Tíminn - 02.03.1974, Qupperneq 19
Laugardagur 2. marz 1974.
TÍMINN
19
Hestar undir timburklyfjum
Gamlar myndir
Hver þekkir þessa fjölskyldu?
Myndirnar, sem við birtum að
þessu sinni, eru allar, að einni
undanskilinni, úr kortasafni Jóns
Halldórssonar. Þær fjalla eins og
fyrri daginn um horfna tið, en hitt
verður jafnan matsatriði, hvað
menn kalla gamalt og hvað ekki.
Fyrst skulum við lita á gamla
Reykjavikurmynd. Það fer
skrúðganga undir hornablæstri
niður Bankastræti og fánar
blakta við húna. Gaman væri að
vita, hvort ekki þekkja einhverjir
lesendur, hvað þarna er um að
vera, eða einhvern þeirra ein-
staklinga, sem þar eru á ferð.
Næst sjáum við ferðbúna
menn á hestum fyrir framan
Hótel Heklu i Reykjavik. Ekki
vitum við ártalið, þegar myndin
er tekin, en svo mikið er vist, að
enn er vatnspósturinn á
Lækjartorgi.
Menn með hesta undir timbur-
klyfjum. Þetta var algeng sjón
hér fyrrum, og margir núlifandi
menn hafaflutt timbur á klökk-
um, en nú eru þeir flutningar sem
betur fer úr sögunni, þvi þetta var
erfitt verk og i alla staði óhægt,
bæði mönnum og skepnum. Og
ekki þurfti að bjóða slikt öðrum
hestum en þeim, sem voru full-
komlega rólegir og ófælnir með
öllu.
Þá er loks eftir að minnast á þá
einu mynd, sem ekki er frá Jóni
Halldórssyni komin. Til okkar
kom kona ekki alls fyrir löngu og
óskaði eftir þvi, að blaðið birti
þessa mynd, þvi að henni léki
mikill hugur á að vita, af hverjum
myndin er. Þessu er hér með
komið á framfæri, og ef einhver
getur veitt um þetta upplysingar,
þá tekur blaðið að sjálfsögðu á
móti þeim.
Og þetta sama gildir um hinar
myndirnar, sem við birtum núna:
011 vitneskja um þær er vel þegin.
úr kortasafni
Jóns Halldórssonar
Skrúðganga i Bankastræti
Ferðamenn á hestum
r
Viðtalstímar
alþingismanna
og borgarfulltrúa
Laugardaginn 2. marz kl. 10-12 verður Þórarinn Þórarinsson, al-
þingismaður, til viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins að
Hringbraut 30.
Borgarnes
Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarness verður haldinn að
Hótel Borgarnesi (uppi) laugardaginn 2. marz 1974. Fundurinn
hefst kl. 4 e.h.
Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Hreppsnefndar- og
sýslunefndarkosningar 1974. III. önnur mál.
^ Stjórnin._____________________________________________________j
Keflavík og nágrenni
Framsóknarvist 3. marz
Framsóknarvist verður haldin sunnudaginn 3. marz i félags-
heimilinu, Austurgötu 26, kl. 20:30. Góð verðlaun. Allir velkomn-
ir. Skemmtinefnd Bjarkar.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur fund i Framsóknarhúsinu á
Akranesi sunnudaginn 3. marz kl. 16.00.
Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun Akranesskaupstaðar fyrir 1974.
Framsögumenn: bæjarfulltrúar flokksins á Akranesi.
II. Bæjarstjórnarkosningarnar og kjör uppstillinganefndar.
III. önnur mál.
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavikur verður haldinn að
Hótel Esju mánudaginn 4. marz n.k. og hefst fundurinn kl. 20.30.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Tillögur stjórnar um fulltrúa félagsins — aðalmenn og vara-
menn — i Fulltrúaráð framsóknarfélaganna i Reykjavik, liggja
frammi á skrifstofu félagsins að Hringbraut 30. Viðbótartillögur
ber að leggja fram á sama stað eigi siðar en tveim sólarhringum
fyrir fundinn.
Stjórnin
Kópavogur
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Kópavogi heldur fund að
Neðstutröð 4, fimmtudaginn 7. þ.m. kl. 20.30.
Fundarefni: 1. Lagður fram listi uppstillinganefndar vegna
bæjarstjórnarkosninganna. 2. önnur mái. Stjórnin.
Framsóknarvist
ó Snæfellsnesi
Framhald verður á framsóknarvist Framsóknarfélaganna a
Snæfellsnesi að Breiðabliki laugardaginn 9. marz kl. 21.
Ávarp flytur Asgeir Bjarnason alþingismaður. Hið geysivinsæla
H.L.Ö.-Trió leikur fyrir dansi.
Athugið! Vegna veðurs reynist nauðsynlegt að veita öllum þátt-
takendum frá og með öðru kvöldi fullan rétt tii aðalverðlauna.
^ Nefndin.
Nýtt útgáfufélag
Alþýðublaösins
ÚTGAFUFÉLAGINU Blað, sem
á að halda Alþýðnbbv'-1
framvegis, liefu
stjórn, og eiga >-
ur K. Sigu'
mundarso
Sighv.
jón K
,Hi
kosin
ni Eyjólf-
Jjörn '1
.ióhannss
,ui og Sigur-
Alþýðublaðið hefur að undai
förnu verið i eins konar herlei,
ingu hjá Visi, sem aðeins hefi
leyft Alþýðuflokknum afnot ;
einni siðu.
Enn mun það eiga nokkuð
land. að samið hafi verið um ö
atriði. er varða þessa brevtingi