Tíminn - 08.02.1974, Qupperneq 3
Föstudagur 8. febrúar 1974.
TÍMINN
3
Japanir hafa liklega ekki veriö búnir að semja við fslenzka söluaðila á frystri loðnu, þegar þeir sendu
skip af stað frá Japan til að sækja hana. Þetta japanska frystiskip lá i gær i Keflavikurhöfn til að taka
þar frysta loðnu, en sennilega tekur það svona skip um 1 1/2 mánuð að sigla milli þessara fjarlægu
landa, svo að talsverða fyrirhyggju þurfa menn að viðhafa I slikum viðskiptum. — Timamynd: Gunnar.
AAagnús Vigfússon, eftirlitsmaður húskólabygginga:
„VIÐ HÖFUAA KOMIZT
FYRIR UPPTÖK RAKANS"
Orsökin vatn, sem lokaðist inni í einangrun úr
frauðsteypu í kjallaragólfi
Grímsey-
ingar
kaupa
hús frd
Siglufirði
GSal-Reykjavík —
Húsnæðisvandræði hafa
hrjáð Grimseyinga að
undanförnu. Fyrir stuttu,
ákváðu þrír ungir menn, sem
búið hafa i leiguhúsnæði, að
kaupa tilbúin hús frá Siglu-
firði, en þar starfar fyrir-
tæki, sem nýlega hefur
byrjað framleiðslu tilbúinna
húsa. Grimseyingarnir
verða fyrstir til að fá hús frá
þessum aðilum.
Húsin kosta rúmar 2
milljónir króna og nemur
útborgun nálægt helming
þeirrar upphæðar. Hægt er
að fá þau hönnuð i ýmsum
stærðum, en húsin, sem
flytja á út i Grimsey, verða
rúmir 100 fermetrar að
flatarmáli og koma til með
að risa á miðju næsta sumri.
Að öllum likindum sér
dráttarbáturinn Drangur um
flutningana.
Mikil eftirspurn hefur
verið um búsetu á eyjunni,
og sagði Guðmundur Jóns-
son fréttaritari okkar i
Grimsey, að sennilega risu
fimm ný hús á komandi
sumri, að meðtöldum hús-
unum frá Siglufirði. „Það
eru eingöngu húsnæðis-
vandræðin, sem eru þess
valdandi að eyjabúar eru
ekki fleiri i dag” sagði
Guðmundur.
Gæftir hafa verið litlar i
Grimsey og þvi dauft
atvinnulif i þorpinu. „Það
hefur verið fjandi óstillt”,
sagði Guðmundur, „grá-
sleppuveiðar eru nokkrar,
þegar gefur á sjó og þrir
bátar róa með linu”.
—ÉG er sannfærður uni, að við
höfum komizt fyrir upptök
rakans, sagði Magnús Vigfússon
húsasm iðameistari, eftirlits-
maður bygginga háskólans, er
hann sýndi okkur kjallara Árna-
stofnunar á dögunum. Rakamörk
eru hér neðst á sumum veggj-
anna, I suðausturhlutanum, þvi
að rakinn kom fram niðri við
gólfið, enda kaldast þar.
— Einangrun i gólfinu er úr sjö
sentimetra þykkri frauðsteypu,
sagði Magnús ennfremur, og
þetta stóð lengi opið, meðal
annars vegna þess, að upphaflega
var ráðgert að hafa vélknúna
bókaskápa á gólfinu, en seinna
var horfið frá þvi. 1 þessa frauð-
steypu hefur safnazt vatn, er-
stöðvazt hefur á gólfinu, og lokazt
þar inni, þegar sjö sentimetra
þykkt gólf úr járnbentri stein-
steypu var gert ofan á
einangrunina. Siðara hluta
sumars boruðum við fjögur göt
niður i frauðsteypuna, og við það
hefurrakinn i henni gufað upp, og
við opna glugga og kynta ofna er
hann nú horfinn. Þettaveröur þvi
allt komið i bezta lag i vor. En svo
mikill hefur rakinn heldur aidrei
verið, að korklag á efra gólfi hafi
losnað, heldur eingöngu komið
fram neðst á veggjum.
AAetframleiðsla og hátt
útflutningsverð á rækju
Magnús sagði, að ventlar á
ofnkrönum i húsinu hefðu lika
verið lélegir upphaflega og sumir
þeirra lekið. Var skipt um þá og
kerfið siðan þrýstiprófað. Við það
hefði enn komið fram leki á tveim
ofnum, er þegar úr göllum þeirra
hefði verið bætt, sýndi þrýsti-
prófið, að kerfið var i lagi.
ÁRIÐ 1973 var rækjuaflinn 7.300
tonn, sem er metafli. Langmestur
hluti aflans fór til frystingar, en
þó voru framleidd nokkur tonn af
niðursoðunni rækju. Hefur
verðlag á frystri rækju verið það
hagstætt, að ekki er talið borga
sig að sjóða hana niður.
Útflutningsverð á rækju er nú
25.50 krónur sænskar fyrir hvert
kiló, eða rúmlega 460.- islenzkar
krónur. Helztu markaðir fyrir is-
lenzka rækju eru i Bretlandi og á
Norðurlöndum. Um siðustu
MARGIT TUURE-LAURILA
SUNNUDAGINN 10. febrúar
verða hljómleikar i Laugarnes-
kirkju og hefjast þeir kl. 17.00.
Finnska mezzosópransöngkonan
Margit Tuure-Laurila, sem söng i
Norræna húsinu á Runebergs-
daginn, 5. febrúar s.l„ syngur. Á
efnisskránni verða meðal annars
lög eftir Bach, Hannikainen og
Kuusisto. Undirleik annast
organleikari kirkjunnar, Gústaf
Jóhannesson, og leikur hann
einnig orgelverk eftir Bach og
Reger. Aðgangur er ókeypis og
öllum heiipill. Gjöfum til
Hjálparstofnunar kirkjunnar
verður fúslega veitt viðtaka i
anddyri kirkjunnar að hljómleik-
unum loknum.
Nektaratriði
daglegt brauð
SJ-Reykjavik — Það virðist
orðið þykja nauðsynlegt
þegar ný islenzk leikrit eru
sviðsett, að i þeim sé nektar-
sena. t vetur vakti það mikla
athygli þegar leikari, sem
fór með eitt karlmanns-
hlutverk i Klukkustrengjum
Jökuls Jakobssonar, birtist
kviknakinn á sviðinu.
Kvisazt hefur að nektar-
sena séiDansleik, nýju leik-
riti Odds Björnssonar, sem
frumsýnt verður i Þjóð-
leikhúsinu á sunnudag, og
gérist i páfagarði i tið
Borgiaættarinnar, sem
höfundi þyki hafa nokkurt
svipmót með okkar tima.
Loks höfum við fregnað, að
tvær leikkonur i Kertalogi,
leikriti Jökuls Jakobssonar,
sem núer verið að æfa i Iðnó,
komi þar fram i nektar-
atriðum.
— Er ennþá púður i
nektaratriðum á. leiksviði?
áramót var settur 8% tollur á
rækju i Bretlandi, og hefur þetta
valdið erfiðleikum á útflutningi
þangað. Þar sem viðskipta-
samningur Islands við Efnahags-
bandaiagið hefur enn ekki komið
til framkvæmda aðþvi er snertir
sjávarafurðir, settu Bretar og
Danir á þennan 8% toll til sam-
ræmingar ytri tollum Efnahags-
bandalagsins. Við inngöngu Is-
lands i EFTA árið 1970 féll niður
10% tollur, sem verið hafði i Bret-
landi á frystri rækju frá tslandi,
þannig að rækja frá Islandi hefur
verið tollfrjáls þar i landi undan-
farin 4 ár.
Eins og skýrt var frá i
Timanum á sunnudaginn, hefur
sem betur fer aldrei orðið vart við
ráka i handritageymslu Arna-
safns og þar eru loftdælur og siur
af fullkomnustu gerð og sjálfvirkt
tæki, sem stillir rakann, svo að
hin fornu handrit hafa aldrei fyrr
verið varðveitt á jafntryggilegan
hátt og nú. Annars á rakastig á
skinnhandritum að vera talsvert
hærra en á bókum úr pappir, 55-60
gráður. Annað er það, sem gerir
varðveizlu handritanna tryggari
hér en i suðlægara landi: Sveppa-
gróður er hér minni og þess vegna
siður hætt við skemmdum af
þeim sökum.
Þjóðháftafræðing
urinn bað um
Rússagrýlusögur
gbk—Reykjavik. — i
ÚTVARPSÞÆTTI sinum um
islcnzka þjóðhætti s.l. miðviku-
dagskvöld óskaði Árni Björnsson
þjóðháttafræðingur eftir sögum
um Rússagrýlur frá hlustendum.
Vegna þessarar nýstárlegu beiðni
Arna bafði blaðið samband við
hann og spurðist nánar fyrir um
þetta mál.
Árni sagðist einkum hafa borið
fram þessa ósk til þess að
grennslast fyrir um, hvort Rússa-
grýlan væri komin á hjátrúarstig
eftir þetta margra áratuga
umtal. Hræðslan við Rússa ætti
sér ef til vill hliðstæðu i ótta fólks
við Skottur, Móra, Blámenn og
Tyrki, svo eitthvað væri nefnt.
Hann sagðist vilja fá um þetta
frásagnir frá venjulegu hrekk-
lausu fólki, sem væri haldið slik-
um ótta.
Ekki sagðist Árni þó vera búinn
að fá neina slika sögu i hendur
ennþá, enda gæti verið, að fólki
fyndist þetta guðlast og gálaus-
legt tal um alvörumál.
Sundrungariðja
í orkumálum
Það hefur vakið undrun
manna, hversu þingmenn
sjálfstæðismanna i Norður-
landskjördæmi eystra, aðal-
lega Lárus Jónsson, eru iðnir
við að ala á sundrung og
óánægju vegna timabundinna
erfiðleika I raforkumálum á
Norðurlandi. Eins og öilum
má vera kunnugt, skildu sjálf-
stæðismenn þannig við raf-
orkumál Norðurlands, þegar
þeir fóru frá völdum 1971, að
það hlut að taka sinn tima
fyrir núverandi rikisstjórn að
koma lagi á þau mál. Núver-
andi rikisstjórn hefur lagt sig
sérstaklega fram um að finna
lausn á raforkuvanda
Norðlendinga og vinnur af
alefli að þessu máli.
Siðast liðinn þriðjudag lagði
Lárus Jónsson nokkrar fyrir-
spurnir fyrir iðnaðar-og orku-
málaráðherra um hugsanlega
orkusölu frá Landsvirkjun til
Norðurlands.en sú lausn yrði
til bráðabirgða,meðan verið er
að koma upp gufuaflstöð við
Kröflu eða Námafjall. i
inngangsorðum sinum lét
Lárus kveða við gamla úrtölu-
tóninn og fullyrti in.a., að
Norðlendingar hcfðu
„rökstuddan grun” um
óheilindi rikisstjórnarinnar i
sambandi viö þessi mál.
Spruttu af þessu talsveröar
umræður, og tóku þátt i þeim
þeir Magnús Kjartansson
iðanðarráðherra, Ingvar
Gislason og Ingólfur Jónsson.
Svar Ingvars
Gíslasonar
,,Ég get út af fyrir mig ekki
sett út á þessar fyrirspurnir.
sem fram eru bornar af hátt-
virtum fimmta þingmanni
Norðurlandskjördærnis
eystra, Lárusi Jónssyni. Hins
vegar get ég ekki neitaö þvi,
að nrér þótti furðulegur tónn i
þeirri stuttu ræðu, sem hann
flutti fyrir fyrirspurnum sin-
um. Hann fullyrti t.d. að Norð-
lendingar hefðu „rökstuddan
grun” um. aö stefna ríkis-
stjórnarinnar i orkumálum
myndi leiða ófarnað yfir þá á
næstunni, eitthvað i þá átt var
fullvrðingin. Mér þykir þetta
satt að segja ákaflega furðu-
leg fullyrðing, enda algerlega
röng. Ég sé ástæðu til að mót-
mæla þessu sérstaklega.
Norðlendingar gruna rikis-
stjórnina ekki um græsku i
orkumálum, siður en svo.
heldur hygg ég að segja megi,
að Norðlendingar yfirleitt
treysti aðgerðum rikis-
stjórnarinnar i orkumálum,
og telji stefnu hennar bæði
rétta og jákvæða.
Ég vil lika minna á það. að
Norðlendingar telja, að það
hafi orðið stefnubreyting i
orkumálum. siðan núverandi
rikisstjórn tók við.”
Neikvætt nöldur
Ennfremur sagði Ingvar
Gislason:
„En hitt er annað mál, að
orkuvandamál Norðlendinga
er orðið að neikvæðu nöldurs-
máli nokkurra sjálfstæöis-
manna. og þá alveg sérstak-
lega háttvirts fvrirspyrjanda.
Lárusar Jónssonar. Mér hef-
ur stundum fundizt. að þetta
nöldur minnti á gamlan máls-
hátt, sem segir, að sök biti
sekan. Háttvirtiir fyrirspyrj-
andi veit mæta vel, að núv.
orkuskortur á Norðurlandi er
til kominn vegna óstjórnar
orkumála i tið fyrrverandi
rlkisstjórnar. Það var þá
stefna ríkisstjórnarinnar að
svelta Norðlendinga i orku-
málum og liafa uppi þau
viiinubrögð. setn hlutu að leiða
til ófarnaðar.”
-TK