Fréttablaðið - 23.01.2005, Page 42
SUNNUDAGUR 23. janúar 2005 21
Opið í dag sunnudag 12-16
Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518
Opið í dag sunnudag
Útsala
50%
Áður Nú
Ullarkápur 29.900 15.000
Mokkakápur 25.900 13.500
Ullarjakkar 9.900 4.900
Úlpur 12.900 5.900
Úlpakápur 22.900 11.500
Dúnúlpur 12.900 6.500
Mörg góð tilboð
Vladimir Stanovko, rússneski
læknirinn á Kárahnjúkum, segir að
heimsóknirnar hafi verið svona
margar vegna aðstæðna á staðnum,
kulda og myrkurs, og á máli hans
má skilja að verkamenn hafi ekki
bara leitað sér læknis vegna slysa
og sjúkdóma heldur hafi erlendu
verkamennirnir komið „til að
gráta“, eins og hann segir glettnis-
lega.
Starfsfólk heilbrigðisstöðvar-
innar hefur því verið í nokkurs
konar móðurhlutverki auk lækn-
inga- og hjúkrunarhlutverksins,
hlustað á menn frá Suður-Evrópu
og veitt þeim stuðning og upp-
örvun. Þetta telur Vladimir að hafi
þó lagast mikið upp á síðkastið
enda hafi fólk verið ráðið í sam-
ræmi við aðstæður.
Heilsugæsluliðið á Kárahnjúk-
um skoðar alla starfsmenn sem
koma frá löndum utan Evrópska
efnahagssvæðisins og segja lækn-
arnir að starfsmennirnir séu yfir-
leitt við góða heilsu. Athugasemdir
hafi aðeins verið gerðar tvisvar,
einu sinni hafi fundist fæðingar-
galli hjá manni og einu sinni hafi
fundist berklar. Allir geti starfað á
Kárahnjúkum nema hjartasjúkl-
ingar, lungnasjúklingar og menn
með liðasjúkdóma.
„Ég átti von á þunglyndi, kvíða
og þess háttar einkennum hjá
mönnunum,“ segir Þorsteinn, „en
það fólk fer fljótt. Mennirnir
reykja bara of mikið.“
Heilsugæslustöðin á Kára-
hnjúkum hefur sólarhringsvakt og
þangað koma menn í læknisskoðun,
fá lyf og geta fengið fyrstu hjálp ef
þörf krefur. Á nóttunni eru menn
kallaðir út eftir þörfum. Ef lyfin
eru ekki til á staðnum er sendur
lyfseðill til Egilsstaða og þaðan
fæst lyfið samdægurs.
Sautján menn starfa nú á heilsu-
gæslustöðinni. Þorsteinn Njálsson
læknir er fulltrúi Heilbrigðisstofn-
unar Austurlands og hann sinnir
yfirstjórn. Næstur honum er rúss-
neskur læknir, Vladimir Stanovko.
Til viðbótar eru svo hjúkrunar-
fræðingar, bæði íslenskir og er-
lendir, og sjúkraflutningamenn.
Bílaflotinn er ekki af lakara
taginu og sjúkrabílarnir geta tekist
á við erfiðustu aðstæður í veðri og
færð á hálendinu. ghs@frettabladid.is
Í MÓTTÖKUNNI Kristján G. Björnsson, sjúkraflutningamaður og hjúkrunarfræðingarnir í
móttökunni, Magnolia A. Creencia og Maria Kathleen O. Malong frá Filippseyjum.
Líka í móðurhlutverki
Læknisheimsóknir á Kárahnjúkum voru 7.000 tals-
ins í fyrra og er þá allt talið í þessu 1.600-1.700
manna þorpi.
KÁRAHNJÚKAR Vélaverkstæðið á
Kárahnjúkum er einstaklega
snyrtilegt, svo mjög að eftir er
tekið. Hvergi er olíubletti að sjá,
hvað þá rusl eða skít á gólfum eða
veggjum. Allur frágangur er til
fyrirmyndar, verkfærum er raðað
í röð og reglu í fallegar heima-
smíðaðar hillur eða þau hengd
upp á nagla á veggjum.
Jamal Shah frá Pakistan er
yfirmaður Vélaverkstæðisins en
hann hefur starfað hjá Impregilo
síðustu 20 árin. Hann er pakist-
anskur að uppruna, ættaður frá
borg um 100 kílómetra frá Islama-
bad og þar býr fjölskylda hans nú.
Jamal Shah hefur farið að
heiman og starfað nokkrum sinn-
um erlendis, ekki bara hjá
Impregilo heldur líka hjá öðrum
fyrirtækjum. Hann hefur próf úr
tækniskóla og fékk vinnu hjá
Impregilo strax að námi loknu.
Jamal hefur starfað á Íslandi í
eitt ár. Hann er ánægður í starf-
inu og kann vel við fyrirtækið.
„Þetta er gott fyrirtæki. Það
sér manni fyrir öllu. Við treystum
fyrirtækinu og það treystir
okkur,“ segir hann.
Jamal Shah á fimm börn og
segist tala á hverjum degi við fjöl-
skyldu sína í síma. Hann fái líka
að fara heim þegar hann vilji en
það sé langt flug og taki tvo daga,
fyrst að fljúga til London og svo
taki flugið frá London til Islama-
bad níu klukkutíma.
Heima í Pakistan segir hann að
sé gott atvinnuástand en launin
fyrir starf sitt hé r sendi hann
fjölskyldunni heima. - ghs
LÆKNARNIR Á KÁRAHNJÚKUM Þorsteinn Njálsson sinnir yfirstjórn á heilsugæslustöð-
inni og næstur honum kemur rússneski læknirinn Vladimir Stanovko, sem hefur starfað
lengi hjá Impregilo.
Vélaverkstæðið er snyrtilegt
Jamal Shah frá Pakistan stýrir einu snyrtilegasta vélaverkstæði landsins.
Verkstæðið er á Kárahnjúkum en þar er allt á sínum stað, raðað í fallegar
heimasmíðaðar hillur eða hengt á nagla og hvergi skít að sjá.
JAMAL SHAH FRÁ PAKISTAN Hann stýrir vélaverkstæði Impregilo á Kárahnjúkum sem
kannski er snyrtilegasta og fallegasta vélaverkstæði á landinu því þar er allt vel skipulagt
og hvergi olíu eða skít að sjá.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Lesandi hringdi á föstudag og
óskaði eftir leiðréttingu á um-
fjöllun Fréttablaðsins um mat-
inn á Kárahnjúkum. Hann sagði
að magnið væri rétt, 800 grömm
á mann, en maturinn óætur. Sami
rétturinn væri á borðum alla
daga. Ef svínakjöt væri súrt
væri eitthvað að. Máltíðir end-
uðu venjulega á því að matnum
væri hent og menn fengju sér
ristað brauð. Þetta gilti um fólk
af öllum þjóðernum.
Í blaðinu á föstudag var talað
um að matarkostnaðurinn á
Kárahnjúkum væri 30-35 pró-
sentum undir verðinu í öðrum
Evrópulöndum. Þetta er ekki
rétt. Hann er hærri en annars
staðar í Evrópu sem þessu
nemur. - ghs
Maturinn á Kárahnjúkum:
Er hann ætur eða óætur?
Í LÆKNISSKOÐUN Vladimir Stanovko
skoðar portúgalska verkamanninn Carlos
Rolo. Sá síðarnefndi hefur verið á Kára-
hnjúkum frá upphafi og var að veikjast í
fyrsta skipti í tvö ár enda sagðist Stanovko
ekki hafa séð hann áður. Hann var með
flensulík einkenni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA