Tíminn - 21.12.1974, Blaðsíða 20

Tíminn - 21.12.1974, Blaðsíða 20
Laugardagur 21. desember 1974. er peníngar Auglýsítf iTimanum GSÐI fyrirgóöan ntat $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Milljónatjón í eldsvoða ó ísafirði í gærkvðldi Flugvél, jeppabíll og dráttarvél voru meðal þess sem brann GS—isafirði — Stórbruni varó á isafiröi f gærkvöldi. Laust upp úr kiukkan tíu 1 gærkvöldi kom upp eldur i flugskýlinu á isa- fjaröarflugvelli. Þótt slökkvi- liöinu gengi greiölega aö slökkva eldinn, varö samt sem áöur milljónatjón. 1 skýlinu voru tvær flugvélar. önnur var tveggja hreyfla vél, fimm sæta, sem flugfélagiö Ernir á. Tókst aö bjarga þeirri vél lltt skemmdri. Hins vegar brunnu varahlutir i eigu félagsins og er verömæti þeirra taliö hafa veriö nokkur hundruð þúsund krónur. Þá brann tveggja sæta flugvél i eigu Hálfdáns Ingólfssonar. auk þess varö dráttarvél, jeppabill, og tækjabúnaöur ýmis eldinum aö bráö. 1 skýlinu voru geymd snjómoksturtæki, sem eru eign flugmálastjórnarinnar, en þeim tókst aö bjarga. Skýlið sjálft stendur uppi, þótt loftbitar hafi dignaö og bognað i eldinum. Eldurinn mun hafa komið upp i viögerðarskýli úr timbri, sem er inni i flugskýlinu. Þrátt fyrir erfiöar aöstæöur — þreifandi byl og hvassviðri — gekk slökkviliðinu greiölega aö slökkva eldinn meö kvoöu, og má þakka þaö snarræöi slökkvi- liösmannanna, aö ekki varö enn meira tjón. Snjóflóð fellur á fjárhús á Selstöðum í Seyðisfirði Allmargt fé týndl lífi í flóðinu, en engin meiðsli urðu á mönnum bygg6 yiö Seyöisfjörö, en mdegt 37 3 er talið aö I f]allinu fyrir ofan Sel- IH — Seyöisfiröi — FB—Reykja- fjörö. t fjárhúsunum voru um 130 fljótlega eftir aö skriðan féll náö- staði hafi verið austan kaldi, og vik. Um tiu leytiö I gærmorgun fjár. í snjóflóöinu lokaöist 9 ára ist hann út heill á húfi. þá myndast hengjur i svokölluöu féll snjóskriöa á fjárhúsin á Sel- drengur, ómar B. Kristjánsson, A fimmtudagskvöld kyngdi Halli, sem er efsta brún fjallsins. stööum noröan megin viö Seyöis- inni i fjárhúsunum meö fénu, en miklum snjó niður I logni niöri i Frh. á bls. 15 Skyldusparifé stórskert vegna vísitöluútreikninga — segir Þorvaldur Kóri Þorsteinsson, viðski vísitöluútreikningum veðdeildar Landsba Gsal—Reykjavík — 1 blaöinu i dag er á bls. 8 birt grein eftir Þor- vald Kára Þorsteinsson, viö- skiptafræöinema, sem hefur gert könnun á visitöluútreikningum skyIdusparnaöar. Nefnir Þor- valdur grein slna: Hver er til- gangur skyldusparnaöar. Er til- gangurinn aö rýra féö eöa ávaxta? Skyldusparnaður hefur verið mikiö til umræöu i ár og þá aö ptafræðinemi, sem hefur gert könnun á nkans á skyldusparnaði ungs fólks mestu vegna mistaka við útreikn- ing f járins, en eins og alkunna er, „gleymdist” aö láta sparifjáreig- endur fá fulla kaupvisitölu á sparifé sitt og höfðu allir spari- fjáreigendur, sem fengið höfðu endurgreiðslu á fénu i 6 ár, aðeins fengiðgreidda hálfa kaupvisitölu. En hvernig ávaxtast skyldu- sparnaðurinn i geymslu rikisins? Þessari spurningu leitast Þor- valdur viö að svara og niðurstaöa hans er sú, aö skyldusparnaður- inn ávaxtast alls ekki, — hann rýrni. Þorvaldur segir, að hann vilji ekki trúa þvi, að þeir alþingis- menn, sem samþykktu lög um skyldusparnað, hafi gert ráð fyrir þvi, að spariféð rýrnaði meðan þaö væri hjá rikinu. — Frekar vil ég trúa þvi, segir Þorvaldur i grein sinni, að þeirra túlkun hafi verið sú, að sparifjár- eigendur kæmu út með svipaöa krónutölu og tekin var af þeim, — miöað viö kaupmátt. 1 greininni kemur fram, aö ástæöan fyrir þvi, að spariféö rýrnar hjá Byggingasjóöi, er sú, aö útreikningar á visitölunni eru aðeins reiknaöir einu sinni á ári, — þann 1. febr. og þá er reiknuð uppbót samkvæmt kaupvisitölu á þá upphæö, sem inni var 1. febrú- ar áriö áöur. — Þaö hlýtur að vera sjálfsögö krafa, aö hver sú upphæð, sem inn er lögö, veröi bætt i hlutfalli við þá kaupvisitölu sem varþegar upphæðin var lögð inn og þá kaupvisitölu sem er þegar upp- hæöin er tekin út, segir Þorvald- ur. 1 grein hans kemur m.a. fram, að sparifé getur legið inni hjá Byggingasjóöi rikisins til ráðstöf- unar i 1 ár, 11 mánuði, og 29 daga, — þ.e. I nær tvö ár. Segist Þorvaldur vera anzi hræddur um, að einhver myndi leggja orð i belg, ef hann kæmist aö þvi, að vegna klókinda i vaxta- útreikningi gæti banki haldið innistæöum i bankabókum vaxta- lausum I allt aö tvö ár, — en út- reikningar veödeildarinnar á visitölunni væru hliðstæðir þvi. Tekur Þorvaldur raunveruleg dæmi máli sinu til stuðnings og bendir jafnframt á leiðir til að reikna út visitölu, þannig aö út- reikningar hennar rýri ekki skylduféð, — eins og þeir geri samkvæmt núverandi aöferð. SJÁ GREIN Á BLS. 8 Síðustu fréttir fró Seyðisfirði: Þriðjungur fjár bóndans fórst í snjóflóðinu Um kvöldmatarleytiö i gærkvöldi náöum viö sam- bandi við Kristján Eyjólfs- son bónda á Selstöðum viö Seyðisfjörö, þar sem snjó- flóöið féll á fjárhúsin. Ilann sagði, að búið væri að grafa alt féð út úr fjárhúsinu. NIu- tiu kindur björguðust lifandi, en 40 eru dauðar. Fjárhúsin eru algjörlega ónýt, að þvi er Kristján sagði, en hlaðan, sem stóð við fjárhúsin, hefur ekki skemmzt eins mikið, þótt þakið sé farið af henni. t hlöðunni var nokkurt hey, og bjóst Kristján við, að það væri ekkert skemmt. Kristján sagði, að Ómar sonur sinn, sem grófst i fjár- húsunum, hefði náðst út eftir hálftima. Hefði honum ekki orðið meint af, en björgunar- menn gátu talað við hann all- an timann, sem hann var innilokaður i snjóflóðinu i fjárhúsinu. Fjórlagafrumvarpið afgreitt í dag Munið Jólatrésskemmtun framsóknarfélaganna 1 Reykjavik þann 30. des. n.k. kl. 15.00. niðurstöðutölur rúmir 47 milljarðar AÞ-Reykjavik. — Niðurstöðu- tölur fjárlaga fyrir árið 1975 eru rúinir 47 milljarðar króna og er gert ráð fyrir, að greiðsluafgangur verði 145 milljónir króna. Eins og vænta mátti urðu nokkrar breytingar frá 2. um- ræðu fjárlaganna og gerði Jón Arnason, formaður fjárveit- inganefndar, grein fyrir breytingartillögum meiri hluta nefndarinnar. Mestar eru breytingarnar vegna al- mannatrygginga og raforku- mála. Atkvæðagreiðsla um fjárlagafrumvarpið fer fram I dag, og er búizt við, að þaö verði samþykkt með þeim breytingum, sem meirihluti fjárhagsnefndar hefur lagt til. Nánarsegir frá fjárlögum á þingsiöu I blaöinu á morgun.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.