Tíminn - 26.09.1974, Page 15
Fimmtudagur 26. september 1974.
TÍMINN
15
(H Sinfónían
einar 6-7 hljómleikaferðir út á
land, og haustið 1975 er ákveðið
að verði farin hljómleikaferð um
Vestur- og Norðurland. Tvennir
aukatónleikar verða hér i
Reykjavik i vetur. Þeir fyrri
verða 7. des. og stjórnar þá Al-
berto Ventura frá Italiu hljóm-
sveitinni. Einsöngvari verður
Sigriður E. Magnúsdóttir.
Starfsmannafélag hljóm-
sveitarinnar heldur svonefnt
Sinfóniuball 17. nóvember og
verður þar heiðursgestur Victor
Borge, sem einnig kemur fram á
hljómleikum með hljómsveitinni
sama dag.
Áskriftargjald að 16 tónleikum
er nú 6.400 kr og 4.160 kr., en einn-
ig er seld áskrift að 8 tónleikum i
senn.
Vill að 90 manna
sinfóniuhljómsveit
ungs fólks komi
hingað i sumar
Aðalstjórnandi hljómsveitar-
innar Karsten Andersen fæddist i
Friöriksstað i Noregi. Hann
stundaði nám i fiðluleik og lék
með sinfóniuhljómsveitinni i Osló
nítján ára gamall. Fljótlega fór
hann einnig að fást við hljóm-
sveitarstjórn og er nú aðalhljóm-
sveitarstjóri „Harmonien” I
Bergen.
I vetur stjórnar hann tónleikum
i Bergen milli þess, sem hann
starfar hér. Hljómsveitir þessar
eru svipaðar að stærð, en sú I
Bergen á sér nokkru lengri sögu.
Hún var stofnuð árið 1765 á dög-
um Mozarts. — Ég tel ekki rétt að
bera hljómsveitirnar saman,
svaraði Karsten Andersen spurn-
ingunni um, hvor hljómsveitin
væri betri, — Harmonien stendur
á gömlum merg, en Sinfóniu-
hljómsveit íslands er ung. Ég hef
verið á tónleikum hér, sem hafa
tekizt eins vel ef ekki betur en
tónleikar „Harmonien”.
Karsten Andersen lét í viðtali
við Timann i ljósi ánægju yfir
nýju islenzku tónverkunum Flow-
er Show, Nýtt verk, Sinfónfa nr. 2,
nýtt verk fyrir bassafiðlu, sem
frumflutt verða á starfsárinu. —
Það er mjög mikilvægt að flutt
séu ný innlend verk, sagði hann.
Hann sagöi, að um eitt þúsund
manns kæmu að jafnaði á tón-
leika Harmonien I Bergen en
þeir eru á hverjum fimmtud.Til
samanburðar má geta þess, aö
meöalaðsókn að hálfsmánaöar-
legum tónleikum Sinfóniunnar
hér er sennilega um 700 manns.
Bergen (220.000 ibúar) er mikil
tónlistarborg svo viö komum
harla vel út úr þeim samanburði.
— Mesta áhugamál mitt er að
starfa með ungu tónlistarfólki
sagði Karsten Andersen. Á sumr-
in starfa ég við tónlistarnámskeið
I Elverum i Austurdal skammt
frá Osló og er þá mynduð þar 90
manna hljómsveit. Ég hef áhuga
á að fá þangað 15-16 unga fslenzka
tónlistarmenn næsta sumar og að
öll hljómsveitin fari siöan hingað
að námskeiöinu loknu og haldi
tónleika á ýmsum stöðum á land-
inu.
— Ég tel að áhugi á sigildri tón-
list og sinfóniuhljómleikum sé
sizt minni meðal ungs fólks en
eldri kynslóðarinnar. Skólatón-
leikar hafa mikil áhrif i þá átt að
vekja áhuga æskunnar og ég tel
þá mjög æskilega. Það er gaman
að sjá hvernig sigild tónskáld
komast i tizku hjá unga fólkinu og
hverfa siðan í skuggann fyrir öör-
um. Fyrir fáum árum var
barrokktónlist eftirlæti ungling-
anna, Bach, Hándel og aðrir. En
nú hefur rómantikin enn náð tök-
um á æskunni, og ungmenni sitja
grafkyrr og ekkert nema athyglin
undir klukkustundar löngu verki
eftir Bruckner. Mahler er lika i
tizku núna og önnur rómantisk
tónskáld.
Hondúras
allt frá matvælum til ýmiss konar
verkfæra.
Yfirvöldum í Honduras hefur
ekki tekizt hingað til að koma
þeim vörum, sem borizt hafa er-
lendis frá, til hins nauðstadda
fólks vegna ýmiss konar erfið-
leika. Þeir hafa nú fengið hjálp
við skipulagninguna frá Bret-
landi, Bandarfkjunum og Kúbu.
Alþýðusambandið:
TILGANGUR VIÐRÆÐNA
EKKI AÐ GERA SAMNING
Miðstjórn A(SÍ kom
saman til fundar i fyrra-
kvöld og þar var sam-
þykkt ályktun vegna
nýrra bráðabirgðalaga
rikisstjórnarinnar.
Ályktunin fer hér á eftir
i heild:
,,Með samþykkt miðstjórnar ASl
og formanna sérsambanda þess
hinn 31. ágúst sl. var m .a. ákveðið
að tilnefna fulltrúa til viðræðna
við rikisstjórnina, að ósk hennar.
Viðræðum þessum er nú lokið og
rfkisstjórnin hefur gefið út
„bráðabirgðalög um launajöfn-
unarbætur” o.fl. Að viðræðulok-
um og f tilefni bráðabirgðalag-
anna vill miðstjórn ASl og for-
menn sérsambanda taka fram
eftirfarandi:
1. Að tilgangur viðræðnanna var
ekki sá að gera neins konar
samninga um kaup og kjör
heldur sá að freista þess að
beita áhrifum Alþýðusam-
bandsins til þess að fyrirhuguð
löggjöf ylli sem minnstri skerð-
ingu á launakjörum verkafólks.
Bráðabirgðalögin eru þvi ein-
hliða ákvörðun rikisstjórnar-
innar, sem hún ber að fullu
ábyrgð á.
2. Að jafnframt er ljóst að afstaða
ASI og fulltrúa þess I viöræðun-
um hefur leitt til verulegra
breytinga á upphaflegum fyrir-
ætlunum ríkisstjórnarinnar
m.a. á þann veg að gildistimi
laganna hefur oröið mun
skemmri en hún hafði i huga,
að endurskoðunarákvæði verða
lögfest.ef framfræsluksotnaður
fer fram úr ákveðnu marki, að
láglaunabætur reiknast á yfir-
vinnu og að bæturnar i heild
verða meiri en ætlunin var.
Ennfremur að niðurgreiðslur
skerðast u.þ.b. helmingi minna
en hugmyndir voru uppi um.
Þá hafa i viöræðunum verið
gefnar yfirlýsingar um breyt-
ingar á lögum um fjölskyldu-
bætur og skattalögum að jafn-
gildi 1,5 til 2ja hundraöshluta i
kaupmætti.
3. Að ákvæði bráðabirgðalaganna
um framhald á frystingu verð-
lagsbóta á laun næstu 8. mán-
uði fela i sér mikla kjaraskerö-
o Hestamenn
i boði Borgarstjórnar og
KSI
Borgarstjórn Reykjavikur bauð
þingfulltrúum til hádegisverðar I
Höfða siðari þingdaginn og KSl
bauð þingfulltrúum að sjá lands-
leikinn tsland: Belgia er fram fór
sama dag.
Sæmdir Gullmerki ISI
A þinginu var þremur mönnum
afhent Gullmerki ISÍ, sem fram-
kvæmdastjórn sambandsins hafði
nokkru áður samþykkt aö sæma f
viðurkenningarskyni fyrir mikið
og gott starf að iþróttamálum.
Það voru: Guðmundur
Þórarinsson, iþróttakennari
Reykjavik, og Valtýr Snæ-
björnsson og Ingólfur Arnarson,
Vestmannaeyjum.
Næsta stjórn
1 stjórn ÍSÍ næstu 2 ár voru
kjörnir: GIsli Halldórsson,
forseti, Sveinn Björnsson vara-
forseti, Gunnlaugur J. Briem
gjaldkeri, Hannes Þ. Sigurðsson
ritari og Þorvarður Árnason, er
kom i stjórnina i staö Ólafs Jóns-
sonar, sem baðst undan endur-
kjöri.
Þingslit
í lok þingsins bauð forseti ISI
og frú Margrét kona hans þing-
fulltrúum til kvöldverðarboös að
Hótel Esju.
Við það tækifæri afhenti óskar
Ágústsson, form. HSÞ gjafir frá
héraðssamböndum utan Reykja-
vikur og Hafnarfjarðar til forseta
og framkvæmdastjóra ISl I tilefni
sextugs afmælis þeirra fyrr i
sumar. Voru gjafir þessar hátið-
arplattar þjóðhátiöanefndanna
úti á landsbyggðinni.
ingu og fyrir verkalýðsstéttina
f heild, skerðingu, sem Alþýðu-
sambandið og verkalýðsfélögin
innan þess munu berjast fyrir
að vinna upp.
4. Að með útgáfu bráðabirgðalag-
anna nú er framhaldið þeirri
skerðingu samningsréttar aðila
vinnumarkaðarins, sem hafin
var gegn mótmælum Alþýðu-
sambandsins þegar verðlags-
bætur á laun voru af teknar
timabundið fyrr á árinu og að
Alþýðusambandið mótmælir
þeirri aðferð eindregið.
5. Að áskorun Alþýðusambands-
ins frá 31. ágúst sl. til verka-
lýðsfélaganna um uppsögn
samninga miðað við 1. nóvem-
ber n.k. er að sjálfsögðu I fullu
gildi enda er það skoðun þess
að ekki komi til mála að félögin
hafi við rikjandi aðstæður
samninga bundna til vors 1976
eins og verða mundi yrði þeim
ekki sagt upp af tilefni gengis-
fellingarinnar."
fsraelar herja
á Sýrland
NTB—Tel Aviv. —Annan daginn I
röð, gerðu ísraelskar herþotur
árás á skæruliðastöövar i Liban-
on, nú aðeins nokkrum dögum áð-
ur en ár er liðið frá þvi aö Yom
Kippur-striðið hófst I fyrra-haust.
Israelski herinn var viðbúinn
öllu viðlandamæri Lfbanons til að
hindra skæruliða árásir, og einnig
á vopnahléslinunum við Sýrland,
Jórdan, og Egyptaland, til að
varna þvi að atburðirnir frá i
fyrrahaust endurtæki sig. Þá
gerðu Sýrland og Egyptaland
árás inn i Israel á Yom Kippur
daginn, sem þá var 6. september.
Eftir upplýsingum frá hernum
að dæma, eru þó litlar likur til að
nýtt strið sé i uppsiglingu, en
Israelsk yfirvöld hafa gert miklar
varúöarráðstafanir gegn hugsan-
legum skæruliða-árásum.
A miðvikudagskvöld söfnuðust
Israelar saman i samkunduhús-
um og við grátmúrinn i Jerúsa-
lem,þá var Yom Kippur-fastan að
byrja, en hún stendur i 24 tima.
Ekki er getið um að mannfall
hafi orðiö i árásum fsraela á
Libanon, né heldur hvort að flug-
vélar hafi veriö skotnar niður.
Electrolux
Frystikista
410 Itr.
Electrolux Frystlklsta TC 145
410 lítra Frystigeta
28 kg á dag. Sjálfvirkur hitastill-
ir (Termostat). Öryggisljós með
aðvörunarblikki. Hraðfrystistill-
ing. Plata með stjórntökkum.
Lás á loki. Tvær körfur. Skilrúm.
Útbúnaður, sem fjarlægir vatn
úr frystihólfinu. Segullæsing.
Fjöður, sem heldur lokinu uppi.
III.II
Bæjarmálefni
Kópavogs
Framsóknarfélögin f Kópavogi halda almennan félagsfund i
Félagsheimilinu-efri sal- þriðjudaginn 1. okt. kl. 20.30. Rætt
verður um bæjarmálefni Kópavogs. Frummælendur veröa
bæjarfulltrúarnir Magnús Bjarnfreösson og Jóhann Jónsson.
Stjórnir félaganna.
Laust starf
Lyfjaverzlun rikisins óskar að ráða skrif-
stofustúlku nú þegar eða siðar i haust.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Allar upplýsingar gefnar á skrifstofunni,
Borgartúni 7. Fyrirspurnum ekki svarað i
sima.
LYFJAVERZLUN RÍKISINS
Nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð þaö á húseign I smiðum I iandi Þor-
vaidseyrar i Austur-Eyjafjallahreppi, Rangárvallasýslu,
eign óla E. Adólfssonar sem auglýst var 145., 47. og 51. tbl.
Lögbirtingablaðsins 1974 eftir kröfu Skúla Pálssonar brl.
verður háð á eigninni sjálfri mánudaginn 30. september
n.k. kl. 15.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.
10 kýr til sölu
flestar snemmbærar
Þorleifur Þorsteinsson, Uppsölum
Borgarfirði simi um Reykholt.
S. Gunnarsson h.f.,
Melabraut 24, Hafnarfirði, simi 53343 —
53510.
Frystihús ■ Útgerðarmenn
Framleiðum roðflettivélar og varahluti i
margar gerðir fiskvinnsluvéla.
Framleiðum einnig færibönd, rúllubönd
og stigabönd úr rústfriu stáli eða áli.
Fyrirliggjandi sem stendur rústfriir aðal-
valsar i roðflettivélar, ásar, tannhjól o.fl.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Skrifstofur Veðurstqfunnar
verða lokaðar eftir hádegi i dag vegna
jarðarfarar.
Veðurstofa íslands.