Tíminn - 20.07.1974, Qupperneq 6

Tíminn - 20.07.1974, Qupperneq 6
6 TÍMINN Laugardagur 20. jttll 1974. „Þetta voru allt tómir kapitalistar, en óttu samt engan kapital" — Rætt við Stefán Stefánsson frá Gimli og Ólafíu konu hans Auk alls þessa er Stefán svo fararstjóri um 200 manna hóps frá byggö- unum viö Winnipegvatn, sem hingaö komu til þess aö vera viö þjóöhá- tiöarhöld á ættlandinu. Hefur hann haft aö oröi, aö þau hjónin veröi senniiega aö veröa eftir til þess aö fá tækifær til þess aö skoöa þá staöi, sem þau ætluöu sér i upphafi. H.P.—Rvik — Ég held, aö viðhorf okkar hinna, sem eftir urðum(til Vestur-Islendinga, hafi allt fram á sföustu ár verið töluvert blandin. Satt að segja eru þeir ennþá þó nokkrir, sem álita, aö fólk þetta, eöa réttara sagt for- feöur þeirra, hafi flúið landiö góöa á neyöarstundu og siglt til Amerfku og Kanada, þar sem mjólk og hunang átti aö drjúpa af hverju strái og allir yröu stór- efnaöir á skömmum tlma. Af og til gegnum árin hafa svo birtzt myndir af afkomendum þessa fólks i dagblöðum og þá gjarna gert að þvi góðlátlegt grin, þar sem þaö stendur I rigningunni I Keflavlk meö myndavélina um hálsinn og skælbrosir I þokunni, alsælt að lita Islenzka náttúru augum i fyrsta eða annað sinn. Ferðin til landsins handan Atlantsála og mjólkin og hunangið komu ekki af sjálfu sér og það hafa Vestur-tslendingar fengið að sannreyna fyrir löngu. Hér var á timum landflóttans hart I ári og ég held, að þeir séu verulega fáir, sem ennþá bera nokkurn kala til Vestur-Islend- inga. Þvert á móti hafa sam- skiptin aukizt, skipst hefur verið á gagnkvæmum heimsóknum, þó heldur hafi Vestur-lslendingarnir verið duglegri að heimsækja okkur og margs konar menningarleg samskipti hafa átt sér stað. I tilefni 1100 ára afmælisins hafa hópar þeirra heimsótt ætt- land sitt, margir hverjir I fyrsta sinn, og áhugi þeirra og ánægja hefur satt að segja smitað út frá sér meöal heimamanna, sem heldur voru orönir leiöir á þessu öllu saman og áformuðu heldur að fara til Mallorku, en að hanga i mlgandi rigningu á Þingvöllum undir ræðuhöldum og ávörpum, reiptogi og kórsöng. Stefán Stefánsson, er farar- stjóri hópsins frá Winnipeg og Gimli, aöstoðarfógeti Manitoba- fylkis og frændi minn, sem kannski verður ekki talið honum til tekna. Ólafia, kona hans, er ein af betri konum I heimi og mikil húsmóðir. Þau hjónin gat ég loksins króað af hér i Reykjavlk fyrir skömmu, þau voru á leiðinni norður i land og Stefán hafði I svo miklu að snúast, aö hann hafði á orði, aö hann yrði að koma aftur núna I haust, eða hreinlega verða eftir, þegar aðrir færu, til þess að sjá og skoða þá staöi, er þau hefðu ætlað sér I byrjun. Þau eru bæði fædd i Gimli, eiga þar fimm uppkomin börn og allt annað skyldfólk sitt. Stefán er einn aðalhvatamaður að stofnun byggðasafns fyrir Islendingabyggðirnar við Winni- pegvatn og þvl bað ég hann að segja mér fyrst um frumbyggja þessa svæðis. íslendingana, sem þarna komu áriö 1875: (Ef fólki finnst Stefán frændi minn tala eitthvað skrýtna Islenzku, þá er það af þvl, „að ég tala vestur-Islenzku, en þið hin talið Islenzku” eins og hann orðar það. Hann byrjaði ekki að tala íslenzku fyrr en hann var um - þrltugt og þetta samtal var fyrst hljóðritaö á segulband). — Vell, ég skal segja þér, að saga þessara flutninga er miklu lengri. Fólkið hafði komiö sér fyrir bæði I Winnipeg og I Ontario, þar sem t.d. fólk konu minnar er frá. Það var nefnilega búið að eigna sér stað I Ontario og þurfti svo að flytja allt saman, þegar það frétti af hópnum, sem ætlaði til staðar við Islendingafljótið. Það seldi nefnilega allt, sem það átti til þess að komast meö, og þar I voru kýr. Þetta varö það að selja á hálfviröi. — Þegar það var siðan búið að eigna sér það, sem þaö hélt aö þaö þyrfti fyrir veturinn, þá var lagt af stað ofan ána í þessum döllum, sem þeir voru I. Þeir áttu voða erfitt að komast ofan ána fyrir það að það var lágt I henni — vindstaðan hafði staðið svo lengi að sunnan, að þeir áttu bágt með að stjaka þessu út— það festist I bökkunum og I eitt sinn þá brotn- aði nú einn þessi kassi og þá urðu þeir að troða rúmfötum I til þess að geta haldiö áfram. Svo þegar þeir komu nú út I sjálft Winnipegvatn þá byrjaði hann að blása af norðan, eða var að breyta til. Þá var nefnilega að hækka I vatninu og það var að koma bylur. Þeir voru dregnir á þessu skipi, sem tilheyrði Hudson Bay og þegar þeir voru komnir fyrir utan Williow tangann, þá vildi kaf- teinninn ekki fara lengra — hann vildi helzt snúa við — en þeir vildu halda áfram norður að Islendingafljótinu. Það var rætt um þetta á sjálfum bátnum og þá var þessi John Taylor þar og hann var nefnil. sendur vestur til þess aö tala fyrir þeim af Sambands- stjórninni. Hann fór bara yfir i þennan bát, sem var kallaöur Yorkboat, en hinir voru bara höggnir lausir. Þeir hröktu þarna suður en þeir gátu spaðað sig inn af þvl að þeir höfðu nefnilega árar I þessum döllum. Þeir fóru upp I álinn, sem er fyrir sunnan tangann og þar vestur I tjörnina og þar voru þeir I logni, þ.e.a.s., þeir voru ekki nefnilega I vit- lausum sjó. Þegar þeir komu á mitt rifið, þar sem er eiginlega ekkert nema steinnsandkambur, þá var þar þessi eini stóri hviti steinn^hann var þar á þessum bletti og þar lentu þeir upp I myrkrinu. Það er þar, sem Jón Ólafur Jóhannsson fæddist um nóttina. I þessu tjaldi, sem þeir ráku upp utan um staura, sem þeir fundu I fjörunni. Alltaf magnaðist veðrið og rétt eftir miðnætti þá fæddist hann og það voru margir I hópn- um sem ekki einu sinni vissu að hann var að fæðast. Svo snjóaði inn á konuna. Þarna hefur svo verið reistur minnisvarði um fyrsta íslend- inginn, sem þarna fæddist. En minnisvarðinn er ekki rétt merktur. Á minnisvarðanum er það tiltekið, að hann hafi fæðst 9. nóvember, sem er vitleysa. Það er til frásögn af þessu, sem við Karóllna Gunnarsson skrifuðum — það eru nefnilega svo margir lifandi af mönnum, sem voru skólabræður hans og nágrannar og allt eftir þessum sem aö nefni- lega eru afskaplega arrl út af þessu, aö þetta skuli vera þarna á þessu bjargi. En enginn eiginlega veit, hvurnin að stendur á því að hann tókupp þennan afmælisdag. I bók Thorstlnu Jackson, dóttur hans, kemur það út, að hann hafi veriö fæddur þennan 9. nóvember. Ég nefnilega hef aldrei getað komist að þessu til þess að geta verið alveg 100% viss um það — en Bergþóra, nefnilega amma Jóns, móðir Sigrlðar, sem fæddi fyrsta barnið, hún var I hópnum og maður hennar Jón aö nafni. Hann var fyrsta dauösfallið, þessi Jón og hann mun ég halda aö sé grafinn i grafreitnum, sem við erum að reyna að varðveita þarna á Gimli. Hann dó um veturinn rétt eftir nýárið. En þessi Bergþóra, hennar amma var nefnilega 9. nóvember og eftir þvi, sem mér hefur kynnst hafa þarna orði dagabrengl. Sennilega mun Jón vera fæddur 22.október og hafa þvi landnemarnir verið nokkru fyrr á feröinni, en gert hefur verið ráð fyrir I heimildum. Næsta dag fluttu þeir sig svo Fáar myndir hafa birzt af hinum eiginlega Gimlibæ. Hann er við Winnipeg-vatn, Ibúar eru um 30 þús. og fer þeim fjölgandi. Bæjarráðið hefur tekið viö stórri herstöð, sem þarna var reist á strlðsárunum og leigirhana til ýmissa iðnaðarfyrirtækja. Viö sjáum yfir höfnina og fremst á myndinni er hús byggðasafnsins.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.