Tíminn - 22.02.1974, Blaðsíða 20

Tíminn - 22.02.1974, Blaðsíða 20
20 TÍMINN Föstudagur 22. febrúar 1974. Hooley hætti við d elleftu stundu Hann var búinn að setja samning sinn við KR í póstkassa, þegar hann fékk tilboð fró Noregi Enski knattspyrnu- þjálfarinn, Joe Hooley, sem þjálfaði Kefla- víkurliðið sl. keppnis- tímabil, hætti við að ger- ast þjálfari KR-liðsins á elleftu stundu. Eins og komið hefur fram í fréttum, þá ætlaði Joe Hooley að þjálfa vestur- bæjarliðið i sumar, og hann var búinn að gefa KR-ingum jákvætt svar. En á síðustu stundu sveik hann KR-inga og réði sig sem þjálfara tii Noregs. Það munaði þó / ekki nema hálftíma, að hann hefði gerzt þjálfari KR. Joe Hooley var búinn að skrifa undir samninginn, sem hann fór með héðan, þegar hann kom hingað i boði KR i byrjun janúar. Og meira en þaö, hann var búinn að láta hann i póstkassa i heimabæ sinum i Englandi. Hálftima eftir að hann var kominn heim til sin úr þeim leiðangri, var hringt til hans. Það var simtal frá Noregi, þar sem honum var boðið að þjálfa þar 1. deildar lið upp á betri kjör en KR-ingar buðu honum. Hoo- ley, sem fékk strax mikinn áhuga á boðinu frá Noregi, bað Norðmennina að hafa samband við sig daginn eftir — þá gæti hann gefið þeim ákveðið svar. Eftir að Hooley lagði sim- ann á, fór hann i skyndi út að póstkassanum, og beið þar eftir þvi að hann yrði tæmdur. Það mátti ekki seinna vera, þvi að i þvi að hann kom að póstkassanum, þá komu menn frá póstinum til að tæma hann. I fyrstu ætlaði póstmaðurinn ekki að láta Hooley fá bréfið, sem samningurinn við KR var i. En Hooley fékk þó bréfið, eftir að hann hafði rætt við póstmennina, og þar með var hann búinn að fá samninginn við KR aftur i hendurnar og gat rifið hann og ráðið sig til Noregs. En með þvi að svikja KR- inga hefur hann útilokað sig af þjálfaralista enska knatt- spyrnusambandsins, og mun þvi framvegis þurfa að standa i þvi sjálfur að útvega sér starf sem þjálfari. OMAR ÓSTÖÐV- ANDI Vitaskyttan ómar Ragnars- son vakti geysilcga athygli, þegar hið ósigrandi lið íþrótta- fréttamanna vann lið dómara með yfirburðum 10/9 i Laugardaishöllinni á miðviku- dagskvöldið. ómar var óstöðvandi og notaði ýmsar aðferðir, þegar hann tók vita- köstin, og sést hann taka eitt þeirra, á myndinni hér fyrir neðan, sem Róbert ljósmynd- ari tók. Það er greinilegt að vitakastið hafði mikla þýðingu i leiknum, það sést bezt á leik- mönnum iþróttafréttamanna- -liðsins.en þeir horfa spenntir á eftir knettinum: Sigmundur Timans, Sigtryggur Alþ.bl. Ómar sjálfur, Steinar Mbl. Sigurdór Þjóðviljans og Ágúst Mbl. Kristján örn og Vahir Ben, sjást i baksýn. Á myndinni hér til hliðar, sjást dómarar leiksins, þær Sigrún Guðmundsdóttir og Ragnheiður Blöndal, hand- knattleikskonur úr Val, heilsa fyrirliðum liðanna, Halli Simonarsyni Visi og Vali Bcn, fyrirliða dómaraliðsins. Og á myndinni fyrir ofan sjást þeir Yngvi Hrafn Mbl. og Ilallur Sim. stöðva Ingvar Viktors- son, snilldarlega á siðustu stundu. MACKAY KAUPIR RIOCH DAVE MACKAY, frain- kvæmdastjóri Derby, keypti Skotann Bruce Rioch frá Aston Villa á 200 þús. sterl-. ingspund á miðvikudaginn. Rioch þessi hefur verið einn snjallasti maður Villa Park-Iiðsins undanfarin ár, eöa siðan Aston Villa keypti hann frá Luton á 100 þúsund pund. Þetta eru fyrstu kaup Derby siðan Mackey tók við f ra m k v æ m da rs t j óra s töð u n n i.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.