Fréttablaðið - 23.01.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 23.01.2005, Blaðsíða 18
láta karlana redda stúlkunni. Þá fékk maður það sem mann vantaði.“ Og svo byrjaði hún að skrifa eftir að hafa tekið heita trú í Oxford, þegar hún forvitnaðist um afdrif skólasystur sinnar, sem söðlaði um og fór í guðfræði. „Í kirkju í Oxford upplifði ég stórkostlegan hlut þegar prestur- inn bað þá sem vildu eignast Krist í sínu hjarta að sitja eftir. Í mér, ungri leikkonu sem átti fallegasta manninn í Reykjavík, yndisleg- asta barnið og gekk vel í leikhús- inu, vantaði eitthvað og var mikið tóm, svo ég ákvað að verða eftir á kirkjubekknum. Ekkert gerðist nema hvað presturinn sagði okkur hafa gert það erfiðasta; að viður- kenna þörf okkar fyrir Guð, og nú hefði hann tekið við okkur. Ári síðar lendi ég í krísu og fannst líf- ið harla erfitt. Missti fótanna og fékk taugaáfall, en hafði þá tekið barn í fóstur. Taldi mig réttu manneskjuna þar sem ég hafði verið sett í fóstur eftir móður- missinn. Í stað þess að hjálpa barninu grét ég með því og varð aftur að móðurlausu stelpunni. Þurfti því að láta barnið frá mér og fannst ég bregðast öllu sem ég vildi vera. Ég gat ekki hugsað mér að senda hana aftur á þann stað þar sem henni hafði liðið illa. Þar sem ég stóð grátandi í stofunni mundi ég eftir Oxford. Teygði mig í Biblíuna, opnaði og þar stóð Daníel: „Frá þeirri stundu er hug- ur þinn beindist að andlegum efnum, og þú lítillækkaðir þig fyrir Guði þínum; vegna þess er ég hingað kominn.“ Ég sá ekkert merkilegt, en þarna var hann kominn. Ég lagðist róleg til hvílu og svaf sem barn til morguns. Var ekkert hissa morguninn eftir þegar barnlaus hjón hringdu og báðu um stúlkuna mína í fóstur. Guð var tekinn við. Það var ekkert sem ég réði lengur.“ Dauðamaður hringir Eftir þessa trúarreynslu hóf Guðrún leitina með hjálp séra Auðar Eir sem leiddi hana fyrstu skrefin. Ævintýrin tóku við hvert af öðru en Guðrún á óteljandi vitnisburði um mátt bænarinnar og Guð almáttugan. „Á Þorláksmessu, eftir að hafa talað um trú mína í sjónvarpssal, hringir síminn klukkan hálfeitt um nótt. Á línunni er kæfð rödd: „Þú ert Guðrún Ásmundsdóttir. Þú viðurkennir trú þína í fjölmiðl- um. Ég gef þér fimm mínútur. Talaðu! Ég ætla að fyrirfara mér. Talaðu!“ Ég fór auðvitað í baklás en bað Guð að svara þessum manni. Ræði við hann nokkra stund. Þá segir röddin, gjörbreytt: „Þá þarf ég ekkert að tala við þig.“ Ég man ekki hvað ég sagði en bað allan tímann að vísdómur Guðs talaði til hans. Þessi maður hringdi svo alltaf einu sinni á ári og við urðum bestu trúnaðarvinir þótt við sæumst aldrei. Áttum þetta leyndarmál saman. Ég veit að hann er dáinn, því hann er hættur að hringja.“ Í fótspor Ólafíu Fyrsta leikritið sem Guðrún skrif- aði var um tröllabarnið Lómu og hét „Mér er alveg sama þótt ein- hver sé að hlæja að mér“. Boð- skapurinn var kristilegur og fór fyrir brjóstið á mörgum sem sögðu guðsbarnahjal tómt vesen og leiðindi. Lóma varð síðar að bók og Guðrún skrifaði fleiri kristileg leikrit; Kaj Munk og Heilagan syndara. Nýjasta leikrit hennar fjallar um Ólafíu Jóhann- esdóttur, einstaka konu sem gaf öðrum kærleika og veitti aðstoð um aldamótin 1900. „Í átta ár kannaði ég líf Ólafíu sem var stórkostlega merkileg kona. Eftir allan þann tíma var erfitt að troða efninu í eins og hálfs tíma leikrit. Mér tókst að stytta það og hélt að stóru leikhúsin yrðu him- inlifandi að fá leikrit um þessa merku konu. Það var nú aldeilis ekki. Leikhússtjórarnir spurðu bara hvort ég héldi virkilega að kerling sem gerði góðverk í kring- um 1900 væri efni í leikrit. Ég sótti þá um styrki alls staðar; tvisvar til Reykjavíkurborgar en fékk ekki neitt. Samt vann þessi kona slík af- rek fyrir Reykjavík að ekki er hægt að lýsa því. Norðmenn hafa sýnt henni mikla vegsemd. Í Ósló er minnisvarði um Ólafíu þar sem stendur: „Vinur hinna ógæfusömu.“ Þar er líka gata nefnd eftir henni, Olafia-gade, og stór spítali, Olafia Kliniken. Ég frétti svo af afhjúpun minnisvarða um Ólafíu á Mosfelli, þar sem hún var fædd og fékk eina og hálfa milljón frá Listasjóði með frumsamið leikrit og ellefu leikara. Þetta voru leikarar í fremstu röð sem vildu hjálpa mér þrátt fyrir lítinn sem engan aurinn. Við frum- sýndum svo á Mosfelli, en það var mikill léttir að geta loks farið í Ólafíuferð á bernskuslóðir hennar, sagt sögur á leiðinni og hafa leikara sem taka við hér og þar,“ segir Guðrún og vísar til fyrirtækis þeirra Birgis, Storytrips, sem held- ur utan um menningartengda ferðaþjónustu og býður dagsferðir á slóðir Einars Benediktssonar og Ólafíu Jóhannsdóttur. Leikhús á hjólum „Við byrjuðum á slóðum Einars Ben. í Herdísarvík og í húsi hans á Eyrarbakka, þar sem við höfðum með okkur listamenn til að flytja ljóðin hans, segja sögurnar og syngja. Þessar ferðir gengu vel og urðu mikið ævintýri. Ég varð upp- veðruð af þessari reynslu því til að segja sögur þessa fólks dugar ekki einn og hálfur tími í leikhúsi, þar sem allt er svo dýrt og þungt í uppsetningu. Maður kemur í Herdísarvík og hvílík leiktjöld! Geitahlíðin, litla húsið, hafið; veggirnir tala með manni. Það er engu líkt að flytja ljóð Einars þar inni og horfa út um sama glugga og hann forðum. Reyndar er Her- dísarvík, eins og Selvogurinn, þessir afskekktu staðir í auðninni handan borgarinnar, nú í útrým- ingarhættu með tilkomu Suður- strandarvegar, en staðurinn er falin paradís. Það fer að verða síð- asta tækifærið til að koma þangað í kyrrðina og friðinn. Þetta er reyndar orðin svo mikil della hjá mér að nú vil ég færa út kvíarnar og fara norður á slóðir Jónasar og Davíðs. Þetta er nýjasta ævintýr- ið í mínu lífi; eins konar leikhús á hjólum. Framtíðin með magnaða dagskrá um merkilegt fólk í ynd- isfögru landi. Ég verð sjötug á næsta ári. Hef oft hugsað: Vildi ég verða ung aftur? En mig langar ekki til þess. Það er svo mikið stress. Maður þarf alltaf að vera að meika það. Aldrinum fylgir frelsi. Ég hef aldrei verið hamingjusamari.“ ■ SUNNUDAGUR 23. janúar 2005 17 TRÚUÐ GAMANLEIKKONA Margir sögðu Guðrúnu ekki geta verið leikkonu eftir að hún tók að leita Jesú Krists og gerðist trúuð eftir messu í Oxford. Guðrún sagðist ekki kunna annað, enda yrði hún að sjá fyrir sér eins og aðrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.