Tíminn - 22.02.1974, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr.)
Þú hefur fengið hugmynd núna alveg nýlega.
Þessi hugmynd, ef hún er i sambandi við
peningalegan hagnað, er þess virði að koma
henni i framkvæmd, og þú skalt hefjast handa i
dag, en gerðu þetta upp á eigin spýtur.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Það lltur út fyrir, að peningamá’lin séu eitthvað i
ólagi þessa dagana, og það er vissara fyrir þig
að gera þér það ljóst, að þú verður að halda bet-
ur á spilunum en þú hefur gert til þess að kom-
ast hjá erfiðleikum.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Það er einhver drungi yfir þér i dag. Það er eins
og þú vantreystir sjálfum þér en þú skalt gera
þér ljóst, að þú hefur enga ástæðu til þess. Hver
er sinnar gæfusmiður og vol og vil aðeins til
óþurftar.
Nautið: (20. april-20. mai)
Það litur út fyrir, að þessi dagur hafi mikið að
segja fyrir þig. Þú umgengst að likindum margt
fólk I dag og ekki útlit fyrir annað en mikilsmet-
andi menn taki eftir þér á þann hátt, sem kemur
sér vel fyrir þig.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Þú verður fyrir óþægindum I dag, og til þess
liggja svolitið furðulegar orsakir, sem sé þær, að
á vinnustað þinum munt þú hækka i áliti, og það
verður til þess, að úr hópi vinnufélaga þinna
færð þú hnútur, sem þú lætur eins og vind um
eyru þjóta.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Það litur út fyrir, að ástamálin komi við sögu
hjá Kröbbunum i dag, en það er lika ástæða til
þess að vara þá við. Þetta er ekki heppilegur
dagur I þeim efnum, a.m.k. ekki til að gefa nein
bindandi heit, svo mikið er vist.
Ljónið: (23. júli-23. ágúst)
Þessi dagur er svolitið einkennilegur. Nýjunga-
girni i einhverjum efnum — tilfinningamálunum
einna helzt — hrindir af stað smáævintýri, sem
þú kemur til með að hafa ama af jafnvel alvar-
leg leiðindi, ef þú gætir þin ekki.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Það er hætt við þvi, að nú þurfir þú aldeilis að
leggja heilann i bleyti. 1 mjög alvarlegu máli átt
þú um tvo kosti að velja, og þú sérð ekki nema
við mjög nána athugun, að aðeins annar kemur i
rauninni til mála.
Vogin: (23. sept-22. oktj
I dag skaltu gæta þess að reyna að komast hjá
þvi að umgangast fólk, sem þér geðjast ekki að
eða fer I taugarnar á þér. Það er hætt við þvi,
að það myndi reyna um of á þolinmæði þina, og i
dag er ekki hættandi á neitt.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Þetta er þó nokkuð góður dagur. Nýjar hug-
myndir kunna að skjóta upp kollinum i dag, og
nema þvi aðeins að þær séu i sambandi við til-
finningamálin, skaltu ihuga þær betur og jafnvel
athuga um möguleika á að koma þeim I fram-
kvæmd.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Þaðlitur út fyrir það, að samband þitt við opin-
bera aðila eða menn á háttsettum stöðum geti
orðið þér hagstætt, en til þess verður þú aö gera
þér ljóst, hvernig þú átt að notfæra þér það á
réttan hátt.
Steingeitin: (22. des.-19. jan).
Það litur út fyrir það, að þeir, sem búa i fjarlægð
frá þér, komi talsvert við sögu i dag, hvort sem
um er að ræða heimsókn eða kveðjur með
ættingjum. En gömul kynni rifjast upp, til
ánægju fyrir þig og aðra.
I
Tíminner
peningar
:
j Auglýsitf
:
iTímanum!
Síminn og snjóalögin
Þarf ekki Landsiminn að leggja
meira kapp á að leggja jarðsima i
þröngum fjörðum og dölum, þar
sem alltaf getur verið hætta á
snjóflóðum á vetrum, þegar
þannig viðrar? Mér finnst það,
sem gerzt hefur núna að undan-
förnu, benda til þess.
Það er auðvitað alveg
óþolandi ástand, að staðir eins
og byggðir við utanverðan Eyja-
fjörð að austan séu sambands-
lausar timunum saman, þegar
út af ber, svo að ekki sé nefnt
þegar þannig fer um heila lands-
hluta eins og Vestfirði. Undir
sliku er þungt að búa, og einhvers
staðar heyrðist trúlega hljóð úr
horni, ef til dæmis Suðurnesin,
Seltjarnarnes eða Mosfellssveitin
lentu i þess háttar, jafnvel þótt
samgöngur væru I fyllsta lagi.
Er þetta ekki gamla sagan, að
þeir, sem fjær búa miðstöð
stjórnunarvaldsins, sitja á
hakanum? Stjórnendur stofnana
gera sér ekki nema að nokkru
leyti grein fyrir aðstöðu þeirra,
og sjálfir eiga þeir, sem búa langt
frá skrifstofum stjórnendanna,
örðugt með að koma sjónar-
miðum sinum á framfæri.svo oft
og afdráttarlaust sem virðist
þurfa til þess að hafa veruleg
áhrif.
RAFLAGNIR s amvirki
framleiðslusamvinnufélag RáFVXRKJA framleiðslusam
BARMAHLIÐ 4 sími 15-4-60 BARMAHLlÐ 4 sími 15-4-60
■o
annast ALLAR raflagnir OG viðgerðir I ^
ANNAST allar RAFLAGNIR og VTfíGERDTR
EIN ÞEKKTUSTU
AAERKI £
[sUNNaK\ N°RÐURLANDA
0
BATTERER
TUDOR
7op
RAF-
GEYAAAR
6 og 12 volfa Sönnak og Tudor
Rafgeymar jafnan fyrirliggjandi
ARMULA 7 - SIAAI 84450
EKILL
BRAUTARHOLTI 4
VYMURA
OMEGA
ORA
ECO
INALTERA
3-400 munstur
Sjálflimandi
Vynil
Bréf
Þvottekta
plasthúð
Veggfóöur- og má Iningadeild
Armúla 24 — Reykjavik
Simar B-S4-66 og 8-54-71
il kl. 10 í kvöld
og 6 á morgun
En væri nú ekki rétt, að láta öll
staurabrotin i vetur sér að
kenningu verða, og koma
einhverju af þeim loftlfnum
simans, sem hættast er á snjóa-
vetrum, niður á jörðina? Það eru
sennilega fleiri en ég, sem vildu
mælast til þess.
Vestfirðingur
BÍLALEIGA
CAR RENTfll
TT 21190 21188
í
opið'
Virka daga
Laugardaga
kl. 6-10 e.h.
kl. 10-4 e.h.
B>» BÍLLINN BÍLASALA
HVERFISGÖTU 18-simi 14411
. A
BíLALEIGA
Xar rental
X4H4H60&429°2
Æbílaleigan
felEYSIR
CAR RENTAL
«24460
í HVERJUM BÍL
UTVARPOG STEREO
CASETTUTÆKI