Tíminn - 04.01.1975, Page 16
Laugardagur 4. janúar 1975'-
Timlnner
penlngar
Auglýsid
iTtmannm
SIS-FODIIR
SUNDAHÖFN
m-
ÍIUO tftti É r —
^2-
GEÐI
fyrirgóÓan maí
$ KJÖTIONAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Callaghan ræðir við Vorster
Brezki utanríkisrdðherrann segist hafa dhuga d að hitta
sendinefnd blökkumanna frd Ródesíu að mdli
Reuter-Lusaka. í sameiginlegri
fréttatilkynningu brezkra og
zamblskra ráöamanna, sem gefin
var út I gær, segir m.a., að James
Callaghan, utanrikisráöherra
Bretlands, haldi til fundar viö
John Vorster, forsætisráðherra
Suður-Afriku, til viöræöna um
vandamál Ródesiu.
Callaghan neitaði að skýra frá,
hvenær fundurinn yrði haldinn,
en fréttaskýrendur töldu, að hann
yrði i dag, þá liklega i Pretoriu
eða á búgarði Vorsters I grennd
við Port Elisabet. Fimmtán ár
eru siðan háttsettur brezkur ráð-
herra sótti Suður-Afriku heim.
:itooRNA
^ÁMILLI
NTB/Reuter-Washington. At-
vinnuleysi eykst stöðugt i
Bandarikjunum. t gær var til-
kynnt, að 7,1% vinnufærra
Bandarikjamanna hefði veriö
atvinnulaus i siðasta mánuði,
þ.e. 6,5 millj. manna.
Atvinnumálaráðuneyti
Bandarikjanna upplýsti, að
tala atvinnulausra hefði ekki
verið svo há siðan i mai árið
1961. Og efnahagssérfræðing-
ar telja, að eftirstriðsmetið
frá árinu 1958, þegar atvinnu-
leysi nam 7,4% verði eflaust
slegið fyrir árslok.
Gerald Ford Bandarikjafor-
seti hefur að undanförnu setið
á fundum með sérfræðingum
slnum. Fréttaskýrendur búast
við, að á næstunni grípi
Bandarikjastjórn til þess ráðs
að lækka tekjuskatt til að örva
viðskipti og bæta þannig efna-
hagsástandið. Sú breyting
þýddi kúvendingu I stefnu
stjórnarinnar, þar eð hún
beitti sér fyrir hækkun á
tekjuskatti há- og miðlungs-
tekjumanna I haust.
Reuter-Parls. Valery Giscard
d’Estaing Frakkiandsforseti
lét svo um mælt I gær, að Brct-
ar yrðu að likindum aðal
höfuðverkur Efnahagsbanda-
lags Evrópu i náinni framtið.
Callaghan, sem dvalizt hefur
fjóra daga I Lusáka, höfuðborg
Zamblu, og átt m.a. viðræður við
Kenneth Kaunda forseta, hélt
fund með fréttamönnum I gær,
áður en hann lagði af stað til
Botswana, sem er næsti viðkomu-
staður ráðherrans á ferðalagi
hans um sunnanverða Afríku.
Callaghan var hóflega bjartsýnn
á lausn vandamála Ródeslu, en
stjórn Ian Smiths sagði sig sem
kunnugt er úr lögum við Bretland
árið 1965. — Enn er löng leið fyrir
höndum, svaraði ráðherrann,
þegar hann var spurður um horf-
ur á ráðstefnu um stjórnskipun
Giscard d’Estaing
Forsetinn lét ummæli þessa
efnis falla á fundi með frétta-
mönnum, þar sem hann til-
kynnti heimsókn sina til
Bandarikjanna á árinu 1976.
Jafnframt lét hann þess getið,
að hann kæmi til með að
ávarpa Bandarlkjaþing á
enskri tungu. Þessi ákvörðun
Giscard d’Estaing brýtur I
bága við hefð fyrirrennara
hans á forsetastóli, sem neit-
uðu að tala ensku (þótt þeir
kynnu hana mæta vel), til að
halda uppi heiðri franskrar
tungu.
Þá upplýsti forsetinn, að
hann legði nú stund á ensku-
nám tvö kvöld i viku, til að
liðka enskukunnáttu sina fyrir
heimsóknina vestur um haf.
Reuter-Addis Ababa. Land-
stjórinn i umdæminu Begem-
der i norðvesturhorni Eþiópiu
er horfinn, eins og jörðin hefði
gleypt hann.
Landstjórinn er sagður hafa
gengiö I liö með fyrri land-
stjóra I umdæminu Tigre, sem
nú er landflótta, enda eftir-
lýstur af herforingjastjórn
þeirri, er nú fer með völd i
Eþlóptu.
Landstjórarnir eru báðir
tengdir Haile Selaisse, fyrrum
Eþíópíukeisara. Ras (þ.e. her-
togi) Mengesha Seyom, fyrr-
um landstjóri I Tigre-um-
dæmi, hefur lýst yfir stofnun
skæruliðahreyfingar til frels-
unar héraði þvi, er hann réð
yfir, en hertoginn er mjög vin-
sæll meðal ibúa i Tigre. Frétt-
ir herma nú, að Nega Tegeon,
hershöfðingi og fyrrum land-
stjóri I Begemder-umdæmi,
hafi nú gengið I lið með Men-
gesha hertoga.
Þess má geta, að bæði
Begemder og Tigre liggja að
Eritreu, en sem kunnugt er
hefur verið mjög róstusamt I
þvi héraði að undanförnu.
Areiðanlegar fréttir herma,
að foringjar skæruliða-
hreyfinganna tveggja, er berj-
ast fyrir sjálfstæði Eritreu,
hafi lofað að styðja baráttu
skæruliða Mengesha greifa,
þótt þá greini á við hertogann I
stjórnmálaskoðunum.
Ástandið i Asmara, höfuð-
borg Eritreu, er enn þrungið
spennu. Talsmaður herfor-
ingjastjórnarinnar sagði i
fyrradag, að ekki hefðu borizt
neinar fréttir frá Asmara.
Þess má geta að lokum, að
Eþiópia á aðeins aðgang að sjó
I Eritreu, þar sem hafnar-
borgirnar Massawa og Assab
eru — sú fyrrnefnda I 120 km
fjarlægð frá Asmara. A leið-
inni er fjalllendi, sem talið er
kjörinn staður fyrir skæru-
liöabaráttu.
Ródeslu með þátttöku fulítrúa
blökkumanna og hvitra manna.
Callaghan sagði, að góð sam-
búð Bretlands og Zambiu gerði
samningaumleitanir auðveldari,
en Itrekaði, að enn væru mörg
Ijón á veginum til varanlegrar
lausnar á vandamálum Ródesiu.
Aðspurður um fundinn með
Vorster, kvaðst Callaghan hafa
áhuga á að heyra viðhorf suður-
afriska forsætisráðherrans til
hugsanlegrar lausnar á vanda-
málum nágranna sinna. Hann
sagði og, að Zambíustjórn hefði
hvatt sig til að fara á fund Vorst-
ers. Hann upplýsti jafnframt, að
hann sneri aftur til Lusaka að
loknum fundinum.
Callaghan kvaðst hafa áhuga á
að hitta sendinefnd afriska þjóð-
frelsisráðsins I Ródesiu að máli,
en stjórn Smiths hefur meinað
nefndinni að halda til fundar við
brezka utanrikisráðkerrann, eins
og fram kom i Timanum i gær.
í fréttatilkynningu brezkra og
zambiskra ráðamanna segir, að
nauðsyn sé á nánari afskiptum
Breta af lausn mála I Ródesíu, en
Callaghan vék sérhjá að svara i
hverju nánari afskipti yrðu fólg-
in.
Indverskur ráðherra myrtur:
Áhrifamikill,
en umdeildur
Indira Gandhi kennir stjórnarandstöðunni
óbeint um morðið
Reuter—Nýju Delhi. LalitNarain
Mishra, járnbrautamálaráðherra
Indlands, lézt i gær af völdum
sprengjutilræðis i fyrrakvöld.
Ráðherrann var mjög umdeildur,
enda var hann einkum bendlaður
við þá spillingu, sem sögð er rikj-
andi innan indversku stjórnarinn-
ar.
Mishra hafði nýlokið við að
flytja ávarp I tilefni af opnun
nýrrar járnbrautar til bæjarins
Samastipur i Bihar-héraði þegar
sprengjan sprakk. Svo kald-
hæðnislega vill til, að ráðherrann
átti einmitt afmæli þennan dag,
að auki er hann ættaður frá
Bihar-héraði. Nltján manns til
viðbótar særðust af völdum
sprengingarinnar, þ.á.m. bróðir
Mishra, sem gegnir embætti
landbúnaðarráðherra i Bihar.
t fyrstu var talið, að meiðsli
Mishra væru minni háttar, en
nokkrum klukkustundum siðar
var tilkynnt, að hann hefði látizt.
Þá höfðu læknar árangurslaust
reynt að fjarlægja sprengjubrot,
er lent höfðu I maga ráðherrans.
Lögreglan hefur nú handtekið yfir
tuttugu manns, sökuð um aðild
að sprengjutilræðinu.
Mishra er fyrsti indverski ráð-
herrann sem ráðinn er af dögum
frá því Indland hlaut sjálfstæði.
Mahatma Gandhi, friðarhöfðing-
inn mikli og aðalsjálfstæðishetja
Indverja, féll að visu fyrir morð-
ingjahendi árið 1948, en Gandhi
gegndi aldrei ráðherraembætti.
Indira Gandhi forsætisráðherra
hefur óbeint kennt andstæðingum
indversku stjórnarinnar I Bihar
um morðið á Mishra. Hún kvað
orsök þess vera það andrúmsloft,
er stjórnarandslaðan hefði skapað
með sifelldum árásum á spillingu
innan stjórnarinnar.
Jayaprakash Narayan, leiðtogi
stjornarandstöðunnar i Bihar,
hefur visað ásökunum af þessu
tagi á bug. Hann hefur krafizt
víðtækrar rannsóknar á morðinu,
og jafnframt gefið i skyn, að ekki
hafi verið allt með felldu i sam-
bandi við sprengjutilræðið. Aðrir
stjórnarandstæðingar hafa tekið I
sama streng.
Mishra var mjög áhrifamikill I
indverskum stjórnmálum, eink-
um i Bihar. Hann er talinn hafa
stutt mjög við bakið á Kongress-
Framhald á 6. siðu.
Óánægja í
Arabaríkjum
Ummæli Kissingers um hugsanlega
valdbeitingu Bandaríkjanna
í AAiðjarðarhafslöndum vekja athygli
NTB/Reuter—Beirut. Ummæli
Henry Kissingers, sem fram
koma i viðtali við bandariska
timaritið Business Week, hafa
vakið mikla athygli. t viðtalinu
gefur bandariski utanrikisráð-
herrann i skyn. að Bandarikin
kunni að beita vopnavaldi i Mið-
jarðarhafslöndum, en aðeins I Itr-
ustu neyð.
Talsmenn rlkisstjórna Araba
neituðu yfirleitt að segja álit sitt á
ummælum Kissingers, en fyrstu
viðbrögð I Arabarlkjunum benda
til nokkurrar óánægju I garð
utanrlkisráðherrans.
Viðbrögð blaða I Arabarlkjun-
um voru fremur óljós, en þau
falla aðallega i tvo farvegi:
Ýmist leggja þau áherzlu á, að
Kissinger sé andvigur valdbeit-
ingu gegn Aröbum eða hann úti-
loki hana ekki, ef sérstaklega
standi á.
Hótanir um valdbeitingu eru
yfirleitt litnar alvarlegum augum
i Arabarikjunum og leiðtogar
nokkurra þeirra hafa lýst yfir, að
olluvinnslustöðvar og þvilik
mannvirki verði umsvifalaust
sprengd I loft upp, komi til vopna-
átaka, þar sem Arabar standi
höllum fæti.
Talsmaður Gerald Fords
Bandarikjaforseta sagði I gær, að
forsetinn teldi viðbrögð þau, er
Kissinger drap á i blaðaviðtalinu,
einkar eðlileg I neyðartilfelli.
Talsmaðurinn gat ekki svarað
þeirri spurningu, hvort utanríkis-
ráðherrann hefði borið ummælin
undir forsetann, áður en þau voru
birt.
Callaghan: Enn löng leið fyrir
höndum, unz lausn fæst á vanda-
málum Ródesiu
Blaðburðarfólk
vantar á:
Bergstaðastræti
Suðurlandsbraut
Túnin
Austurbrún
Laugarásveg
Voga
Sundlaugaveg
Kleppsveq
(frá 118)
Upplýsingar í
síma 1-23-23
Kópavogi
Blaðburðarfólk
óskast í eftirtalin
hverfi:
Digranesveg
Skálaheiði
Tunguheiði
T raðirnar
Umboðsmaður
sími 42073