Tíminn - 20.07.1974, Side 13
Laugardagur 20. jiilt 1974.
TIMINN
13
Surprise GK 4, strandaöur á Langeyjasandi.
Hannes Þ. Hafstein:
Hafa skal það, er
sannara reynist
I Timanum föstudaginn 5. júli,
er viðtal viö Rudolf Stolzenwald
formann Flugbjörgunarsveitar-
innar á Hellu, þar sem segir orð-
rétt:
„Starfssvæði okkar er
NOKKUÐ STÓRT (leturbr. min),
ef við miðum við það, að þaö er
ekki önnur björgunarsveit starf-
andi á svæðinu frá Reykjavlk til
Vikur:” Þessi yfirlýsing hefur
orðiö mörgum ihugunar efni og
tilefni til ýmissa bollalegginga og
spurninga varðandi björgunar-
störf þar austur i sveitum. Þess-
um málum er ekki svo varið, sem
af er látið i viðtalinu og skulu hér
nokkur dæmi tilfærð Rudolf
formanni til glöggvunar.
Skemmst er að minnast mjög
umfangsmikillar leitar i mai s.l.
að litilli flugvél er ekki kom til
Reykjavikur á tilsettum tima.
Úr björgunarsveitum Slysa-
varnarfélags íslands I Árnessýslu
fóru þegar til leitar 61 maður, en
björgunarsveitarmenn SVFI I
Rangárþingi hafðir á bakvakt, ef
til þess kæmi og þörf krefði að
senda þyrfti menn til leitar á þvi
landsvæöi. Ekki bendir þetta til
að SVFl, sé svo fáliðaö á þessum
slóðum, eins og formaðurinn vill
vera láta. Enn er mönnum i
fersku minni sá sorglegi atburð-
ur, er þrennt varð úti á Fimm-
vörðuhálsi um Hvftasunnuhelg-
ina 1970. 1 Árbók SVFÍ 1971 er
greint frá þessum atburði og
eftirfarandi málsgrein að finna.
„Björgunarsveitir frá Hvolsvelli,
Selfossi, Hellu og Reykjavik að-
stoðuðu við að sækja lfkin og
koma þeim til Reykjavíkur”. Mér
segir svo hugur, að starfsemi
björgunarsveita SVFI austan
fjalls til Vfkur sé Rudolfi for-
manni ekki jafn framandi og
hann vill vera láta i fyrrnefndu
viðtali. Ekki hvarflar það að mér,
að Hella sé svo „lengst inni I
landi” að gifturík björgunarstörf
unnin þar um slóðir viö
ströndina nái ekki eyrum eöa
snerti ekki viðkvæma strengi
áhugasamra björgunarsveitar-
manna hins blómlega byggðar-
lags. En, ef svo undarlega skyldi
vilja til, þykir mér hlýöa að rifja
upp atburði, björgun manna úr
sjávarháska, á þessum slóðum
aðeins síðasta áratuginn.
I febr. 1964, strandaði pólski
togarinn Wistlock á Krosssandi.
28mönnum bjargað af björgunar-
sveitum SVFI i Landeyjum og á
Hvolsvelli.
1 marz 1966strandaði Bjarmi 2.
EA 110 á Loftstaðafjöru austan
Stokkseyrar. 12 mönnum bjargað
af björgunarsveitum SVFI á
Eyarbakka og Stokkseyri.
1 sept. 1968 strandaði togarinn
Surprise GK 4 á Landeyjasandi.
28mönnum bjargað af björgunar-
sveitum SVFÍ I Landeyjum og á
Hvolsvelli.
1 mai 1970 strandaði Stakkur
VE 32 á Drangshlíðarfjöru á
Skógasandi.5 mönnum bjargað af
björgunarsveitum SVFÍ á Hvols-
velli og I Vfk.
I marz 1973 strandaöi danska
flutningaskipið Thomas Bjerco á
Eyjafjallasandi. 10 manns,
farþegum og áhöfn, bjargað af
björgunarsveitum SVFl i V-Eyja-
fjöllum og á Hvolsvelli.
Og enn í marz 1973, þá strand-
aði Elías Steinsson VE 167 við
Stokkseyri. 9 mönnum bjargað af
björgunarsveit SVFI á Stokks-
eyri. I sept 1973 strandar Geir
Jónsson AR 75 við Stokkseyri. 5
mönnum bjargað af björgunar-
sveit SVFÍ á Stokkseyri.
Samtals eru þetta 97 mannslíf,
sem bjargað hefur verið úr klóm
Ægis, 59 fslenzkir sjómenn og 38
útlendingar. Og dettur þá nokkr-
um manni i hug, i ljósi þessara
staðreynda að björgunarsveitir
SVFI séu ekki all athafnasamar,
þegar á reynir, á þvi „nokkuð
stóra staríssvæði”, sem Rudolf
fjallar um I Timaviðtalinu?
Aðlokum er FBSH óskað til
hamingju með byggingaáformin.
Það er reynsla SVFI, að slikt
eykur samhug og samtakamátt
björgunarsveitamanna, og hverri
björgunarsveit mikill styrkur að
eiga samastað.Sú hefur lika
raunin á orðið austan fjalls i
næsta nágrenni við Hellu. Slysa-
varnadeildin Dagrenning og
björgunarsveit hennar á Hvols-
velli hafa þegar tekið f notkun
björgunarstöö, þótt enn sé
húsnæöi það ekki fullbúið. Án
efa munu þeir geta veitt ýmsar
haldgó öar upplýsingar varðandi
framkvæmd sliks verks eftir þá
reynslu, er þeir hafa öölazt.
Og björgunarstöðvahúsin i
eigu SVFI og slysavarnadeild-
anna i Vík, á Stokkseyri, Selfossi
og Eyrarbakka, rr.jnu ávallt
standa ykkur opin, þegar leið
ykkar liggur þar um hlað.
En hafa skal jafnan það, er
sannara reynist.
Hannes Þ. Ilafstein
Hnakki
stolið fró
16 ára
dreng
Sá leiðindaatburður gerðist á
landsmótinu á Vindheimamelum,
að hnakki var stolið frá 16 ára
dreng, Þóröi Daða Njálssyni, frá
Blönduósi. Atvik voru með þeim
hætti að i mótslok á sunnudags-
kvöld, hugðist Þórður Daði fá sér
kvöldverð í veitingatjaldi og batt
hest sinn úti fyrir tjaldinu á með-
an. Þegar hann hafði matazt og
hugðist ganga til hestsins, var
hann á brott. Hesturinn fannst
eftir nokkra leit, en var þá hnakk-
laus. Þeir, sem kynnu að hafa
orðið einhvers varir i sambandi
við þetta atvik, eru beðnir að
koma boðum þar að lútandi á
simstööina á Blönduósi. Hnakk-
urinn er nýlegur og haföi Þórður
Daði fengið hann I fermingargjöf.
Hér er um vandaðan grip að ræða
og er undirdýnan úr leðri, en ekki
striga eins og oftast er.
Úr björgunarstöð SVFI á Hvolsvelli.
Danska flutningaskipið Thomas Bjerco strandað á Eyjafjallasandi.
Sumarnámskeið
Lýðháskólans
í Skálholti
MIÐVIKUDAGINN 17. júli kem-
ur i Skálholt hópur danskra lýö-
háskólakennara. Gestir þessir
eru þrjátiu talsins, og munu þeir
dveljast I skólanum eina viku.
Þetta er fyrsta meiri háttar
heimsóknin, sem lýðháskólinn i
Skálholti fær frá systurskólum
sinum austan íslands ála. Sú hef-
ur frá upphafi verið von forráða-
manna skólans, að stofnunin yrði
I nokkrum mæli miðstöð nor-
rænna menningartengsla, er
fram liöu stundir. Nú er sú starf-
semi hafin, og er það nokkurt
ánægjuefni, að svo mátti verða á
þjóðhátlðarári.
Hinir erlendu gestir munu
hlýða á fyrirlestra um islenzka
sögu og bókmenntir, jarðfræði Is-
lands, stöðu Islands meðal nor-
rænna þjóða, sögu Skálholtsstað-
ar og islenzkra lýðháskóla, Is-
lenzkt kirkjulif og islenzka tón-
list. Hver dagur hefst meö morg-
unbænum i Skálholtskirkju, en
sunnudaginn 21. júli sækja gest-
irnir Skálholtshátið. Þá veröur og
farið um Biskupstungur og Þjórs-
árdal. á Þingvelli og til Reykja-
vikur. Markmiðið er að bregða
upp svo mörgum myndum af Is-
landi og islenzkri menningu sem
unnt er á fáum dögum.
Meðal gestanna er Poul Eng-
berg, fyrrum skólastjóri lýðhá-
skólans að Snoghöj, en hann er
mörgum Islendingum að góðu
kunnur.
Lýðháskólinn i Skálholti mun á
hausti komanda taka i notkun
nýtt heimavistarhúsnæði. Veröa
nú engir nemendur hýstir i
sumarbúðaskálum þeim, sem
veriö hafa heimavist skólans
fram að þessu. Aðsókn að skólan-
um er söm og áður. Frestur til að
skila umsóknum um skólavist
rennur út hinn 31. júli.
Skálholtshátíðin
er a morgun
FB—Reykjavik — Skálholts-
hátiðin verður 21. júli næst
komandi og hefst kl. 13.30 með
klukknahringingu Biskup
íslands, herra Sigurbjörn Einars-
son, og séra Guðmundur Oli
Olafsson þjóna fyrir altari i
messunni, sem verður á
hátiðinni. Séra Valdimar Eylands
dr. theol. predikar, meðhjálpari
er Björn Erlendsson. Skál-
holtskórinn syngur, forsöngvarar
eru Ingvar Þórðarson og
Sigurður Erlendsson. Trompet-
leikarar eru Jón Sigurðsson og
Sæbjörn Jónsson. Organleikari
Arni Arinbjarnarson. Söngstjóri
er Haukur Guðlaugsson .
Klukkan 16:30 verður siðan
samkoma I krikjunni. Þar verða
SPRENGJAN
í TOWER
VERK IRA
London NTB — Innanrikisráð-
herra Breta, Roy Jenkins, sagði i
neðri deild þingsins á miðviku-
dagskvöld, að irski lýðveldisher-
inn (IRA) sé að breyta aðferðum
sinum. Sprengjutilræðið I Tower
of London og sprengjan i West-
minster Hall fyrir mánuði siöan
eru litin mjög alvarlegum aug-
um. Borgarstjórinn i Lundúnum,
sir Hugh Wontner, sagði eftir
heimsókn sina til St. Bartholome-
us-sjúkrahússins, þar sem flestir
hinna slösuðu liggja, að tilræðið
beri vott um óheyrilega grimmd,
sem erfitt sé að trúa að nokkur
geti sýnt meðbræðrum sinum.
Lundúnablaðið Daily Mirror
skrifaði i gær, að tveim minútum
áður en sprengjan sprakk I Tow-
er, hefði verið hringt i þá og talaði
maðurinn, sem hringdi með irsk-
um hreim. Gaf hann þeim upp
markorðiö „bastarðar” og hélt
leiknir þrir sálmaforleikir, en
við orgelið er Árni Arinbjarnar-
son. Þórarinn Þórarinsson skóla-
stjóri flytur ræðu. Flutt verður
kantatan Skálholtsljóð eftir Pál
Isólfsson og Sigurð Einarsson.
Flytjendur eru kirkjukór Akra-
ness, Guðrún Tómasdóttir syngur
einsöng og Arni Arinbjarnarson
leikur undir á organ. Söngstjóri
er Haukur Guðlaugsson. Þá
veröur ritningarlestur og bæn,
sem séra Sigurður Sigurðsson
annast, og að iokum verður al-
mennur söngur
Aætlunarferðir verða á Skálholt
frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11 á
sunnudaginn, og til baka aftur frá
Skálholti kl. 18.
þvi fram, að hann væri fulltrúi
einnar deildar IRA. — Við höfum
komið fyrir sprengjum — sagði
maöurinn um leið og hann skellti
á. Eftir þvi sem blaðið sagði, á
Irski lýðveldisherinn að hafa gef-
ið brezku lögreglunni markorð,
svo að lögreglan viti hvort nafn-
lausar upphringingar eru frá IRA
eða ekki. Maðurinn, sem hringdi
til Daily Mirror gaf ekki upp rétt
markorð, svo sennilegt er, að
hann sé ekki fulltrúi lýðveldis-
hersins eins og hann sagði. Það
voru 42, sem slösuðust og sumir
m jög alvarlega, en ein brezk kona
lét lifið. Sprengjan var fimm kiló
og sprakk á þeim tima, sem mest
er um ferðamenn i Tower. — Til-
ræðið ber öll merki IRA. Sprengj-
unni var komið fyrir til að dreifa
dauða og eyðileggingu — sagði
lögreglufulltrúinn Robert Hunt-
ley I Scotland Yard.
Tíminner •
peningar
| AuglýsítT
: í Timanum:
• •
•••••••••••••••••••»tf»mw
Permobel
Blöndum
bílalökk
HLOSSI!
Skipholti 35 • Simar:
8-13-50 verilun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skritstofa
Margar geröir mæla
i bifreiðir, báta
og vinnuvélar
HLOSSI^
Skipholti 35 Simar:
1-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8 13-52 skritstola