Tíminn - 22.02.1974, Blaðsíða 11

Tíminn - 22.02.1974, Blaðsíða 11
Föstudagur 22. febrúar 1974. TÍMINN 11 — WMm —•, ^ _________________________* Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, slmar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasími 19523. Áskriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. v- > Merkir samningar í húsnæðismálum Samkomulag það, sem 30 manna nefnd ASÍ hefur gert við rikisstjórnina um húsnæðis- og ibúðalánamál, er hið mekasta. Ein af kröfunum, sem verkalýðsfélögin gerðu á hendur rikisvaldinu i sambandi við þá kjarasamninga, sem nú standa yfir, var um nýjar félagslegar aðgerðir i húsnæðismálum. Samkomulag hefur nú tekizt um tilboð rikis- stjórnarinnar i húsnæðismálum, en óþarft er að taka það fram, að þetta samkomulag er bundið fyrirvara af beggja hálfu. í fyrsta lagi tekur samkomulagið ekki gildi nema sem liður i heildarsamkomulagi um kaup og kjör verka- lýðsfélaganna næsta samningstimabil. í öðru lagi gerir rikisstjórnin samkomulagið með þeim sjálfsagða fyrirvara, að hér sé um lög- gjafaratriði að ræða, sem fylgi meirihluta al- þingis þarf til að koma fram. í samkomulaginu er kveðið á um, að á ár- unum 1976 til 1980 skuli byggja árlega sem svarar þriðjungi af heildaribúðaþörfinni i landinu með sérstökum hætti til að koma til móts við félagslegar þarfir félaga verkalýðs- hreyfingarinnar. Þessar ibúðir verða fram boðnar með þrenns konar kjörum. 1 fyrsta lagi leiguibúðir, m.a. á vegum sveitarfélaga, i öðru lagi ibúðir i verkamannabústöðum og i þriðja lagi ibúðar seldar með svonefndum ,, Breiðholtskjörum. ’ ’ Árleg ibúðaþörf er talin vera 1800-2000 ibúðir. Timinn fram til 1976 verður notaður til að undirbúa byggingaframkvæmdir og aðlaga löggjöf að þessari nýju stefnu i húsnæðismál- um,til þess að þetta kerfi geti orðið sem fljót- virkast og sveigjanlegast, þegar það kemur til framkvæmda. í þessu samkomulagi um húsnæðismál er einnig stigið stórt og mikilvægt skref til móts við kröfur verkalýðsfélaganna um verðtrygg- ingu lifeyrissjóða launþega. Verkalýðsfélögin skuldbinda sig til að lána 20% af ráðstöfunarfé lifeyrissjóða launþegafélaganna til umræddra ibúðabygginga i þágu launafólksins. í lifeyris- sjóðum verkalýðsfélaganna munu nú vera um fjögur þúsund milljónir króna. Þetta þýðir þvi um 800 milljónir króna á þessu ári, og siðan stórvaxandi upphæð árlega, þar sem lifeyris- sjóðirnir eflast nú mjög hratt. Til viðbótar kemur svo aukinn launaskattur til þessara þarfa. Byggingasjóður rikisins ræð- ur nú yfir rúmlega eitt þúsund milljónum króna til ibúðalána. Við þessar ráðstafanir mun þvi ráðstöfunarfé Byggingasjóðs rúm- lega tvöfaldast. Gera má þó ráð fyrir enn meiri aukningu fjármagns til ibúðalána, þar sem liklegt er talið, að öflugri lifeyrissjóðirnir láti meira en 20% af ráðstöfunarfé sinu i þetta ibúðalánakerfi, þar eð veðtrygging á fénu er i boði. Er gert ráð fyrir, að lánin verði visitölu- bundin, bæði gagnvart lifeyrissjóðunum og þeim, sem þeirra njóta, og beri 5% vexti. Gert er ráð fyrir, að leiguibúðirnar, sem hér um ræðir, verði á vegum sveitarfélaga, lif- eyrissjóða verkalýðsfélaganna sjálfra eða sér- stakra samtaka, sem verkalýðsfélögin kynnu að mynda um slikar byggingaframkvæmdir, og er þá haft i huga, að reynt verði að stuðla að lækkun byggingakostnaðar með sem stórtæk- ustum og fullkomnustum byggingaraðferðum. —TK. ERLENT YFIRLIT Verða tveir norskir þingmenn að víkja? Þeir höfðu fylgt nazistum á æskuárum sínum Finn Gustavsen UNDANFARNAR vikur hafa orðið miklar umræður i Noregi i tilefni af þvi, að upplýst var i blöðum, aö tveir af þingmönnum Sósialiska kosningabandalagsins höfðu á sinum tima veriðdæmdir fyrir landráð vegna tengsla sinna við nazista og hernámslið Þjóðverja á heimsstyrjaldar- árunum, Dómarnir höfðu verið vægir og ekki haft varaniega sviptingu borgara- legra réttinda i för með sér. t stjórnarskránni er ekkert að finna, sem meinar mönnum þingsetu vegna dóma, sem ekki fylgir svipting borgara-, legra réttinda. Frá lagalegu sjónarmiði er ekkert við þing- setu umræddra þingmanna að athuga. Spurningin er sú, hvort refsiverð mök við Þjóð- verja á striðsárunum hafi verið það verri en önnur afbrot, að þau eigi að varða meira eða minna réttinda- sviptingu um alla ævi og engar málsbætur komi þar til greina. Forustumenn Sósialiska kosningabandalagsins vissu um þessa dóma, þegar framboð umræddra þing- manna voru ákveðin, enda höfðu þeir ekki gert neitt til að leyna þeim. Hins vegar er ekki fullvist, að allir kjósendur i kjördæmum þeirra hafi vitað um þá. Sósialiska kosninga- bandalagið var myndað af þremur aðiium. Sóialiska þjóðarflokknum, Kommúnistaflokknum og flokksbroti úr Verkamanna- flokknum. Mest ber á þvi innan Kommúnistaflokksins, að þess sé krafizt, að umræddir þingmenn láti af þingstörfum. Sjálfir hafa þessir þingmenn lýst yfir þvi, að þeir séu reiðubúnir að láta af þingmennsku, ef flokkar þeirra og kjósendur óska þess. Þetta er hins vegar hægara sagt en gert, þvi að óheimilt er samkvæmt stjórnarskránni að segja af sér þingmennsku. Hins vegar geta þeir sótt um leyfi frá þingstörfum. Ef sæti þeirra á þinginu losnuðu af þessum ástæðum, myndi Kommúnistaflokkurinn fá annað þeirra, en hann hefur nú einn mann á þingi. Margir skýra afstöðu kommúnista þannig, að þeir vilji gjarna tvöfalda þingmannatölu sina á þennan hátt. Annars eru það forustu- menn mótspyrnuhreyfingar- innar og samtaka striðs- öryrkja sem mest láta til sin taka I þessum efnum. Krafa þeirra er m.a. sú, að það ákvæði verði sett i stjórnar- skrána, að menn, sem séu dæmdir fyrir landráð, séu sviptir framboðsrétti ævilangt. ANNAR þeirra þingmanna, sem hér um ræðir, er Kare öystein Hansen, sem er búsettur i Drammen og er járniðnaðarmaður að atvinnu. Hann var tæplega 18 ára, þegar styrjöldinni lauk, en hafði þá unnið hjá Þjóðverjum um skeið. Hann hlaut dóm og sat i fangelsi um hrið. Siðan 1948 hefur hann notið fullra borgaralegra réttinda og unnið sér mikið álit i starfi sinu. M.a. hefur hann starfað mikið innan verkalýðs- hreyfingarinnar og hefur siðustu sjö árin átt sæti i stjórn Sambands járn- og málm- iðnaðarmanna. Þar hefur hann starfað mikið innan Verkamannaflokksins og var kosinn borgarfulltrúi i Drammen fyrir hann i sveitar- og bæjarstjórnarkosning- unum. sem fram fóru 1971. Hann gekk úr Verkamanna- flokknum eftir þjóðar- at.kvæðagreiðsluna um aðild Noregs að Efnahagsbanda- laginu, en hann hafði beitt sér eindregið gegn henni. Siðar gerðist hann einn af stofn- endum flokksbrots þess, sem gekk úr Verkamannaflokkn- um, og gerðist einn aðilinn að Sósialiska kosningabanda- laginu. Sósialfska kosninga- bandalagið valdi hann siðan til framboðs i Buskerud-kjör- dæmi. Hansen hefur ekki reynt neitt til að leyna fortið sinni, og vissu t.d. forustu- menn Verkamannaflokksins vel um hana, þegar hann var kjörinn bæjarfulltrúi i Drammen. Hún var lika kunn forustum önnum Sósialiska kosningabandalagsins, þegar það valdi hann til framboös. í blaðaskrifum um þetta mál er það yfirleitt tekið fram, aö Hansen sé i góðu áliti hjá öllum þeim, sem þekkja hann. SENNILEGA hafa fæstir þingmenn vitað um fortið Hansens. Máli hans var ekki hreyft opinberlega l'yrr en nokkru eftir áramótin, að Norges Handels- og Sjöfarts- tidende skýrði frá þvi, aö ekki aðeins einn, heldur tveir af sextán þingmönnum Sósia- liska kosningabandalagsins, væru fyrrverandi landráða- menn. Þetta vakti i fyrstu mikla athygli, en heldur dró. þó úr henni, þegar málið upplýstist betur. Það kom þá i ljós, að annar þingmaður Sósialiska kosningabanda- lagsins, sem hafði veriö dæmdur fyrir landráð, var Hanna Kvanmo, sem hafði náð kosningu i Nordlandskjör- dæmi. Hún er kennari að starfi og hefur siðan 1967 átt sæti i bæjarstjórninni i Rana sem fulltrúi Sósialiska þjóðar- flokksins, en hún hefur tekið mikinn þátt i störfum hans og verið um skeið varaformaður samtaka hans i Norður- Noregi. Hún hafði árið 1942, þegar hún var sextán ára gömul, gengið i æskulýðs- samtök norskra nazista unnið siðan hjá þýzka hernum við hreingerningar og skrifstofu- störf og siðan farið til Berlinar 1944 sem hjúkrunar- kona i þýzka Rauða kross- inum. Þar var hún handtekin af Bretum og höfð i haldi i nokkra mánuði. Eftir heimkomuna til Noregs var höfðað gegn henni landráða- mál, og var hún dæmd i átta mánuða fangelsi skilorðs- bundið. Má af þvi ráða, að sök hennar hefur ekki verið talin mikil. Forráðamönnum Sósia- liska þjóðarflokksins var kunnugt um þennan dóm, þegar hún var valin til fram- boðs fyrir l'Iokkinn. EINS OG ÁÐUR.segir. hafa orðið miklar umræður um þetta mál i Noregi. Öllu meira virtist gæta tilfinninga en rökhyggju i þessum umræðum. Ekki sizt hafa þær orðið hvassar i Norður- Noregi, þar sem leiðtogar kommúnista krefjast þess, að Hanna Kvanmo viki af þingi. en þeir mvndu fá sæti hennar. ef það losnaði. Finn Gustav- sen, leiðtogi Sósialiska kosningabandalagsins, hefur hins vegar lýst yfir þvi. að þessar kröfur kommúnista sýni ekki rétta mynd af vilja fylgismanna Sósialiska kosningabandalagsins norður þar. Það ;.iá telja vist. að þetta mál eigi eftir aö koma bráðlega til umræðu i norska Stórþinginu. m.a. vegna þeirra krafna. sem hafa komið fram i tilefni af þvi um breytingar á stjórnarskránni. Margir þingmenn munu þó telja slikar umræður miöur æskilegar. Þetta mál rifjar það m.a. upp. að Stórþingið á ékki neina hetjusögu i sambandi við innrás Þjóð- verja i Noregi Hinn 17. júni 1940 lögðu forsetar Stórþingsins til, að Hákon konungur og stjórn Nygards- volds segðu af sér. Bæði konungur og Nygardsvold neituðu þvi. Stórþingið samþykkti nokkru siðar meö 96 atkvæðum að vikja bæði konungnum og stjórninni frá. Viðstaddir þingmenn Verka- mannaflokksins skiptust þannig, að 33 voru með þessari tillögu. en 27 á móti, Þingmenn voru þá 130 alls. Til þess að geta dæmt i umræddum málum, er hyggliegast að kynna sér fyrst aðstæðurnar, sem þá voru fvrir hendi. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.