Tíminn - 22.02.1974, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 22. febrúar li)74.
Verðlaun fyrir
skipulagningu
Sovétstjórnin hefur verð-
launað arkitekta og bygginga-
verkamenn. sem reistu sveita-
þorp i sjálfstjórnarlýðveldinu
Þau eru vön að fá klapp
1 þrjú ár dönsuðu þau Hanni og
Peter Neubeck frá Munchen
einungis sem fristunda-
dansarar. Þau unnu sjö sinnum
mikla sigra. Þrisvar urðu þau
heimsmeistarar og fjórum sinn-
um Evrópumeistarar i
fristundadansi. Nú hafa þau
gert dansinn að atvinnu sinni,
og reiknað er með, að þau eigi
lika eftir að ná langt sem at-
vinnufólk, þar sem hjónin
Trautz og Opitz hafa lagt
dansinn á hilluna, en þau hafa
lengi verið talin beztu atvinnu-
dansarar i heimi. Þessi mynd
var tekin, þegar Neubeck-
hjónin sýndu nýlega dans i
Bremen, þar sem 900 dans
meistarar fylgdust meö þeim og
fögnuðu þeim óskaplega vel, en
þau voru hé að dansa suður
ameriskan dans. m
Tatariu við Volgu. Verkið sam-
einar sveitavenjur og hámarks
nútimaþægindi. tbúðarhúsin
eru einnar eða tveggja hæða,
búin gas- og miðstöðvarhitun. 1
miðju þorpinu er verzlanamið-
stöð, klúbbar, læknamiðstöð og
aðrar þjónustustofnanir. tJti-
hús og aðrar byggingar i þágu
framleiðslunnar eru utan við
ibúðarhverfið og skilin frá þvi
með trjábelti.
★
Málverk upp
í skatt
Franska rikið hefur nú i fyrsta
skipti tekið við málverki sem
greiðslu á erfðaskatti. Hér er
um að ræða myndina La
Guimard, sem er gerð af
franska hirðmálaranum Jean-
Honore Fragonard, sem uppi
var seint á 18. öld. Það var fjöl-
skylda Wattel Dehaynin, sem
bauð málverkið fram sem
greiðslu á erfðaskatti, en
fjölskylda þessi á margar
verzlanir i Frakklandi. Fjár-
málaráðherra Frakklands tók
boðinu um málverkið eftir að
menntamálaráðherra landsins
hafði gerzt þvi meðmæltur.
Ráðgerter að koma málverkinu
fyrir i Louvre-safninu. Erlent
listasafn hafði boðið sem
svaraði 1.5 milljón dollara i
myndina.
*
Tízkan í
Þýskalandi
Það er ekki lengur rétt, að
tizkuteiknarar hugsi ekki um
tizkufatnað handa fullorðnum
konum, og það sem meira er,
þeir leyfa sér að nota áberandi
efni í fatnaðinn handa konunum,
þótt þær séu komnar af léttasta
skeiði. Þeir gæta þess þó, að
sniðin á kjólunum hæfi likams-
vextinum og aldrinum, og þá er
allt i lagi, þótt efnin séu svolitið
áberandi. Hér til hægri sjáið þið
svo tvenns konar fatnað handa
yngri kynslóðinni hvort tveggja
yngri kynslóðinni, bæði létt
og þægilegt. Stutta tizkan er
enn við lýði,en siddin fer nokkuð
eftir þvi, i hvaða aldursflokkum
þeir eru, sem nota eiga kjólana
eða pilsin, eins og sést á þvi, að
kjólarnir til vinstri eru mun
siðari.
--------vr
2-5
DENNI
DÆMALAUSI
Ættum við ekki að byrja á eftir-
matnum i dag.