Tíminn - 02.03.1974, Side 13
Laugardagi&2. marz 1974.
TÍMINN
13
Menningarsjóður:
Kynnir útgáfu
bækur sínar á
fjórum stöðum
gbk-Reykjavik. Bókaútgáfa
Menningarsjóðs og Þjóðvina-
félagsins kynnir útgáfubækur sin-
ar á Selfossi, Hvolsvelli og i
Keflavik dagana 2.-3. marz. Einn-
ig verður sams konar kynning á
Akranesi, og hefst hún þriðjudag-
inn 5. marz og stendur fram til
föstudagsins 8. marz.
Umboðsmaður bókaútgáfunnar
á hverjum stað setur kynningar-
markaðinn upp, en einnig verður
þar staddur maður frá útgáfunni.
Tilgangurinn með þessari
kynningu er að bæta samband við
félagsmenn, kynna umboðsmann
á hverjum stað, og ekki sizt að
kynna hin hagkvæmu kjör, sem
félagsmenn njóta.
Markaðirnir verða á eftirtöld-
um stöðum: 1 Iðnskólanum á Sel-
fossi, unglingaskólanum á Sel-
fossi og Sjálfstæðishúsinu i Kefla-
vik. Verður markaðurinn opinn
frá kl. 2-6 e.h. bæði laugardag og
sunnudag. Á Akranesi verður
kynningin i Bókaverzlun Andrés-
ar Nielssonar og opin á venjuleg-
um verzlunartima frá þriðjudegi
til föstudags.
Þeir, sem kaupa bækur fyrir
3000 krónur og þar yfir á þessum
kynningarmörkuðum, fá 5% af-
slátt, og ef keypt er fyrir 5000
krónur, er afslátturinn 10%. Allir
kaupendur fá þennan afslátt, en
fyrir félagsmenn bætist þessi af-
sláttur við þann 20-30% afslátt,
sem þeir njóta.
Allar útgáfubækur Menningar-
sjóðs — alls 150 titlar — verða
kynntar á þessum stöðum, og
kennir þar margra grasa, ritsöfn,
'ljóð, ævisögur, fræðirit og skáld-
sögur.
Nokkrar útgáfubækur Menn-
ingarsjóðs eru nú uppseldar hjá
forlaginu, þ.á.m. Islenzk úrvals-
rit, og islenzka orðabókin slest
sennilega upp á þessu ári.
Ef vel tekst með þessar kýnn-
ingar á útgáfubókum Menningar-
sjóðs, verða fleiri slikar haldnar
viðar um landið.
Nýir kandidatar
úr háskólanum
1 lok haustmisseris hafa eftir-
taldir stúdentar lokið prófum við
Háskóla Islands:
Embættispróf í læknisfærði: (13)
Brynjólfur Á. Mogensen, Friðrik
Páll Jónsson, Geir Friðgeirsson,
Gylfi Haraldsson, Hafsteinn
Sæmundsson, Karl Haraldsson,
Kristján Arinbjarnarson, Niels
Chr. Nielsen, Ólafur Eyjólfsson,
Páll Ammendrup, Stefán Jóh .
Hreiðarsson, Sturla Stefánsson,
Þorsteinn Gislason.
Embættispróf i lögfræði: (5)
Atli Vagnsson, Hrafnhildur
Stefánsdóttir, Jón Magnússon,
Kristján Sigvaldason, Steindor
Gunnarsson.
Kandidatspróf i
viðskiptafræðum:
•$,rdis Þórðardóttir, Guðjón Smári
Agnarsson, Guðmundur R.
Ingvason, Gunnar Rafn Einars-
son, Gunnar Kjartansson,
Gunnar Ólafsson, Hilmar
Sigurðsson, Hinrik Greipsson,
Hjálmar S. Sigurðsson, Ragnar
Arnason, Sigurður- Haraldsson,
Sveinn G. Helgason bg Tómas Óli
Jónsson.
Kandidatspróf i islenzku: (1)
Gunnlaugur Ingólfsson.
Knadidatspróf i sagnfræði: (1)
Kristján Sigvaldason
B.A.-próf i heimspekideild: (6)
Bjarney Kristjánsdóttir, Bryndis
Schram, Brynjar Viborg,
Kristinn Jóhann Sigurðsson,
Sigrún Helga Árnadóttir, Þórdis
Þorvaldsdóttir.
B.S.-próf i verkfræði- og raun-
visindadeild.
Liffræði sem aðalgrein: (3) ;i
Karl Gunnarsson, Sigriður
Guðmundsdóttir og Tómas Is-
leifsson.
Jarðfræði sem aðalgrein: (2)
Bessi Aðalsteinsson, Þórunn
Skaftadóttir.
Nýr útibússtjóri á ísafirði
A fundi Bankaráðs Ótvegsbanka
islands i gær var Högni Þórðar-
son ráðinn útibússtjóri titvcgs-
bankans á isafirði.
Högni Þórðarson fæddist á Isa-
firði 6. febrúar 1924. Hann hóf
störf i Útvegsbankanum á Isafirði
15. júni 1945 og var gjaldkeri og
bókari til 1. marz 1973, að hann
var settur útibússtjóri.
Atriði úr sjónleiknum Halló krakkar.
BARNALEIKRIT FRUMSYNT
Á AKUREYRI
A LAUGARDAGINN kemur, hinn
2. marz, verður barnaleikritið
Halló krakkar frumsýnt á Akur-
eyri klukkan fimm siðdegis. Leik
ritið skiptist i eftirfarandi atriði:
ljósaleik, kynningarleik, spuna-
leik, slönguieik, valdaleik, gátu-
leik, árásarleik, foringjaleik,
tónlistarleik og skattaleik.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu er Halló krakkar óvenju-
legt leikrit og til þess ætlazt, að
börnin taki þátt i leiknum. Strax
við innganginn munu leikararnir
taka á móti áhorfendum og leiða
þá til sæta sinna og fá siðan að-
stoð hjá þeim i ýmsum atriðum.
Nokkrir áhorfendur verða beðnir
að koma upp á svið og taka að sér
hlutverk i stuttu atriði, þar sem
leikara vantar og allir eiga áhorf-
endur þess kost að taka þátt i
gátuleik og tónlistarleik.
Sjö leikarar koma fram á
sýningunni: Aðalsteinn Bergdal,
Gestur E. Jónasson, Guðlaug
Hermannsdóttir, Guðmundur
Ólafsson, Kjurugei Aiexandra,
Saga Jónsdóttir og Sigurveig
Jónsdóttir.
Leikritið Halló krakkar er eftir
Sviann Leif Forstenberg, en Guð-
laug Hermannsdóttir hefur þýtt
það og staðfært. Arnar Jónsson og
Þráinn Karlsson hafa gert leik-
mynd, og leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir.
Næstu sýningar á Halló krakk-
ar verða á sunnudag kl. 2 og 5.
Minnsta aukning umferð
arslysasíðan 1969
Á FUNDI, sem Umferðarráð hélt
með yfirmönnum löggæzlu að
Hótel Esju 28. fcbrúar, s.l. voru
lagðar fram heildarniðurstöðu-
tölur umferðarslysaskráningar
fyrir árið 1973. Kom þar fram, að
á árinu 1973 urðu samtals 7318
umferðarslys, þar af 939 slys með
meiðslum. Aukning heildarslysa
frá árinu 1972 varð þvi 3.4% sem
er minnsta aukning frá ári til árs
siðan árið 1969.
Aukning slysa með meiðslum
frá árinu 1972 varð 7,2% og er það
minnsta aukning siðan árið 1968.
Árið 1972 urðu samtals 7077
umferðarslys, og höfðu þau auk-
izt um 9,1% frá árinu 1971, en frá
árinu 1970—1971 hafði aukningin
verið 13,9%. Slys með meiðslum
árið 1972 urðu 876, höfðu aukizt
frá 1971 um 13,5% og aukningin
milli áranna 1970—1971 var 11.6%.
Ekki liggja ennþá fyrir tölur um
fjölda slasaðra.
I ársbyrjun 1973 voru i öllu
landinu 57.451 ökutæki, og á árinu
voru fluttar inn 7.880 bifreiðar.
Hefur þvi bifreiðaeign lands-
manna aukizt um meira en 10%.
Það sést þvi, að aukning
umferðarslysa er verulega lægri
aukningu bifreiðaeignar lands-
manna, og þau ár, sem aukning
umferðarslysa varð minni en á
s.l. ári, þ.e. árin 1967 og 68, varð
bifreiðaaukningin aðeins 3,5% og
árið 1969 fækkaði bifreiðum hér á
landi.
Umferðarráð hefur nú tekið
upp þá nýbreytni að gera mánað-
arlegt yfirlit um umferðarlys á
landinu, til þess að geta enn betur
fylgzt með þróun þessara mála.
Stopulir róðrar
TF-Flateyri. Fréttaritari blaðs-
ins á Flateyri tjáði blaðinu, að
þar hefði verið óstöðug tið undan-
farið, og að ekkert hefði verið róið
frá þvi á fimmtudag i siðustu
viku.
Þrátt fyrir rysjótt veðurfar hef-
ur ekki snjóað að ráði, en þó
þurfti að moka af veginum til
Dýrafjarðar nú á miðvikudaginn.
1 Dýrafirði er læknir þeirra Flat-
eyringa^
Samþykktir frá ný-
loknu búnaðarþingi
A SIÐUSTU fundum búnaðar-
þings voru samþykktar ályktanir
uin slysavarnir við bústörf,
endurskoðun laga um sauðfjár-
baðanir, byggingu einangrunar-
stöðvar i Ilrisey og lækkun tolla á
innfluttum gróðurhúsum og ljósa-
búnaði þeirra.
Ályktanir þær, sem gerðar voru
um þessi mál, fara hér á eftir.
Slys við bústörf
Búnaðarþing telur, að einskis
megi láta ófreistað til að koma i
veg fyrir slys við notkun dráttar-
véla og tækja, sem þeim fylgja til
notkunar i landbúnaði. Þvi felur
þingið stjórn Búnaðarfélags
Islands að hlutast til um eftir-
farandi:
1. Að komið verði á árlegu opin-
beru eftirliti með öllum dráttar-
vélum, sem notaðar eru við land-
búnaðarstörf.
2. Að teknir verði upp i sjón-
varpi stuttir fræðsluþættir um
notkun dráttarvéla og öryggi,sút-
búnað þeirra.
3. Að seljendur vélknúinna
tækja láti fylgja þeim leiðbein-
ingar um notkun tækisins og
öryggisútbúnað þess.
Sauðfjárbaðanir
Búnaðarþing samþykkir að
kjósa tvo menn ásamt yfirdýra-
lækni i nefnd til þess að endur-
skoða lög nr. 23 1959 um sauðfjár-
baðanir og leggja fyrir næsta
búnaðarþing.
Einangrunarstöð
i Hrisey
1 samræmi við endurteknar
ályktanir um innflutning og
ræktun holdanauta fagnar
Búnaðarþing þeim áfanga, sem
náðist i þvi máli með samþykkt
breytingar á lögum um innflutn-
ing búfjár, lög nr. 19/1972.
Jafnframt lýsir þingið fyllsta
stuðningi við stofnun ein-
angrunarstöðvar fyrir holdanaut
i Hrisey á Eyjafirði og leggur rika
áherzlu á, að verkinu verði
hraðað,svo að unnt verði að flytja
þangað sæði úr Galloway-nautum
frá Skotlandi þegar á næsta vetri.
Tollur af
gróðurhúsum
Búnaðarþing felur stjórn
Búnaðarfélags Islands að beita
sér fyrir þvi, að tollar af inn-
fluttum gróðurhúsum og ljósa-
búnaði þeirra verði lækkaðir
verulega.
Tveir unnu Forintos
— í fjöltefli í háskólanum
—hs—Rvik. Stórm eistarinn
Forintos frá Ungverjalandi tefldi
svokallað klukkufjöltefli við ell-
efu af sterkustu skákmönnum
Háskóla islands, i Árnagarði i
fyrrakvöld.
Umhugsunartimi fyrir hverja
skák voru 2 klukkutfmar. Forin-
tos vann 8 skákir, tapaði tveimur
og gerði 2 jafntefli. Þeir sem unnu
stórmeistarann voru Bragi
Kristjánsson, og Ólafur Orrason,
en jafntefli gerðu Jón Briem og
Bragi Halldórsson.
Námskeið fyrir
leiðsögumenn
Eins og undanfarin ár mun Ferðaskrifstofa rikisins efna til 10
vikna námskeiðs fyrir leiðsögumenn erlendra ferðamanna á
Islandi. Kennt verður tvö kvöld i viku, á mánudögum og fimmtu-
dögum,frá kl. 20:30 til 22:00 i Arnagarði.
Á námskeiðinu verður leiðbeint um, hvernig kynna má út-
lendingum land og þjóð, og munu sérfræðingar i ýmsum
greinum og kunnir leiðsögumenn miðla af þekkingu sinni og
reynslu.
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 7. marz,en innritun verður frá
1. marz i afgreiðslu Ferðaskrifstofu rikisins, Gimli við Lækjar-
götu. Innritunargjald er kr. 3.800.00.
Væntanlegir þátttakendur þurfa að geta tjáð sig vel á a.m.k.
einu erlendu tungumáli, en sé um ensku að ræða,er æskilegt að
hafa einnig vald á öðru máli.
Leiösögumannanámskeið Ferðaskrifstofu rikisins hafa jafnan
notið mikilla vinsælda,enda hefir þar verið unnt að fá mikinn og
aðgengilegan fróðleik um land og þjóð á skömmum tima.
Vigdis Finnbogadóttir hefir skipulagt námskeiðið, eins og að
undanförnu.
Farnar verða ferðir um Reykjavik, Suðurnes og að Gullfossi
og Geysi, en i þeim verða nemendur þjálfaðir i leiðsögn.