Tíminn - 22.02.1974, Blaðsíða 19

Tíminn - 22.02.1974, Blaðsíða 19
Föstudagur 22. febrúar 1974. TÍMINN 19 Tímamyndir: Gunnar Svípmyndir frá samn- ingafundinum á Hótel Loftleiðum TiMINN birtir hér nokkrar myndir frá samningafundununi að Hótel Loftleiðum, þar sem fulltrúar deiluaðila liafa keppzt við að ná samningum um kaup og kjör þorra vinnandi fólks i land- inu. Það þykir vel við hæfi að hafa sáttasemjarann, Torfa Hjartar- son, efstan á blaði, margreyndan i snerrum af þessu tagi og alls kyns þófi, sem af þeim flýtur. Siðan birtum við ýmsar svip- myndir þarna sunnan að til þess að fólk geti skynjað andblæinn i salarkynnunum. En hafi einhver búizt við að sjá reiða menn eða æsta, þá er það á miklum mis- skilningi byggt. Þarna fer allt spaklega fram, jafnvel þótt menn greini á, og fullyrða má, að af góðum vilja sé reynt að komast að niðurstöðu, sem getur hlotið samþykki. Það gildir að minnsta kosti um langflesta, sem þarna eiga i samningum, og er eitt nær- tækt dæmi um það, aö langflest félög og sambönd frestuðu verk- föllum á dögunum, svo að ekki væri stofnað til neinna vandræöa og reynt i lengstu lög að komast hjá þvi að valda þjóðfélaginu tjóni. Jón Sigurðsson, formaður Sjómannasambands tslands, er meðal þeirra, sem lengst og oftast hafa staðið i samningastappi. Hann er orð- inn þvi langvanur, þótt seint gangi, og fyrir löngu hættur að æðrast. En rúnir hafa árin rist I andlitið á honum', og vafalitið eiga samningafund- irnir þar sinar hrukkur. Nú styðst hann fram á stafinn, biðandi þess að samningagerðinni þoki áfram og hann geti loks hætt þrálátri fundar- setu að sinni. Auðvitað þarf margt dæmið að reikna, þegar svona stendur á, og á neðri myndinni sjáum við tölvisan mann með pipu i munni og reikningsvél og kveikjara á borðinu hjá sér. Sjálfsagt þarf að liafa hraðann á, svo að samningamennirnir fái sem fyrst að vita, hver niður- staða dæmisins verður, þvi að hana þarf að meta og vega, áður en lengra er haldið. Þegar menn þreytast á langri fundarsetu og vökum, bregða margir sér fram i vcitingastof- una til þcss að fá sér kaffisopa til hressingar. Á miðri myndinni til hægri er Stefán Jónsson prentsmiðjustjóri, yfir öxl hans sést Jón Ágústsson, fyrrverandi formaður Prentarafélagsins, og næstfremstur á myndinni er Svanur Jóhannesson formaður Bókbindarafélagsins. A myndinni að ofan eru menn að spjalla saman I hléi. Eðvarð Sigurðsson alþingismaður krossleggur hendurnar og Jó- hannes Eliasson bankastjóri horfir i gaupnir sér. Liklega hefur veriö á dagskrá mál, sem gaumgæfilega þarf að ihuga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.