Fréttablaðið - 23.01.2005, Qupperneq 34
FUUNDIR
7
STYRKIRTILKYNNING
Bókasafnssjóður
höfunda – nýskráning
Úr Bókasafnssjóði höfunda er úthlutað
árlega til rithöfunda, þýðenda, myndhöf-
unda og annarra rétthafa, samkvæmt
útlánum verka þeirra á bókasöfnum.
Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa
höfundar og rétthafar að skrá sig á sérstökum eyðu-
blöðum sem fást hjá Bókasafnssjóði höfunda, c/o
Rithöfundasamband Íslands, Dyngjuvegi 8, 104
Reykjavík, sími: 568 3190, fax: 568 3192,
netfang: rsi@rsi.is eða á heimasíðu Bókasafnssjóðs
www.rsi.is/rsi/bokasafnssjodur_hofunda
Skráningarfrestur er til 18. febrúar
Vakin er athygli á að þeir sem nú þegar hafa skilað
skráningu þurfa EKKI að skrá sig aftur.
Ný verk verða sjálfkrafa færð á skrá höfunda.
Stjórn Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands
óskar eftir að taka á leigu húsnæði til endur-
leigu næsta sumar fyrir félagsmenn. Bæði íbúð-
arhúsnæði og sumarhús koma til greina.
Tilboð berist til skriftofu Kennarasambands
Íslands merkt „Orlofssjóður“ fyrir 1. febrúar n.k.
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands,
Laufásvegi 81
101 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Þórisdóttir í
síma 595-1122, netfang: hanna@ki.is ,
fax: 595-1112.
Orlofshúsnæði
sumarið 2005
Tilkynning
Landspítali-háskólasjúkrahús
Samkeppni um skipulag – forval
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Landspítala –
háskólasjúkrahúss, vinnur nú að undirbúningi
alþjóðlegrar samkeppni um skipulag á spítalasvæðinu.
Forval verður formlega auglýst sunnudaginn
30 . janúar þar sem leitað verður eftir teymum
sérfræðinga til að taka þátt í lokaðri samkeppni.
Stefnt er að afhendingu forvalsganga 2. febrúar 2005.
Gatnamálastofa f.h. Umhverfis-
og tæknisviðs Reykjavíkurborg-
ar auglýsir eftir umsóknum um
styrki til endurgerðar heimtraða
við íbúðarhús í Reykjavík
á árinu 2005.
Styrkirnir taka til endurgerðar heimtraða á einkalóð-
um íbúðarhúsa með áhvílandi kvöðum um umferð-
arrétt annarra og er þeim ætlað að hvetja lóðarhafa
til að ganga frá og sinna endurbótum á heimtröðum
í einkaeign
Reglur um styrki ásamt umsóknareyðublaði og
vinnureglum um forgangsröðun umsókna er hægt
að nálgast á vefsíðu Gatnamálastofu
www.gatnamal.is/heimtradir. Einnig má nálgast of-
angreind gögn á skrifstofu Gatnamálastofu að
Skúlatúni 2, 4. hæð milli kl. 08:20 og 16:15 á
virkum dögum.
Umsóknum skal skila til Gatnamálastofu Reykjavíkur
í síðasta lagi föstudaginn 25. mars nk.
Niðurstöður um styrkveitingar munu liggja fyrir innan
2 mánaða frá lokum umsóknarfrests og verða niður-
stöður tilkynntar öllum umsækjendum skriflega.
Gatnamálastofa Reykjavíkur
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219
STYRKIR ÚR
HÚSVERNDARSJÓÐI
REYKJAVÍKUR
Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir
umsóknum um styrki til viðgerða og endurgerðar
á byggingum í Reykjavík, sem hafa sérstakt
varðveislugildi af sögulegum og byggingar-
sögulegum ástæðum. Bent skal á að endurgerðir
á ytra byrði húsa til upprunalegs stíls og viðhald
húshluta sem taldir eru hafa mikið gildi til
varðveislu vegna heildarsvips svæða s.s.
klæðningar, steyptar þakrennur og garðveggir
njóta forgangs.
Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram á þar
til gerðum umsóknareyðublöðum:
1.Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
2.Tímaáætlun.
3.Kostnaðaráætlun um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir.
4.Nýjar ljósmynd af húsi og eldri, ef til eru.
Umsóknir skulu berast á Skipulags- og
byggingarsvið Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105
Reykjavík, fyrir 11. febrúar 2005.
Eyðublöð liggja frammi á Árbæjarsafni,
Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur,
Borgartúni 3 og á heimasíðu Skipulags- og
byggingarsviðs, skipbygg.is.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Listskreytingasjóður
ríkisins auglýsir eftir
umsóknum um styrki
úr sjóðnum árið 2005
Stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins auglýsir
eftir umsóknum um styrki til listskreytinga
í opinberum byggingum er falla undir lög
nr. 46/1998 um Listskreytingasjóð ríkisins.
Í 1. gr. laganna segir eftirfarandi: „Opinberar
byggingar merkja í lögum þessum allar þær
byggingar sem ríkissjóður fjármagnar að
nokkru eða öllu leyti“.
Listskreytingasjóður ríkisins veitir ekki styrki til
listaverka sem umsóknaraðili er þegar búinn
að kaupa eða ráða listamann til að vinna, án
atbeina sjóðsins, né til verkefna þar sem dóm-
nefnd hefur þegar verið skipuð. Í þessu sam-
bandi vísast til 5. gr. áðurnefndra laga þar sem
segir: „Stjórn Listskreytingasjóðs skal vera til
ráðgjafar um listskreytingu þeirra mannvirkja
sem lög þessi taka til og hvernig staðið skuli
að framkvæmdum“.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Umsóknar-
frestur er til 1. mars 2005.
Umsóknareyðublöð og allar frekari upplýsingar
varðandi lög og reglur Listskreytingasjóðs ríkis-
ins fást á skrifstofu SÍM, Hafnarstræti 16, 101
Reykjavík. s. 551 1346, netfang: sim@simnet.is
Ný heimasíða Listskreytingasjóðs ríkisins er :
www.listskreytingasjodur.is
FÉLAGSFUNDUR
Félagsfundur í Félagi járniðnaðarmanna verð-
ur haldinn kl. 19:45 þriðjudaginn 25. janúar
í Borgartúni 30.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar
2. Viðræður við Vélstjórafélafélagið
OPINN FUNDUR KL. 21:00 UM
VETNISTÆKNI OG EFNARAFALA
Hjalti P. Ingólfsson verkefnisstjóri hjá íslenskri
NýOrku fjallar um tækniþætti í nýtingu vetnis sem
orkugjafa fyrir vélbúnað og tækifæri í málm- og vél-
tæknigreinum á sviði vetnisvæðingar.
Tíu daga vetnisnámskeið
Sagt verður frá fyrirhugaðri tíu daga námsferð um
vetnistækni á þjálfunarverkstæði Ballard og Daimler
Chrysler í Suður – Þýskalandi.
Félag járniðnaðarmanna
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
Hin hliðin á bílum
Stærsti bílamarkaður landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
VILTU AÐ FYRIRTÆKIÐ ÞITT FÁI MEIRI ATHYGLI?
Hafið samband í síma 515 7500