarnefndar til ráðstöfunar
fyrir hvers konar starf á hennar
vegum og sóknarprestanna, auk
þess að vera til notkunar fyrir
ýmislegt félagsstarf annað i
Eyjum.
Rauði krossinn og
hjálparstofnun
kirkjunnar
sameiginlega
(vesthjálp)
Þessum stofnunum barst sam-
eiginlega hin svokallaða „norska
gjöf” um 74 millj. kr. frá Norsk
Islandsk Samband, lika nefnt
Hándslag til Island. Um hana
skapaðist samstarf þessara aðila
með bæjarstjórn Vestmannaeyja
og með tæknilegri hjálp Gunnars
Torfasonar, verkfræðings, við
Hagverk. Hefur þetta samstarf
undirbúið kaup og innflutning
þeirra heimila, sem keypt verða
frá útlöndum,. Hefur i þessu starfi
verið stuðzt við sænska ráðgjafa-
firmað Hifab, Stokkhólmi um
útboð, lýsingar og tæknilegan
frágang.
Verður norsku gjöfinni
ráðstafað þannig:
1. Heildarkostnaður við að
ljúka sjúkrahúsinu i Eyjum er
áætlaður 130 millj. kr. Af
norsku gjöfinni verður ráð-
stafað i formi láns til
rikissjóðs kr 40 o millj.
2. Ofangreint elliheimili fyrir
40 I Vestmannaeyjum
kr. 34.0 millj.
kr. 74.0 millj.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
leglur til grunn og aðstöðu fyrir
elliheimilið og mun reka það.
Ótaldir eru ýmsir kostnaðarliðir
og meðal þeirra fyrst og fremst
húsgögn. Hafa gjafir borizt i hluta
þess kostnaðar.
Vesthjálp hefur haft vissa
milligöngu um barnaheimili, sem
risið er i Keflavik og er gjöf frá
samtökunum Redda barnet i Svi-
þjóð. Er það tilbúið til notkunar
og verður afhent bæjarstjórn
Keflavikur.
Niðurstöður danska yfirlæknisins sjást á þessari teikningu. Við
rannsókn á 53 manneskjum fann hann (til vinstri), hversu mörg
prósent höfðu maura á þeim svæðum, sem tölurnar benda til.
Prósenttalan til hægri á myndinni gefur til kynna, hversu margir
af þeim, sem rannsakaðir voru, höfðu hár með dermodex-
maurum.
Andlít okkar
eru þakin
maurum
NÆSTUM allir hafa maura i húð-
inni. Þeir eru af tcgundinni der-
modex follicorum, sem lifa i
svitaholum og hársekkjum og eru
þriðjungur úr millimetra að
lcngd. Það hefur hingað til verið
hulin ráðgáta, hvernig þessir
maurar breiðast út, þvi ekki hafa
þeir vængi.
Yfirlæknirinn við augndeild
Kommunehospitalet i Kaup-
mannahöfn, dr. Mogens S. Norn,
hefur komizt að raun um, að þeir
berast ekki heldur frá manni til
manns, þegar hnerrað er. Maur-
arnir finnast hjá þrem af hverj-
um fjórum mönnum á yfirborði
nefsins, en þeir eru yfirleitt ekki
meðfram hárunum, sem vaxa
upp i nefinu.
Dr. Norn rannsakaði 53 ein-
staklinga og dró 46 hár út úr nef-
inu á hverjum. öll hárin voru
rannsökuð i smásjá, og 13 maurar
fundust. Dermodex-maurinn
fannstsem sagt aðeins hjá 15% af
þeim, sem rannsakaðir voru. Það
er lág tala.
Maurinn finnst yfirleitt hjá
fjórða hverjum táningi, og næst-
um öllum, sem komnir eru yfir
sjötugt. Þeir eru einkum i fitu-
kirtlum á nefhúðinni og augn-
hárunum, en sjaldan á handleggj-
um, fótleggjum og likamanum
yfirleitt. Það er ráðgáta, hvernig
þeir breiðast út.
Við snertingu
Það er gengið út frá þvi sem
visu, að maurarnir svifi ekki i
loftinu, heldur breiðist út við
snertingu milli manna. Þó að
maurarnir séu útbreiddir, er
óþarfi að óttast þá . Þeir skemma
ekki útlitið og orsaka ekki augn-
háralos. Ekki hefur heldur verið
sannað, að þeir orsaki ofnæmi eða
aðra sjúkdóma. En staðreyndin
er samt sú, að andlit okkar eru
þakin maurum.
Eldurinn var að komast
að hjólbörðunum
þegar slökkviliðið réði niðurlögum hans
Klp—Reykjavik. — Litlu
munaði að milljónatjón
yrði í eldsvoða i Kópa-
vogi i fyrrinótt, er eldur
kom upp i hjólbarða-
verksmiðjunni Sólning
h.f. að Nýbýlavegi 4.
Þar eru sólaðir hjólbarðar á
flestar gerðir bila, og voru þarna
inni þúsundir hjólbarða af öllum
stærðum, auk véla, sem metnar
eru á milliónir króna.
Eldurinn kom upp 1 ntlu her-
bergi á neðri hæð hússins, en sem
betur fer nokkuð frá hjólbarða-
stæðunum, sem eru á báðum
hæðum. Læsti hann sig i milli-
veggi og logaði glatt i þeim, þegar
slökkviliðið kom á staðinn.
Tókst að ráða niðurlögum elds-
ins áður en hann næði að komast
að hjólbörðunum, en ekki mátti
þar mikiu muna. Hjólbarðarnir,
sem voru næst stigagangi upp á
aðra hæð voru farnir að loga, en
ef eidurinn hefði náð að breiðast
út á þeirri hæð hefði þarna orðið
mikið bál.
Nokkrar skemmdir urðu á
húsinu. meðal annars sprungu
margar stórar rúður og
skemmdir urðu á milliveggjum.
Eldsupptök eru ókunn, en talið er
að kvíknað hafi i út frá rafmagni.
HjÓlbarðarnir þarna á stigaskörinni voru farnir að loga þegar slökkviliðið kom á staðinn. Ef eldurinn
hcfði náð að brei ðast þarna út, hefði orðið mikið bál, því þarna á efri hæðinni voru hjólbaröar í þúsunda
tali. (Tímamvnd Róbert)