Tíminn - 19.06.1974, Blaðsíða 11
10
TÍMINN
Miðvikudagur 19. júni 1974
Miðvikudagur 19. júni 1974
Utrýming atvinnu-
leysis hefur sett nýjan
svip á strjálbýiið
Rætt við
Guðrúnu Bene
diktsdóttur,
sem er í
baráttusætinu
hjá Framsókn í
Norðurlands
kjördæmi
Vestra
telja á sviði stjórnmála,
þvi Skúli Guðmundsson,
þingmaður og ráðherra,
var móðurbróðir henn-
ar, og hún er systir
Skúla Benediktssonar
kennara, sem á sinum
tima var einn af forystu-
mönnum ungra Fram-
sóknarmanna.
Guðrún hlaut stopult skólanám
i æsku, fimm mánuði i barna-
skóla, en var siöan tvo vetur i
gagnfræðaskóla.
Hún aflaði sér staðgóðrar
menntunar og varð kennari I
heimabyggð sinni. Guðrún er gift
Aðalbirni Benediktssyni bónda og
héraðsráðunaut, og búa þau á
Grundarási, sem er nýbýli, er þau
Stjórnmála
baráttan:
....Hafði aldrei
haldið ræðu,
þegar ég stóð
upp í Húnaveri
Eitt þeirra framboða,
er nokkra athygli hafa
vakið fyrir alþingis-
kosningarnar i sumar,
er framboð Guðrúnar
Benediktsdóttur, sem
skipar þriðja sætið á
lista Framsóknarflokks-
ins i Norðurlandskjör-
dæmi vestra.
Guðrún Benedikts-
dóttir er 45 ára gömul
húsmóðir i Miðfirði og
hefur ekki haft
opinber afskipti af
stjórnmálum fyrr, en
hún á þó til frægra að
Framboð:
Var í prófum
í öldunga
deildinni,
þegar Ólafur
Jóhannesson
hringdi í mig.
Ég sló til,
og prófin voru
úr sögunni.
reistu á eyðijörðinni Litlu-Tungu.
Þau Aðalbjörn eiga þrjár upp-
komnar dætur, sem allar eru
kennarar og hafa lokiö stúdents-
prófi frá Kennaraskólanum.
Guðrún hóf fyrir tveim árum
nám við öidungadeildina i
Menntaskólanum við Hamrahlið
og les nú undir stúdentspróf. Hún
hefur veriö tvo vetur i skólanum
og hefur lokið 5/8 prófa, en alls
mun námið taka fjóra vetur, ef
allt gengur að óskum.
Blaðamaður hitti Guðrúnu að
máli nú fyrir skömmu og innti
hana eftir framboðsmálum og
öðru, er lesendur hefðu áhuga á
að vita um konu, sem skyndilega
stendur mitt I sviðsljósi stjórn-
málanna og er i hópi þeirra fram-
bjóðenda, sem beinlinis eiga von
á að vinna nýtt þingsæti fyrir
stjórnmálaflokk.
Hvernig atvikaðist það, að þú
fórst inn á stjórnmálabrautina og
i framboð til alþingis?
Frambjóðandi sóttur
i Menntaskóla
— Það er liklega tilviljun. Ég
var að vlsu pólitisk, sem kallað
er, en ég haföi ekki haft opinber
afskipti af stjórnmálum. Ég var
fyrir sunnan I prófum I öldunga-
deildinni, þegar Ólafur Jóhannes-
son hringdi til mln og baö mig aö
finna sig. Erindið var að fá mig til
að taka sæti á framboðslistanum.
Ég sló til, en þar með voru prófin
nú úr sögunni I bili, þvl það var
ómögulegt fyrir mig aö vera að
hugsa um lestur, þegar þetta var
afgert.
— Hvers vegna slóstu til?
— Fyrst og fremst vegná þess,
að ég er mjög hrifin af vinstri
stjórninni og flestu þvl, sem hún
hefur gert, og þá sérstaklega af
stjórnarstörfum ólafs Jóhannes-
sonar.
Það sat þvl slzt á mér, að sker-
ast úr leik.
Eiginmaðurinn
styður konu sina
— Hvernig tekur fjölskylda þln
þvi, að nú geturöu litið verið
heima á búinu?
— Maðurinn minn hefur tekið
þessu ágætlega. Honum fannst
ekki heldur nema sjálfsagt, að ég
væri fyrir sunnan I vetur við
menntaskólanám, og ég er ekki
viss um að allir karlmenn hefðu
Fjölskyldan:
Maöurinn minn
hefur tekið
þessu vel. Hann
er sérstakur
maður.
Grundarás i Miðfiröi. Nýbýlið, sem Guðrún Benediktsdóttir og maður hennar Aðalbjörn Benediktsson
héraðsráðunautur byggðu fyrir tæpum áratug I landi Litlu-Tungu, sem var eyðibýli.
látið sér það lynda. Sér I lagi er
þetta hugulsemi af honum, þar
sem hann er nú ekki séður með
matreiðslu eða sllkt, sem hann
verður nú að annast sjálfur. En
þetta hefur bjargazt.
— Fyrst eftir að framboð mitt
var ákveðið fór ég norður og
reyndi að koma heimilinu I gott
stand eftir veturinn, eins og hús-
mæðra er siður, en slðan hef ég
verið á eillfum þeytingi I kosn-
ingabaráttunni, eins og aðrir
frambjóðendur I kjördæminu.
Hafði aldrei
haldið ræðu
— Hvernig hafa stjórnmála-
störfin gengið?
— Þetta gengur ágætlega. Ég
var að vísu óvön ræðuhöldum,
hafði aldrei haldið ræðu á ævi
minni, þegar ég stóð upp I Húna-
veri og flutti stutta ræðu. Það var
ekki mjög merkileg ræða held ég,
og mér leið illa, en það venst og
lærist eins og annað að koma fyrir
sig orði á fundum: enda er það
eins gott, þvi við eigum eftir að
halda fjölmarga kosningafundi I
kjördæminu. Það er ekki alveg
búið að ganga frá fundaáætlun-
inni, svo ég get ekki skýrt frá
henni hér.
Framboðið
mælist vei fyrir
— Hvernig leggjast þessar
kosningar I þig? Heldurðu að þú
náir kosningu?
— Það vona ég. Að vlsu hafa
konur ekki verið i baráttusæti svo
ég muni, eða I framboði innan
þeirrar seilingar, sem ég er nú,
hér I kjördæminu, og þvi er það
'Guðrún Benediktsdóttir, frambjóðandi Framsóknarflokksins I Noröur-
landskjördæmi vestra. Guörún skipar baráttusæti flokksins I kjördæm-
inu og er meðal þeirra frambjóðenda, sem eiga þess nú raunverulega
kost að vinna nýtt þingsæti fyrir stjórnmálaflokk.
öldungis óreýnt, hvernig kjósend-
ur llta á það, en mér hefur verið
mjög vel tekið af fólki, og ef þaö
er mælikvaröinn, þá get ég verið
bjartsýn . Ég væri reglulega
vanþakklát, ef ég segði annað.
Málefnaleg staða Framsóknar-
flokksins er mjög sterk, og það er
er mjög sterk, og það er staða for-
sætisráöherra líka, en hann skip-
þetta ætti allt að vinna fyrir list-
ann I kjördæminu.
Min afstaða til málanna er llka
skýr. Ég vil hafa vinstri stjórn, er
mjög eindreginn stuðningsmaður
þess, og það var eins og áður
sagði einmitt vegna þess að ég
vildistyðja núverandi ríkisstjórn,
sem ég gaf kost á mér til fram-
boðs: styðja hana til að ljúka þvl
verki, sem hún hefur hafið.
Vill herinn burt
Rlkisstjórnin hefur komið ótrú-
legamiklu I verk. Þó ekki væri nú
nema 50 mílna landhelgin. Það
mál eitt ætti að nægja til að
tryggja framtlð vinstri stefnunn-
ar, ef það væri metið að verðleik-
um. Svo er það útrýming atvinnu-
leysis og endurnýjun togaraflot-
ans og fiskvinnslustöðvanna. Allt
hefur þetta sett nýjan svip á
strjálbýlið og fólkið úti á lands-
byggðinni hefur aldrei áður haft
það eins gott að mlnu mati. Mér
er það auðvitaö ljóst, að við blasa
erfiðleikar, en stjórnin hefur
verið knúin til kosninga, vegna
þess að meirihluti var ekki lengur
á alþingi fyrir áframhaldandi
setu, og þvl ekki aðstaða til að
takast á við vandann. Nú er það
meginmál kosninganna að veita
henni umboð til að ljúka upp-
Stjórnarstefnan:
Mín afstaða til
málanna er
r
líka skýr: Eg
vil hafa vinstri
stjórn.
Konan:
Konan hefur
gleymzt þarna.
Hún er áfram —
liggur mér við
að segja —
bundin á bás,
eins og kýrnar.
byggingarstarfinu, og að þvl eig-
um við að vinna. Og ég vil herinn
burt.
— Ef frá eru skilin efnahags-
mál og önnur brýn þjóðmál,
hvaða málum hefur þú áhuga á að
vinna að fyrir konur sérstaklega,
ef þú tekur sæti á alþingi?
Vill auka frelsi
húsmæðra —
konan hefur gleymzt
— Ég vil styðja að þvl að gera
húsmæðurnar frjálsari, veita
þeim aðstöðu til að sinna öðrum
málum en hússtjórn. Hinn vinn-
andi maður um allan heim gerir
kröfu til styttingar vinnutimans,
auknar fristundir notar hann, eða
getur notað, til þess að auðga líf
sitt og þroska. Konan hefur
gleymzt þarna. Hún er áfram —
liggur mér við að segja — bundin
á bás, eins og kýrnar. Konan þarf
að vera frjálsari, hafa tækifæri til
að afla sér menntunar og blanda
geði við annað fólk, ef hún á ekki
að dragast aftur úr. Þá hef ég
mikinn áhuga á skólamálum og
vildi stuðla að þvl, að börn gætu
stundað sem mest af námi slnu
heima. Nú þarf að senda ungling-
ana burtu I stórbæina til skóla-
göngu, en ef til vill mætti kenna
þeim meira heima I héruðunum.
Þetta mál þarf að kanna og hug-
leiða betur.
Eins og nú er ástatt getur konan
á tslandi, eða réttara sagt hús-
móðirin á tslandi, ekki sem skyldi
hagnýtt sér þá þjónustu og
menntunaraðstöðu, sem boðið er
upp á I þjóðfélaginu. Núna er
mjög mikið rætt um fullorðins-
fræðslu, og þar þarf konan að
vera virkur þátttakandi, sagði
Guðrún Benediktsdóttir að lok-
um. — JG
TÍMINN
15
FRAMSÓKN BERST FYRIR
ÞREM ÞINGMÖNNUM í
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI
Magnús Ólafsson, bóndi
á Sveinsstöðum skipar 7.
sætið á framboðslista
Framsóknarflokksins i
Norðurlandskjördæmi
vestra, og hann gegnir
um þessar mundir störf-
um kosningastjóra á
skrifstofu flokksins á
Sauðárkróki.
Blaðið átti tal við hann
á dögunum og innti hann
fregna af kosningaund-
irbúningnum og fleira.
Sagðist honum frá sem
hér greinir:
— Þú hefur tekið virkan þátt i
kosningaundirbúningi Fram-
sóknarmanna I Noröurlandskjör-
dæmi vestra. Hvernig hefur
undirbúningur gengið, og hvernig
er honum háttað?
Kosningaskrifstofa á
Sauðárkróki
— Ég hef tekið aö mér að vera
hér fram til 17. júní a.m.k. við að
undirbúa kosningarnar. Flokk-
urinn hefur aðalstöðvar slnar á
Sauðárkróki, þar sem opin er
skrifstofa, með fastan mann i
starfi, og ég geri ráð fyrir aö svo
verði allt til kosninga. Auk þess
munum við verða með skrifstofur
á kjördag I bæjunum og kauptún-
unum, en trúnaðarm. veröa I
hverjum hrepp. Þetta er svo til
allt unnið I sjálfboðavinnu, eins
og venja er til. Menn bæta kosn-
ingavinnunni við dagleg störf sln.
— Hvernig er staða rlkis-
stjórnarinnar og Framsóknar-
flokksins I kjördæminu?
— Málefnaleg staða rlkis-
stjórnarinnar er sterk, og mjög
góð I þessu kjördæmi, þvl hér
rikir allt annað ástand, heldur en
rikti meðan viðreisnarstjórnin
var við völd. Maður þarf ekki
annað en fara hér um héraðið og
sjá alla uppbygginguna til þess að
sannfærast um það. Við getum
bara nefnt Skagafjörð, þar sem
landlægt atvinnuleysi og ördeyda
rikti. Þar hafa allir næga vinnu,
og skortur er á vinnuafli. Sama er
að segja um Siglufjörð. Þar hefur
tekizt að stöðva fólksflóttann, og
það er raunar sama hvert litið er.
Gróska til lands
og sjávar
Alls staðar er þróttmikið at-
vinnulif og uppbygging. Mega
menn minnast þess, að einu
fregnirnar af þessum stööum
voru hér á árunum, að þar rlkti
atvihnuleyti og neyð.
Til sveita og I bæjunum hafa
verið miklar framkvæmdir I hús-
byggingum, þvl allt hélzt þetta I
hendur til sjós og lands, og
gróska er mikil í störfum manna.
Gott árferði hefur einnig haft
sitt að segja fyrir landbúnaðinn.
Að visu kemur það ekki frá
stjórninni, en bændur eru ánægðir
með stjórnarfarið og byggða-
stefnuna.
Mikið hefur verið unnið að stór-
verkum I landbúnaði. Til dæmis
fer nú fram tankvæðing hjá
mjólkurframleiðendum sem
verður til mikilla bóta, bæði hvað
snertir vörugæði og alla aðstöðu.
Menn þykjast einnig greina
vissar breytingar á landbúnaði I
þessum sveitum, bændur virðast
hafa tilhneigingu til þess að sér-
hæfa sig meira I búskapnum en
áður var.
Þegar tankvæðingin varð að
veruleika hættu sumir minni
mjólkurframleiðendur að fram-
leiða mjólk og sneru sér aö sauö-
fjárræktinni einvörðungu, en
stóru framleiðendurnir bættu við
sig mjólkurgripum.
Opnum nýja
Kglæsilega kjörbúð
|ó morgun — fimmtudaginn 20. júní
IJkaupfélag kjalarnesþings
MOSFELLSSVEIT
VESTRA
seglr Magnús á Sveinsstöðum.
— Nú er mikið rætt um blóm-
legt atvinnullf I bæjunum, og
fjölgun hefur orðið á fólki þar.
Hvað segja bændur um það?
Afstaða bænda til
stækkandi bæja.
— Ég tel, að bændur fagni þvl.
Fjörugt athafnallf I bæjunum
hefur sitt að segja, fyrir bændur.
Lita má á þessi héruö sem eina
heild. Þéttbýliskjarnarnir eru
markaðssvæði, og þvl öflugri og
stærri sem þessir kjarnar verða,
þeim mun meiri þörf er fyrir
afurðir búanna. Og það er fleira
sem vinnst, en aukin sala á bú-
vörum. öll félagsleg samskipti
eru greiðari, þegar atvinnumálin
eru I lagi. Þvl betri sem afkoman
er i bæjunum, og þeim mun stærri
sem þéttbýliskjarnarnir eru,
þeim mun meiri þjónustu er unnt
að veita, hvort sem það er t.d. I
skóla- og heilbrigðismálum eða
listum og menningarmhlum.
Þetta skilja bændur, og þetta
skilja held ég allir sem I strjál-
býlinu búa.
— Er nokkuð sem þú vilt leggja
sérstaka áherzlu á I kosninga-
undirbúningnum ?.
Varar við Möðruvell-
ingum og tali um „um-
framatkvæði” fram-
sóknar
— Ég vil fyrst og fremst hvetja
alla stuðningsmenn Framsóknar-
flokksins I þessu kjördæmi til
þess að vinna að kosningu fram-
bjóðenda okkar. Við teljum mjög
sterkar llkur á þvl að við getum
náð þrem þingmönnum aö þessu
sinni.
Þá vil ég mjög eindregið vara
menn við Möðruvallahreyf-
ingunni, sem talar um „umfram-
atkvæði” Framsóknarflokksins.
Þetta er lævls kosningaáróður,
hver sem hann hefur I frammi.
Framsókn berst fyrir þriðja
manninum á þing, Guðrúnu
Benediktsdóttur, og hefur engin
umframatkvæði fyrir þá, sem
drekka vilja úr hóffarinu, segir
Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum
að lokum
JG
Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum skipar 7. sætið á framboðslista
Framsóknarflokksins I Norðurlandskjördæmi vestra. Magnús er 28 ára
og hefur haft ýms afskipti af félagsmálum I Austur-Húnavatnssýslu.
Hann tók landspróf frá Reykjaskóla, en fór siðan i bændaskólann á
Hólum og dvaldist að þvi búnu eitt ár i Englandi við landbúnaðarstörf.
Magnús er formaður Félags ungra framsóknarmanna i A-Hún., og
hann var formaöur Ungmennasambands Austur-Húnvetninga I þrjú
ár.
Varar við áróðri um
„umframatkvæði"
Framsóknarflokksins