Tíminn - 08.02.1974, Page 5
Föstudagur X. febrúar H)74.
TÍMINN
Synir (iisla Kolbeinssonar viö myndir föður sins.
w
w
AAALVERK SJOMANNS
Staða konsertmeistara
við Sinfóniuhljómsveit íslands er laus til
umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og starfsferil sendist
Rikisútvarpinu fyrir 1. mars næstk.
Rikisútvarpið, Skúlagötu 4.
Sjómenn
Vanan netamann vantar strax á skuttog-
arann Drangey SK-1. Upplýsingar i sima
95-5450 og 95-5368.
Útgerðarfélag Skagfirðinga h.f.
Sauðárkróki.
I BOGASAL
ÞJÓÐMINJASAFNS
Yfirlitssýning á verkum Gísla Kolbeinssonar
UM síðustu helgi var opnuð i
Hogasal Þjóðminjasafnsins sýn-
ing á málverkum eftir Gísla Kol-
beinsson, stýrimann, sem lézt á-
seinasta sumri aðeins 4(> ára að
aldri.
Sýningin er yí'irlitssýning á
verkum hans og lýkur henni um
helgina.
Gisli Kolbeinsson var fæddur 6.
júni 1927 i Reykjavik og fyrstu til-
sagnar i myndlist naut hann hjá
Jóhanni Briem, en fór siðan i
Handiðaskólann og sigldi að lok-
um til náms við Kunstakademiið i
Kaupmannahöfn. Þá var hann
um tvitugt og eru margar mynd-
anna á sýningunni frá þeim ár-
um.
Auk myndlistar fékkst Gisli
einnig við ritstörf og gaf meðal
annars út skáldsöguna RAUÐI
KÖTTURINN, fyrir nokkrum ár-
um. Þá ritaði hann smásögur og
greinar i blöð og timarit.
Gisli Kolbeinsson og kona hans
Dagmar Guðnadóttir bjuggu i
Reykjavik, á Eyrarbakka og úti i
Vestmannaeyjum og Gisli var á
sjó. Fyrst á alls konar bátum, á
vertiðum og i svona brimrössum
voru fáar stundir til að mála, eða
skrifa fyrir þá, sem sóttu sjó — og
myndirnar urðu fáar. Þó bendir
sýningarskráin til þess, að ávallt
hafi litir og penslar verið með i
förinni. Einstaka ár vantar þó
alveg á þessa sýningu að minnsta
kosti, en hún spannar timabilið
1943-1972.
Siðustu árin, sem hann lifði. var
hann stýrimaður i langfart á
erlendum skipurr. og þá málaði
hann með alminnsta móti. enda
getur undirritaður borið um það,
að litakassar og léreft eru ekki
meðal algengustu hluta á dönsk-
um farskipum, svo ekki sé meira
sagt.
Það er auðséð hverjum og ein-
um. að Gisli hefur búið yfir
hæfileikum sem málari. I
myndum hans er formbyggingin
oftast hnitmiðuðog hann hefði þvi
án efa getað haslað sér völl sem
málari, ef hann héfði kosið að
gera svo, en það gerði hann ekki.
Hann vildi vera á sjó, skrifa og
mála, og ef til vill i þeirri röð, sem
það er talið upp hér.
Oft minnti Gisli mig á heilaga
menn, umfram aðra kunningja
mina. Svo mikið var látleysið og
svo gersamlega var hann laus við
kapphiaupið mikla, sem hófst hjá
okkur hinum i fermingarfötunum
og við hinpum og hlupum eftir
metorðum og peningum og öllu
mögulegu og við gengum upp og
niður af mæði. Gisli hagaði sinu
lifi öðruvisi, steig aldrei fæti
sinum i met'orðastigann, heldur
réri oftast með einhverjum
mönnum á litlum bátum gegnum
æsandi brimið og enginn maður
sá á honum farmannapróf, eða
próf úr konunglegum listaskól-
um.
Siðan lá leiðin út i heiminn, til
að skoða öll löndin og álfurnar og
seinast sigldi hann fyrir A. R
MÖLLER liinn danska sem er
litið fyrir málverk, en þeim mun
meira fyrir vaska sjómenn. Þar
var hann unz yfir lauk.
Hann andaðist i hafi.
Þeim, sem þekktu Gisla
Kolbeinsson. var mögum hverj-
um kunnugt um þrá hans til að
skrifa og mála. i frásögnum hans
er einhver frumstæður kraftur og
hann hafði djúpa sjón. Sá hin
smáu mynstur, er mynda önnur
stærri, er við nefnum þjóðir, eða
álfur, eða eitthvað annað. Þegar
hann var á Spáni, málaði hann
eins og Spánverji og á tslandi eins
og Stokkseyringur, sem horfir á
brim.
Þeir. sem koma auga á þetta,
sjá lika, að hann hefði getað náð
langt, ef hann hefði einbeitt kröft-
um sinum, — staðið föstum fót-
um.
Á sýningarskrá er þetta skrif-
að:
,,Það má segja að þessi sýning
sé hinzta kveðja fjölmarga vina
og aðdáenda Gisla Kolbeins-
sonar, sjóarans, sem hlotið hafði
náðargáfu listfengisins i vöggu-
gjöf.”
Undir þá kveðja vil ég taka.
Jónas Guðmundsson.
Allir
fylgjast
með
Tímanum
Auglýsið í Tímanum
OSRAM
ljós úr hverjum
glugga
OSRAM
vegna gϗanna
Á mánudag verÖurdregiö Í2. ftokki
í.900 vinningaraó fjárhæö 3S.OOO&
Idag ersióasti endurnýjunardagurírm.
2 000,000 §1
800,000 II
4,000.000 H
9.600,000 ÍÍI
840 - 5,000 —
8 6 50.000 fcr.