Tíminn - 21.08.1974, Page 12

Tíminn - 21.08.1974, Page 12
12 TÍMINN Miðvikudagur 21, ágúst 1974. A Frank Usher: TÆPU VAÐI Heyrðu mig/ horfir þú nokkurn tíma út á Königsplatz? — Auðvitað. Því spyrðu? — Á horninu er staðurinn þar sem hið Brúna hús Hitl- ers stóð— fæðingarstaður nasismans. Það er mjög við- eigandi staður að f lytja mig á til þess svo að senda mig aftur til Rússlands móti vilja mínum. — Ég skil þig ekki, sagði Mirsky kuldalega. — Hvernig færðu þig til aðsnúa bakinu við þinni eigin þjóð? — Ég get vist ekki skýrt það fyrir jaf n einfaldri sál og þér. Mirsky snéri sér að Praslov. — Félagi, þú getur f arið með hann. Það er búið að búa um hann í kjallaranum. 13. kapítuli. Aðrir erfiðleikar mættu Peterson en þeir, sem snertu áætlunina um frelsun Stanislovs. Það var farið að hvísla því á vissum stöðum^að K.G.B. hefði náð í Stanislov og væri í undirbúningi með að endursenda hann til ættlandsins eftir leynilegri leið. Einnig var þvi hvislað,að Peterson vissi vel um það sem fram færi. Það var nauðsyniegt að þeir Óskar skildu strax og þeir kæmu til Munchen. Óskar fékk inni í húsi nálægt Lud- wigstrasse,þar sem hann átti að hafa hægt um sig og biða eftir upphringingu frá Peterson. Hann mátti ekki undir nokkrum kringumstæðum setja sig í samband við Amöndu á Grúnvold. Óskar skildi þessar varúðarráð- stafanir, hann hvar hvorki skjótráður né óþolinmóður. Á meðan snuðraði Peterson hingað og þangað í Mlinchen. Hann hitti Lloyd Denver á Hótel Vier Jahres- zeiten, þar sem Amerikumaðurinn var að borða humar með indó-kínverskri nektardansmeyju, sem nú sýndi sig i tigrísbúri í Eva Bar. Þegar Denver kom auga á Peterson, fór sú kínverska út til að púðra á sér nef ið. Denver bað Peterson að fá sér sæti. — Nei, þakka, sagði Peterson. — Ég get náð í aðra handa þér af sömu sort. — Ég bjarga mér sjálfur. Peterson settist, treglega þó. — Er nokkuð nýtt að f rétta, Dabbi? spurði Denver. —■ Ég var að vona að þú hefðir eitthvað að segja mér. Denver rétti sleikifingurinn aðvarandi upp í loftið. — Á hverju lumar þú? — Ég heyri sagt að þú haf ir verið í Karlsthor. Peterson yppti öxlum. — Ég kem of seint, gamli vinur. — Ég hef heyrt,að Rússarnir haf i haf izt handa. — Slíkt kemur fyrir. — En þeir hafa ekki enn sent vin okkar heim til föður- landsins. — Það gera þeir eins f Ijótt og við verður komiö. — Ef þeir verða þá ekki stöðvaðir. — Þá munu þeir reyna að fá hann f ramseldan. Denver varð alvarlegur á svipinn og laut fram. — Þú veizt um áhuga okkar á þessu máli. Hvað hyggstu fyrir? — Það kemur þér ekki við, gamli vinur. — Þú reynir vonandi ekki að hafa afskipti af þessu? Þú veizt jaf nvel og ég,að það væri mun betra f yrir okkur að hann yrði hreinlega drepinn heldur en að þeir smygl- uðu honum til Moskvu og þvinguðu hann til þess að leysa frá skjóðunni. Við kærum okkur ekki um,að þeir komist að þvi,sem hann veit. — Veit ég það vel. Ef ég með nokkru móti get verið til hjálpar.... — Veiztu hvar þeir geyma hann? Peterson horfði fast á Denver og hristi höfuðið. — Auðvitað ekki. Ef svo værbmundi ég segja þér frá því svo að við gætum hjálpazt að því að f relsa hann. Oh, þarna kemur litli rekkjunauturinn þinn til baka. Það er sagt,að hún striplist í tigrísbúri á Eva Bar og að hinir ægilegu1 kettir gefi henni ekki einu sinni auga. Það er einhver siðf ræði í þessu. Ef til vill kjósa þeir að éta gest- ina? Peterson skildi hvað þeir í C.I.A. voru að fara. Þeir höfðu grun um að hann vissi lengra nef i sínu í þessu máli og vildu mjög gjarnan fá að vita um fyrirætlanir hans. Það var greinilegt.að þeir höfðu misst sjónir af K.G.B. og höfðu ekki hugboð um,hvar Stanislov var niðurkom- inn. Þeir treystu því að Peterson mundi koma þeim á sporið. Það var njósnað um hann svo hann varð að halda sig í f jarlægð frá Amöndu og Óskari og Königsplatz. En hann gat hringt þau upp áhættulaust. Denver átti auðsjáanlega von á því, að hann mundi hjálpa C.I.A. Þegar öllu var á botninn hvolft,voru Bret- arnir og Ameríkanarnir á sama báti i þessu máli og sam- vinna því eðlileg. Peterson mundi vel,hvað Denver hafði sagt— að þeir vildu heldur, að Stanisiov léti líf ið en að hann yrði færður austur til Moskvu og krafinn sagna. Peterson hafði all- góða vitneskju um,hvað Stanislov vissi, og sem að C.I.A. vildi helzt geyma sem leyndarmál. Heldur mundu þeir myrða hann á laun en að þola að hann færi lifandi austur fyrir Járntjald. Þetta var vel framkvæmanlegt ef þeir vissu bara hvar K.G.B. hefði falið þann. Hvað Ég tek aftur það er það? ) sem ég sagði, Súsi er næst-vitlausasta manny \eskjan i heiminum,./ illl! 1 7.00. Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15, 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.) 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl 8.45. Svala Valdimarsdóttir heldur áfram lestri þýðing- ar sinnar á sögunni „Malena byrjar i skóla” eftir Maritu Lindquist 12.00. Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25. Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30. Með sinu lagi. Svavar Gests kynnir lög af hljóm- plötum og talar um „lög sem orðið hafa útundan”. 14.30. Siðdegissagan: „Katrin Tómasdóttir” eftir Rósu Þorsteinsdóttur. Höfundur les (14). 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00.Fréttir. Tilkynningar. (16.15. Veðurfregnir). 16.25. Popphornið. 17.10 Undir tólf. Berglind Bjarnadóttir stjórnar óska- lagaþætti fyrir börn undir tólf ára aldri. 17.40. Það er leikur að iæra. Anna Brynjúlfsdóttir sér um þáttinn. 18.00-Tónleikar. Tilkynningar. 18.45. Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35. Landslag og leiðir. Kristján Ingólfsson náms- stjóri talar i seinna sinn um Múlaþing 20.00. Einsöngur : Maria Markan syngur lög eftir Is- lenzka höfunda. 20.20. Sumarvaka a. Þegar ég var drengur. Þórarinn Helgason frá Þykkvabæ rekur minningar sinar II. b. Villiflug. Gunnar Stefánsson les úr fyrstu ljóðabók Þórodds Guðmundssonar skálds frá Sandi. c. Flotadagurinn mikli á Mývatni. Haraldur Guðnason bókavörður i Vestmannaeyjum segir frá. d. Kórsöngur. Liljukórinn syngur íslenzk þjóðlög i út- setningu Sigfúsar Einarsso ar, Jón Ásgeirsson stjórnar. 21.30. Útvarpssagan: „Svo skal böl bæta ” eftir Oddnýju Guðmundsdóttur. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona byrjar lesturinn. 22.00.Fréttir. 22.15. Veðurfregnir. Bein lina. Umsjónarmenn: Árni Gunnarsson og Kári Jónas- son. 23.00. Djassþáttur. 1 umsjá Jóns Múla Árnasonar. 23.45 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. iBlMimiB Miðvikudagur 21. ágúst. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Nýjasta tækni og vísindi. Landbúnaður meö flugvél- Sædýrasafn I New York. Sóisjónaukl. Útvarpssjónauki. Dýragarður I San Diego. Umsjónarmaður Ornólfur Thorlacius. 21.00 Enginn vildi deyja. Litháisk biómynd með rúss- nesku tali gerð árið 1966. . Þýðandi Reynir Bjarnason. Myndin gerist við Jok heimsstyrjaldarinnar sið- ari. Litháiskir skógarmenn, sem forðuðu sér úr þjónustu Þjóðverja,er leið að lokum striðsins, gera samyrkju-' bændum lifið leitt og drepa alla þá menn i valdastöðum, sem þeir ná til. Meðal fórnarlama þeirra er nýráð- inn bústjóri, Björn að nafni, V Synir Björns koma heim til útfararinnar og ákveða að setjast þar um kyrrt og leita óbótamannanná. 22.40 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.