Tíminn - 22.02.1974, Page 8

Tíminn - 22.02.1974, Page 8
8 TÍMINN Föstudagur 22. febrúar 1974. Jón Sigurðsson, skrifstofustjóri: Áfangi í öryggismálum AÐ undanförnu hafa orðið miklar umræður um varnarmál islenzka lýðveldisins, og er það að vonum. Nú er að þvi komið, að gengið verði til efnda á þvi fyrirheiti rikisstjórnarinnar, að veruleg breyting verði á þvi ástandi i öryggismálum þjóðarinnar, sem haldizt hefur um árabil og alla tið verið mjög umdeilt meðal al- mennings, enda mál til komið að þessi efni séu tekin til rækilegrar yfirvegunar i ljósi fenginnar reynslu og breyttra aðstæðna. Á kjörtimabilinu hefur stjórnar- andstaðan aftur og aftur rekið upp ramakvein sin, sem nú eru gamalkunn orðin öllum almenn- ingi, yfir þeim iskyggilegu fyrir- ætlunum vondra manna, sem uppi eiga að hafa verið hafðar i þessum málum. Sannleikurinn er hins vegar sá, að stjórnarand- staðan hefur með eftirvæntingu beðið þess, að málið kæmi á dag- skrá,og vonað i hugarfylgsni sinu, að það gæti orðið stjórninni að falli, fyrst allt annað hefur brugð- izt, og hefur þó til margra ráða verið gripið. Á hinn bóginn er það vitað, að fjöldi stjórnarsinna hef- ur litið á þetta mál og efndirnar sem mikilvægasta prófsteininn á það, hvort við höfum gengið til góðs á þvi timabili, sem rikis- stjórnin hefur setið að völdum. Utanrikismál eru einhver mikilsverðustu og alvarlegustu málefni máttvana lýðveldis litill- ar þjóðar, sem býggir land, er stórveldi kynnu áð ásælast. Það er þvi höfuðnauðsyn, að þjóðin geti náð samstöðu i slikum mál- um, og þarf ekki að orðlengja, hvilikur óvinafagnaður það er, að tslendingum hefur ekki tekizt að fylkja sérsaman i þessum efnum, allt frá þvi er núverandi ástandi var komið á. Hitt á ekki heldur að þurfa að fjölyrða um, hver þörf þjóðinni og lýðveldinu er á þvi,að menn gæti þó tungu sinnar og hafi málflutning sinn i skaplegu hófi, þegar slik meginmál eru rædd. Engum málum er ráðið af sliku tilfinningaleysi sem alþjóðamál- um undir ægishjálmi stórvelda, og smáþjóðum veitir ekki af allri þeirri aðgát og öllu þvi raunsæi, sem þeim verður af guði gefið, ef þeim á vel að farnast. Það er þvi enginn smá stráksskapur að fara um slik mál orðum sem markast af ofstæki, flokkslegum sérhags- munum, niði um samþegna sina og heitingum, en þvi miður hefur ekki farið hjá þvi i umræðunum að undan förnu. Ljótur er hlutur Þjóðviljans og mikil raun öllum þeim mönnum, sem málstað hans styðja, og væri sannarlega þjóöarhapp,ef stærsta blað lands- ins, Morgunblaðið, væri ekki sama markinu brennt. Stjórnarandstaðan berst um á hæl og hnakka. Það fór sem við var búizt, að stjórnarandstaðan hefur tekið á öllu, sem henni er tiltækt, til að koma höggi á rikisstjórnina vegna þessara mála. Henni hefur þó ekki tekizt svo mikið sem að kalla út þann atkvæðastyrk, sem hún naut i siðustu kosningum, til að gefa nafn sitt við þvi plaggi, þarsem Bandarikjamönnum skal svarið land og þegnar eftir fyrir- mynd, sem hverjum fslendingi er kunn úr þjóðarsögunni. Fyrir stjórnarandst. hefur farið i þessu máli sem fyrr, þegar allt kapp var á það lagt að utanstefningar skyldu aftur upp teknar i islenzku stjórnarfari, og nú til borgarinnar Haag. Hins vegar má það teljast til tiðinda, að tekizt hefur að fá nokkra stuðningsmenn rikis- stjórnarinnar til að lána nafn sitt undir ávarp, sem samkvæmt orð- anna hljóðan verður ekki talið fela i sér opna andstöðu við hug- myndir svipaðar þeim, sem utan- rikisráðherra hefur látið uppi um lausn málsins. Ávarp samtak- anna Varið land er svo óljóst, svo opið i báða enda, að hjá þvi getur ekki farið, að það verði túlkað sem flokkspólitisk yfirlýsing um takmarkað traust á núverandi rikisstjórn. Og það kemur engum á óvart að stjórnarandstæðingar vantreysta rikisstjórninni. Ávarp- ið er þannig úr garði gert, að það skuldbindur undirritendur ekki til neinnar sérstakrar afstöðu til tillagna utanrikisráðherra eða annarra svipaðra. Sundrung innan flokkanna. Það er mjög athyglisvert við umræðurnar um varnarmálin að undanförnu, að þær hafa leitt i ljóst sundrung i öllum stjórn- málaflokkunum, hvað þessi stór- mál varðar. Varnarmálin út af fyrir sig eru með öðrum orðum ekki aðalatriði i stefnu neins stjórnmálaflokks i landinu, og þau skipta mönnum ekki i fylkingar, eins og oft hefur verið talið. Viðbrögð stjórnarandstöðu- flokkanna lýsa slikum tviskinn- ungi að eindæmi mega heita. Frægt er það tiltæki þingmanna Alþýðuflokksins að vekja sér sjálfviljugir aðhlátur með þvi að harma opinberlega, að geta ekki skrifað undir áskorun Varins lands, sem beint var til þing- manna sjálfra, skömmu eftir að þingflokkurinn sjálfur hafði lagt fram rækilegar tillögur um rót- tækar breytingar á fyrirkomulagi öryggis- og varnarmála þjóðar- innar. Sjálfstæðismenn hafa margsinnis lýst yfir þvi, að þeir telji endurskoðun varnar- samningsins timabæra, en þver- úð þeirra i stjórnarandstöðunni meinar þeim að lita málefnalega á þau úrræði, sem nú eru til um- ræðu. Sjálfstæðismenn hafa að- eins eina stefnu i öllum málum, og að öðru leyti rekur á reiðanum um viðbrögð þeirra. Stefna þeirra er hin gamalkunna stefna ein- valdskonunganna dönsku: Vi alene vide. Þess vegna eru þeir á móti öllu þvi sem rikisstjórnin ber fram. Tillaga Bjarna Guöna- sonar um skyndilegt frumhlaup i málinu er lika alltof greinilega fram komin sem ögrun við rikis- stjórnina, skemmtun fyrir stjórn- arandstæðinga og sprell frammi fyrir alþjóð til að verða tekin al- varlega. Bjarni og flokkur hans eiga nefnilega allt undir þvi kom- ið, að málið verði ekki á dagskrá við kosningar, svo að unnt megi reynast að fiska til sin einhver óánægð ihaldsatkvæði vegna and- stöðu Bjarna við opinbera fyrir- greiðslu i þjóðfélaginu. Enginn varð hissa á þvi, að timasprengja skyldi vera falin i orðum Hannibals Valdimarsson- ar á ráðstefnu, sem hér var hald- in með Norðmönnum, og það varð heldur enginn neitt undrandi,þeg- ar flokksfélag hans hér i borginni gerði ályktun, sem gekk i þver- öfuga átt. Staða Alþýðubanda- lagsins i málinu er ef til vill það nýstárlegasta, sem fram hefur komið I umræðunum. Það er i sjálfu sér hrein nýlunda, að enn er ekki hægt að sjá fyrir, hver endanleg afstaða þess verður, og mun ekki allfriðlegt á þvi heimili i svipinn. A undanförnum árum hefur þess mjög gætt i Alþýðu- bandalaginu, að menn hafa reynt að taka raunsæjari afstöðu til mála en áður var og hafa lýst sig fúsa til viðtækara samstarfs við aðra og til málamiðlana, sem áð- ur þóttu brottgangssök. En úr hefur þó alltaf skorið, að flokkur- inn tók afdráttarlausa afstöðu til varnar- og öryggismála. Þrátt fyrir vaxandi svokallaðan „kratisma” i flestum öðrum mál- um hefur gamalstaðin kalda- striðsafstaða og leifar af himin- blárri byltingarrómantik þó ráðið ferðinni á þessu sviði. Nú er orðið ljóst, að a.m.k. einhverjir af for- ystumönnum flokksins eru tilþess reiðubúnir að ræða raunhæfar framkvæmdir i þessum málum. Það hefur komið fram, að all- margir innan flokksins gera sér grein fyrir þeim vandamálum, sem i vegi verða, þegar til verka skal gengið, og þeir hafa gert sér grein fyrir þvi, að það er ekki far- sælt að heimta allt, geta ekki fengið það og verða að gera sér ekkert og geðvonzkuna að góðu. Þeir skilja, að i okkar heimi er framkvæmdin alltaf grár hvers- dagsleiki, hversu draumfögur sem orðanna hljóðan kann að vera. Það hefði einhvern tima þótt saga til næsta bæjar, að innan þingflokks Framsóknarmanna yrðu menn sáttir að kalla i varn- ar- og öryggismálum þjóðarinn- ar. Ölikar skoðanir i þeim efnum hafa aldrei staðið Framóknar- mönnum fyrir svefni, og fiokks- menn hafa heldur aldrei reynt að dylja ágreininginn eða þegja um hann, svo sem frægt er. Það er af- rek utanrikisráðherra að náðst hefur að mestu samstaða um raunhæfar tillögur i málinu og meiri eining en sögur fara af, allt frá þvi áður en íslendingar gerð- ust aðiljar að Atlantshafsbanda- laginu. Sá ágreiningur, sem uppi hefur verið að undan- förnu snertir aðeins einstök atriði, en ekki meginefni tillagn- anna. Væri andstæðingum flokks- ins þvi nær að lita i eigin barm, þegar þeir hrópa sem hæst um glundroða i málinu. Fyrir mestu að áfanga verði náð. Af umræðunum um varnarmál- in hefur það orðið ljóst, að tillögur utanrikisráðherra einar, eða litt breyttar, geta orðið til þess að langþráðum áfanga verði náð i þeiri viðleitni,að island verði land islendinga einna. Hvað sem um þær verður sagt að öðru leyti, verður þvi ekki neitað, að þær fela I sér umtalsverðan árangur, og framkvæmd þeirra mun fela i sér mikilsverðan áfanga. Það er augljóst, að lengra verður ekki gengið að sinni, og tjóir litt að harma það, ef einhverjum árangri á að ná á annað borð. Það liggur i augum uppi, að islending- um er sizt hagur að þvi, að skyndilegar stórbyltur verði i öryggismálum á Norður-Atlants- hafi. ísland er ekkert stórveldi nema siður sé, og það megnar ekki að ráða þar neinu, sem stór- veldin hyggjast sitja yfir. Þjóð- inni er sizt hagur að þvi,að óvissu- ástand skapist umhverfis landið eða að losni um þau vináttubönd, sem hún hefur frjáls og sjálf- viljug bundið við nágranna og frændur. Okkur er þvi sá einn kostur að láta timann vinna fyrir okkur, meðan lýðveldinu er sköp- uð ákjósanlegri staða en herseta og þjónkun við Atlantshafsbanda- lagið eru. Þess vegna er fyrir mestu, að áfanga verði náð og þjóðinni verði sýnt fram á, að það er ekki neinn nornadómur, að hér sitji erlendur her um ókomna framtið. Og það væri vissulega verðug gjöf rikisstjórnarinnar til lands og lýðs á þessu þjóðhátiðar- ári, að hún sýndi,að islenzka þjóð- in hefur það i hendi sinni að hlut- ast til um örlög sin i öryggis- og utanrikismálum. Erfitt er að leiða getum að þvi, hvaðvakir fyrir þeim herstöðvar- andstæðingum, sem telja tillögur utanrikisráðherra litlu varða,eins og málum er komið, en vilja þó heita trúir málstað sinum. Verk- efni herstöðvarandstæðinga nú hlýtur að vera að knýja á um, að þessum áfanga verði náð. Á þess- um grundveili skapast siðan ger- samlega ný aðstaða til að tala máli frekari framkvæinda fyrir þjóðinni og hefja undirbúning undir næsta og næstu áfanga. Ábyrgðarleysi eða heilindi. Það hefur komið fram, svo að varla verður um villzt lengur, að stjórnarandstöðunni er i sjálfu sér sama, hver úrslit fást á þess- um málum. Aðalatriðið er að koma rikisstjórninni á kné, og er slegið úr og i eftir aðstæðum. Sjálfstæðismönnum er alveg sama, þótt sjálfstæðismálum þjóðarinnar sé sópað undan i þvi skyni, og Alþýðuflokkurinn hikar ekki við að fieygja nýfæddu óska- barni sinu fyrir róða. Ákafa- mennirnir á hinn bóginn, sem ekkert sjá i heiminum nema ann- ars vegar hægláta Rússa og vonda Vesturlandabúa og hins vegar góða Svia og afbragðs hug- sjónarika stúdenta, leggja allt kapp á að málinu verði siglt i strand með ýtrustu og óraunsæj- ustu kröfum. t þeirra augum skiptir það mestu máli,að Aiþýðu- bandalagið glati ekki sérstöðu sinni, og sjálfir vilja þeir fyrir alla muni ekki missa giæpinn. Það er á hinn bóginn vandamál i sjálfu sér, að þing Norðurlanda- ráðs skuli hafa orðið fyrir valinu til að ófrægja Islendinga i augúm frændþjóðanna,árinu eftir að þær vikust drengilega undir að veita okkur stórkostlega aðstoð vegna náttúrhamfara. Skal ekki fleiri orðum farið um það framtak, sem birtist skyndilega á dögunum i Norðurlandaráði, enda væri það bezt þögninni geymt. Ekkert nýtt málefnalegt atriði hefur komið fram i málflutningi þeirra, sem lengst vilja ganga til hægri eða vinstri. Þvi er einsýnt, að áfram verði unnið af heilind- um og ábyrgðartilfinningu i öryggis- og varnarmálum þjóðar- innar. Það hefði iskyggilegar af- leiðingar fyrir sjálft stjórnkerfi lýðveldisins,ef i ljós kæmi, að lög- lega kjörin rikisstjórn kæmi ekki fram sliku meginmáli,sem endur- skoðun varnarsamningsins er i stefnuskrá núverandi rikisstjórn- ar, og þung ábyrgð á þeirra herð- um sem til sliks yrðu. Það væri sigur ábyrgðarlitillar stjórnar- andstöðu, sem lætur stýrast af flokkslegum sérhagsmunum og valdagræðgi. Rikisstjórnin getur leyst málið. Rikisstjórnin á að leysa þetta mál, og hún hefur sýnt,að til þess hefur hún fulla burði, enda hafa þegarkomið fram innan stjórnar- innar tillögur, sem verða að telj- ast fullnægjandi grundvöllur. Það er ekki aðeins i varnarmálunum, sem rikisstjórnin hefur sýnt full- an vilja og þrótt til að fram- kvæma þá stefnu, sem hún var kjörin til að bera fram. Hún á þvi að starfa áfram og leysa þau verkefni, sem hún hefur sett sér og upp kunna að koma. Vissulega hefur hún gert mörg mistök, svo sem alltaf má vænta, og stuðn- ingsmenn hennar hafa oft gagn- rýnt hana harðlega fyrir þau. En um fram allt hefur hún unnið stórvirki i félagsmálum og þorað að standa við þann kostnaöar- auka, sem þvi fylgir — þótt óvin- sæll sé að sinni. Hún hefur lyft Grettistökum i efnahags- og at- vinnumálum landsbyggðarinnar, og hún hefur rekið af þjóðinni það vantraust á eigin getu og burði, sem hér rikti á timabili fyrri rikisstjórnar^þegar ekkert virtist til bjargar voluðum lýð annað en erlent fé. Núverandi rikisstjórn hefur verið stjórn bjartsýninnar, og mistök hennar hafa flest verið vegna þess, að viljinn og bjart- sýnin yfirgengu timabundnar að- stæður. Nú siðast hefur fjármála- ráðherra sýnt, að við það verður staðið,að endurskoðun skattalaga verði haldið áfram og henni lokið, en jafnframt má gera ráð fyrir þvi,að vinnufriður verði tryggður. Um það er þó of snemmt að spá aö sinni, þegar þetta er ritað, en það er þó af sem áður var i þvi sem öðru, að rikisstjórnin leggur sig fram um að leysa mál af heilindum frekar en að liggja i stöðugum illdeilum við alþýðu- samtökin i landinu. Þvi verður ekki trúað, fyrr en tekið er á, að upphlaupsmönnum takist að koma höggi á rikis- stjórnina, þegar mest á riður að koma fram þvi grundvallaratriði stjórnarsamstarfsins,að erlendur her hverfi i áföngum brott af Is- landi. Frá afhendingu snjósleðans. Talið frá vinstri: Þormóöur Sigurgeirs- son, formaður ljónaklúbbsins, Ragnar Ingi Tómasson, formaöur hjálparsveitarinnar, og Valur Snorrason, gjaldkeri ljónaklúbbsins. Hjálparsveit gefinn snjósleði NÝLEGA gaf Lionsklúbbur Blönduóss Hjálparsveit skáta á Blönduósi 30hestafla snjósleða af gerðinni Johnson, en hann er fiuttur inn af Gunnari Asgeirs- syni. 1 haust gaf klúbburinn ungum bónda, Jóni Þorbjörnssyni Snæringsstöðum, kýrverð, en hann missti átta kýr af völdum raflosts. Fjáröflun Lionsklúbbsins hefur gengið vel á þessu starfsári, en fjár aflar klúbburinn með blóma og perusölu, útgáfu jólakorts og með þvi að efna til spilakvölda. Fundi heldur klúbburinn tvisvar i mánuði og eru þar rædd ýmiss framfaramál. Sviðamessa var haldin á haustdögum og konukvöld i lok nóvember. Arshátið klúbbsins er fyrirhuguð 2. marz. Klúbbfélagar eru 32. allir bú- settir á Blönduósi og i nær- sveitum. Stjórn klúbbsins skipa Þor- móður Sigurgeirsson form., sr. Arni SigOrðsson ritari og Valur Snorrason gjaldkeri.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.