Tíminn - 22.02.1974, Page 9

Tíminn - 22.02.1974, Page 9
Föstudagur 22. febrúar 1974. TÍMINN 9 Örlygur Hdlfddnarson: Göngubrú er hugmynd góð Þeir, sem eitthvað l.áta sig varða umhverfi Reykjavikur, hafa á undanförnum árum og áratugum fylgzt með þvi.hryggir i huga, hvernig ströndin, allt frá Gröttu i Geldinganes, hefur smám saman verið brotin undir sundurleitustu mannvirki. Mörg þessara mannvirkja eiga ekkert sérstakt erindi á sjávarbakka, nema siður væri, og þeim, sem þangað eiga frekast erindi, hefði i mörgum tilfellum mátt koma fyr- ir af meiri smekkvisi og fyrir- hyggju. Enn eru nokkrar óspilltar spildur eftir á ströndinni, eða skammt undan landi, þ.e.a.s. Viðey, Engey, Akurey, Lundey og Þerney. Þau verksummerki, sem þegar hafa sett svip sinn á skipu- íagið, verður vafalaust erfitt að fjarlægja héðan i frá. Það virðist þvi aðalatriðið að bjarga þvi sem bjargað verður. 1 ljósi þeirrar staðreyndar hygg ég, að margir muni hafa glaðzt, þegar það kom i ljós, að uppi er nokkur hreyfing hjá borgaryfir- völdum i þá átt að endurskoða fyrri áætlanir um notkun borgar- landsins. Vonandi leiðir sú endur- skoðun til þess, að hætt verði við að hola alls konar verksmiðjum og vörugeymslum niður á feg- urstu staðina, en þeir ætlaðir fyr- ir mannabústaði. Einn liðurinn i endurskoðun Þróunarstofnunar Reykjavikur eru áætlanir um göngubrú milli Viðeyjar og lands. Hér eru á ferð- inni framtiðaráætlanir, sem krefjast góðs undirbúnings og eru sannarlega góðra gjalda verðar. Það kom þvi óþægilega við mig, þegar Alþýðublaðið tengdi þetta mái snjóruðningi af götum og gangstéttum borgarinnar. Ég fæ ekki séð annað, en að hér sé um að ræða tvö öskild mál. Það kom mér svo algjörlega i opna skjöldu, þegar Timinn endurprentaði þennan leiðara Al- þýðublaðsins, athugasemdalaust, i stjórnmálaþætti blaðsins, sem ber nafnið ,,Á viðavangi”. Ég veit að visu, að borgarstjórnarkosn- ingar nálgast og flokkarnir vig- búast óðum. Ýmislegt er tekið fram, sem nota má i hita bardag- ans, og sýnilega er göngubrúin og snjóruðningurinn tengd af þess- um sökum. Ég hafði nú raunar haldið, i allri minni einfeldni, að málefnaskortur ætti ekki að baga minnihlutaflokkana i borgar- stjórn. Langvarandi stjórn Sjálf- stæðisflokksins hlýtur að bjóða upp á margs konar athugasemdir og ábendingar, þar á meðal úr- bætur i snjóruðningi, þótt þær séu ekki tengdar málefnum Viðeyjar sérstaklega, enda tvö aðskilin mál. Ég þykist mæla fyrir hönd fjölda manna, þegar ég fer þess á leit, að jafn þörfu máli og göngu- brúnni verði ekki stefnt i voða, og jafnvel eyðilagt af þessum sök- um. Og úr þvi ég er farinn að rita um þetta mál, þykir mér eðlilegt að biðja um skýr svör við þvi, hvort kjósendum beri að lita svo á, að núverandi minnihluta- flokkar hafi komið sér saman um það sem stefnumál, að slik brú verði ekki byggð? Ég vona að svo sé þó ekki. Það þarf að gera hvort tveggja i senn, vernda Viðey fyrir bygging- um verksmiðja, vörugeymsla, sumarbústaða og annarra slikra mannvirkja, og jafnframt opna hana sem mest almenningi, jafnt sumar sem vetur. Göngubrúin er þvi góð hugmynd, og væri betur að hún kæmist sem fyrst i fram- kvæmd. 1 landinu hefur að undanförnu risið mikil áhugabylgja um náttúruvernd og aukna útivist. Uppi eru ráðagerðir sveitarfélag- anna á Reykjanesi um að friðlýsa stórt svæði á Reykjanesskagan- um og opna almenningi. Ég styð þá hugmynd heils hugar og minn- ist þess ekki, að hafa séð við henni mótbárur. En vikjum aftur til Viðeyjar. Hún á sér merka sögu, og þar er nú verið að endurreisa hina miklu stofu, sem Skúli byggði. Viðey er að þvi leyti frábrugðin mörgum öðrum eyjum við strendur lands- ins, að hún á sér fjölbreytt lands- lag. Þar skiptast á hæðir og hólar, mýrar og marflatar sléttur, grýttar og sendnar strendur með margs konar skútum og skerjum fyrir landi, og svipmiklar hamra- borgir. Fuglalif er þar fjölbreytt, en vágesturinn, sem alinn er upp á haugunum i Gufunesi, er óðum að tortima þvi, án sýnilegra mót- aðgerða hlutaðeigandi aðilja. Gróðurfar er mjög fjölskrúðugt i eynni. Þótt Viðey sé ekki langt undan landi, þá er kyrrðin þar einstök, enda hafa þúsundir manna leitað þangað á undan- förnum árum, ýmist til þess að sóla sig i skjólsælum lautum og brekkum eða tii þess að fá sér hressandi göngutúr um fjörur og móa. Svo ekki sé minnzt á hress- andi sjóbað, en allir, sem eitthvað þekkja til Viðeyjar, vita, að þar er betri sjóbaðsaðstaða en viðast hvar annars staðar. Fyrir tilstuðlan tveggja dug- mikilla bræðra, Hafsteins og Kristjáns Sveinssona, hafa þús- undir manna komið til Viðeyjar á siðustu árum. Þeir bræður hafa með störfum sinum gert meira til þess að kynna Islendingum þessa einstæðu eyju en nokkrir aðrir, og eiga þeir heiður og þakkir skildar fyrir. Þótt göngubrúin yrði að veruleika, þykist ég þess fullviss, að hlutverki þeirra bræðra varð- andi Viðey væri þar með alls ekki lokið. Ég hygg, að öllum meginþorra þess mikla fjölda, sem til Viðeyj- ar hefur komið, sé það ljóst, aö hún er hið ákjósanlegasta úti- vistarsvæði. Það dregur ekkert úr gildi hennar á þvi sviði, að uppi eru áðurnefndar ráðagerðir um fólkvang á Reykjanesi. Hversu gott sem það svæði kann að vera fyrir fólkvang, þá hefur Viðey það til sins augljósa ágætis að vera eyja, og þar af leiðandi umflotin sjó, með fjölbreyttum og fjöl- skrúðugum fjörum. Það er al- kunn staðreynd, að sjávarstrend- ur hafa mikið aðdráttarafl fyrir fólk á öllum aldri, enda eru uppi ráðagerðir, eða þegar orðnar að veruleika, um að vernda ein- hverjar af þeim fáu fjörum i ná- grenni Reykjavikur, sem enn hef- ur ekki verið spillt. Þar er þó að- eins um fjöruhluta að ræða, en ekkert þvi um likt og er að finna i Viðey. Þar eru eins og áður segir, fjörur af miklum margbreyti- leika svo skiptir mörgum kiló- metrum. Ég hefi sannast sagna verið að vænta þess, að þeir, sem með náttúruvernd fara, myndu koma auga á þessa staðreynd, úr örlygur Hálfdánarson. þvi þeir sáu þó fjörurnar hjá Korpúlfsstöðum og slógu Papey undir sinn verndarvæng, en við hvorugt hef ég nokkuð að athuga. Eyjar hafa það m.a. til sins ágætis að veita skepnum náttúr- legt aðhald. Á undanförnum ár- um hafa verið i Viðey bæði hross, fé og geitur. Börn, sem til eyjar- innar hafa komið. hafa átt þess kost að kynnast þessum dýrum i eðlilegu umhverfi. Undanfarið hafa átt sér stað nokkrar umræð- ur opinberlega um staðarval dýragarðs i nágrenni Reykjavik- ur. Ýmsum þykir núverandi stað- ur Sædýrasafnsins svonefnda nokkuð kaldranalegur. 1 samtali, sem Böðvar Guðmundsson átti við mig i útvarpinu sl. sumar, lét ég þess getið, að liklega væri Viðey ákjósanlegasti staðurinn fyrir safn lifandi dýra, sem og sjóminjasafn. Þessi hluti sam- talsins var klipptur i burtu, lik- lega vegna þrengsla, og þótti mér það miður. Ég rek ekki að sinni þau rök, sem til þess liggja, enda ættu þau að vera hverjum heil- sýnum manrii auðsæ. Það kastar engri rýrð á þá dugnaðarmenn, sem staðið hafa fyrir uppbygg- ingu Sædýrasafnsins i Hafnar- firði, þótt bent sé á hentugri stað, enda væri eðlilegast að njóta for- ystu þeirra eftir sem áður um all- ar framkvæmdir. Það gladdi þvi mitt gamla hjarta, þegar ég sá i Timanum lesendabréf frá einhverri Geir- þrúði, þarsem hún leggur einmitt til, að dýragarður veröi staösett- ur i Viðey. Ég geri mér ljóst, að vissir örðugleikar eru um framtiðar- áform varðandi Viðey, þar sem hún er eign a.m.k. þriggja aðila. rikisins, Reykjavikurborgar og einkaaðila, og tilheyrir auk þess Seltjarnarneshreppi að lögum. Sh'kt eru þó aðeins smámunir i samanburði við þann fjölda aðila, sem hlutdeild eiga i þvi landi. sem ætlunin er að friða á Reykja- nesi, og ætti ekki að vaxa mönn- um um of i augum. Fyrir um það bil tuttugu árum ritaði ég grein i Timann. þar sem ég benti á nauðsyn þess að vernda Viðey. Ég gerði itarlega grein fyrir hugmyndum minum varð- andi eyna, sem eru þær sömu enn i dag. Ég mun þvi ekki að þessu sinni eyða miklu rúmi blaðsins til þess að endurtaka allar þær til- lögur. til þess gefst e.t.v. tækifæri siðar. Þó vil ég benda á tvennt til viðbótar þvi, sem ég nú hef sagt. Það virðist valda sumum miklum heilabrotum, hvað gera skuli við Viðeyjarstofu, þegar hún hefur verið endurbyggð. Þetta eru i rauninni broslegar vangaveltur, þvi húsið á að nota. 1 fyrsta lagi ætti að reka myndalegan búskap i eynni, það myndi hvergi stangast á við þær hugmyndir að opna hana almenningi, en hins vegar koma mörgu borgarbarninu i snertingu við frumatvinnuveg þjóðarinnar, sem sjaldan eða aldrei á þess nokkurn kost. Jafn- framt er eðlilegt að koma þar upp safni til minningar um Skúla Magnússon og timabii hans i ts- landssögunni, og hluta hússins mætti hugsa sér, að forsætisráð- herra hefði til sinna nota, þegar hann kysi. Forsenda þess að nota húsið — og raunar að ljúka endur- byggingu þess — er sú, að þangað verði leitt rafmagn. An efa verður það gert, og einnig borað eftir heitu vatni. Þegar rafmagn og heitt vatn er i eynni, þá eru þar óþrjótandi möguleikar til að gera hana að þeirri útivistarparadis, sem ætti fáar sér likar. Þessi orð skulu ekki höfö miklu fleiri að sinni. Lokaorð min verða þau, sem ég hef oft áður notað manna á millum, það er einskær heppni og tilviljun, að Viðey er enn ósnortin af mannavöldum, og guðsþakkarvert. Það væri i meira lagi hörmulegt, ef svo illa tækist til, að skammsýnir reiknistokka- menn legðu hana undir jarðýtu- kjaftana. Ég þori að fullyrða. að hvergi á byggðu bóli myndi höfuðborg — eða bara venjuleg borg — láta sambærilega aðstöðu til útivistar ónotaöa. Annað kæmi hvergi til greina. Vonandi kemur i ljós. aö flokk- ur hins dugmikla formanns Náttúruverndarráðs hefur ekki tekið upp skammsýna hentistefnu i náttúrverndar- og útivistarmál- um borgarbúa.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.